Morgunblaðið - 25.11.2004, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 25.11.2004, Blaðsíða 41
Innilegustu þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ODDS GUÐMUNDSSONAR skipasmiðs frá Kleifastöðum. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki dvalar- heimilisins Fells og sérstaklega umönnunarfólki Kumbaravogs sem annaðist hann síðustu mánuði ævinnar. Systkinin. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2004 41 MINNINGAR Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVERRIR ÖRN VALDIMARSSON prentari, Langeyrarvegi 20, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju mánu- daginn 29. nóvember kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Styrkt- arfélag vangefinna. Guðmundur Ingvi Sverrisson, Kristín Karlsdóttir, Valdimar Örn Sverrisson, Ingunn Hauksdóttir, Þórður Sverrisson, Lilja Héðinsdóttir, Lára B. Sverrisdóttir Borthne, Roald Borthne, Vilborg Sverrisdóttir, Guðmundur Rúnar Guðmundsson, Aðalsteinn Sverrisson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, VALGARÐ J. ÓLAFSSON, Hraunvangi 3, Hafnarfirði, sem lést miðvikudaginn 17. nóvember, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju föstu- daginn 26. nóvember kl. 15.00. Sif Þórz Þórðardóttir, Iðunn Anna Valgarðsdóttir, Jakob Már Gunnarsson, Eiður Valgarðsson, Kristín Gunnarsdóttir, Gunnhildur Sif Valgarðsdóttir, Sigrún Valgarðsdóttir, Þórólfur Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, FRIÐÞJÓFUR G. KRISTJÁNSSON frá Ísafirði, Langholtsvegi 122, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstu- daginn 26. nóvember kl. 13. Kristín Jósepsdóttir, Margrét V. Friðþjófsdóttir, Stefnir Þór Kristinsson, Sigríður María Friðþjófsdóttir, Tómas Valdimarsson, Ingibjörg Friðþjófsdóttir og barnabörn. Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Rosalega brá mér þegar ég var að fletta Morgunblaðinu og sá dánartil- ÓLÖF BIRNA ÓLAFSDÓTTIR ✝ Ólöf Birna Ólafs-dóttir fæddist í Reykjavík hinn 9. október 1949. Hún lést á Landspítalan- um hinn 14. nóvem- ber síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Fríkirkj- unni í Reykjavik 19. nóvember. kynningu hennar Birnu. Birna var minn yfirmaður fyrir nokkr- um árum í Hagkaupum í Kringlunni bús- áhaldadeild. Var hún besti yfirmaður sem hægt var að hugsa sér. Það var gott að vinna með henni, hún var svo sanngjörn og yndisleg kona. Jafnvel þegar ég hætti að vinna hjá henni, var alltaf gaman að koma í Hagkaup og hitta hana, alltaf jafn hress. Með þessum fátæklegum orðum vil ég minnast Birnu og senda fjöl- skyldu hennar mínar innilegustu samúðarkveðjur. Thelma Dögg. Þegar ég var lítil man ég eftir að hafa oft heyrt talað um að eiga frænku sem hafði unnið sér það til frægðar að hafa reynt að snúa bíln- um sínum við í miðjum Strákagöng- um. Þessi kona hét Sólveig Björg, kölluð Bonga, og var systir ömmu minnar. Eftir að ég flutti til Reykja- víkur árið 1998 átti ég heima í ná- grenni við Bongu og þá kynntist ég SÓLVEIG BJÖRG PÁLSDÓTTIR ✝ Sólveig BjörgPálsdóttir fædd- ist á Ölduhrygg í Svarfaðardal 22. apríl 1911. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtu- daginn 11. nóvember síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Háteigskirkju 19. nóvember. þeirri margumtöluðu konu. Við, Bonga og Karen dóttir mín, urð- um góðar vinkonur og áttum upp frá þessu margar glaðar stundir. Mér er minnisstætt þegar við sátum á veit- ingahúsi í miðbænum og Karen, þá tveggja ára, vildi ólm fara að dansa. Bonga var ekki lengi að snara sér út á gólf og dansa við stelp- una. Þetta var stórkost- leg sjón og dæmigert fyrir Bongu, hún hugs- aði fyrst og fremst um að skemmta fólkinu í kringum sig, og sér sjálfri í leiðinni. Oftar en ekki dró Bonga fram sjerríflösku þegar við vorum að spjalla um daginn og veginn. Í eitt skiptið þegar við höfðum ákveðið að fara í bíltúr og vorum um það bil að fara út úr dyrunum, horfði Bonga á mig mjög hugsi. Loks segir hún: „Eigum við að fá okkur sjerríið núna eða þegar við komum heim?“ Fyrir nokkrum árum þurfti Bonga að leggjast inn á hjartadeild. Ég átti von á því að nú væri gamla konan orð- in lasin og bjó mig undir það að hún væri ekki burðug. Þegar ég geng inn ganginn á sjúkrahúsinu heyri ég mikil hlátrasköll. Þessi hávaði kom frá stof- unni hennar Bongu. Inni á stofunni sat Bonga og sagði gestum, sem hjá henni voru, frá því þegar gamall mað- ur benti henni á mynd í tímariti og spurði: „Ert þetta þú?