Morgunblaðið - 20.11.2004, Síða 52

Morgunblaðið - 20.11.2004, Síða 52
52 LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík 17.–25. nóvember Reykjavik International Film Festival www.filmfest.is Háskólabíó kl. 22:00 Regnboginn: 14:00 Stjórnstöðin • Mila frá Mars 16:00 Stjórnstöðin 16:00 Baunir kl. hálf sex 18:00 Í þessu máli... 19:00 Lifandi í Limbói Háskólabíó: 15:00 Við gluggann hennar 17:30 Undir stjörnuhimni (frums.) 20:00 Jargo 22:00 Heimsins tregafyllsta tónlist Laugardaginn 20. nóvember Heimsins tregafyllsta tónlist á sér stað í eilítið annarlegri útgáfu af borginni Winnipeg árið 1933. Kreppan er í algleymingi og ákveður bjórverksmiðjueigandinn Lady Port-Huntly (Isabella Rossellini) að efna til alþjóðlegrar keppni um heimsins tregafyllstu tónlist. Myndin vann m.a. til þriggja Genie- verðlauna af fjórum tilnefningum og hefur verið sýnd á kvikmynda- hátíðum víða um heim. FÖNKSVEITIN funheita Jagúar hefur vakið athygli fyrir stuðvæna tón- leika og einkar snyrtilegan klæð- burð hin síðustu ár. Plötur hefur hún gefið út tvær og kom sú þriðja út í dag og nefnist hún Hello Somebody og kemur út á vegum Smekk- leysu. Mun sveitin fagna útgáfunni í kvöld með tónleikum á NASA auk þess að troða upp í nýju Smekkleysuversluninni í dag klukkan 15.00 (Kjörgarði, Laugavegi 59) og einnig kemur sveitin fram í þætti Gísla Marteins í kvöld í Sjónvarpinu. Samúel J. Samúelsson, básúnuleikari og nú söngvari, segir plötuna hafa verið um tvö ár í smíðum. „Í lok júlí ákváðum svo að kýla á að klára þetta,“ segir hann. „Við ákváðum í fyrsta skipti að fá utanaðkomandi upptökustjórnanda til liðs við okkur og vorum lengi búnir að hafa auga á Al nokkrum Stone sem hefur unnið mikið með Jamiroquai. Hann samþykkti að vinna með okkur og kom hingað til lands og vann með okk- ur tvö lög. Þessi ráðstöfun var mjög holl því að hún olli því svo að við sáum að okkur langaði mest til að gera þetta sjálfir og þannig unnum við restina af plötunni.“ Það var Daði Birgisson, Jagúarmaður, sem hafði yfirumsjón með upptökunum sem fóru fram í Stúdói Silence sem er í eigu Daða og bróður hans Barkar sem leikur á rafgítar í sveitinni. Samúel segir að helstu áherslubreyt- ingarnar hjá sveitinni séu að allt sé nú sungið og sér Samúel, Sammi, sjálfur um þann þátt. „Svo notum við líka strengi í nokkrum lögum. Sara Guðmundsdóttir syngur líka bakraddir og Óskar Guðjónsson þeytir lúðurinn sinn.“ Sammi segist feginn að vera kominn með þetta í hendurnar þar sem fólk erlendis, en Jagúar hefur gert talsvert af því að spila þar undanfarið, spyr oft um plötu. „Þá finnst mér einkennilegt að vera að af- henda þeim gömlu plöturnar okkar þar sem það er enginn söngur þar. Við ætlum að kynna plöt- una rækilega hér heima og eftir áramót verður svo haldið utan í víking.“ Þess má geta að einnig er komin út platan Dansaðu fíflið þitt, dansaðu! þar sem Jagúar, í stórsveitarformi, leikur lög eftir Tómas R. Ein- arsson. Það var Samúel sem sá um að útsetja lögin og setti hann þau í „föt að mínum smekk“ eins og hann orðar það. Platan sú var hljóðrituð á NASA í sumar, á tónleikum sem fram fóru á vegum Listahátíðar. Tónleikar | Jagúar kynnir nýja plötu Útgáfutónleikarnir hefjast klukkan 22.00. Spilabandið Runólfur hitar upp. Miðaverð er 1.500 krónur. www.smekkleysa.is arnart@mbl.is Sendiherrar fönksins á Íslandi: Jagúar gefur nú út sína þriðju breiðkífu. Morgunblaðið/Golli Fönk eða ekkert Í TILEFNI af útgáfu nýjustu plötu Quarashi, Guerilla Disco, gangast mbl.is, rokk.is og Quarashi fyrir samkeppni um bestu endur- hljóðblöndun lags af plötunni. Hægt er að sækja raddrásir þriggja laga af Guerilla Disco; „Stun Gun“, „Stars“ og „Payback“, á mbl.is og síðan get- ur sá sem sækir notað raddrásirnar sem hráefni í endurgerð laganna eft- ir eigin höfði. Þær endurgerðir laganna sem berast verða síðan aðgengilegar á mbl.is og rokk.is og gestir á vefina geta hlustað á þær og síðan kosið um besta lagið. Höfundur þess lags sem fær flest atkvæði fær fyrir 24 tíma í Stúdíó Sýrlandi. Meðlimir Quarashi velja svo það lag sem þeim þykir best heppnað og höfundur þess fær í verðlaun Pro Tools búnað frá Hljóð- færahúsinu. Allir sem greiða lögunum atkvæði komast í pott