Morgunblaðið - 25.11.2004, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2004 35
UMRÆÐAN
helgin ❊ kemur í dag!
helgin er nýtt vikublað
sem berst landsmönnum
í póstkassann í dag
í blaðinu eru frábær tilboð
auglýsenda ásamt tillögum
að afþreyingu helgarinnar
helginni er dreift í
100 þúsund eintökum
um land allt
helg in
V I K U L E G Afim
m
tu
d
a
g
u
r
2
5
11
0
4
ljósm
ynd
gs
B u b b i -
æ v i n t ý r i
u p p á l í f
o g d a u ð a
v i ð t ö l • k r o s s g á t a • d a g s k r á h e l g a r i n n a r • a f þ r e y i n g • s k e m m t u n
❊ góða helg i
Bubbi Morthens gefur sérstaklega mikið af
sér þessi misserin. „Ætli maður þurfi ekki
að vera sjálfhverfur svo maður geti
afkastað svona miklu,“ segir hann í viðtali á
bls. 8, þar sem m.a. er rætt um nýútkomna
barnabók hans sem byggist á því hve
stórkostlegur íslenski laxinn er.
Örgjörvi: AMD Athlon 2600+
Vinnsluminni: 256mb DDR333 PC2700
Harður diskur: 40gb(ATA 100/5400rpm)
Skjákort: Innbyggt 32mb
Acer Aspire T120
Örgjörvi: Intel Pentium 4 2.8Ghz
Vinnsluminni: 512mb DDR333 PC2700
Harður diskur: 80gb (ATA 100/7200rpm)
Skjákort: GeForce FX 5200 128mb,
TV-Out, DVI
Acer Aspire T310 Acer Aspire T130
Örgjörvi: AMD Athlon 64-Bita 3200+
Vinnsluminni: 512mb DDR333 PC2700
Harður diskur: 160gb (ATA 100/5400rpm)
Skjákort: GeForce FX 5500 128mb
Geisladrif: CD Skrifari / DVD Skrifari (+ / -)
Netkort: 10/100mbit
Hljóðkort: Avance AC97 innbyggt
Stýrikerfi: Windows XP Home
Hugbúnaður: Works Suite
Media Bay (kort sem les SD, Memory Stick,
Compact Flash og Smart Media)
Hátalarar, lyklaborð og mús fylgja
Í ÖLLUM VÉLUM ER:
8.325,-á mán.*6.658,-á mán.*4.992,-á mán.*
Fullt verð: 79.900,-
tækni
Fullt verð: 99.900,-
SVAR TÆKNI - SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000 - WWW.SVAR.IS
*Lánþegi greiðir 3,5 % stimpil- og lántökugjald að auki.
Á vaxtalausu tilboði í 12 mánuði!
AÐ AUKI ÞÁ BYRJAR ÞÚ EKKI AÐ BORGA FYRR EN 1. FEB.
FRÁBÆR MARGMIÐLUNARTÖLVA
Skjár er
aukabúnaður á mynd
Fullt verð: 59.900,-
Lyfja Lágmúla og Lyfja Smáratorgi
Opið 8-24 alla daga
auglýsingapantanir í síma 569 1111
V I K U L E G A
Borgartúni 28, símar 520 7901/520 7900
www.ef.is
• Hagstætt verð
HVAÐ eiga jafnólíkir menn og Jó-
hannes Jónsson Bónusforstjóri, Þór
Whitehead prófessor og Ólafur Eg-
ilsson sendiherra sameiginlegt þessa
dagana?
Svarið kemur
kannski einhverjum á
óvart: Þeir eru allir ein-
dregið á móti nýjustu
skipulagshugmyndum
á Seltjarnarnesi. Ekki
eru þeir einir um að
sameinast um þessa
skoðun, ellefu hundruð
bæjarbúa hafa þegar
mótmælt með einum
eða öðrum hætti.
Skipulag getur bæði
auðgað og dregið úr
lífsgæðum fólks löngu
eftir að allir sem að
ákvarðanatökunni standa eru sjálfir
komnir undir græna torfu. Því er
mikilvægt að flokkadrættir og dæg-
urmál ráði ekki ferðinni.
Afrakstur mikillar vinnu bæj-
arfulltrúa og arkitekta, væntanlega
með hugmyndir íbúaþingsins að leið-
arljósi, hefur nú birst í breyttu að-
alskipulagi og nýju deiliskipulagi
hluta Seltjarnarness. Þar er að finna
margar og merkilegar silkihúfur,
sem bera þess ótvíræð merki að ólík-
ar hendur hafa barist harkalega um
yfirráð yfir skærum, nál og tvinna.
Samt er valið ekki erfitt þegar kem-
ur að því að nefna hvað helst stingur
í augu þegar horft er yfir nýjustu
samþykkt bæjarstjórnar og skipu-
lagsyfirvalda.
Á miðjum Hrólfsskálamelnum, í
hjarta miðbæjarins, mun mikill hluti
landssvæðisins fara undir gervigras-
völl. Hver fermetri húsnæðis hér-
lendis er einna dýrastur á Seltjarn-
arnesi. og miðbæjarkjarni hvers
þéttbýlis talinn verðmeiri en aðrir.
