Morgunblaðið - 02.09.2004, Síða 2
FIMM lög eftir íslenska lista-
menn verða í bandarísku kvik-
myndinni Wicker Park. Myndin
er rómantísk-
ur sálfræði-
tryllir, byggð-
ur á frönsku
myndinni
L’Apparte-
ment, með
leikurunum
Josh Hartnett
(Black Hawk
Down, The
Virgin Suic-
ides), Rose Byrne (Troy) og
Diane Kruger (Troy) og verður
hún frumsýnd hér á landi 17.
september nk. Í myndinni eru
fimm lög eftir íslenska lista-
menn, tvö þeirra á rafpoppsveit-
in múm en þrjú þeirra á Jóhann
Jóhannsson og koma þau öll af
plötunni Englabörnum, sem
inniheldur lög úr samnefndu
leikriti Hávars Sigurjónssonar.
Jóhann á einnig tónlistina við
myndina Dís sem frumsýnd
verður á morgun.
Með tónlist/46
Á lög í
banda-
rískri bíó-
mynd
Jóhann
Jóhannsson
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 28
Erlent 11/12 Minningar 32/36
Höfuðborgin 16 Skák 41
Akureyri 16 Bréf 29
Suðurnes 18 Kirkjustarf 41
Landið 18 Dagbók 40/42
Neytendur 20/23 Fólk 45/49
Listir 43/44 Bíó 45/49
Umræðan 28/31 Ljósvakamiðlar 50
Forystugrein 26 Veður 51
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull-
trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
!
"
#
$
%&' (
)***
MINNINGARSAFN Halldórs Lax-
ness á Gljúfrasteini verður opnað
um helgina og í gær var unnið að því
að leggja síðustu hönd á undirbún-
ing opnunarinnar. Safnið verður
formlega opnað á laugardag klukkan
14 og verður síðan opið almenningi
daginn eftir, sunnudag, frá klukkan
10–17. Það verður einnig daglegur
afgreiðslutími safnsins í vetur en
það verður opið alla daga nema
mánudaga frá klukkan 10–17.
Morgunblaðið/Kristinn
Minningarsafn Halldórs Lax-
ness verður opnað um helgina
STJÓRN Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins
(LSR) hefur ákveðið að lækka vexti af sjóðfélaga-
lánum úr 4,83% í 4,33% og nær breytingin bæði til
nýrri og eldri lána. Við ákvörðun vaxta var tekið
mið af ávöxtunarkröfu Íbúðabréfa eins og hún var
í lok ágústmánaðar að viðbættu 60 punkta álagi.
Einnig var ákveðið að lengja hámarkslánstíma úr
þrjátíu í fjörutíu ár. Þá hefur hámarksveðsetning
sem hlutfall af verðmati eigna verið hækkuð úr
55% í 65%.
Nær öll lán bera nú 4,33% vexti
Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri LSR,
segir vexti á lánum sjóðsins hafa fylgt ávöxtunar-
kröfu á bréfum Íbúðalánsjóðs þannig að ekki sé
verið að gera neina grundvallarbreytingu á vaxta-
stefnunni. „Við teljum að þetta sé góður kostur
fyrir sjóðfélaga og ágætis ávöxtun fyrir sjóðinn.“
Haukur segir lán sjóðsins lengi hafa verið með
breytilegum vöxtum þannig að reglan hafi verið að
vaxtabreytingar hafi tekið til eldri lána. Langflest
lán sjóðsins hafi verið með 4,83% breytilega vexti
og þeir lækki nú í 4,33%. Nokkur gömul lán, sem
séu tiltölulega lítill hluti útlána, séu með föstum
vöxtum. „Þeim sem eru með slík lán verður sent
bréf og þeim boðið að breyta í breytilega vexti og
setja þá í 4,33%,“ segir Haukur.
Hægt að greiða lánin upp
án kostnaðar
Haukur segir að til þessa hafi sjóðfélagar getað
tekið lán frá fimm árum og upp í 30 ár, alveg
frjálst eftir vali hvers og eins. Þetta svigrúm verði
nú aukið í 40 ár. Um veðhlutfallið segir Haukur að
áður hafi verið miðað við 65% af fasteignamati eða
55% af verðmati fasteignasala. „Við munum áfram
miða við 65% af fasteignamatinu en nú tökum við
mið af allt að 65% af verðmati fasteignasala.“
Í tilkynningu LSR er vakin athygli á því að láns-
tími sjóðfélagalána LSR sé mjög sveigjanlegur
samanborið við marga aðra kosti sem í boði eru.
„Þeir sem þegar hafa tekið lán hjá LSR geta því
óskað eftir lengingu á greiðslutíma lána sinna og
lækkað þar með greiðslubyrði þeirra. Einnig er
ávallt heimilt að greiða lán upp að hluta eða öllu
leyti án kostnaðar. Þar sem engin almenn fjár-
hæðamörk eru á sjóðfélagalánum LSR takmark-
ast lánsfjárhæð einungis af greiðslugetu lántak-
anda og því veði sem lagt er fram til tryggingar.
Hins vegar er ekki gerð krafa um fyrsta veðrétt,“
segir í tilkynningunni.
