Morgunblaðið - 25.11.2004, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 25.11.2004, Qupperneq 52
MARIAH Carey hefur breytt um nafn og nú vill hún láta kalla sig Mimi Carey. Söngkonan þokkafulla hefur beðið aðdáendur sína vinsamleg- ast um að kalla sig þessu gælu- nafni, sem verður í titli væntanlegrar plötu henn- ar: The Emancipation of Mimi. Mimi útskýrði þessa ákvörðun sína svo: „Mimi er afar persónu- legt gælunafn sem er aðeins notað af þeim sem standa mér næst. Ég hef hing- að til kosið að halda því fyrir mig, til að greina að per- sónunar sem birtast í sviðsljósinu og einkalífinu. “ En nú hefur hún ljóstr- að upp þessu persónulega gælunafni sínu til þess að sýna aðdáendum sínum í eitt skipti fyrir öll fram á hversu „sönn“ hún er. Á heimasíðu sinni segir hún í tilkynningu til aðdáenda: „Nú tek ég niður grímuna og býð aðdáendum að koma miklu nær mér. En það sem mestu máli skiptir er að ég er að fagna því að hafa þroskast og loksins orðið að manneskju og lista- manni sem finnur ekki lengur fyrir þeirri óöryggiskennd að finnast ég þurfa að uppfylla óskir annarra um hver Mariah Carey á að vera. Nú get ég sagt fullum fetum: Þetta er ég, hin eina sanna ég, taktu því sem býðst eða slepptu því.“ Fólk í fréttum | Gælunafnið er málið Mimi Carey Mimi Carey kemur til dyra eins og hún er klædd – eins og t.d. þegar hún mætti í 35 ára afmæli Sean P. Diddy á dögunum. .                  : : :     , :     "               2)  2)  90 90 2)  90 90 2)  2)  3 0 0 2)  2)  2)  0 90 90 90 2)  90          ! " #$" % "!   & #' (  #) * #  +   , - & . /* # &012" !" -  34" ' ' .0  "& $. -5$ )65 #7$  . .8' 52 FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ SÝNINGIN Allra meina þjónn verður frumsýnd á Litla sviði Broadway á laug- ardaginn. „Þetta er kabarett, blanda af tónlist og skemmtiatriðum, uppistandi. Þarna eru syngjandi þjónar en þetta er skemmtun undir borðhaldi. Fólk er að borða þriggja rétta kvöldverð á meðan sýningin rennur í gegn,“ segir Hallur Helgason leikstjóri. „Verkið er samið af leikhópnum en þetta er líka spuni, fer allt eftir því hvernig fólk er í salnum,“ segir hann og bætir við að mikið hafi verið lagt uppúr að finna rétta fólkið í hlutverkin. „Vandamálið er að velja rétta fólkið. Það þarf að kunna að spinna, vera með gamanmál á reiðum höndum og vera músíkantar og söngvarar líka,“ segir Hallur og telur að það hafi tekist. Leikarar og söngvarar sýningarinnar eru Brynhildur Björnsdóttir, Inga Stef- ánsdóttir, Freyr Eyjólfsson, Vilhjálmur Goði Friðriksson og Þorkell Heiðarsson. „Það er ekki hægt að ráða í þetta nema fjölhæfa einstaklinga. Það er spilað á harmonikku, gítar, mandólín og píanó. Þarna er heilmikill tónlistarflutningur.“ Uppselt varð fyrir nokkru síðan á frumsýninguna en Allra meina þjónn verður á dagskrá um helgar og geta fyrirtæki pantað sýninguna önnur kvöld ef það hentar. „Eitt kvöld er orðið upp- selt í ágúst á næsta ári,“ upplýsir Hall- ur en sýningin sú er fyrir hóp ferða- manna en verkið er líka leikið á ensku. „Þetta er ákveðin tegund af skemmt- un sem hefur verið vinsæl um allan heim. Við erum búin að prufukeyra sýn- inguna og það gekk mjög vel,“ segir Hallur. Áður var Le’Sing sýnt á Litla sviðinu sem var sýning af svipuðu tagi. Sýndar voru um 90 sýningar á Le’Sing og nán- ast alltaf fullt hús en Litla sviðið tekur 160 manns í mat og á sýningu. En af hverju skyldi þetta vera svona vinsælt form? „Ætli það sé ekki að fólk er að láta skemmta sér og getur borðað og drukkið á meðan. Þú ert að gleðja öll skilningarvitin í einu. Aðalmálið er að skemmta fólki, með gamanmálum og vandaðri tónlist.