“ Þá var þetta mynd af drottningarmóðurinni í Eng- landi. Bonga skemmti sér mikið yfir þessu, að hafa verið konungborin þó ekki væri nema í nokkrar mínútur. Svo bætti hún því við að þær væru nokkuð áþekkar því báðar væru eins og U í laginu. Lífsleið Bongu var löng og þó að við kynntumst ekki fyrr en raun ber vitni er ég glöð yfir að hafa fylgt henni síð- asta spölinn. Siggu og fjölskyldu, sem og öðrum ættingjum og vinum sendi ég samúðarkveðjur. Rakel Runólfsdóttir. Elsku vinur, að heyra að þú værir fall- inn frá fyllti hjarta mitt ólýsanlegri sorg. Þú, sem varst í blóma lífs- ins. Ég vildi bara þakka þér fyrir allar þær góðu stundir, sem við áttum saman. Ég veit að þú hefur fundið frið hjá Guði og allt er í lagi núna. Minningin um þig mun alltaf lýsa upp mitt líf. Leyf mér að hvílast, mér líður svo vel. Ljósið það dofnar, nú svefni ég stel. Samt er svo margt, sem þarf að gera, margt, sem þarf að sjá. Leyf mér að leggjast og hvíldina löngu að fá. (Eyjólfur Kristjánsson) Ég bið Drottin að vernda og vaka GUÐNI MÁR BALDURSSON ✝ Guðni Már Bald-ursson fæddist í Reykjavík 23. sept- ember 1977. Hann lést 1. nóvember síð- astliðinn og var útför hans gerð frá Grens- áskirkju 11. nóvem- ber. yfir fjölskyldunni þinni á þessum erfiðu tímum. Þinn vinur, Tryggvi Lárusson. Elsku vinur, nú ertu farinn frá okkur, allt of fljótt. Við áttum eftir að gera svo margt saman og við söknum þín svo mikið. Við þökkum þér samfylgdina þó að hún hafi verið allt of stutt. Við hlýjum okkur við minningarnar úr hjóla- ferðunum og matar- boðunum, þær gleymast seint. Þú auðgaðir líf okkar með ótrú- legri útgeislun þinni og kátínu, þú heillaðir alla sem hittu þig, betri vin- ur er vandfundinn. Nú er komið að kveðjustund, minning þín, elsku Guðni, er ljós í lífi okkar. Sjáumst síðar, vinur. Við vottum öllum aðstandendum dýpstu samúð okkar. Sigurður Heiðar, Sigrún Inga, Harpa Sif og Daði Hrafn. Elsku Sæunn mín. Mig langar svo til að kveðja þig, elsku vin- kona, og þakka þér fyr- ir stundirnar okkar. Það var svo ynd- islegt að fá að kynnast þér. Þú varst svo einlæg og opin og við áttum svo margt sameiginlegt sem gerði vin- skap okkar einstakan. Ég veit núna að það var engin tilviljun að við hitt- umst. Við áttum að hittast. Ég hugsa til þín og fjölskyldu þinnar á hverj- um degi. Þið eruð mín fyrsta hugsun á morgnana er ég vakna og sú síð- asta áður en ég fer að sofa á kvöldin. Þið eruð í bænum mínum. Ég bið Guð að varðveita litlu fallegu börnin þín og ég veit að þú fylgist með okk- ur til að sjá til þess að allt sé skipu- lagt og gangi vel fyrir sig. Minningin um þig mun alltaf lifa í hjarta mínu, þar ertu brosandi og glöð. Ég varð- veiti hana. SÆUNN PÁLSDÓTTIR ✝ Sæunn Pálsdótt-ir fæddist í Reykjavík 7. febrúar 1979. Hún lést á heimili sínu, Hamra- borg 38 í Kópavogi, aðfaranótt mánu- dagsins 1. nóvember síðastliðinn, og var útför hennar gerð frá Digraneskirkju 8. nóvember. Þau ljós sem skærast lýsa þau ljós sem skína glaðast þau bera mesta birtu en brenna líka hraðast og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. En skinið logaskæra sem skamma stund oss gladdi það kveikti ást og yndi með öllum sem það kvaddi. Þótt burt úr heimi hörðum nú hverfi ljósið bjarta þá situr eftir ylur í okkar mædda hjarta. (Fiðrik Guðni Þórleifsson.) Elsku Sóley Sara, Hlynur Freyr, fjölskylda og vinir. Megi Guð gefa ykkur styrk og græða sár ykkar í þessari miklu sorg. Samúðarkveðjur. Guðmunda Katrín Karlsdóttir. Elsku Sæunn mín. Þegar ég kynntist þér fyrst var ég bara fimm ára. Ég ætlaði að leika við Dúnu, en hún gat ekki leikið og sendi mig til stelpu sem ég hafði aldrei séð. Þú varst þá átta ára og tókst mér, blá- ókunnugum stelpupolla, vel. Í 17 ár hélst þessi vinátta. Ég man þegar við vorum litlar, þá komumst við í draugamyndir og stríddum hvor annarri með draugasögum, og við vorum báðar orðnar mjög myrkfæln- ar, jafnvel að degi til. Eða þegar ég sagði þér hvað amma væri utan við sig þegar hún væri að lesa. Þú trúðir mér ekki, svo við gerðum tilraun. Við tókum band og bundum það við eld- hússtólinn hennar ömmu og toguð- um í. Amma var komin út á mitt gólf áður en hún fattaði nokkuð og horfði forviða á okkur ormana á hláturs- kasti. Allir rúntarnir sem við keyrðum eftir að þú tókst bílprófið, þar sem þú vildir alltaf keyra, á meðan við skemmtum okkur. Ég gat alltaf leitað til þín með hvað sem var, þú varst einstaklega góð vinkona og yndisleg manneskja, sem manni leið vel í kringum. Þú varst hress og fyndin stelpa sem kom mér alltaf til að hlæja. Á sama tíma varstu eins og stóra systir mín, þú kenndir mér á klukku, að reima skó, mála mig og margt fleira. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig. Sæunn, ég sakna þín, við sjáumst seinna. Sóleyju, Hlyni, Sollu, Palla, Vigni og Eyrúnu færi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Minningin um góða vinkonu mun lifa ætíð, Þín vinkona, Berglind Elínardóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.