Morgunblaðið - 31.07.2004, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2004 47
www.laugarasbio.is
ÓÖH
„Tvímælalaust besta
sumarmyndin...“
SV MBL
"Afþreyingarmyndir gerast ekki
betri."“
„Geðveik mynd.
Alveg tótallí brilljant“
.ÞÞ.FBL.
Sýnd kl. 2, 4 og 6. ísl tal
Sýnd kl. 2 og 8. enskt tal
Sýnd kl. 10. B.i. 12 ára.
Sýnd með íslensku
og ensku tali.
SV.MBL
Kvikmyndir.is
Allt er vænt
sem vel er grænt.
KD. Fréttablaðið.
H.K.H.
kvikmyndir.com
DV
35 þúsund gestir
34.000 gestir á 13 dögum
„Öðruvísi og spennandi skemmtun“
SV MBL
Missið ekki af
svakalegum spennutrylli
af bestu gerð.
„Hasarinn er góður.“
ÓÖH DV
FRUMSÝNING
Sýnd kl. 2, 4 og 6. m/ísl.tali. Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 12 ára.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 16 ára.
Finnst þér þú stundum vera
umkringdur uppvakningum?
HÆTTULEGA FYNDIN RÓMANTÍSK
HRYLLINGSMYND
ATH. SÝNINGARTÍMAR GILDA EINNIG SUNNUDAG OG MÁNUDAG
Mjáumst í bíó
6. ágúst!
Kr. 500
www .regnboginn.is
Hverfisgötu 551 9000 Nýr og betri
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20.
Sýnd kl. 10.30.
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 5 og 8. B.i. 12 ára.
Missið ekki af svakalegum
spennutrylli af bestu gerð.
Sýnd kl. 5.30, 8, 10.30 B.i. 12 ára.Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.20. B.i. 16 ára.
„Öðruvísi og spennandi skemmtun“
SV MBL
35 þúsund gestir
Sjálfstætt framhald fyrri myndar
Mynd í anda Nafn Rósarinnar
með Jean Reno í fantaformi.
FRUMSÝNING
„Hasarinn er góður.“
ÓÖH DV
Magnaður spennutryllir
frá Luc Besson
ETERNAL
SUNSHINE
ATH. SÝNINGARTÍMAR GILDA EINNIG SUNNUDAG OG MÁNUDAG
Mjáumst í bíó
6. ágúst!
EWAN McGregor kom til New York
í fyrrakvöld, eftir rúmlega 32.000 km
langa för víða um heim á mótorhjóli,
ásamt besta vini sínum, Charley
Boorman. Hafa þeir félagar verið á
ferðalagi í þrjá mánuði á öflugum bif-
hjólum.
Skotinn McGregor skartaði síðu
skeggi við komuna til New York.
Hann þótti líta nokkuð ósnyrtilega út
og var þreytulegur. Þrátt fyrir það
sagðist leikarinn aldrei hafa skemmt
sér jafn vel á ævinni, og sagði ferðina
hafa verið hreint út sagt ótrúlega og
fulla af góðum minningum.
Ferð félaganna hófst í Lundúnum í
byrjun maí og lá leið þeirra í fyrstu
vítt og breitt um Evrópu. Nokkrum
sinnum mátti minnstu muna að þeir
lentu í alvarlegum slysum á ferð sinni
og einnig voru þeir ósjaldan stöðv-
aðar af landamæravörðum.
Aðspurður hvort McGregor muni
fara í aðra slíka ferð segir hann ekk-
ert slíkt hafa verið ákveðið enn, en
það sé þó víst að hann langi til að
þeysa meira um á mótorfáknum.
Skeggjaður
McGregor
Mótorhjólaferð |
32.000 km að baki
Reuters
Vinirnir Ewan McGregor og
Charley Boorman veifa til aðdá-
enda eftir komuna til New York.
LONG John Baldry er Ís-
lendingum að góðu kunnur
fyrir samstarf sitt við Stuð-
menn. Hann á sér langa
sögu í breskum blús og
blúsuðu rokki og var á sín-
um tíma samherji margra
fremstu tónlistarmanna breskrar
rokksögu.
Baldry byrjaði að syngja blús op-
inberlega á sjötta áratugnum, þá tán-
ingur að aldri, og söng meðal annars
með hljómsveitum á borð við Blues
Incorporated, sem meðal annars
hafði þá Jack Bruce og Mick Jagger
innan sinna vébanda, Blues Incorp-
orated, Cyril Davies R&B All Stars,
sem Rod Stewart söng einnig með,
Steampacket, sem Baldry stofnaði
með Rod Stewart, Julie Driscoll og
Brian Auger, Bluesology, þar sem
ungur maður, Reg Dwight, sem síðar
tók sér nafnið Elton John, steig sín
fyrstu spor.
Þó Baldry hafi ekki orðið eins mikil
stjarna og aðrir þeir sem nefndir hafa
verið var hann mjög virtur af öðrum
tónlistarmönnum og segir sitt að Bítl-
arnir fengu hann sem sérstakan gest
í sjónvarpsþátt þegar þeir voru á há-
tindi frægðarinnar.
Long John Baldry er búinn að
standa á sviði meira og minna í 47 ár
og segist hlakka til þess að halda upp
á fimmtíu ára starfsafmæli. Hann
segist ekki þreyttur á að syngja þó
hann verði stundum þreyttur á að
ferðast. „Mér finnst alltaf gaman að
koma til nýrra landa og kynnast nýju
fólki, en það er óneitanlega þreytandi
að vera sífellt í flugvélum, það er
ferðamáti sem á ekki vel við mig.“
Baldry kynntist Jakob Magn-
ússyni 1973 og Jakob lék í hljómsveit
hans á tónleikaferð um Bretland það
ár. Þeir varð vel til vina að því er
Baldry segir og hafa haldið vináttu
síðan.
Long John Baldry kemur fyrst við
sögu Stuðmanna á smáskífunni
Gjugg í borg, syngur þar eina línu í
viðlagi, sem tekið var upp 1974. Þeg-
ar kom svo að því að Stuðmenn gerðu
eigin plötu var hann einnig með því
hann söng lagið fræga „She Broke
My Heart“.
Undanfarin ár hefur Baldry búið í
Kanada, í Vancouver, en verið dug-
legur við að fara um heiminn til tón-
leikahalds. Hann er reyndar hingað
kominn í stutt frí, er annars á leið á
blúshátíð í Noregi. Hann segist hafa
langað til að staldra hér við um stund,
heilsa upp á gamla vini, og því tekið
því fegins hendi þegar Jakob Magn-
ússon bauð honum að troða upp á tón-
leikum, fyrst í Fjölskyldugarðinum í
kvöld og svo á Neistaflugi í Neskaup-
stað annað kvöld.
Baldry treður upp í kvöld einn með
órafmagnaðan blús á nýju sviði sem
KB Banki gaf garðinum, en síðan tín-
ast þeir Stuðmenn inn á sviðið og
blúsinn verður rafmagnaðri þar til
hljómsveitin tekur alfarið við og held-
ur uppi fjöri fram eftir kvöldi.
Tónlist | Blúsaður Stuðmannavinur
Long John Baldry er búinn að standa á sviði
meira og minna í 47 ár.
Morgunblaðið/Eggert
Long John í
Laugar-
dalnum
Long John Baldry og Stuðmenn í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í
kvöld. Skemmtunin hefst kl. 21.