Morgunblaðið - 25.11.2004, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.11.2004, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR MEIRIHLUTI fjárlaganefnd- ar hefur lagt fram breytingar- tillögur við fjárlagafrumvarpið sem gerir ráð fyrir 1.741 milljón króna útgjaldaaukningu miðað við frumvarp til fjárlaga sem lagt var fram í október sl. Samkvæmt endurskoðaðri tekjuáætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis er gert ráð fyrir að tekjur ríkisins verði um 306,4 milljarðar kr. sem er 575 milljónum meira en ráð var fyr- ir gert í frumvarpinu og að tekjujöfnuður eða tekju- afgangur fjárlaga nemi rúmum 10 milljörðum og lækki um tæpa 1,2 milljarða frá frumvarpinu. Kostnaður vegna heimssýningar í Japan 57 milljónir kr. Lagt er til að fjárheimild æðstu stjórnar ríkisins, þ.m.t. Alþingi, verði aukin um 58,7 milljónir króna. Til menntamálaráðuneytis er lagt til að framlög verði aukin um 731,5 milljónir og munar mestu um 300 milljóna króna hækkun á framlögum til Lána- sjóðs íslenskra námsmanna þar sem árleg endur- greiðsla af námslánum lækkar úr 4,75% af útsvarstekjum lán- taka í 3,75%. Þá fær Húsafrið- unarsjóður skv. þessu um 96 milljónir króna sem nýta á til verkefna tengdum endurbótum á gömlum húsum vítt og breitt um landið. Framlög til utanríkisráðu- neytisins verða aukin um 242 milljónir króna skv. tillögunni. Þar af nemur framlag Íslands til heimssýningarinnar í Aichi í Japan á næsta ári 57 milljónum og aukin framlög vegna þróunaraðstoðar 22 mkr. Landbúnaðarráðuneytið fær 58 milljónir til við- bótar á fjárlögum og rennur stærsti einstaki hlut- inn, 25 milljónir króna, til þróunarverkefnis í hrossarækt og hestamennsku sem ætlað er að efla markaðssókn og ræktun íslenska hestsins, skv. til- lögunum. Lagt er til að fjárheimildir dóms- og kirkjumála- ráðuneytisins verði auknar um 47,3 mkr., þar af fari 19,5 milljónir til vinnslu og endurskoðunar við- bragðsáætlana vegna hugsanlegs goss í Mýrdals- eða Eyjafjallajökli. Þá fær Landhelgisgæslan sam- kvæmt þessu 7 milljónir vegna endurnýjunar samn- ings um þjónustu þyrlulækna en Landspítali – há- skólasjúkrahús sagði upp samkomulagi við dómsmálaráðuneytið, m.a. um umsjón og stjórn þyrluvaktar lækna, í upphafi árs. 480 milljónir í Fæðingarorlofssjóð Félagsmálaráðuneytið fær 587 milljónir króna samkvæmt tillögum meirihlutans, en af þeim renna 480 milljónir til Fæðingarorlofssjóðs og 45 milljónir til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið fær samtals rúmar 56 milljónir króna til viðbótar samkvæmt tillögunum, og fjármálaráðuneytið rúmar 237 milljónir en þar af nema barnabætur 170 milljónum króna. Umhverfisráðuneytið fær 119 milljónir, þar af er gerð tillagna um tímabundna 25 mkr. fjárveitingu til þriggja ára til uppbyggingar á miðstöðvum í þjóðgarðinum í Jökulsárgljúfrum og þjóðgarðinum Snæfellsjökli. Af auknum fjárheimildum annarra ráðuneyta er lagt til að iðnaðarráðuneytið fái 53 milljónir, samgönguráðuneytið 16,8, viðskiptaráðu- neytið 5 milljónir og sjávarútvegsráðuneytið 3 millj- ónir. Breytingartillögur við fjárlagafrumvarpið gera ráð fyrir aukningu útgjalda Aukast um 1,7 milljarða ÞINGFUNDUR á Alþingi hefst klukkan 10:30 í dag, þar sem meðal annars verður rædd breytingartil- laga við frumvarp til fjárlaga. ÞAU leiðu mistök urðu við vinnslu fréttar af þingfundi á Alþingi á mánudag að sagt var að enginn þingmaður Framsóknarflokks hefði kvatt sér hljóðs þegar rætt var um hækkun skráningargjalda við þrjá ríkisháskóla, en láðist að geta að Þórarinn E. Sveinsson, varaþing- maður Framsóknar, kvaddi sér hljóðs um málið. Undirstrikaði hann m.a. að umræðan snerist um innrit- unargjöld, ekki skólagjöld. Beðist er velvirðingar á þessu. „Vel á annað hundrað kíló af framsóknarmönnum“ Við umræður á mánudag