Morgunblaðið - 25.11.2004, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2004 47
DAGBÓK
Ámorgun föstudaginn 26. nóvember,stendur Listaháskóli Íslands fyrir svo-kölluðum Opnum degi á milli klukkan9.00 og 14.00. Er þetta í fyrsta skipti
sem slíkur dagur er haldinn í öllum deildum
Listaháskóla Íslands og gefst almenningi kostur á
að kynna sér starfsemi skólans innanfrá og í ná-
vígi við nemendur og kennara. Deildir Listahá-
skólans eru fjórar; leiklistardeild, tónlistardeild,
myndlistardeild og hönnunar- og arkítektúrdeild
og fer kennsla jafnan fram á þremur stöðum í
bænum, á Sölvhólsgötu, við Skipholt og í Laug-
arnesi.
Álfrún G. Guðrúnardóttir, kynningarstjóri
Listaháskóla Íslands, segir hugmyndafræðina á
bakvið dag sem þennan liggja í því að fólk geti
með auðveldum hætti fengið innsýn í það sem
fram fer í skólanum.
„Það er ekki endilega nóg að kynna sér skólann
í gegnum bæklinga,“ segir Álfrún. „Á morgun
geta þeir sem eru að spá og spekúlera í svona
námi gægst á bakvið tjöldin og séð hvernig skóla-
starfið fer fram og gefst áhugasömum kostur á að
taka þátt í hinum ýmsu verkefnum hinna mismun-
andi deilda.“
Sem dæmi tekur hún að leiklistardeildin mun
standa fyrir einskonar sýnis-inntökuprófi sem
samanstendur af leiktúlkun, líkamsþjálfun, radd-
beitingu og söng. Þeir sem hafa velt því fyrir sér
hvernig inntökupróf í leiklistina ganga fyrir sig fá
því rækilega innsýn inn í það ferli. Inntökuprófið
stendur frá klukkan 9.00 til 11.00.
Hinar deildirnar hafa sömuleiðis útbúið dag-
skrá vegna koamndi gestagangs.
Nemendur tónlistardeildar taka þá á móti nem-
endum og leiða þá um húsnæðið og þegar búið er
að fara rúnt um húsið geta gestir valið sér að kíkja
inn í einstaka námskeið og hlusta á tónleika. Svip-
að verður uppi á teningnum hjá myndlistardeild
og hönnunar- og arkítektúrdeild.
„Nemendur og kennarar verða svo til taks fyrir
gesti og munu svara spurningum, fræða fólk eftir
bestu getu og leiða það um skólann ef þess er ósk-
að en öll námskeið, verkstæði og kennslutímar
verða opin almenningi. Það eru allir velkomnir og
hvet ég alla áhugasama til að nýta sér þetta tæki-
færi.“
Álfrún vill að lokum minna á að mánudaginn
komandi verður ársfundur Listaháskólans sem
þjónar á vissan hátt viðlíka tilgangi og Opinn dag-
ur. Fer hann fram í Laugarnesi klukkan 20.30.
Á fundinum flytja stjórnendur skólans skýrslu
yfir starfsemi síðasta skólaárs, kynna þau verk-
efni sem helst eru á döfinni auk þess sem farið
verður yfir almenna stefnumótun skólans. Líkt og
með Opinn dag er fundurinn öllum opinn og verða
fyrirspurnir og umræður í lok hans.
Listir | Opinn dagur verður í Listaháskóla Íslands á morgun
Allir geta kynnt sér starfsemi skólans
Álfrún G. Guðrún-
ardóttir er kynning-
arstjóri Listaháskóla
Íslands. Hún er með
M.A. próf í listrænni
stjórnun og menning-
arfræðum með leik-
húsfræði sem aukafag,
B.A. próf í íslenskum
bókmenntum og hefur
lokið V. stigi í söng frá
Söngskólanum í
Reykjavík. Áður en Álfrún hóf störf hjá
Listaháskólanum starfaði hún í nokkur ár sem
deildarstjóri Listadeildar í Menningarmiðstöð-
inni Gerðubergi. Auk þess hefur hún unnið
víða í tengslum við menningu og listir.
Álfrún er fædd 1968. Maki er Kjartan Ólafsson
tónskáld og eiga þau samtals þrjú börn, þau
Hring, Védísi og Sunnevu.
Arnargerði
Í FLATEY á Skjálfanda er nokkuð
sem enginn veit hvað er. Er það kall-
að Arnargerði, birtist manni sem
hringlaga garður hlaðinn af mönn-
um. Við nánari athugun kemur í ljós
að garðurinn er sporöskjulaga og er
þvermálið 80–120 metrar. Innan
garðsins hækkar landið inn að miðju
og eru þar ummerki um hús sem þar
hafa staðið. Af þessu er ljóst að ein-
hverjir menn hafa flutt til á yfirborði
jarðar hundruð eða jafnvel þúsundir
tonna af jarðefnum. Af forvitni gróf
sá er þetta ritar, ásamt þrem ungum
mönnum, þeim Hauki, Grétari og
Elmari Hilmarssonum, holu ca 15
metra frá miðju gerðisins. Á 40 cm
dýpi var flatur steinn eins og notaðir
voru í stéttar og lag úr líparítösku
ca. þriggja cm þykkt. Steinninn var
greinilega úr Krosshúsabjargi og
askan úr Heklugosi árið 1104. Ýms-
ar hugmyndir hafa verið um, hvað
þarna var. Ein er að þetta hafi verið
stjörnuathugunarstöð og vísað í sög-
ur af Stjörnu-Odda sem var þarna í
héraðinu.
Hverjir voru þarna, hvað voru
þeir að gera, hvers vegna fóru þeir?
Gestur Gunnarsson,
Flókagötu 8, Rvík.
