Morgunblaðið - 25.11.2004, Qupperneq 44
44 FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Unglingar I standard-dansar
Alex Freyr Gunnarsson – Ragna Björk Bernburg, ÍR
John Giannini – Stevie Jones, England
Sigurður Már Atlason – Sara Rós Jakobsdóttir, DÍH
Fredrik Lund – Caroline Kjeldgaard Clausen, Danmörk
Júlí Heiðar Halldórsson – Telma Rut Sigurðardóttir, DÍK
Jökull Örlygsson – Rakel Sara Björnsdóttir, Gulltoppur
Unglingar I
s-amerískir dansar
Alex Freyr Gunnarsson – Ragna Björk Bernburg, ÍR
Sigurður Már Atlason – Sara Rós Jakobsdóttir, DÍH
John Giannini – Stevie Jones, England
Fredrik Lund – Caroline Kjeldgaard Clausen, Danmörk
Júlí Heiðar Halldórsson – Telma Rut Sigurðardóttir, DÍK
Sigtryggur Hauksson – Eyrún Stefánsdóttir, Gulltoppur
Unglingar II
standard-dansar
Nikolaj Lund – Camilla Dalsgaard, Danmörk
Haukur Freyr Hafsteinsson – Denise Margrét Yaghi, Hvönn
Björn Ingi Pálsson – Ásta Björg Magnúsdóttir, DÍH
Alexander Mateev – Erla Björg Kristjánsdóttir, ÍR
Fannar Helgi Rúnarsson – Lilja Guðmundsdóttir, Gulltoppur
David Kastor Nilsen – Anne-Louise Dahl Lassen, Danmörk
Unglingar II
s-amerískir dansar
Nikolaj Lund – Camilla Dalsgaard, Danmörk
Björn Ingi Pálsson – Ásta Björg Magnúsdóttir, DÍH
Haukur Freyr Hafsteinsson – Denise Margrét Yaghi, Hvönn
Fannar Helgi Rúnarsson – Lilja Guðmundsdóttir, Gulltoppur
Alexander Mateev – Erla Björg Kristjánsdóttir, ÍR
Jón Eyþór Gottskálksson – Helga Soffía Guðjónsdóttir, ÍR
Ungmenni standard-dansar
Benedikt Ásgeirsson – Benedicte Bendtzen, Danmörk
Jónatan Arnar Örlygsson – Hólmfríður Björnsdóttir, Gulltoppur
Baldur Kári Eyjólfsson – Anna Kristín Vilbergsdóttir, ÍR
Kristian Ott Milbo – Maria Sörensen, Danmörk
Christian Nonnemann – Ida Moldrup Svendsen, Danmörk
Stefen Wedege – Christina Pedersen, Danmörk
Ungmenni s-amerískir dansar
Benedikt Ásgeirsson – Benedicte Bendtzen, Danmörk
Jónatan Arnar Örlygsson – Hólmfríður Björnsdóttir, Gulltoppur
Kristian Ott Milbo – Maria Sörensen, Danmörk
Christian Nonnemann – Ida Moldrup Svendsen, Danmörk
Björn Vignir Magnússon – Björg Halldórsdóttir, Gulltoppur
Stefen Wedege – Christina Pedersen, Danmörk
16 ára og eldri standard-dansar
Benedikt Ásgeirsson – Benedicte Bendtzen, Danmörk
Kristian Ott Milbo – Maria Sörensen, Danmörk
Christian Nonnemann – Ida Moldrup Svendsen, Danmörk
Lárus Þór Jóhannsson – Sigrún Tinna Gunnarsdóttir, ÍR
Björn Sveinsson – Bergþóra María Bergþórsdóttir, DÍH
Stefen Wedege – Christina Pedersen, Danmörk
Jón Eiríksson – Ragnhildur Sandholt, Gulltoppur
16 ára og eldri s-amerískir dansar
Max Pedrov – Elísabet Sif Haraldsdóttir, Hvönn
Benedikt Ásgeirsson – Benedicte Bendtzen, Danmörk
Christian Nonnemann – Ida Moldrup Svendsen, Danmörk
Kristian Ott Milbo – Maria Sörensen, Danmörk
Björn Vignir Magnússon – Björg Halldórsdóttir, Gulltoppur
Atli Björn Gústavsson – Iðunn Jónasardóttir, Gulltoppur
Hægt er að nálgast önnur úrslit keppninnar á heima-
síðu Dansíþróttasambands Hafnarfjarðar: www.dih.is.
