Heimilistíminn - 18.01.1979, Page 25
Svona leit htín Louise litla
þegar mynd var tekin af'henni.
áreihanlega stækkaö mikiö og
siðan þessi mynd var tekin.
„Tilraunaglasa-
bamið”
dafnar vel
Húsið númer fjögur við
Hassell Drive i ensku hafnar-
borginni Bristol er ósköp
venjulegt hvitt raðhús. Það er
þó ekkert venjulegt við barnið
Louise Joy Brown, sem fædd-
ist fyrir hálfu ári og býr nú i
þessu húsi. Engin prinsessa
hefur nokkurn tima fengið
aðrar eins viðtökur og þessi
litla stúlka, eða vakið jafnó-
skipta athygli um allan heim,
og jafnmikið umtal. Louise er
nefnilega fyrsta „glasabarn-
ið” i heiminum.
Það var farið að skrifa æsifregnir um
Louise löngu áður en hún fæddist. Hinir
visindalegu guðfeður hennar, læknarnir
Patrick Steptoe, 65 ára gamall og Robert
Edwards, 52 ára, aðstoðuðu við tilkomu
hennar. Þeim tókst að framkvæma getn-
að i tilraunaglasi. Eggiö úr eggjastokk
móöur hennar, Lesley, sem er 31 árs göm-
ul, náði aöfrjóvgast af sæði föðurins, Gil-
berts John Brown, sem er 38 ára gamall
vörubilstjóri. Frjóvgunin átti sér stað i
tilraunaglasinuog tveimuroghálfum sól-
arhring siðar var hinu frjóvgaöa eggi
komið fyrir i legi móöurinnar. ,
Starfsbræður Steptoe ásökuðu hann um
að halda leyndum verkum sinum, og aðrir
rifust yfir þvi, að hann skyldi ekki leyfa
móðurinni að eiga barnið á venjulegan
hátt, heldur taka þaö með keisaraskurði.
Steptoe sagði, að Lesley Brown hefði ver-
iö með blóðeitrun, og þess vegna hefði
verið nauösynlegt að taka barniö með
keisaraskuröi. Sumir vildu þó halda þvi
fram, aö hann hefði beitt keisaraskuröin-
um I þágu læknavisindanna.
t kvikmynd, sem tekin var af fæöing-
unni, sýnir læknirinn mjög nákvæmlega,
að eggjaleiðarar frú Brown hafa verið
teknir íburtu, en það mun hafa verið gert
til þess að koma f veg fyrir að fólk færi að
imynda sér slðar, að ef til vill hefði getn-
aðurinn átt sér stað meö venjulegum
hætti.
En allur æsingurinn og óróinn er löngu
horfinn I húsinu viö Hasseli Drive. Stór-
vaxni maöurinn, sem lengi vel gætti húss
Browne-fjölskyldunnar til þess að sjá til
þess að enginn gæti náð I fréttir af barn-
inu, en þessar fréttir hafði Associated
Newspapers Group tryggt sér fyrir 600
þúsund dollara, er horfinn. Browne-hjónin
eru búin að kaupa sér nýjan bil og hafa
lagfærthitt og þetta Ihúsinu, sem lagfær-
ingar þurfti Tneð. Þau eru llka búin aö
kaupa sér nýtt rúm og teppi á ganginn.
Aörar breytingar hafa ekki átt sér staö.
John er aftur farinn að vinna og nú hafa
nágrannarnir meira að segja fengið aö
iita á litlu stúlkuna, sem hefur þyngzt
mikiö, siðan hún fæddist, en þá var hún
tæpar 12 merkur.
— Hún verður bara venjuleg lítil stúlka,
segir frú Brown. Og faðir hennar vill að
hún verði sem allra iikust hálfsystur sinni
Sharon, sem nú er komin á táningaaldur,
og er farin að vinna sér inn peninga meö
þviað afgreiða I matvöruverzlun skammt
frá heimilinu. — Ég vona bara, að þegar
hún veröur komin á þann aldur að þurfa
að fara i skóla, verði komin hundruö ef
ekki þúsundir barna, sem getin hafa verið
á sama hátt og hún. Liklega á foreldrun-
um eftiraðveröaað þessari ósk sinni, þar
sem boðuð hefur veriö fæöing nokkurra
tilraunaglasabarna, og ákveöiðhefur ver-
iöað opna „tilraunaglasabarnadeildir” á
sjúkrahúsum bæöi i Englandi og i Norfolk
i Virginiu I Bandarikjunum á þessu ári.
Þfb
25
t