Morgunblaðið - 25.11.2004, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.11.2004, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR tækja og brýnast er talið að slíta tengsl milli Landsvirkjunar og Orku- veitu Reykjavíkur. Hópurinn var settur á laggirnar í tilefni nýrra raforkulaga og var falið að skoða hvernig mætti best hrinda úr vör markaðsvæðingu raforku- kerfisins á Íslandi. Tilskipun ESB um sameiginlegan innri markað raf- orku mælir fyrir um innleiðingu samkepppni í áföngum. Ísland hefur með nýjum raforkulögum frá 1. júlí 2003 innleitt þessa tilskipun og nú þegar hefur verið innleidd sam- keppni um stórnotendur, þá sem nota meira en 100 gígavattstundir á ári. Frá og með 1. janúar 2005 geta þeir sem eru aflmældir og nota meira afl en 100 kílóvött valið sér orkusala og frá ársbyrjun 2007 verður öllum EÐLILEGT er að hið opinbera dragi sig úr rekstri raforkukerfisins og sé ekki í samkeppni við einkaaðila á þeim markaði. Með aðkomu hins opinbera er samkeppnisstaðan skekkt og einkaaðilar þar með lattir til þátttöku. Takist vel til með mark- aðsvæðinguna hér á landi stuðlar hún að ávinningi fyrir þjóðfélagið í heild sinni en þar með er ekki sjálf- gefið að allir hópar orkunotenda njóti ávinningsins í sama mæli. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu Verslunarráðs Íslands um markaðsvæðingu raf- orkukerfisins, sem kynnt verður á fundi í dag. Í skýrslunni er m.a. lagt til að orkufyrirtækin verði hluta- félagavædd og þau skráð á markað. Rjúfa þurfi eignatengsl milli fyrir- Í skýrslunni segir að raforkuiðn- aðurinn hér á landi hafi náð árangri. Möguleikar til ávinnings af markaðs- væðingunni kunni hins vegar að vera eitthvað takmarkaðri hér en þeir hafa verið sums staðar annars staðar við upphaf markaðsvæðingar. „Hins vegar eru litlar líkur á öðru en að með markvissum framhaldsaðgerð- um stjórnvalda verði hægt að njóta ávaxta af aukinni samkeppni og að- komu einkaaðila að markaðnum. Eðli raforkugeirans er þó þannig að ávaxtanna er fyrst og fremst að vænta þegar til lengri tíma er litið.“ Bandaríkjunum. Engu að síður sé mikilvægt að hafa í huga að flutn- ingskerfið hérlendis sé víða veikt og í því séu flöskuhálsar sem mjög dýrt geti orðið að fjarlægja. Á meginlandi Evrópu hafi flöskuhálsar í flutnings- kerfum dregið úr ávinningi af mark- aðsvæðingu raforkukerfisins. Þá sé vert að hafa í huga að flutningskostn- aður sé hærri hér á landi en víðast erlendis, sem skýrist af stærð lands- ins og fámenni. Kostnaður við flutn- ing og dreifingu sé nú um 50–60% af orkureikningi landsmanna en um sé að ræða kostnað sem verði í einka- leyfisstarfsemi undir verðlagseftir- liti Orkustofnunar. Telur orkuhópur- inn að einhver kostnaðarauki sé líklegur við markaðsvæðinguna, að- allega vegna mælinga og uppgjörs. raforkunotendum heimilt að gera slíkt hið sama. Starfshópur Verslunarráðs var skipaður Páli Harðarsyni frá Kaup- höll Íslands, sem var formaður, Ei- ríki Briem, Rarik, Jóni Ingimars- syni, Íslandsbanka, Júlíusi Jónssyni, Hitaveitu Suðurnesja, Ragnari Guð- mundssyni, Norðuráli, og Stefáni Péturssyni frá Landsvirkjun. Með hópnum störfuðu einnig Þór Sigfús- son, framkvæmdastjóri Verslunar- ráðs, og Sigríður Á. Andersen, lög- fræðingur hjá ráðinu. Flutningskerfið veikt Hópurinn telur enga ástæðu til þess að fyrra bragði að reikna með svipuðum vandamálum hér á landi og upp hafa komið í raforkumálum í Skýrsla Verslunarráðs um markaðsvæðingu raforkukerfisins verður kynnt í dag Eðlilegt að hið opinbera dragi sig úr rekstri í orkugeiranum Morgunblaðið/Golli FORSVARSMENN Kaupfélags Skagfirðinga (KS) ákváðu í fyrradag að selja tæplega 35% stofnfjárhlut í eigu fyrirtækja KS í Sparisjóði Hóla- hrepps. Kaupendurnir voru stjórn- endur KS, eiginkonur þeirra ásamt Sparisjóði Ólafsfjarðar og Sparisjóði Mýrasýslu, sem keyptu 5% hvor. Þannig var komið í veg fyrir að eign- arhlutur KS og tengdra aðila jafngilti aðeins 5% atkvæða á fundi stofnfjár- eigenda í gær, eins og lög um fjár- málafyrirtæki segja til um. Gömlu stofnfjáreigendurnir eru mjög ósátt- ir við framgöngu stjórnenda KS í þessu máli. Fundurinn í gær var haldinn á Sauðárkróki. Samþykkt var að breyta nafni Sparisjóðs Hólahrepps í Sparisjóð Skagafjarðar og auka stofnfé úr 22 