vakti stjórnarandstaðan athygli á því að framsóknarþingmennirnir Hjálmar Árnason og Dagný Jónsdóttir, voru ekki í salnum. Þórarinn sagði af þessu tilefni. „Herra forseti. Það er ánægjulegt að koma upp og fá að bera blak af mönnum mínum sem ekki eru í salnum. Það er eitt sem varaþingmaður þarf að læra mjög fljótt, að vera ekki í salnum en fylgj- ast samt með umræðunni. [...] Ég held að ég taki það bara sem hrós að háttvirtur þingmaður. Steingrímur J. Sigfússon, sem gengur einmitt í salinn núna, hefur tvisvar sinnum ekki tekið eftir því þegar ég hef verið í salnum. Ég hélt að það færi meira fyrir mér en það og get fullvissað hann um að allan þann tíma sem hann talaði sátu hér vel á annað hundrað kíló af fram- sóknarmönnum í salnum og fylgd- ust með ræðu hans. Alla vega var nógu mikið magn af framsóknar- mönnum í salnum, þó hann ásamt fleiri þingmönnum léti ræðurnar um skólamálin snúast mest um fjar- veru framsóknarmanna.“ Þórarinn E. Sveinsson kvaddi sér hljóðs Í UPPHAFI þingfundar í gær tók nýr þingmaður, Sæunn Stefánsdótt- ir, sæti sem varamaður Halldórs Ás- grímssonar forsætisráðherra, sem er á leið utan. Sæunn, sem er aðstoð- armaður Jóns Kristjánssonar heil- brigðisráðherra, hefur ekki áður set- ið á Alþingi. Nýr þingmaður BJÖRGVIN Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, innti Jón Krist- jánsson heilbrigðisráðherra eftir kosningaloforði Framsóknarflokks- ins frá árinu 1999 um að veita einum milljarði aukalega í forvarnir í fíkni- efnamálum, að því er fram kom í máli þingmannsins. Sagðist hann hafa beint sams kon- ar fyrirspurn til ráðherrans í vor og að þar hefði fram komið að framlög til forvarna- og meðferðamála væru afar lág, um 78 milljónir króna í fyrra, og að enn bólaði ekkert á „milljarðinum umtalaða“. 500 milljónir á næsta ári Í svari Jóns Kristjánssonar heil- brigðisráðherra kom fram að fjár- framlögin hefðu verið aukin umtals- vert og að þingmaðurinn færi með rangt mál. Fíkniefna- og forvarna- mál heyrðu undir þrjú ráðuneyti og ekki væri í hans verkahring að svara fyrir önnur ráðuneyti. Sæunn Stefánsdóttir, varaþing- maður Framsóknarflokksins, vakti athygli á því að framlög til SÁÁ hefðu aukist frá árinu 1997 um 219 milljónir króna og og stefndi í að þau yrðu tæpar 500 milljónir á næsta ári. Framlög til SÁÁ hækk- að mikið ÞÓ að þeir Hjálmar Árnason, formaður þingflokks framsóknarmanna, og Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar, séu ekki alltaf sammála í umræðum á Alþingi eiga þeir létt með að hlæja saman. Engum sögum fer af því hvað það var sem kætti þá félaga. Morgunblaðið/Kristinn Gaman á Alþingi BRÖGÐ eru að því að geðsjúkir sem greitt hafa fyrir læknisþjónustu fullt verð og áunnið sér rétt til að fá af- sláttarkort á þjónustuna, hafi ekki fengið þau, þar sem skylt er að halda utan um allar kvittanir frá læknum, svonefnda „bleika miða“ þegar sótt er um kortið. Ásta R. Jóhannesdóttir, þingmað- ur Samfylkingarinnar, vakti athygli á málinu í fyrirspurn til heilbrigð- isráðherra um afsláttarkort á Al- þingi í gær. „Nú er það svo að sumir sjúklingar, eins og til dæmis geð- sjúkir og fatlaðir, þeir geta ekki haldið saman kvittunum vegna sjúk- dóms síns,“ sagði þingmaðurinn. Fékk ekki kort þrátt fyrir frumrit frá heilsugæslu Hún tók dæmi af aðstandanda ein- staklings með geðrænan sjúkdóm sem framvísaði útprentun á heilsu- gæslukostnaði hjá Tryggingastofn- un en hann hafði þá greitt umfram þá upphæð sem miðað er við, en hún er 18 þúsund hjá einstaklingum, 4.500 hjá lífeyrisþegum og 6.000 hjá börnum. Tryggingastofnun hafi neit- að að taka útskriftina gilda og af- henda kortið nema gegn framvísun „bleiku miðanna“ frá lækni. „Þó er þetta frumrit frá stjórn- sýslu heilsugæslunnar sem aðstand- andinn framvísaði,“ sagði Ásta og benti á að hópur