Morgunblaðið - 20.11.2004, Page 6

Morgunblaðið - 20.11.2004, Page 6
6 LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Áfengur glæpakokteill Er hægt að finna eðlilega skýringu á því að háöldruð kona finnst frosin í hel í frystigeymslu á heimili sínu? Hvaða ástæða getur legið að baki því að handrita- fræðingur finnst myrtur á skrifstofu sinni í Árnagarði? Úrval sagna úr glæpasmásagnakeppni Glæpafélagsins og Grandrokks – íslenskar glæpasögur eins og þær gerast bestar. RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í gær- morgun að leggja fram á Alþingi frumvarp um 4% lækkun tekjuskatts einstaklinga, 8% hækkun persónuaf- sláttar, afnám eignarskatts á einstak- linga og fyrirtæki og hækkun barna- bóta um 2,4 milljarða. Gert er ráð fyrir því að þessar breytingar komi til framkvæmda í áföngum á árunum 2005 til 2007. Heildaráhrif þeirra á af- komu ríkissjóðs eru metin á rúmlega 22 milljarða króna á ársgrundvelli þegar þær verða að fullu komnar til framkvæmda. Halldór Ásgrímsson forsætisráð- herra og Geir H. Haarde fjármálaráð- herra kynntu breytingarnar á blaða- mannafundi í Þjóðmenningarhúsinu í gær. Sögðu þeir að frumvarpið byggðist á stjórnarsáttmála flokk- anna. Stefnt er að því að leggja það fram á Alþingi á mánudag og gera það að lögum fyrir jól. „Gert er ráð fyrir því að breyting- arnar muni auka ráðstöfunartekjur heimilanna um 4½% að meðaltali fram til ársins 2007,“ útskýrði Hall- dór. Sagði hann einnig að aðgerðirnar fælu í sér áhrif til tekjujöfnunar m.a. vegna þess að persónuafslátturinn myndi hækka um 8% fram til ársins 2007, eins og áður sagði, samhliða lækkun tekjuskattsins um 4%. „Þetta þýðir 20% hækkun skattleysismarka á tímabilinu.“ Hækka þau úr 71.270 kr. á þessu ári í 85.836 árið 2007. Halldór sagði að efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar hefði skapað svig- rúm til skattalækkana. Tekjur sam- félagsins væru að aukast mjög mikið um þessar mundir og myndu aukast mikið á næstu árum. Með skatta- lækkununum væri „ríkið að falla frá þeirri hlutdeild sem það hefði annars fengið í þessari miklu aukningu,“ sagði hann. Tryggi hóflegar launabreytingar Halldór sagði almennt um þessar breytingar að í ljósi þess að verið væri að gera kjarasamninga um þessar mundir væri mikilvægt að stefna rík- isstjórnarinnar í efnahagsmálum lægi fyrir, svo hægt væri að taka mið af henni. „Við teljum mikilvægt að þeir sem munu semja um kaup og kjör á næstunni hafi þessar upplýsingar í hendi. Við teljum þess vegna að það sé mikilvægt fyrir þau markmið okk- ar að tryggja hér stöðugleika að þetta liggi einmitt fyrir á þessari stundu.“ Hann sagði ekki ástæðu til að ætla að skattalækkunin myndi valda þenslu. Halldór sagði ennfremur í þessu sambandi að það hefði lengi legið fyr- ir að ríkisstjórnin væri þeirrar skoð- unar að besta leiðin til að auka ráð- stöfunartekjur heimilanna á næstu árum væri í gegnum skattabreyting- ar. Þær gætu tryggt hóflegar launa- breytingar í landinu. „Það er til dæm- is alveg ljóst að ef allir myndu hafa sömu kostnaðarhækkanir af kjara- samningum og sveitarfélögin núna, vegna nýgerðra kjarasamninga við kennara – ef allir fengju það sama – gæti þjóðarbúið ekki staðið undir því. Ríkissjóður gæti ekki staðið undir því vegna þess að megnið af útgjöldum ríkisins er laun.“ Aðhald mikilvæg forsenda Halldór sagði aukinheldur að Al- þjóðagjaldeyrissjóðurinn hefði m.a. ráðlagt að meginþungi skattabreyt- inganna yrði á seinni hluta kjörtíma- bilsins. „Við höfum tekið þeim ráðum enda erum við sammála þeim,“ út- skýrði Halldór. „Við teljum að það sé rétt að þær komi til framkvæmda í lok kjörtímabilsins.