Gleraugu í óskilum
NÆRSÝNISGLERAUGU í rauðu
hulstri fundust í Safamýrinni sl.
laugardag. Upplýsingar í síma
863 8222.
Kettlingur fæst gefins
12 VIKNA kettlingur (högni) fæst
gefins. Upplýsingar í síma 565 4210
eða 869 5128.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Deildakeppnin.
Norður
♠6
♥G3 S/Enginn
♦D7653
♣D9865
Vestur Austur
♠DG43 ♠987
♥42 ♥ÁD85
♦KG ♦10842
♣ÁKG104 ♣73
Suður
♠ÁK1052
♥K10976
♦Á9
♣2
Eitt af fyrstu spilum helgarinnar
var bútur í hjarta, sem bauð upp á
skemmtileg tilþrif sagnhafa. Spilið er
frá 8. umferð Deildakeppninnar og
víða gengu sagnir þannig:
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 spaði
1 grand Pass Pass 2 hjörtu
Pass Pass Pass
Byrjunin er næstum sjálfgefin:
Vestur kemur út með laufás og skipt-
ir svo yfir í tromp, sem austur tekur
og spilar aftur hjarta. Hvernig metur
lesandinn horfur sagnhafa?
Lítum á tapslagina. Vestur hlýtur
að fá tvo slagi á spaða og það er
sennilegt að austur fái tvo á tromp.
Einn laufslag hefur vörnin fengið og
tígulkóngurinn bíður síns tíma. Það
er sem sagt hætta á því að gefa sex
slagi.
Baráttan kemur til með að snúast
um hjartadrottninguna. En til að
byrja með hleypir sagnhafi trompinu
yfir á gosann. Spilar svo ÁK og þriðja
spaðanum. Vestur gerir best í því að
taka annan spaðaslag og spila sér út
á laufkóng. Suður trompar og spilar
tígulás og tígli að blindum. Vestur
drepur og verður að spila laufi. Ef
austur kýs að trompa laufdrottningu,
yfirtrompar suður og á afganginn
heima.
Ef austur hendir í laufið, spilar
sagnhafi tíguldrottningu og hendir
spaða. Svo á hann út í borði í tveggja
spila endastöðu og nær þannig
trompinu af austri.
Fallegt bútaspil.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
ER EILÍFT líf eins eftirsóknarvert
og það virðist við fyrstu sýn? Hverj-
ir eru kostir og gallar ódauðleik-
ans? Er gyðingurinn gangandi enn
á röltinu? Þessum spurningum er
m.a. velt upp í nýrri leiksýningu
sem Hugleikur í Reykjavík og Leik-
félag Kópavogs setja upp í samein-
ingu. Verkið sem nefnist Memento
Mori er sett upp undir stjórn
Ágústu Skúladóttur.
Frumsýning verður í dag og fara
sýningar fram í Hjáleigunni í Fé-
lagsheimili Kópavogs.
Memento Mori er latína og þýðir
„Mundu dauðann“ eða „Mundu að
þú munt deyja“. Hugmyndina að
sýningunni má rekja til klausturs í
Litháen þar sem munkar, sem svar-
ið höfðu þagnareið, máttu þó minna
hver annan á fallvaltleika lífsins
með þessum orðum. Sýningin er
unnin í spunavinnu undir hand-
leiðslu hugmynda- og handritshóps
í samvinnu við leikstjóra, leikhóp
og fleiri. Vinna við sýninguna hefur
staðið yfir með hléum síðan síðast-
liðið vor og hafa fjölmargir lagt
hönd á plóginn.
Þessi tvö félög hafa borið hróður
íslenskrar leiklistar víða á erlend-
um leiklistarhátíðum undanfarin ár
svo sem í Svíþjóð, Noregi, Litháen,
Eistlandi og Rússlandi.
Leiklist | Samstarf Hugleiks og
Leikfélags Kópavogs
Kostir og gallar
ódauðleikans
Huld Óskarsdóttir og Helgi Róbert Þórisson í hlutverkum sínum.
ÁRLEG jólavaka Karlakórsins
Stefnis verður nk. sunnudag í Hlé-
garði og hefst kl. 20.00.
Eins og næstliðin ár verður jóla-
vakan í samvinnu við Skólakór Var-
márskóla. Kórarnir syngja saman og
hvor í sínu lagi nokkur lög, Karla-
kórinn Stefnir undir stjórn Atla
Guðlaugssonar og Skólakór Varm-
árskóla undir stjórn Guðmundar
Ómars Óskarssonar.
Píanóleikarar eru Sigurður Mar-
teinsson og Arnhildur Valgarðs-
dóttir.
Bæjarstjórinn
Ragnheiður Rík-
arðsdóttir flytur
hugvekju og Her-
mann Stefánsson,
rithöfundur les úr
nýrri bók sinni.
Boðið er upp á
kaffihlaðborð að
hætti Stefnanna,
sem er félag eig-
inkvenna karlakórsmanna.
Aðgangseyrir er 1.000 kr. fyrir
fullorðna en 500 kr. fyrir börn.
Jólavaka Stefnis
Atli Guðlaugsson
Heiti Potturinn
Trompmiði er auðkenndur með bókstafnum B en einfaldir miðar með E, F, G
og H. Gangi vinningar ekki út bætast þeir við Heita pott næsta mánaðar.
Birt með fyrirvara um prentvillur.
11. flokkur, 24. nóvember 2004
2308 B kr.24.720.000,-
2308 E kr. 4.944.000,-
2308 F kr. 4.944.000,-
2308 G kr. 4.944.000,-
2308 H kr. 4.944.000,-
HREINLÆTISVÖRURNAR FRÁ
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Helgartilboð
15%afsláttur
af öllum drögtum