sjúklinga væri að fara á mis við kjarabót sem hann ætti rétt á í kerfinu. Vísaði hún til þess að þegar lyf væru annars vegar væri mark tekið á útskrift apótek- anna hjá TR við niðurgreiðslu lyfja. Þingmaðurinn spurði ráðherra m.a. hvort áform væru uppi um að ein- falda afsláttarkortakerfið. Mun óska heimildar til að afla upplýsinga um sjúkling Í svari Jóns Kristjánssonar heil- brigðisráðherra kom fram að Trygg- ingastofnun hefði engar upplýsingar um einstaklinga sem ekki nýta sér rétt sinn til afsláttarkorta en vís- bendingar séu hins vegar um að til- teknir hópar nýti sér þau ekki. Jón sagði að hugsanlegt væri að „keyra saman“ upplýsingar TR og heil- brigðisstofnana um sjúklinga þannig að „lesa mætti úr rétti“ viðkomandi, en eins og staða mála væri í dag hefði Tryggingastofnun ekki heimild til að afla slíkra upplýsinga. Hann myndi óska eftir slíkri heim- ild fyrir stofnunina. Jón taldi að öðru leyti að TR hefði sinnt upplýsinga- skyldu sinni vel og einnig heilbrigð- isstofnanir, þar sem reglan væri sú að spyrja viðkomandi hvort þeir hefðu afsláttarkort. Samkvæmt upplýsingum frá TR gaf stofnunin samtals út 26.840 af- sláttarkort árið 2001, en 33.717 í fyrra og nemur fjölgunin 25% á 2 ára tímabili. Fjölgun á útgáfu korta er hlutfallslega mest meðal almennra sjúklinga og er gert ráð fyrir að end- urgreiðsla vegna útgáfu afsláttar- korta í ár verði 160 milljónir króna sem er tvöföldun frá því 2001. Afsláttarkort TR eru ekki útgefin nema gegn framvísun kvittana Sjúklingar fara á mis við bætur SAMKVÆMT fjárlagafrumvarpi er áætlað að ríkissjóður greiði 4,9 milljarða króna í vaxtabætur á næsta ári. Á fjárlögum fyrir yfir- standandi ár var gert ráð fyrir að vaxtabætur yrðu 4,5 milljarðar en sú upphæð var hækkuð í 5,1 millj- arð með fjáraukalögum. Með fyrir- huguðum breytingum á reglum um greiðslu vaxtabóta er því gert ráð fyrir að þessi gjaldaliður ríkissjóðs verði lægri en ella hefði orðið, að sögn Baldurs Guðlaugssonar, ráðu- neytisstjóra fjármálaráðuneytisins. Tillögur varðandi breytingar á vaxtabótum, í frumvarpi um breyt- ingu á lögum um tekjuskatt og eignaskatt, eru tvíþættar að sögn Baldurs. Til lengri tíma litið sé gert ráð fyrir því að skuldaþakið, sem vaxtabætur miðast við, verði lækkað. Nú geta vaxtagjöld hæst numið 5,5% af skuldum en þakið verður lækkað í 5% árið 2006 vegna vaxtagreiðslna á árinu 2005. Þetta hlutfall var 7% í fyrra en var lækkað í ljósi lækkunar vaxta og verður áfram lækkað með lækk- andi vöxtum. Í millitíðinni er sett bráðabirgða- ákvæði sem hefur áhrif á ákvörðun vaxtabóta á næsta ári, vegna vaxtagjalda á þessu ári. Það kveð- ur á um að greidd verða 95% af útreiknuðum vaxtabótum vegna vaxtagjalda á þessu ári. Í ár var svipuð aðferð notuð og greidd 90% af útreiknuðum vaxtabótum vegna ársins 2003. Þessar skerðingar ganga jafnt yfir alla sem njóta vaxtabóta. Erfitt að meta áhrif lánatilboða Baldur sagði erfitt að áætla nú hvort hækkað lánshlutfall lána- stofnana til húsnæðiskaupa og hag- stæðari lánakjör leiði til aukinna vaxtabótagreiðslna. Hann sagði ljóst að vextir hafi verið að lækka og í sjálfu sér ætti það að draga úr vaxtabótum. Hins vegar mætti spyrja hvort nýir lánamöguleikar og tilboð lánastofnana hvetji til lán- töku. Í einhverjum mæli nýti fólk rýmri lánakjör og lægri vexti til að skuldbreyta óhagkvæmum lánum. Vaxtagjöld sumra geti því verið að lækka. En spyrja megi í hvaða mæli fólk sé að taka viðbótarlán. „Það eru ekki forsendur nú til að sjá hvaða heildaráhrif þetta hefur, en það gefur tilefni til að skoða bet- ur vaxtabótakerfið og reglurnar sem það byggir á. Ég held að það megi segja með nokkrum sanni að kerfið sé skuldahvetjandi,“ sagði Baldur. Vaxtabótakerfið er skuldahvetjandi ♦♦♦ ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.