DANSÍÞRÓTTASAMBAND
Hafnarfjarðar undir stjórn Auðar
Haraldsdóttur stendur fyrir Lotto-
mótinu sem hátt á annað hundrað pör
tóku þátt í að þessu sinni, auk þess
sem stórir hópar af byrjendum barna
sýndu dans. Einnig var keppt í línu-
dönsum og mættu þar til leiks tveir
hópar. Sem fyrr var höfð liðakeppni og
var það lið Dana sem sigraði. Lottobik-
arar voru veittir og eru þá valin þau
pör sem fá í heild bestu einkunn dóm-
ara, eitt par sem keppir í dansi með
grunnaðferð og annað sem keppir í
dansi með frjálsri aðferð. Það voru þau
Sigurður Már Atlason og Sara Rós
Jakobsdóttir frá DÍH í dansi með
grunnaðferð og Jónatan Arnar Ör-
lygsson og Hólmfríður Björnsdóttir í
dansi með frjálsri aðferð. Bæði þessi
pör unnu þennan titil einnig á síðasta
ári.
Sú nýbreytni var að ásamt hinni ár-
legu Lottokeppni var haldin opin al-
þjóðleg keppni sem nefnd var „Lotto
Open“. Alls voru átta pör sem komu
erlendis frá og kepptu á mótinu. Sjö
þeirra komu frá Danmörku og eitt frá
Englandi. Sjö dómarar dæmdu ís-
lensku keppnina. Það voru þau Soffie
Dalsgaard og Jesper Dalsgaard frá
Danmörku, Julie Tomkins frá Eng-
landi, Hinrik Norðfjörð Valsson, Birg-
itta Sveinbjörnsdóttir, Gerður Harpa
Kjartansdóttir og Hildur Jóhann-
esdóttir. Í opna mótinu bættust við
fjórir dómarar þau Kara Arngríms-
dóttir, Níels Einarsson, Unnur Berg-
lind Guðmundsdóttir og Sigurður Há-
konarson. Dómararnir voru því alls
ellefu og er þetta fjölmennasti dóm-
arahópur sem dæmt hefur danskeppni
á Íslandi.
Keppnin hófst með innmarsi kepp-
enda og síðan setti formaður Dans-
íþróttasambands Íslands, Birna
Bjarnadóttir, mótið. Þá hófst
keppni yngstu hópanna og
síðan sýningar byrj-
endahópanna og var
yngsti hópurinn sem kom
fram aldursflokkur barna sjö
ára og yngri.
Julie Tomkins frá Englandi var
einn af dómurum keppninnar. Hún
hefur í gegnum tíðina verið í sambandi
við íslenska danskennara og þá mest
fyrir fimmtán til tuttugu árum. Hún
hafði eftirfarandi um keppnina að
segja:
„Mér finnst að þetta hafi verið
besti dans sem ég hef séð á Íslandi.
Þetta var mjög góð keppni og gaman
fyrir íslensku pörin að fá dansara er-
lendis frá til þess að keppa við. Það var
einnig gleðilegt að sjá hve góður og
heilbrigður keppnisandinn var. Mér
finnst að hópurinn Unglingar I (12–13
ára) gleymi stundum grunninum. Þau
þurfa að vinna betur á tækninni. Ég
veit að vísu að það er alltaf efitt og
stórt stökk að fara úr aldurshópnum
Börn II þar sem eingöngu eru dönsuð
grunnspor og upp í hóp Unglinga sem
keppa í dansi með frjálsri aðferð. Að
öðru leyti var ánægulegt að sjá að allir
voru snyrtilegir til fara og fallega
klæddir og greinilegt að hér voru á
ferð glaðir og áhugasamir dansarar.“
Dönsku dómararnir tveir voru hjón-
in Jesper og Soffie Dalsgaard. Þau
hafa undanfarin ár verið í samvinnu
við Dansíþróttafélagið Hvönn og
Dansíþróttasamband Hafnarfjarðar
við þjálfun. Undirrituð hafði samband
við þau og bað þau um að gera grein-
argerð um keppnina og ferðina hingað
til Íslands og hér kemur hún:
„Þegar við gerðum það kunnugt í
dansskólanum okkar að við værum á
leiðinni til Íslands til þess að dæma í
„Lotto Open“ keppninni kom það okk-
ur á óvart hversu mörg pör höfðu
áhuga á að koma með okkur. Helsta
ástæðan var sú að hægt var að fljúga
ódýrt til Íslands og fá tækifæri til að
sjá eitthvað af landinu. Einnig var
hvatning fyrir pörin sú staðreynd að
við höfum verið þeirrar ánægju aðnjót-
andi að tveir nemendur okkar eru frá
Íslandi.“ Það eru þau Ásta Sigvalda-
dóttir og Benedikt Ásgeirsson og hafa
þau tvö hafa haft mikil áhrif á dans-
heiminn í Danmörku, bæði sem
góðir vinir og frábærir fulltrúar ís-
lenska dansheimsins.