LSR lækkar vexti og
lengir lánstíma útlána
LÖGREGLAN í Hafnarfirði fór í
gær fram á gæsluvarðhald til 15.
október yfir hálfþrítugum manni
sem hjó mann ítrekað með öxi í höf-
uðið á veitingastað í Hafnarfirði í
fyrrakvöld. Héraðsdómari tók sér
frest til klukkan 11 í dag til að kveða
upp úrskurð.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni kom maðurinn inn á veit-
ingastaðinn A. Hansen um klukkan
22.30 og vatt sér að manni sem var
staddur á annarri hæð hússins og hjó
hann í andlitið. Maðurinn höfuð-
kúpubrotnaði við árásina og fékk
slæman skurð í andlit en var þó ekki
í lífshættu. Þegar árásarmaðurinn
reiddi öxina til höggs skall hún í höf-
uð manns sem stóð fyrir aftan hann.
Sá slasaðist nokkuð og var fluttur á
slysadeild en fékk að fara heim fljót-
lega.
Árásarmaðurinn, sem hefur áður
komið við sögu lögreglu, var hand-
tekinn ásamt sambýliskonu sinni í
heimahúsi í Hafnarfirði stuttu síðar.
Sakborningarnir og vitni voru yfir-
heyrð fram á kvöld. Auk þess var
leitað í íbúð fólksins og í bílum sem
það hefur til afnota. Öxin, sem talið
er að hafi verið notuð við árásina,
fannst, en hún hafði verið falin á
heimili þeirra.
Síðdegis var maðurinn færður fyr-
ir Héraðsdóm Reykjaness en kon-
unni var sleppt í gærkvöldi.
Öxi fannst á
heimili árásar-
mannsins
Farið fram á gæsluvarðhald til 15. október
MARGUR íslenskur athafnamað-
urinn hefði án efa viljað vera í
sporum ungmennanna úr Vest-
mannaeyjum sem urðu á vegi
blaðamanns hins virta bandaríska
viðskiptadagblaðs Wall Street
Journal fyrr í þessum mánuði og
lentu fyrir vikið á forsíðu blaðsins
í gær.
Gera ekki greinarmun
á tungli og rafljósum
Forsíðugreinin er nokkuð ítar-
leg og segir af viðkynnum blaða-
manns og hóps ungmenna úr Eyj-
um sem voru í óðaönn að fanga
lundapysjur. Fyrirsögnin er á
þessa leið: „Á kvöldin fara krakk-
ar á Íslandi út að fanga lundapysj-
ur“.
Blaðamaður segir frá þeirri
hefð Eyjamanna að fanga lunda-
pysjur sem leita í ljósin úr þéttbýl-
inu í ágústmánuði. Fuglarnir geri
ekki greinarmun á tunglinu og
ljósunum í bænum og stefni þang-
að og megi finna á víð og dreif
um bæinn. Æskulýður bæjarins
hafi mann fram af manni átt þátt í
að fanga fuglinn og sleppa honum
síðan út á sjó. Með greininni er
birt ljósmynd af tveimur
barnanna, Arnari Gústafssyni og
Árnýju Ósvaldsdóttur.
Sagt er ítarlega frá viðureign
barnanna við fuglinn nótt eina í
ágústmánuði í fylgd með föður
tveggja drengja úr hópnum.
Einnig er í greininni greint
lauslega frá sögu byggðar í Vest-
mannaeyjum og minnst á Tyrkja-
ránið og eldgosið í Heimaey.
Lundapysjufang-
arar á forsíðu Wall
Street Journal
700 BOÐSGESTIR
Safnahús Þjóðminjasafnsins við
Suðurgötu var opnað í gær eftir
gagngerar endurbætur á húsinu
sem staðið hafa frá árinu 1997. Við-
staddir voru um 700 boðsgestir,
þ.á m. fjöldi erlendra gesta og þjóð-
minjaverðir Danmerkur, Svíþjóðar
og Noregs.
„Vonaði að þetta væri þyrla"
„Björgunin var engu lík. Ég velt-
ist um í sjónum og hélt í frænda
minn þegar mér varð litið upp. Fyrst
hélt ég að ég sæi fugl en svo sá ég að
þetta var þyrla. Hvað ég vonaði að
þetta væri þyrla sem væri að leita að
mér,“ sagði Kristian Maple, 17 ára
Kanadamaður, en hann komst lífs af
þegar skútan Silver sökk út af Faxa-
flóa á mánudag.
Gleypti kókaín
23 ára gamall Lithái hefur verið
úrskurðaður í einnar viku gæslu-
varðhald vegna tilraunar til að
smygla um 300 grömmum af kókaíni
til landsins. Fíkniefnin voru í um 70
pakkningum sem hann hafði gleypt.
Gíslataka í N-Ossetíu
Mikil spenna var við grunnskóla í
smábæ í rússneska sjálfsstjórn-
arlýðveldinu Norður-Ossetíu í gær
en þar hélt hópur vopnaðra Tétsena
meira en 200 manns í gíslingu.
Kröfðust ræningjarnir þess að fé-
lagar þeirra, sem nú eru í fangelsi
vegna hryðjuverka, fengju frelsi.
Hert gæsla í New York
Öryggisgæsla var hert mjög í
New York í gær vegna flokksþings
repúblikana en George W. Bush for-
seti mun taka formlega við útnefn-
ingu flokksins í dag. Arnold
Schwarzenegger var ákaft fagnað er
hann ávarpaði þingið á þriðjudags-
kvöld.