“ Leikhús | Gamanmál og söngur í Allra meina þjóni á Broadway Öll skilningarvit örvuð Morgunblaðið/Kristinn Leikstjórinn Hallur Helgason ásamt syngjandi þjónunum Ingu Stefánsdóttur, Brynhildi Björnsdóttur og Frey Eyjólfssyni. Upplýsingar um verð og matseðil má finna á www.broadway.is. ingarun@mbl.is UNDIRTITILL heimildarmyndarinnar um Guðberg Bergsson, Rithöfundur með mynda- vél er óformleg ævisaga. Það má til sanns veg- ar færa því víða er komið við á litríku og frjó- sömu lífshlaupi þessa þekkta listamanns. Myndin er þó öllu frekar hugleiðingar skálds- ins um lífið og tilveruna, viðhorf hans til um- hverfisins sem mótaði hann. Þar rísa hæst bernskuslóðirnar í Grindavík og heimsborgin Barcelóna. Varla finnast andstæðari pólar í álfunni, og þó. Guðbergur veitir okkur innsýn í hvernig hann tekur á hlutunum, lífsreglurnar eru svo sem ekkert flóknar og væri heimurinn mun við- kunnanlegri ef menn bæru almennt gæfu til að skilja þær og fara eftir þeim. Hann segist ein- faldlega haga seglum eftir vindi, reyna að haga sér eins og innfæddur hvar sem hann fer. Er ekkert að troða Spáni inná Íslendinga og öfugt. Það er gnótt annarra heilræða í myndinni þeirra Helgu, Guðbergur segir m.a. frá því hvernig hann lærði að komast af með góðu móti í sjávarplássinu með því að vinna þau störf sem honum voru fengin af samviskusemi, að þeim loknum réð hann sjálfur dagskránni. Gæfu- samur er Guðbergur að gera sér grein fyrir einni af undirstöðureglum mannlífsins þegar á barnsaldri. Guðbergur útlistar skemmtilega hvernig ber að haga sér meðal mennta- og listamanna þar sem dægurmál á borð við veður og líkamsástand eru mönnum ekki til fram- dráttar. Aðalatriðið umfram allt að vera eðli- legur, læra að aðlagast ólíkum menningar- heimum og umhverfi en gleyma því heldur ekki hvaðan maður kemur og hver maður er. Þau Helga og Guðbergur koma víða við, notaleg, hnyttin og afdráttarlaus. Rithöfundur með myndavél afhjúpar fágaðan, dálítið hátíð- legan og skemmtilegan mann sem þrátt fyrir frægð og frama hefur megnustu skömm á yf- irborðsmennsku og tilgerð. Lætur álit sitt í ljósi af stakri háttvísi, jafnvel þó málefnin gefi tilefni til stóryrða. Helga Brekkan hefur fléttað fínlega saman gamlar 8 mm upptökur listamannsins við nýjar og nýlegar tökur, reyndar kemur myndin beint úr ofni leikstjórans. Útkoman vandvirknislegt portrett af heillandi manni sem heldur reisn sinni og margir geta lært af, ekki síst ef þeir álíta sig býsna merkilega. Grindvíkingurinn og heimsborgarinn Ljósmynd/Guðbergur Bergsson „Vandvirknislegt portrett af heillandi manni sem heldur reisn sinni og margir geta lært af,“ segir í umsögn um myndina um Guðberg. KVIKMYNDIR Regnboginn – Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík Heimildarmynd. Leikstjórn og handrit: Helga Brekk- an. Klipping: Steinþór Birgisson.Myndataka: Margir. Myndin er gerð með stuðningi frá Kvikmyndastofnun Íslands – Kristínu Pálsdóttur og Svenska Film- institutet – Hjalmar Palmgre. 52 mín. TC-Films/See- Film. Ísland/Svíþjóð, 2004. Rithöfundur með myndavél – óformleg ævisaga  Sæbjörn Valdimarsson Tónlistarmaðurinn Bob Dylanhefur samþykkt að láta taka við sig viðtal í sjónvarpi í fyrsta sinn í 19 ár. Það gerist 5. desember en þá mun hið 63 ára gamla söngva- skáld koma fram á CBS-sjónvarps- stöðinni, að því er New York Post skýrir frá. Búið er að taka upp viðtalið við Dylan, en hann ræddi í 90 mínútur við fréttamann- inn Ed Bradley um feril sinn og frægð, erfitt samband sitt við fjöl- miðla og um samband sitt við föður sinn. Dylan hefur nýlega gefið út æviminningar sínar hjá Simon & Schuster. Nefnist bókin Chronicles: Volume One.    Rapparinn Eminem er afar ósátt-ur við þá tónlistarmenn sem gagnrýnt hafa texta á nýrri plötu hans og segir þá vega að „listrænu frelsi“ sínu. Á plötunni, Encore, fá margir þekktir einstaklingar það óþvegið, þar á meðal George W. Bush, Bandaríkjaforseti og söngv- arinn Michael Jackson. Segist Eminem telja að ef allir sem móðgist vegna háðskra laga- texta hans, færu með mál sín fyrir dómstóla, þá væri hann fyrr en varði kominn „á hausinn,“ að því er greint er frá í tímaritinu Femalefirst. Þar segir Eminem það bölvanlegt ef listamenn fari í mál við aðra lista- menn fyrir að segja hluti sem listræn tjáning þeirra bjóði þeim. „Ef allir sem ég minnist á á Encore fara í mál við mig, verð ég ansi fátækur við lok rappferils míns,“ segir Eminem. „En, ef þið viljið fara í mál, takið númer, því það eru margir í röðinni,“ bætti söngvarinn við. Fólk folk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.