Morgunblaðið - 25.11.2004, Blaðsíða 12
Ólafur
Elíasson
12 FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
á laugardag
Lestu bókina fyrst
og gagnrýnina á eftir?
Lestu Lesbókina fyrst
og bókina svo?
Jólabækurnar
+ mönnum sem hafa beitt sér fyrirbreyttri lagasetningu um kynbundiðofbeldi á Alþingi þar sem ræða á
nauðsyn lagasetningar gegn kyn-
bundnu ofbeldi sérstaklega.
Átakinu lýkur svo 10. desember
með því að skorað verður á forseta
Hæstaréttar Íslands, forsætisráð-
herra og forseta Alþingis að beita
sér í þessum málum. „Umbætur í
íslensku samfélagi varðandi kyn-
bundið ofbeldi verða að gerast á öll-
um sviðum stjórnvaldsins en auðvit-
að í íslensku þjóðarsálinni líka,“
segir Birna. „Þess vegna erum við
með svona margbreytilega dagskrá,
til að fá sem flesta til að hugsa sinn
gang, vegna þess að kynbundið of-
beldi – eins útbreitt og það er – hef-
ur verið of dulið til að hægt sé að
fjalla um það sem þjóðfélagsvand-
ann sem það í rauninni er.“
Ítarleg umfjöllun
um þróunarmál
UNIFEM er 15 ára 18. desember
nk. og hefur verið gefið út veglegt
tímarit í tilefni þessara tímamóta.
„Þetta er án efa eitt ítarlegasta
tímaritið um þróunarmál sem komið
hefur út hér á landi,“ segir Birna,
en ritstjóri tímaritsins er Hrund
Gunnsteinsdóttir. Það verður því
mikið um að vera hjá UNIFEM á
næstunni og hvetur Birna alla Ís-
lendinga til að nota tækifærið
næstu 16 daga og kynna sér það al-
varlega málefni sem kynbundið of-
beldi er.
SÝNINGARSTÚLKUR verða farð-
aðar eins og þær séu fórnarlömb
líkamlegs ofbeldis til að minna fólk
á afleiðingar heimilisofbeldis, og
verður það hluti dagskrár 16 daga
átaks gegn kynbundnu ofbeldi. Alls
munu um 130 lönd um allan heim
taka þátt í þessu átaki. Frá upphafi
hefur verið staðið fyrir átakinu í yf-
ir 130 löndum sem er ætlað að
knýja á um afnám kynbundins of-
beldis.
Þetta er í fyrsta skipti sem Ís-
lendingar taka þátt í átakinu á
þennan hátt, en það hefur verið ár-
legur viðburður víða um heim frá
árinu 1991, segir Birna Þórarins-
dóttir, framkvæmdastýra UNIFEM
á Íslandi. Eitthvað verður um að
vera alla 16 dagana, og hefst dag-
skráin í dag með morgunverðar-
fundi UNIFEM á Hótel Loftleið-
um. Þar mun Gréta Gunnarsdóttir
lögfræðingur ræða um jafnréttismál
á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og
dr. Sólveig Anna Bóasdóttir guð- og
siðfræðingur fjalla um konur og of-
beldi út frá guðfræðilegri siðfræði.
Farðaðar eins og
fórnarlömb ofbeldis
Meðal annarra viðburða verður
uppákoma á vegum Amnesty Int-
ernational í Iðu í Lækjargötu á
laugardaginn þar sem þjóðþekktar
sýningarstúlkur verða farðaðar eins
og þær séu fórnarlömb líkamlegs
ofbeldis, og segir Birna að það sé
gert til að vekja athygli á því
hversu dulið heimilisofbeldi sé í
samfélaginu. Mánudaginn 6. desem-
ber verður svo málþing með þing-
Kynbundið ofbeldi
dulið vandamál
RÍKISSTJÓRNIN hefur sam-
þykkt tillögu fjármálaráðherra
um að lög um Lífeyrissjóð sjó-
manna yrðu afnumin. Baldur
Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri í
fjármálaráðuneytinu, sagði að
ekki væri efni til að viðhalda
sérlögum um þennan lífeyris-
sjóð. Starfsemi hans félli alger-
lega að þeim almennu lögum
sem gilda um starfsemi lífeyr-
issjóða. Það þrengdi auk þess
svigrúm sjóðsins til að bregðast
við aðstæðum að láta sérstök
lög gilda um hann.
