Morgunblaðið - 31.07.2004, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2004 9
Opið virka daga frá kl. 10-18
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Lokað í dag
Góða helgi!
Plúsfer›ir • Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Ma
llorca
34.240 kr.
Sama sólin - sama fríi›
-en á ver›i fyrir flig!
á mann miðað við að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11ára, ferðist saman.
41.830 kr. á mann ef 2 ferðast saman.
Innifalið er flug, gisting í 7 nætur á Pil Lari Playa og ferðir til og frá
flugvelli erlendis.
Netverð
2., 9. og 16. september
SKÓGARSTÍGUR sem er hannaður
með þarfir fatlaðra í huga var nýlega
tekinn í notkun í Haukadalsskógi, en
þetta mun vera í fyrsta skipti hér á
landi sem skógarstígur er hannaður
frá upphafi fyrir umferð hjólastóla.
Haukadalsskógur er í eigu Skóg-
ræktar ríkisins, og er eins og nafnið
gefur til kynna í Haukadal, um 1 km
frá goshvernum Geysi.
„Ég ætla ekki að útiloka að það
séu til aðrir stígar þar sem hægt er
að komast á hjólastólum, en hugs-
unin hefur eflaust ekki verið sú frá
upphafi. Það er allstaðar verið að
opna skóga, en það er ekki endilega
verið að opna skóginn fyrir alla,“
segir Hreinn Óskarsson, skóg-
arvörður á Suðurlandi. „Þetta hent-
ar líka gömlu fólki og þeim sem eru
með barnavagna, þetta er mikið not-
að.“
Hreinn segir að stígurinn sé lagð-
ur þannig að ekki verði mikill halli,
og hann sé hafður nægilega breiður
til að tveir hjólastólar geti mæst. Í
stíginn var notað efni sem þjappast
sérstaklega vel til að hjólastólar
sökkvi síður og eigi auðveldara með
að fara upp í móti.
Stígurinn liggur í hring og er um
1.200 metrar á lengd. Síðar í sumar
er ætlunin að gera áningarstað í
skóginum út frá stígnum þar sem
fólk geti borðað nesti og grillað í
skjóli, og segir Hreinn að áning-
arstaðurinn verði einnig hannaður
með þarfir fatlaðra í huga.
Ögrun í skógarstígnum
Svanur Ingvarsson, formaður
Sjálfsbjargar á Suðurlandi, hefur
komið að verkefninu frá upphafi.
Hann er sjálfur bundinn við hjóla-
stól, og hefur að sjálfsögðu farið
talsvert um stíginn. Hann segir ekki
mikið mál að komast um í skóginum.
„Það hefur heppnast það vel, mal-
arlagið, það er orðið svo þétt að það
er vel fært á hjólastól. Þetta er um
1.200 metra stígur, og um 500 metr-
ar af honum er í smá halla, svo það
gæti reynst einhverjum erfitt. En
hinir 700 metrarnir eru auðveldir,
þeir eru því sem næst á jafnsléttu.
Malarlagið er náttúrulega alltaf
erfiðara en malbik, en við erum úti í
náttúrunni og það felst í því smá
ögrun sem er líka svo hollt, og er
eiginlega nauðsynlegt fyrir okkur.
Maður finnur það þegar maður fer
út í skóg, manni líður svo vel þar,“
segir Svanur.
Kostar þrefalt meira
Hugmyndin að leggja stíg sem
hentar fólki í hjólastól kom upp fyrir
nokkrum árum, og í samstarfi við
Sjálfsbjörgu var farið í það að út-
vega fjármagn, m.a. úr pokasjóði.
Kostnaðurinn við að leggja stíginn
er um þrefalt á við það sem hefð-
bundinn stígur hefði kostað, segir
Hreinn.
Kostnaðurinn stafar m.a. af því að
stígurinn þarf að vera breiðari, með
meira undirlagi, og það þarf að
byggja betri brýr en þurft hefði á
venjulegum stíg. Einnig þarf meira
viðhald, en stíginn þarf að þjappa á
hverju vori.
Stíga eins og þennan mætti gera
víða í íslenskum skógum að mati
Hreins, í raun á flestum stöðum þar
sem halli er ekki of mikill.
Svanur tekur undir það, og vonast
til að fleiri stígar af þessu tagi verði
lagðir í íslenskum skógum á næst-
unni til að allir geti notið útiver-
unnar.
Skógarstígur sérhannaður fyrir umferð hjólastóla
Skógurinn opnaður fyrir alla
Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir
Hópur ungmenna frá Íslandi og Belgíu átti á dögunum leið um Haukadals-
skóg og stóð stígurinn vel undir væntingum hópsins.