“ Á fundinum kom fram að aðhalds- söm stefna í ríkisfjármálum væri mik- ilvæg forsenda þessara aðgerða. „Það þarf að vera mikið aðhald á þessu tímabili,“ sagði Geir H. Haarde fjár- málaráðherra. „Það þarf að passa upp á að öll útgjöld ríkis, sveitarfélaga og annarra fari ekki úr böndunum.“ Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar- innar segir m.a. að virðisaukaskatts- kerfið verði tekið til endurskoðunar með það í huga að bæta kjör almenn- ings. Á fundinum í gær kom fram að sú vinna væri að hefjast. „En þessar skattalækkanir sem verið er að kynna hér eru forgangsskattalækkanir, sem ríkisstjórnarflokkarnir hafa komið sér saman um; þetta eru þær breyt- ingar sem við teljum vera mikilvæg- astar,“ útskýrði Halldór. Hann sagði að ríkisstjórnin hefði fullan hug á því að lækka skatta enn frekar, en lagði þó áherslu á að engar ákvarðanir hefðu verið teknar í því sambandi. Fyrsti áfanginn um áramót Samkvæmt frumvarpinu um breyt- ingar á lögum um tekjuskatt og eign- arskatt kemur fyrsti áfangi lækkunar tekjuskatts einstaklinga til fram- kvæmda í upphafi næsta árs. Verður skatthlutfallið þá lækkað um 1 pró- sentustig, úr 25,75% í 24,75%. Jafn- framt því hækkar persónuafsláttur- inn um 3%. Þá hækka einnig viðmiðunarfjárhæðir eignarskatts og barnabóta um 3%. Annar áfangi lækkunar tekjuskatts einstaklinga kemur til framkvæmda í byrjun árs 2006. Verður skatthlutfall- ið þá aftur lækkað um 1 prósentustig, úr 24,75% í 23,75%. Jafnframt því hækkar persónuafslátturinn um 2,5%. Á sama tíma kemur til fram- kvæmda fyrri áfangi hækkunar barnabóta, sem felur í sér 25% hækk- un tekjuskerðingarmarka og ótekju- tengdra barnabóta og 10% hækkun tekjutengdra bóta. Eignarskattar einstaklinga og fyrirtækja verða felldir niður frá og með árinu 2005. Þriðji og síðasta áfangi lækkunar tekjuskattsins kemur til fram- kvæmda í upphaf árs 2007. Verður skatthlutfallið þá lækkað um 2 pró- sentustig, úr 23,75% í 21,75%. Jafn- framt því hækkar persónuafsláttur- inn um 2,25%. Á sama tíma kemur til framkvæmda síðari áfangi hækkunar barnabóta sem felur í sér 20% hækk- un tekjuskerðingarmarka og ótekju- tengdra barnabóta og 1% lækkun tekjuskerðingarhlutfalls, úr 3% í 2% með fyrsta barni, úr 7% í 6% með öðru barni og úr 9% í 8% með þriðja barni og börnum umfram það. Tekjuskattur lækkar um 4% og persónuafsláttur hækkar um 8% Barnabætur hækka um 2,4 milljarða og eignarskattur verður afnuminn Morgunblaðið/Kristinn Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og Geir H. Haarde fjármálaráðherra kynntu breytingar á lögum um tekju- og eignarskatt á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu í gær. HALLDÓR Halldórs- son, bæjarstjóri Ísa- fjarðar, sem sæti á í tekjustofnanefnd, segir það algert lykilatriði að niðurstaða liggi fyrir í viðræðum við ríki um leiðréttingu á tekju- stofnum sveitarfélag- anna, áður en kosið verði um frekari sam- einingu sveitarfélaga í apríl á næsta ári. Hann og aðrir fulltrúar sveit- arfélaga í nefndinni gerðu stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga grein fyrir stöðu við- ræðna í gær. „Ég á frekar von á því að okkur verði falið að vinna áfram að málinu, en að því gefnu að afstaða ríkisins breytist. Annar er ekki grundvöllur fyrir frekari viðræðum,“ sagði Hall- dór eftir fundinn. Þórður Skúlason, framkvæmdastjóri Samband ís- lenskra sveitarfélaga, vildi ekki tjá sig um efni fundarins en sagði að annar fundur hefði verið boðaður á miðvikudag. Næsti fundur í tekju- stofnanefnd hefur einnig verið boð- aður á miðvikudag. „Við höfum litið svo á að það þurfi að liggja eitthvað fyrir aukalandsþing sveit- arfélaga sem er 26. nóvember,“ sagði Halldór og að hann muni gera grein fyrir störfum nefndarinnar á þinginu. Yfir 40 dæmi þar sem hallað er á sveitarfélögin