Árni Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs
sjómanna, sagði að lengi hefði
staðið til að afnema lögin enda
væru þau hluti af gömlum tíma.
Í gildi væru almenn lög um
starfsemi lífeyrissjóða og starf-
aði sjóðurinn eftir þeim lögum.
Afnám laganna hefði því engin
áhrif á starfsemi sjóðsins.
Lífeyrissjóður sjómanna var
stofnaður með lögum 1958. Það
gerðist í kjölfar harðrar kjara-
deilu sjómanna og útvegs-
manna. Árni sagði að aldrei
hefði verið nein ríkisábyrgð á
skuldbindingum sjóðsins. Sjóð-
urinn hefði lengst af veitt meiri
réttindi en sjóðir á almennum
markaði og það hefði leitt til
þess að sjóðurinn hefði átt í erf-
iðleikum með að standa undir
skuldbindingum sínum. Rétt-
indunum hefði hins vegar verið
breytt og sjóðurinn stæði í dag
ágætlega í samanburði við aðra
sjóði.
Lög um Líf-
eyrissjóð
sjómanna
afnumin
„ÞÚ getur líka lent í Netinu!“ er yfirskrift veggspjalds
sem var afhent í Hagaskóla í gær en veggspjaldið var
hannað í kjölfar opinnar umræðu um einelti og ærumeið-
ingar á Netinu. Að veggspjaldinu stóðu þrjár stúlkur,
sem voru í 10. bekk Hagaskóla í fyrra. Þórhildur Líndal,
umboðsmaður barna, leitaði til stúlknanna um gerð
veggspjalds sem tengt væri ofangreindu efni, en á vegg-
spjaldinu er að finna reglur, siðaboðskap, sem stúlk-
urnar telja að eigi að gilda í samskiptum ungs fólks á
Netinu. Sunna Örlygsdóttir hannaði veggspjaldið en Ás-
gerður Snævarr og Dóra Sif Ingadóttir sáu um texta.
Þær Ásgerður og Dóra Sif segjast hafa verið að reyna
að vekja fólk til umhugsunar um einelti á Netinu og af-
leiðingar þess. Þær gerðu könnun innan veggja Haga-
skóla sem leiddi í ljós að einelti á Netinu væri algengt
vandamál. Með könnuninni vildu þær einnig vekja at-
hygli á vandamálinu hjá fullorðnum einstaklingum, þ.e.
hversu margir hefðu lent í þessu, og vakti þetta athygli
Þórhildar Líndal.
Þórhildur segir stúlkurnar vera skelegga og fram-
bærilega fulltrúa ungu kynslóðarinnar og því hafi hún
sett sig í samband við þær vegna útgáfu veggspjaldsins.
Fannst henni við hæfi „að unga fólkið talaði til unga
fólksins“ um þessi mál. Aðspurð segir hún ekki vera van-
þörf á því að minna fólk á að fara eigi eftir siðareglum
þegar það notar Netið. Það megi ekki gleyma því að jafn-
vel þótt samskiptin fari fram í gegnum Netið þá sé um
samskipti við manneskjur að ræða. „Þú verður að gæta
þín að særa ekki neinn né móðga, og koma fram af hátt-
vísi við hvern og einn.“
Veggspjaldinu verður dreift í alla grunnskóla, fé-
lagsmiðstöðvar og bókasöfn landsins.
Spornað við einelti og
ærumeiðingum á Netinu
Morgunblaðið/Kristinn
Áróra Árnadóttir, formaður nemendaráðs Hagaskóla, Sunna Örlygsdóttir, hönnuður veggspjaldsins, Dóra Sif
Ingadóttir og Ásgerður Snævarr textahöfundar og Þórhildur Líndal, umboðsmaður barna.
16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
TENGLAR
.....................................................
www.unifem.is/16dagar.htm