„Við viljum þakka öllum sem hlut
áttu að máli fyrir frábæra gest-
risni. Við höfum fundið fyrir
hlýju og góðvild, sem virð-
ist vera Íslendingum svo
eðlislæg, frá öllum sem við
höfum hitt. Þetta er eitt-
hvað sem allur danski hóp-
urinn, dansarar og foreldrar, hefur
tekið eftir og viljum við öll koma á
framfæri þakklæti til allra.“
Keppnin sjálf, að undanskildu
skipulagi á dagskrá, tókst mjög
vel. Andrúmsloftið í húsinu ein-
kenndist af vináttu og miklum
áhuga fyrir dansi og virtust dans-
ararnir skemmta sér konunglega.
Í „Lotto Open“ keppnunum voru
margir góðir dansarar. Danski hóp-
urinn og íslensku áhorfendurnir
voru duglegir að hvetja sitt
fólk.
Í keppni Unglinga I
var mikil barátta í báðum
greinum í fyrstu umferð-
inni þar sem dómarar
völdu þrjú pör beint inn í
úrslit. Baráttan hélt áfram í
milliriðlinum þar sem pörin börð-
ust um að fá næstu þrjú plássin í
úrslitunum. Okkur fannst dans-
inn í úrslitunum vera á háu
plani fyrir þennan aldurshóp. Að-
alvandamálin virtust vera þau að halda
réttri stöðu og sýna rétta fótavinnu. Í
standarddönsunum heftir þetta dans-
arana í að mynda rétta sveiflu í döns-
unum.
Í Unglingar II fannst okkur vera
greinilegur munur á þremur efstu pör-
unum og hinum pörunum. Samt sem
áður var mikil keppni um þrjú seinni
plássin í úrslitin. Í standarddönsunum
var greinilegur munur á þessum hópi
og yngri hópnum í færni dansaranna
til að standa rétt og nota rétta fóta-
vinnu. Þetta gerir dönsurunum kleift
að hreyfa sig frjálsar og mynda betri
sveiflu í dansinum.
Í s-amerísku dönsunum virtist aðal
vandamálið vera það að þroska vantar
í vinnu fóta og fótleggja. Þetta kemur í
veg fyrir réttar mjaðmahreyfingar í
cha cha cha og rúmbu. Í paso doble
virtust einungis þrjú efstu pörin hafa
skilning á grunnatriðum dansins. Hin
innri ró í líkamanum, handahreyfingar
og færni til þess að standa rétt í paso
doble er allt öðruvísi en í hinum s-
amerísku dönsunum.
Í keppni Ungmenna (16–18 ára) í
standarddönsunum var það getan til
að standa rétt, mynda rétta sveiflu og
staða efri hluta líkamans sem gerði út-
slagið þegar við vorum að leita að sig-
urvegara. Góð stjórn og fegurð í dans-
inum dugar ekki alltaf til sigurs. Þau
sem lentu í öðru sæti voru of mikið aft-
ur með líkamsþungann en það kemur í
veg fyrir að dansarinn getur notað fót-
inn sem staðið er á. Þetta varð til þess
að þau misstu af sigrinum. Baráttan
um næstu sæti fyrir neðan var mjög
jöfn og hörð og gaf áhorfendum
ástæðu til þess að hvetja dansarana
ennþá meira. Í s-amerísku dönsunum
var baráttan um sigursætið jafnari að
okkar mati. Þar var það samt sem áð-
ur góð beiting fóta og fótleggja sig-
urvegaranna sem skapaði léttar
mjaðmahreyfingar og samvinna þeirra
sem danspar sem gaf þeim tvöfaldan
sigur.