sem dregið verður úr að lokinni atkvæðagreiðslu og fá tíu heppnir Quarashi-bol og nýja disk- inn, Guerilla Disco. Getur þú endurhljóðblandað lag með Quarashi? Endurgerðu Quarashi- lög www.mbl.is/folk Tónlist | Sam- keppni á mbl.is ILLRÆMT Íraksstríðið hefur sett ömurlegt mark á fréttatíma síðustu misserin og verið yrk- isefni heimildarmyndagerðarmanna með Mich- ael Moore í broddi fylkingar. Nú gefst kostur á að sjá Stjórnstöðina, sem er sláandi einbeitt og trúverðug og á ekkert skylt við loddarabrögð Moores. Sá sem gerir Stjórnstöðina er Jehane Noujaim, ungur, bandarískur kvikmyndagerð- armaður af egypskum ættum. Maður skyldi ætla að hún sé vel til þess fallin að vega og meta atburðarásina, þennan banvæna árekstur tveggja, gjörólíkra menningarheima. Við upphaf stríðsins er Noujaim stödd í að- alstöðvum arabísku fréttastofunnar Al-Jazeera, sem er fyrrum útibú BBC að grunni til og ber höfuð og herðar yfir aðrar slíkar í Mið- Austurlöndum. Noujaim fylgist með upphafi stríðsins við hlið fréttastjórans Sameer Khader og á vettvangi í fylgd með fréttamanninum Hassan Ibrahim. Umtalsverður hluti Stjórn- stöðvarinnar fer fram í höfuðstöðvum fjölmiðla innrásarherjanna í Qatar, þar sem blaða- fulltrúinn Josh Rushing, liðsforingi í bandaríska landhernum, er hin opinbera málpípa hern- aðarbandalagsins. Þessir þrír, ólíku ein- staklingar, Khader, Ibrahim og Rushing eru e.k. aðalpersónur í nærmynd af viðkvæmum fréttaflutningi í atburðarásinni miðri. Arabarn- ir, sem virðast einlægir og heiðarlegir báðir tveir, eru mótfallnir innrásinni sem Rushing er launaður fyrir að verja. Ekki lýgur tökuvél Noujaim og engin ástæða til að ætla annað en hér sé skilmerkilega greint frá atburðum og við okkur blasir „hlutleysi“ fréttamynda, það er fróðleg sjón og minnisstæð. Það er meira en lítið forvitnilegt að sjá hve ólíkum augum fréttaefnið er meðhöndlað fyrir notendur Al-Jazeera í arabaheiminum ann- arsvegar og vinnubrögð vestrænu fréttastöðv- anna hinsvegar. Svo er að sjá sem Bandaríkja- menn fái einsleitari mynd af atburðunum þar sem lofsunginn er framgangur þeirra manna gegn illmenninu Saddam Hussein en Al-Jazeera dregur vitaskuld taum sína kynþáttar (að Kúrd- um og öðrum óæskilegum þjóðarbrotum og trúarhópum undanskildum). Þeir sýna grátandi börn, niðurbrotnar mæður og æstan múg, fullan haturs á innrásarmönnum. Fréttaflutningur Al- Jazeera fer ákaflega fyrir brjóstið á Donald Rumsfeld, sem mótmælir honum sem hverjum öðrum óþverra áróðri. Við Íslendingar höfum greinilega fengið betri yfirsýn frá báðum aðilum frá okkar fréttastofum og er alveg ljóst að við búum við enn eina „hlutleysisstefnuna“. Dæmigert fyrir hin mýmörgu og uppfræð- andi atriði í Stjórnstöðinni er sýn Al-Jazeera manna á einn táknrænasta atburðinn í þessu óþverrastríði; er landsmenn brjóta niður risa- vaxna styttu af harðstjóranum Saddam Huss- ein. Khader lítur á atburðinn sem niðurlægingu fyrir hinn arabíska heim sviðsettan af innrás- arherjunum á meðan við okkur Vesturlandabú- um, blasir við hetjudáð. Þess ber að geta að myndin var gerð áður en stríðið tók að dragast á langinn og upp komst um atburðina í Abu Ghra- ib-fangelsinu og fleiri ámóta ljót mál. Öðru fremur undirstrikar Stjórnstöðin og upplýsir það hyldýpi sem er á milli hinna stríð- andi aðila og kristallast í gjörólíkum fréttaflutn- ingi stöðvanna af sömu atburðunum. Blaða- fulltrúinn Rushing kemst að merg málsins er hann segir eitthvað á þessa leið: „Það þjónar Al- Jazeera að höfða til arabískrar þjóðrækni líkt og það hentar Fox að spila á bandaríska föð- urlandsást í nákvæmlega sama tilgangi – hitta í mark hjá áhorfendunum. Málið sem brennur á minni kynslóð er að hinn vestræni heimur og arabaheimurinn reyni að skilja hvor annan því þeir eru að rekast á af fullum krafti.“ Íraksstríðið frá forvitnilegu sjónarhorni KVIKMYNDIR Regnboginn – Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík Heimildamynd. Leikstjóri: Jehane Noujaim. Viðmæl- endur: Sameer Khader, Lt. Josh Rushing, Tom Mint- ier, Hassan Ibrahim, David Shuster, Deema Khatib. 84 mínútur. Bandaríkin. 2004. Stjórnstöð (Control Room)  Sæbjörn Valdimarsson ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.