Heimilistíminn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Heimilistíminn - 18.01.1979, Qupperneq 11

Heimilistíminn - 18.01.1979, Qupperneq 11
Popp-kornið ÞÆR ERU GLÆSILEGAR STÚLKURNAR t HOT Lagið The Angel In Your Arms This Morning glumdi i flestum útvarpsstöðvum i Bandarikjunum siðast liðið sumar. Eftir að lagið hafði verið sungið og gefið út á plötu með spænskum texta fór það að heyrast jafnoft i suður-ameriskum stöðvum og stöðvum fyrir spænsku- mælandi áheyrendur. Og hverjir voru það svo sem fluttu þetta vinsæla lag?^ Það var trió Hot og i því voru þrjár konur, hver með sinn litarhátt. Sumir vilja halda þvf fram, að Hot sé einhvers staöar mitt á milli ABBA og Three Degrees, en aðrir segja að stúlkurnar þrjár séu jafnvel eitthvaö ennmeira. Söngstill stúlknanna i Hot er ekki sllkur að hann hafi enn náð að afla þeim vinsælda utan Bandarikj- anna en hver veit hvað á eftir að verða i framtiðinni. Samsetning þessa triós er þrátt fyrir allt mjög alþjóöleg og blöndunin skemmtileg. Stúlkurnar erusvo ólikar I útliti og hvað skapgerö snertir að mörg blaöaviðtölin, sem höfð hafa, verið við þær, hafa endað sem algjör martröðfyrkr blaðamennina sem þau hafa tekið. Gwen Owens er svertingi og upp- runninn I Detroit.Þar hefur hún meöal annars sungið með Stevie Wonder óg Marvin Gaye. Einnig hefur Gwen komið fram með José Feliciano, svo hún þekkir nokkuð til suður-ameriska taktsins. Næst má svo nefna Juanitu Curiel sem er mexikönsk feguröardls. Hún söng eitt sinn meö suöur-amerisk- um jazz-hljómsveitum f Las Vegas áður en hún stofnaði Hot með stöllum slnum. Sú þriðja er Cathy Carson,sú hvlta I hópnum. Hún hefur minnst komiö' fram sem söngkona af þessum þremur stúlkum, enda var hún ljósmynda- fyrirsæta áöur en hún settist viö pianó- ið og fór að fá áhuga á skemmti- iðnaðinum. Fyrsta stóra plata Hot náöi strax miklum vinsældum I diskótekunum^en trióiö vill heldur láta nefna sig I sam- bandi við „rhythm & blues” en diskó- tekin, hvað sem á eftir að verða um þessar þr jár mjög svo geðslegu stúlk- ur í framtlöinni. Þfb

x

Heimilistíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.