Í keppnisflokknum 16 ára og eldri
var eins og búast mátti við dans á
hærra stigi. Í s-amerísku dönsunum
voru tvö efstu pörin á sérplani. Það
breytti því samt ekki að sigurveg-
ararnir skáru sig úr hópnum. Þar var á
ferðinni góður dans í háum gæða-
flokki. Við hefðum samt sem áður vilj-
að sjá afslappaðri mjaðmahreyfingar
og meiri tengingu á milli herrans og
dömunnar. Í standarddönsunum virt-
ist það almennt ekki aðalatriðið að
nota tónlistina. Sigurvegararnir sem
og í hinni greininni skáru sig greini-
lega úr hópnum. Þau voru eina parið
með rétta stöðu og tengingu líkam-
anna.
Undanfarin fimm ár höfum við kom-
ið reglulega til Íslands. Á þeim tíma
höfum við séð marga efnilega dansara
sem hafa verið að auka hæfni sína til
þess að verða betri keppendur í dansi.
En því miður höfum við séð mjög efni-
lega dansara hverfa frá danssviðinu
hér á Íslandi, áður en þeir hafa getað
náð þeim árangri á alþjóðlegum vett-
vangi sem þau eiga skilið. Þetta hlýtur
að vera áhyggjuefni fyrir dansskólana
og dansíþróttafélögin í landinu.
Það sem við höfum séð á Íslandi
virðist í heildina staða dansins vera
góð og andrúmsloftið heilbrigt í kring-
um dansinn. Okkur finnst samt vanta
að dansararnir einbeiti sér að grunn-
atriðunum dansins og séu að reyna að
bæta sig í of mörgum atriðum í einu.
Þetta kemur í veg fyrir áframhaldandi
framfarir þessara hæfileikaríku dans-
ara. Þetta gæti verið vegna þess að
pörin sækja þjálfun og kennslu til of
margra kennara. Það hefur þau áhrif
að þau fá of margar og ólíkar upplýs-
ingar frá ólíkum kennurum sem allir
eru að vinna sitt verk vel og vilja döns-
urunum vel. En án samræmingar milli
kennaranna og/eða þjálfaranna vantar
beina stefnu fyrir pörin og það verður
ekki eins markviss uppbygging dans-
aranna.
Að lokum viljum við nefna að okkur
fannst dansinn hjá byrjendunum og
þeirra sem voru að keppa í barnaflokk-
unum lofa góðu fyrir framtíðina. Þar
voru á ferð margir efnilegir drengir og
stúlkur. Við óskum ykkur öllum
áframhaldandi farsældar í dansinum á
Íslandi.“
Um keppnina sjálfa vill undirrituð
nefna það að hún var að flestu leyti vel
heppnuð. Það var góð stemmning í
húsinu og öll umgjörð til fyrirmyndar.
Eins og ég nefndi eftir síðustu Lotto-
keppni ætlar álögum keppninnar ekki
að létta. Tímatafla fór úr böndunum og
var keppnin allt of löng. Þetta er algjör
synd þar sem keppnin var mjög
skemmtileg og eiga aðstandendur
hennar heiður skilið fyrir að hafa kom-
ið þessari keppni í framkvæmd og
fengið til leiks erlenda dansara sem ís-
lensku pörin gátu borið sig saman við.
Lífleg Lottokeppni
DANS
Íþróttahúsið við Strandgötu
Laugardaginn 13. nóvember var haldið
hið árlega Lottomót.
Kara Arngrímsdóttir
Nikolaj Lund og Camilla
Dalsgaard, sigurvegarar í
báðum greinum Lottokeppn-
innar 14–15 ára.
Max Pedrov og Elísabet Sif Har-
aldsdóttir, sigurvegarar í s-amer-
ískum dönsum 16 ára og eldri.
Jónatan Arnar Örlygsson og Hólm-
fríður Björnsdóttir, Lottopar árs-
ins, í dansi með frjálsri aðferð.
Benedikt Ásgeirsson og Benedicte
Bendtzen sigruðu í báðum greinum
Lottokeppninnar í 16–18 ára.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Alex Freyr og Ragna Björk, sig-
urvegarar í báðum greinum Lotto-
keppninar í 12–13 ára.
Úrslit „Lotto Open“