ÞÚSUND laxa múrinn var rofinn í
Blöndu í vikunni og í gærmorgun
voru komnir slétt þúsund fiskar á
land og veiði eftir sem áður á mjög
góðu róli og öll svæði virk. Þess
má geta að allt síðasta sumar
veiddust aðeins 504 laxar í Blöndu.
Góður gangur er enn fremur í öll-
um helstu ám í Húnavatnssýslu,
t.d. veiddust í vikunni 40 laxar á
einum morgni í Miðfjarðará.
Það er stutt í þúsundið í nokkr-
um ám og mun það nást fyrr en
seinna vegna vætunnar sem hleypt
hefur lífi í vatnsbúskapinn. Norð-
urá var t.d. komin með 953 laxa á
miðvikudagskvöld og Þverá/
Kjarará 916 laxa. Þar næst kom
Langá á mikilli siglingu með 811
laxa.
Hörkuveiði í Rangánum
Veiði hefur farið vaxandi í Rang-
ánum að undanförnu og skv. frétt-
um frá skrifstofu Lax-á hafa veiðst
að jafnaði 70 til 75 laxar á dag í
Eystri-Rangá einni saman. Góðar
tölur hafa einnig verið í Ytri-
Rangá og undir lok vikunnar voru
báðar árnar komnar með um 500
laxa á þurrt.
Mok í Veiðivötnum
Afar góð veiði hefur verið í
Veiðivötnum skv. kynningarvef
Veiðifélags Landmannaafréttar og
má af honum ráða að vel á tíunda
þúsund silungar hafi veiðst í sum-
ar, mest urriði og hafa þeir
stærstu verið 7,5, 8 og 9 punda,
þeir stærstu að vanda veiddir í
Litlasjó og Hraunvötnum. Með-
alvigtin yfir heildina er þó um 2
pund.
Þá hefur veiði verið betri en í
fyrra í vötnum sunnan Tungnaár
og sérstaklega hefur Frosta-
staðavatn verið skemmtilega gjöf-
ult, en nýlega skráð veiðitala það-
an var 812 fiskar, stærstir 4 punda
og talsvert af fallegum 2–3 punda
fiski í bland við smærri fisk. Þá
hafa Ljótipollur og Löðmund-
arvatn verið drjúg en önnur vötn
gefið minni afla sem kann að stafa
af minni sókn.
Morgunblaðið/Dagur Jónsson
Bjarni Berg glímir við vænan urriða í Ljótapolli.
Morgunblaðið/Einar Falur
Laxi landað í Blöndu fyrir skemmstu.
Blanda fyrst yfir þúsund laxa
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft-
ir vitnum að slysi á Suðurlandsbraut
við leikskólann Steinahlíð þriðjudag-
inn 27. júlí um kl. 18:25. Þar féll mað-
ur af reiðhjóli og sagði hann að lítilli
hvítri fólksbifreið hefði verið bakkað
í veg fyrir hann og ekið síðan í burtu.
Vitni að atvikinu, svo og ökumaður
nefndrar bifreiðar, eru beðin um að
hafa samband við lögregluna í
Reykjavík í síma 444 1000.
Lýst eftir
vitnum
♦♦♦
LANDSSAMBAND framsóknar-
kvenna (LFK) skorar á DV að hætta
að auglýsa líkama kvenna á niður-
lægjandi hátt. Félagið bendir á að
DV sé eina dagblaðið hér á landi sem
birtir auglýsingar af konum í kynlífs-
stellingum með tilboðum um síma-
kynlíf.
„LFK telur að konur séu allt of oft
fórnarlömb kynlífsiðnaðarins og að
sá iðnaður gefi ranga mynd af konum
í samfélaginu. Slíkt hefur mjög
óæskileg uppeldisleg áhrif á börn og
ungt fólk þar sem skilaboðin eru þau
að konur séu kynlífsleikföng,“ segir í
ályktun frá félaginu. Þá er ritstjórn-
um Morgunblaðsins og Fréttablaðs-
ins hrósað fyrir að birta ekki niður-
lægjandi auglýsingar af berbrjósta
konum í blöðum sínum.
Framsóknarkonur fagna jafnframt
herferð V-dagssamtakanna gegn
nauðgunum. „Nú þegar verslunar-
mannahelgin fer í hönd er full þörf á
umræðu í samfélaginu um að nauðg-
un er alvarlegur glæpur, en í flestum
tilfellum eru konur fórnarlömb
þeirra,“ segir í ályktun félagsins.
Skora á DV
að hætta
birtingu nið-
urlægjandi
auglýsinga