Morgunblaðið - 25.11.2004, Blaðsíða 54
54 FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Í FYRRA kom
út ansi velheppn-
uð barnaplata
þar sem nokkrar
af helstu popp-
stjörnum lands-
ins tóku uppá-
halds barnalögin sín og gerðu flest
vel og vandlega. Lögin áttu upptök
sín í Stundinni okkar þar sem þau
voru flutt fyrst við góðar undirtektir
og þessi pakki, lögin á plötu og atriðin
úr Stundinni á mynddiski, var góður
og skotheldur pakki.
Nú hefur leikurinn verið endurtek-
inn. Stundin okkar farið að stórum
hluta í að kynna væntanlega plötu
sem nú er komin út. Sama uppskrift
er notuð, vinsælar poppstjörnur taka
gömul og góð barnalög, með æði mis-
jöfnum árangri verður að segja.
Eins og gefur að skilja standa þau
sig best sem virðast hafa lagt ein-
hverja vinnu í verkið, pælt í hvernig
hægt væri að hressa uppá þessi
margþekktu lög, gera þau að sínum,
svo yfirhöfuð einhver tilgangur sé
með því að hljóðrita þau á ný. Hér eru
þau í sérflokki Felix Bergsson, sem á
hressilega útgáfa af gamla Hauka-
slagaranum „Fiskinum hennar
Stínu“, Jónsi sem gerir „Lagið um
það sem ekki má“ eftir Sveinbjörn I.
Baldvinsson að lagi sem gæti hafa
komið úr smiðju Í svörtum fötum og
Selma Björns sem syngur vel viðeig-
andi suðræna útgáfu af „Komdu nið-
ur“ eftir Jón Sigurðsson sem Soffía
og Anna Sigga gerðu ódauðlegt. Öll
eru þau áberandi vön Felix, Jónsi og
Selma. Eiga auðvelt með að setja sig í
þau vandasömu spor að syngja fyrir
börn og mættu alvarlega íhuga að
gera barnaplötur í framtíðinni. Birg-
itta hefur þegar gefið út sína barna-
plötu og fer vel á því. Henni hentar
einnig að syngja barnalög og kemst
ágætlega frá „Söng súkkulaðiprins-
essunnar“.
Einnig komast þau vel
frá sínu Anna Katrín, sem
sýnir skemmtileg leikræn
tilþrif í „Guttavísum“,
Hera, sem syngur fallega
útgáfu af „Frost er úti fugl-
inn minn“, og Sverrir Berg-
mann, sem syngur
áreynslulítið en samt
áhrifaríka útgáfu af
„Krummi svaf í klettagjá“, í
útsetningu sem kannski er
svolítið á skjön við hinar
fyrir það hversu miklu
drungalegri hún er og tor-
meltari fyrir börn.
Eins smellinn og
skemmtilegur og hann
Sveppi blessaður er þá
verður hann seint talinn stórsöngv-
ari. Hann hreinlega veldur ekki Stuð-
manna-slagaranum „Söng dýranna í
Týról“, þótt tilþrifin skorti ekki. Til-
þrifin eru hins vegar engin hjá Jóni
Sigurðssyni sem syngur gjörsamlega
flata og tilgangslausa útgáfu af hinu
skemmtilega „Súrmjólk í hádeginu“
eftir Bjartmar Guðlaugsson. Þá eru
útsetningar á „Furðuverki“ og „Ryk-
sugulaginu“, sem Ruth Reginalds og
Olga Guðrún gerðu vinsæl, alltof lit-
lausar og venjulegar til þess að Nylon
og Einar Ágúst geti yfirhöfuð gert
eitthvað fyrir lögin.
Það er reyndar helsti vansi þess-
arar barnaplötu; það sem gerir hana
töluvert síðri en forverann. Útsetn-
ingar Vignis úr Írafári eru bara of
venjulegar; of lítið gert til að lappa
uppá lögin, gæða þau nýju lífi og laga
að stíl flytjendanna.
Mynddiskurinn bjargar þar ein-
hverju, en ekki miklu, því flestir eru
flytjendurnir hálf vandræðalegir þar
sem þeir „mæma“ lögin og reyna að
gera bara eitthvað í ansi hreint
þreyttri sviðsmynd sjónvarpsins.
Hvað svo sem stórum göllum líður
þá eiga yngstu neytendurnir ugglaust
eftir að falla flatir fyrir þessu, sem er
í góðu lagi, því þegar allt kemur til
alls þá er Stóra stundin okkar ósköp
meinlaus, bara einum of meinlaus.
Stóru börnin í óstuði
TÓNLIST
Íslenskar plötur/mynddiskur
Sveppi, Selma, Jónsi, Birgitta, Nylon,
Anna Katrín, Felix, Hera, Jón Sigurðsson,
Einar Ágúst og Sverrir Bergmann syngja
barnalög. Útsetning Vignir Snær Vigfús-
son. Trommur og slagverk Ólafur Hólm.
