Morgunblaðið - 07.08.2004, Qupperneq 28
28 A LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
Ódýrari bílaleigubílar
fyrir Íslendinga.
Bílar frá dkr. 1.975,- pr. viku.
Innifalið í verði; ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð.
(Afgr. gjöld á ugvöllum).
Höfum allar stærðir bíla, 5 – 7 manna
og minibus 9 manna og rútur með/án
bílstjóra.
Sendum sumarhúsaverðlista;
Dancenter sumarhús
Lalandia orlofshver ,
Danskfolkeferie orlofshver
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
Ferðaskipulagning.
Vegakort og dönsk GSM símakort.
Fjölbreyttar upplýsingar á heimasíðu;
www.fylkir.is
www.fylkir.is sími 456-3745
Bílaleigubílar
Sumarhús
DANMÖRKU
Góð gisting í Kaupmannahöfn
Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr.
fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu.
Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V.
Sími +45 33 79 67 20.
www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
STRAX í anddyrinu áttar maður
sig á því að þessi gististaður er
öðruvísi því það er eins og verið sé
að koma inn á notalegt heimili. Það
er auðséð að hótelstjórinn, hún
María Gastaldo, hefur græna fing-
ur því blómum hefur verið komið
fyrir víða og alls kyns heim-
ilisskrauti. Allt er hreint og í borð-
stofunni eru handmálaðar súlur,
myndir á veggjum og borð fallega
dúkuð.
La Parigina er hótel sem er rekið
af ítalskri fjölskyldu miðsvæðis í
bænum Lignano Sabbiadoro á Ítal-
íu. María, sem er hótelstjórinn og
húsmóðirin á staðnum, þrífur, eld-
ar, stjórnar og sér til þess að allt sé
eins og það á að vera og svo að-
stoðar dóttir hennar eftir þörfum
og starfsfólk sem hún ræður til sín
yfir sumartímann.
Gestir hennar eru aðallega Ítalir
og Þjóðverjar en hún segir að af og
til slæðist til hennar Íslendingar og
henni finnst gott að fá þá í heim-
sókn.
Hótelherbergin eru þrjátíu, þau
eru með baði en einnig leigir María
út tvær íbúðir sem rúma þá fjöl-
skyldur. Gestir hafa aðgang að sól-
hlífum á ströndinni og búnings-
aðstöðu en yfirleitt þarf fólk að
borga sérstaklega fyrir slíkt. Þá
stendur gestum til boða að vera í
fullu ítölsku fæði hjá frúnni eða
hálfu fæði og svo getur fólk einnig
valið þann möguleika að vera bara í
morgunmat eða sjá um allan mat
sjálft. María stússast sjálf í elda-
mennskunni og svo starfar mat-
reiðslumaður hjá henni líka.
Verðið er nokkuð sanngjarnt því
þetta er einnar stjörnu hótel sem
virðist í fyrstu alveg furðulegt. Hún
upplýsir hinsvegar að það sé ein-
ungis til málamynda því ef hún fái
fleiri stjörnur þurfi hún að borga
hærri gjöld og hækka verðið til
gesta sinna og það er hún ekki
áfjáð í að gera.
GISTING|Lítið hótel miðsvæðis í Lignano Sabbiadoro
Heimilislegt: Í borðstofunni ræður ríkjum María Gastaldo og lokkar fram ítalska rétti fyrir gesti sína.
Ítalskur matur hjá frúnni
Hótel La Paragina
Viale Miramare 12-14
33054 Lignano Sabbiadoro
Ítalía
Sími: 0432 785922
Fax: 0431 71 357
Í sumar kostar herbergi með fullu
fæði frá 38 evrum og upp í 52 evr-
ur á dag fyrir manninn en það
samsvarar frá 3.300 krónum upp í
4.500 krónur. Herbergi með
morgunverði kostar frá 32 evrum
og upp í 40 evrur eða frá 2.800
og upp í tæplega 3.500 krónur.
Börn fá helmingsafslátt fram að
sex ára aldri og 20% afslátt frá
sex til tíu ára aldurs.
gudbjorg@mbl.is
Morgunblaðið/GRG
SNÆFELLSNESINU eru gerð ít-
arleg skil á fjórum kortum sem
Reynir Ingibjartsson gaf út nú á
dögunum. Svæðunum er skipt nið-
ur á þremur kortum sem sýna ysta
hluta nessins, miðhlutann og svo
þann innsta, sem og einu korti er
sýnir Snæfellsnesið í heild sinni.
Akvegum, göngu- og reiðleiðum,
sem og örnefnum, eyðibýlum og
sögulegum slóðum eru meðal þess
fjölmarga sem þarna eru gerð skil,
en aftan á hverju korti er að finna
ítarlega leiðarlýsingu þar sem
drepið er á áhugaverðum áfanga-
stöðum á því svæði sem um ræðir.
Reynir hefur sjálfur gert víðreist
um Snæfellsnesið og má því segja
að vinnan við kortagerðina hafi haf-
ist fyrir um 13 árum er hann byrj-
aði að ganga um nesið. Að sögn
Reynis má víða finna villur og
rangnefni á kortum og í hand-
bókum og spannst vinnan við kort-
in út frá vilja til að leiðrétta þær
villur og varðveita gömul örnefni
og staðarnöfn. „Það má segja að
vinnan að baki kortunum jafngildi
tveggja til þriggja ára fullri vinnu,“
segir Reynir sem lagðist í ítarlega
rannsóknarvinnu til að hafa upplýs-
ingarnar á hverju korti sem ná-
kvæmastar.
Kortum fyrir hvern hluta Snæ-
fellsnessins fyrir sig er dreift
ókeypis á viðkomandi svæði, en
annars er hægt að kaupa kortin í
heildarpakka sem nefnist Snæfells-
nesið eins og það leggur sig hjá
ferðamanna- og þjónustu-
miðstöðvum á Snæfellsnesi og höf-
uðborgarsvæðinu.
KORT
Snæfellsnesið eins
og það leggur sig
Morgunblaðið/RAX
Kirkjufell: Á Snæfellsnesi