Á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna 1. nóvember sagði Hall- dór að ef ekki fengjust svör frá fulltrúum ríkisins ætti að slíta við- ræðum. Spurður um þetta segir hann að það sé stjórnar sambands- ins að taka ákvörðun um það. Tekjustofnanefnd kom fyrst sam- an í desember fyrir tæplega ári. Í henni sitja fulltrúar ríkisins og sveitarfélaga og er nefndinni ætlað að ná samkomulagi um tillögur að breytingum á tekjustofnum sveitar- félaga. Halldór segir að sveitar- félögin þurfi „nokkra“ milljarða til að standa straum af verkefnum sem hafi verið færð til þeirra án sam- komulags við ríkið og til að bæta fyrir breytingar á lögum um einka- hlutafélög sem hafi valdið því að sveitarfélög fái nú um 1,2 milljarða lægri tekjur en áður. „Við erum ekkert að ræða um grunnskólann eða slík verkefni sem voru færð yfir með samningum. Við erum að ræða allt hitt sem hefur verið laumað yfir til okkar með breytingum á lögum og reglugerðum og EES-tilskipun- um svo eitthvað sé nefnt,“ segir hann. Halldór kveðst hafa yfir 40 dæmi um að hallað hafi verið á sveitar- félögin. Nefnir hann m.a. að ríkið hafi einhliða ákveðið að minnka framlag sitt til refa- og minkaveiða úr 50% í 30%. Þá hafi ríkið áður borgað 60% af húsaleigubótum og sveitarfélögin 40% en nú sé hlut- fallið öfugt. Hækkun lögræðisaldurs hafi einnig haft aukinn kostnað í för með sér fyrir sveitarfélögin. Hall- dór segir að annaðhvort þurfi að færa þessar tekjur til sveitarfélag- anna eða gera einhverjar ráðstaf- anir til að draga úr útgjaldaaukn- ingunni. Þungt hljóð í bæjarstjóra Ísafjarðar um viðræður í tekjustofnanefnd Sameining sveitarfélaga veltur á niðurstöðunni Halldór Halldórsson VALGARÐ Jónsson Ólafsson, fv. framkvæmdastjóri Sölusambands ís- lenskra fiskframleiðenda, SÍF, and- aðist á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn 17. nóvember, 85 ára að aldri. Valgarð fæddist á Patreksfirði 24. september árið 1919. Foreldrar hans voru Jón Ágúst Ólafsson, kaupmað- ur á Patreksfirði, og Anna Erlends- dóttir Ólafsson húsmóðir. Valgarð varð stúdent frá Mennta- skólanum á Akureyri árið 1940 og lauk viðskiptafræðiprófi frá Háskóla Íslands þremur árum síðar. Árið 1946 lauk hann BA-prófi í þjóðhag- fræði frá háskólanum í Manchester. Valgarð var fulltrúi hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna 1946–1947, skrif- stofustjóri hjá samninganefnd utan- ríkisviðskipta 1947–1948, fulltrúi í sjávarafurðadeild SÍS til 1953 og frá þeim tíma til 1957 starfaði hann í New York sem framkvæmdastjóri Iceland Products Inc. Við heimkomu 1957 gerðist hann framkvæmda- stjóri sjávarafurðadeildar SÍS og var þar næstu sjö árin. Á árunum 1964– 1969 rak Valgarð eigið útflutnings- fyrirtæki, Mjöl og lýsi, en var síðan ráðinn framkvæmdastjóri SÍF. Því starfi gegndi hann óslitið til ársins 1985, að hann hætti sökum aldurs. Eftirlifandi eiginkona Valgarðs er Sif Þórz Þórðardóttir danskennari. Þau eignuðust fimm börn og eru fjögur á lífi. Barnabörnin eru níu og barnabarnabörnin sömuleiðis níu talsins. Útför Valgarðs fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 26. nóv- ember næstkomandi. Andlát VALGARÐ J. ÓLAFS- SON RÁÐSTÖFUNARTEKJUR einstæðs foreldris með eitt barn undir sjö ára aldri og 125 þúsund kr. tekjur á mánuði hækka um 12.500 kr. á mánuði, vegna skattabreytinganna, skv. útreikningum fjármálaráðuneytisins. Skattabreytingarnar verða að fullu komnar til framkvæmda árið 2007. Ráðstöfunartekjur hjóna með tvö börn, annað yngra en sjö ára, og með samtals 300 þúsund kr. tekjur á mánuði hækka um 23.500 kr. á mánuði, skv. öðru dæmi fjármálaráðuneytisins. Dæmi um áhrif breytinganna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.