Bassi Eiður Arnarsson. Gítar, hljómborð,
forritun Vignir Snær. Píanó, orgel Þor-
björn Sigurðsson. Fiðla Roland Hartwell.
Saxófónn Óskar Guðjónsson. Píanó og
orgel Andri Guðmundsson. Stjórn upp-
töku myndbanda á mynddiski Eggert
Gunnarsson.
Stóra stundin okkar
Skarphéðinn Guðmundsson
Ljósmynd/Steinar Hugi
Nokkrir af þeim sem syngja með sínu barna-
nefi á Stóru stundinni okkar.
PLATA Jóhanns Jóhannssonar,
Virðulegu forsetar, fær lofsam-
lega dóma hjá vefritinu Pitchfork
Media.
„Þegar ég hlusta á tónlist ís-
lenska tónskáldsins Jóhanns Jó-
hannssonar minnir það mig á
sjónhverfingar, þessar litlu út-
línumyndir þar sem maður trúir
því ekki að ein lína sé í raun jafn-
löng annarri, eða finnst furðulegt
að hringur snúist ekki. Heilar
okkar eru eins og flóknar tölvur
en það þarf lítið til að valda
skammhlaupi.
Við erum sífellt að mynda
mynstur sem byggjast á sam-
hengi,“ segir Mark Richardson
meðal annars og gefur plötunni
8,8 af 10 mögulegum.
Plata Jóhanns fær ekki síðri
dóma á tónlistarvefnum Boom-
kat.com. Þar hefur hún verið val-
in plata vikunnar og er sögð
„hrífandi klukkstundar-langt
verk í fjórum hlutum sem býr yf-
ir tign og mikilfengleika klass-
ískrar tónlistar um leið og hún
seytlar ofan í ríkidæmi ímynd-
aðrar kvikmyndatónlistar. “
Líkt og á Pitchfork Media þá
fékk síðasta plata Jóhanns einnig
lofsamlega dóma á Boomkat sem
fullyrðir að Jóhann sé klárlega
búinn að einsetja sér að „verða
eitt af merkustu nútíma-
tónskáldum sem starfandi eru nú
um mundir.“
Verkið sé „stórbrotið í sniðum,
metnaðarfullt og tempóið full-
komið“; beri öll aðalsmerki sí-
gildrar kvikmyndatónlistar. „Al-
gjör skyldueign,“ er svo
niðurstaða Boomkat.
Tónlist | Erlendir tónlistarmiðlar
lofa Jóhann Jóhannsson
Morgunblaðið/Kristinn
Það er útgáfufyrirtækið virta Touch sem gefur út plötur Jóhanns Jóhanns-
sonar á alþjóðlegum vettvangi.
Minnir á
sjónhverfingar
*
*
*
* *
*
*
*
*
*
*
*
*
*
**
* *
*
*
*
*
*
*
**
* * *Miðasala opnar kl. 15.30
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
J U L I A N N E M O O R E
HVAÐ EF ALLT SEM ÞÚ HEFUR
UPPLIFAÐ...VÆRI EKKI RAUNVERULEGT?
Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 12 ára.
Frá leikstjóra RUSH HOUR og RED DRAGON
PIERCE BROSNAN
SALMA HAYEK
WOODY HARRELSON
DON CHEADLE
Sýnd kl. 8 og 10.15.
Ein besta spennu- og grínmynd ársins
Frá leikstjóra RUSH HOUR
og RED DRAGON
PIERCE BROSNAN
SALMA HAYEK
WOODY HARRELSON
DON CHEADLE
Sýnd kl. 4 og 6. Síðustu sýningar.
Yfir 7500 manns
Stærsta íslenska heimildarmyndin
Besta heimildarmynd ársins
Sýnd kl. 6. Ísl. tal.
Frábær
gamanmynd
með Billy Bob
Thornton
... þú missir þig
af hlári
Kolsvö t
jól grí ynd
eð illy ob
Thornton
... þú issir þig
af hlári
*
***
* * *
*
*
*
*
*
*
*
***
* **
*
*
*
* **
*
*
**
*
*
*
25.11.0425.11.04
Kr. 500
www.borgarbio.is
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 14 ára.Sýnd kl. 3.40, 5.45, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 10.
Kvikmyndir.com
PoppTíví
Sýnd kl. 4 og 6.
VINCE VAUGHN
Ó.Ö.H. DV
BEN STILLER
DodgeBallS.V. Mbl.
Kolsvört jólagrínmynd
með Billy Bob Thornton
... þú missir þig af hlári
BILLY BOB THORTON BERNIE MAC LAUREN GRAHAM
Sýnd kl. 8. B.i. 14 ára.
*
*
*
*
*
*
*
** * ** *
*
*
Kvikmyndir.com
PoppTíví
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
kl. 3.40, 5.45, 8 og 10.15
TIM ALLEN JAMIE LEE CURTIS
JÓLAMYND
FJÖLSKYLDUNNAR
Hlíðasmára 11, Kópavogi
sími 517 6460
www.belladonna.is
Réttu stærðirnar