milljónum króna í 88 milljónir. Jafnframt var kosin ný stjórn þar sem gömlu stofnfjáreig- endurnir náðu einum manni inn í fimm manna stjórn. Valgeir Bjarnason, sem átti sæti í stjórninni fyrir gömlu stofnfjáreig- endurna, segir framgöngu kaup- félagsmanna vera siðlausa. Hans fólk sé að láta lögfræðing athuga hvort þessar aðferðir standist lög. Nú sé ljóst að fulltrúar KS hafi kastað gömlu stofnfjáreigendunum út og yf- irtekið sparisjóðinn. Þetta sé sam- bærilegt því þegar KB banki ætlaði að taka SPRON yfir nema nú spili Samband íslenskra sparisjóða með þeim sem taki sparisjóðinn yfir. Kaupfélag Skagfirðinga reki alla þjónustu á Sauðárkróki og nú hafi það einnig tekið fjármálaþjónustuna yfir. Fólk fái hvergi skjól fyrir yf- irgangi þess. Fundur stofnfjáreig- enda í gær sýni það. Efla sparisjóðinn Þórólfur Gíslason, kaupfélags- stjóri KS, harmar að reynt sé að gera málefni sparisjóðsins og aðkomu stjórnenda Kaupfélags Skagfirðinga tortryggilega. Allir séu sammála um að efla þurfi sparisjóðinn svo hann geti þróast á lánamarkaði í sam- keppni við aðrar peningastofnanir. Vilji sé til þess að byggja upp stofnun í héraði sem sé valkostur við aðrar fjármálastofnanir. Þess vegna hafi verið tekin ákvörðun um að hækka stofnfé, sem núverandi stofnfjáreig- endum standi til boða. „Menn eru að taka höndum saman að byggja hér upp sparisjóð sem getur þróast með hagsmuni þessa héraðs að leiðarljósi. Það er ekkert annað sem liggur á bak við þetta.“ Nýja stjórn skipa þeir Sigurjón Rafnsson aðstoðarkaupfélagsstjóri, Jón Eðvald Friðriksson fram- kvæmdastjóri, Magnús Brandsson sparisjóðsstjóri á Ólafsfirði og Gísli Kjartansson sparisjóðsstjóri Spari- sjóðs Mýrasýslu. Sverrir Magnússon situr í stjórninni fyrir hönd gömlu stofnfjáreigendanna. Um 72% at- kvæða féllu aðilum tengdum KS í vil og 28% atkvæða gömlu stofnfjáreig- endunum. Valgeir segir að mun fleiri einstaklingar séu að baki þessum 28% því margir eigi lítið stofnfé. Þór- ólfur segir að að þessar tölur sýni vilja margra til að efla sparisjóðinn undir nýju nafni, sem höfði til hér- aðsins í heild. Um þetta hafi verið ágæt samstaða og hann trúir því að svo verði áfram. Grundvöllur þessa starfs hafi verið breikkaður með að- komu annarra sparisjóða. Meðal annars þess vegna hafi stofnfé dótt- urfélaga KS verið selt. Snýst ekki um KS Þórólfur segir um tiltölulega litla peningastofnun að ræða. Menn séu að horfa á möguleika á heimamark- aði. Aðspurður hvort KS sé ekki að verða of fyrirferðarmikið í Skagafirði segir hann KS hafa metnað fyrir því að vera með öfluga starfsemi og góð- an rekstur til hagsbóta fyrir héraðið. Þetta sparisjóðsmál snúist ekkert um Kaupfélag Skagfirðinga. Sparisjóður Hólahrepps var upp- haflega stofnaður um eða upp úr 1905. Hann var með starfsemi í Hóla- hreppi sem sameinaður hefur verið öðrum í sveitarfélagið Skagafjörð. Fyrir nokkrum árum hóf hann í sam- vinnu við Kaupfélag Skagfirðinga að innheimta afborganir af lánum Íbúðalánasjóðs. Stofnfé var aukið á árunum 2000 og 2001 og eignuðust þá fjögur dótturfélög Kaupfélags Skag- firðinga tæplega 40% hlut auk þess sem stjórnendur þessara félaga eign- uðust 8–9%. „Það má líkja þessu við að bjóða gesti velkomna í heimsókn. Eftir nokkra dvöl er ljóst að þeir eru sestir upp á þig og á endanum reka þeir þig út,“ segir Valgeir um samstarf gömlu stofnfjáreigendanna við forsvars- menn Kaupfélags Skagfirðinga. Ákveðið að breyta nafni Sparisjóðs Hólahrepps og auka stofnfé Segja KS hafa tekið spari- sjóðinn yfir EFNT verður til jólatónleika til styrktar krabbameins- sjúkum börnum í Hallgrímskirkju á laugardag kl. 16. Einsöngvarar eru Kristján Jóhannsson, Sigrún Hjálm- týsdóttir, Birgitta Haukdal og Jóhann Friðgeir Valdi- marsson. Karlakórinn Fóstbræður og Karlakór Kjalnesinga syngja líka á tónleikunum undir stjórn Árna Harð- arsonar. Að auki mun kór með fjörutíu börnum taka undir í síðustu fimm lögunum og tólf manna strengja- sveit og þriggja manna blásarasveit frá Sinfón- íuhljómsveit Íslands leikur ásamt hljómsveit Kjartans Valdimarssonar. Á myndinni taka Kristján Jóhannsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir lagið saman. Morgunblaðið/Jim Smart Syngja á styrktartónleikum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.