Hvað í ósköpunum kostar þá hver
fermetri lands sem undir þennan
gervigrasvöll fer? Verður þetta
kannski hlutfallslega
dýrasti gervigrasvöllur
í Evrópu? Og varla get-
ur það verið vænlegasti
kosturinn að í framhjá-
hlaupi kafni allir mögu-
leikar Seltjarn-
arnesskaupstaðar til
þess að skipuleggja
heildstæðan miðbæj-
arkjarna fyrir framtíð-
ina. Hvar eiga versl-
anir, bankar,
þjónustufyrirtæki og
kaffihús að vera og
hvernig á að tengja
þetta allt saman með
gervigrasvöllinn kirfilega í miðjunni?
Og finnst mönnum engin grimmd í
því fólgin að setja völlinn beint við
íbúðir eldri borgara? Á slíkum stað
verður heyrnarleysi á efri árum kost-
ur en ekki galli.
Völlurinn er skárri þar sem hann
nú stendur. Annar möguleiki er að
byggja upp í tengslum við framtíð-
aráform KR vallarins og þriðji kost-
urinn að sameina hann þeim gras-
velli sem nú er fyrir efst á
Valhúsahæðinni, Hann mætti ein-
faldlega grafa betur niður og byggja
inn í landslagið. Hliðar og brúnir er
hægt að nýta sem áhorfendapalla
með réttri landslagshönnun, jafnvel
byggja yfir hann að hluta og tyrfa yf-
ir. Hugsanlega líka samnýta sem op-
inn leikvang fyrir leiksýningar, list-
viðburði og fleira. Meginatriðið væri
að tengja hann gönguleiðum og
landslagi.
Jóhannes Bónusmaður hefur bent
á að Eiðistorg sé ekki lengur hentugt
sem verslunarhúsnæði og áformar að
byggja á svokallaðri Skeljungslóð.
Hins vegar er rýmið þar minna en
gæti orðið á Hrólfsskálamel og þann-
ig tapast möguleiki Seltjarnarness á
því að setja upp sterkan versl-
unarkjarna sem þjóna myndi bæði
Vesturbæ Reykjavíkur og Seltjarn-
arnesi, með tilheyrandi aukningu
tekna fyrir bæjarsjóð Seltjarn-
arness. Hverfabúðir bera illa sam-
eiginlegan kostnað, þannig að því
þarf að hyggja í upphafi strax og
hverfin eru skipulögð. Til þess gefst
núna einstakt tækifæri á Seltjarn-
arnesi, áður en búið er að hefta vaxt-
armöguleika miðbæjarins og hafist
er handa við að byggja verslunarhús
á Skeljungslóðinni. Eiðistorg mætti
endurhanna og nýta með aukinni
íbúðabyggð sem þá væri í samræmi
við það sem fyrir er á svæðinu.
Blokkarbyggingar sem eru fyr-
irhugaðar á lóðinni næst Valhúsa-
skóla hafa reynst mörgum þyrnir í
auga. Lægri keðjubyggingar væru
meira í samræmi við núverandi
byggð í nágrenninu. Þegar menn
eins og til dæmis Pétur Ármannsson
deildarstjóri byggingalistadeildar
hjá Listasafni Reykjavíkur eru
spurðir álits kemur í ljós að slíkar
byggingar er mögulegt að hanna
þannig að litlu færri íbúar kæmust
þar fyrir. Það sem á vantar mætti
vinna upp með því að koma blokk-
armyndum fyrir á Eiðistorgi, þar
sem háar byggingar eru fyrir og falla
því mun betur hver að annarri. Pétur
segir hins vegar vandann miklu víð-
tækari en bara þessar blokkir, þetta
sé í raun heildarmynd á brauðfótum.
Aðalskipulaginu mistakist að nýta
tækifæri til að skapa heildræna
mynd fyrir verslun og íbúðarkjarna
sem síðan hafi í för með sér verð-
mætari fasteignir og þannig hærri
tekjur fyrir bæjarfélagið.
Ítrekað skal að með þessum orð-
um er á engan hátt verið að leggja
dóm á önnur störf bæjarstjórn-
arinnar á Seltjarnarnesi. Besta
lausnin á þessu vaxandi deilumáli
felst í því að doka við og gefa sér tíma
til þess að hugsa vel hvert skref í
skipulagsmálum, þau verða ekki aft-
ur tekin. Láta hvorki pólitískar deil-
ur né eldgömul illa lyktandi þrætu-
epli vísa veginn. Það er engin
tilviljun að Jóhannes Jónsson Bón-
usforstjóri, Þór Whitehead prófess-
or, Ólafur Egilsson sendiherra og ell-
efu hundruð íbúar Seltjarnarness,
eiga nú óvænt það sameiginlegt að
vera eindregið á móti nýjustu skipu-
lagshugmyndum meirihluta bæj-
arstjórnar á Seltjarnarnesi. Rétta
lausnin er ekki ennþá mótuð og því
engin ástæða til annars en doka við,
fara að dæmi Indíánanna, setjast um
stund og bíða eftir sálinni. Maður,
flýttu þér hægt.
Hvað eiga Jóhannes, Þór og
Ólafur sameiginlegt núna?
Borghildur Anna Jónsdóttir
fjallar um skipulagsmál
á Seltjarnarnesi ’Besta lausnin á þessuvaxandi deilumáli felst í
því að doka við og gefa
sér tíma til þess að
hugsa vel hvert skref í
skipulagsmálum, þau
verða ekki aftur tekin.‘
Borghildur Anna
Jónsdóttir
Höfundur er myndlistarmaður.
Fréttir
í tölvupósti