Morgunblaðið - 30.12.2004, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 30.12.2004, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FIMMTÁN Íslendingar eru á vegum ferðaskrifstofunnar Kuoni í Hua Hin í Taílandi. Þá er 20 manna út- skriftarhópur frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja á leið þangað. Að sögn Tómasar Þórs Tómassonar, fram- kvæmdastjóra Kuoni á Íslandi, eru ekki fleiri ferðir áformaðar þangað í bili. Svæðið sé hins vegar öruggt og sé ekki á svonefndu hamfarasvæði. 15 Íslendingar á Hua Hin HJÁLPARSTARF kirkjunnar hefur orðið við beiðni samstarfsaðila sinna í Tamil Nadu á Indlandi og sent þangað 1,5 milljóna króna framlag til að hjálpa fórnarlömbum 10 fiskiþorpa sem urðu illa úti í flóðunum. Peningarnir voru sendir út í fyrradag og verða notaðir til að gefa 2000 manns mat í að minnsta kosti 10 daga og útvega 500 fjöl- skyldum dýnur og föt. Fólkið var búsett í 10 fiskimannaþorpum á ströndinni undan starfssvæði sam- takanna. Þau eru í rúst eftir flóð- bylgjuna. Að sögn Jónasar Þ. Þórissonar, framkvæmdastjóra Hjálparstarfs kirkjunnar, eru peningarnir teknir úr neyðarsjóði Hjálparstarfsins, og muni að líkindum skila sér í söfn- uninni sem fór af stað í fyrradag. 1,5 milljónir til Tamil Nadu á Indlandi ÚRVAL-ÚTSÝN hefur skipulagt tvær sérferðir fyrir golfiðkendur til Pattaya í Taílandi í janúar og febrúar. Að sögn Peters Salomon, sölustjóra golfferða hjá ÚÚ, hafa margir hringt viljað fá staðfest að farið verði í ferðirnar, í kjöl- far náttúruhamfaranna við Ind- landshaf. Hann hafi þegar hringt utan og fengið þær upplýsingar að Pattaya sé ekki á hamfara- svæðunum og svæðið sé mjög öruggt og þar ami ekkert að fólki. Utan hamfara- svæðanna BISKUP Íslands hefur sent prest- um þjóðkirkjunnar bréf þar sem hvatt er til þess að fórnarlamba hamfaranna verði minnst í guðs- þjónustum um áramótin. Í bréfi biskups segir m.a.: „Inn í birtu og fögnuð hátíð- anna bárust fréttir af hinum ægi- legu náttúruhamförum í Asíu. Engin leið er að gera sér í hug- arlund þá ægikrafta sem þar voru að verki og þá skelfingu og eyðileggingu, örvæntingu og sorg sem það hefur leitt af sér. Ljóst er að hamfarirnar hafa valdið miklu manntjóni og gífurlegri eyðileggingu.“ Prestar hvattir til að minnast fórnarlambanna FENGIST hafa vísbendingar um að fimm Íslendingar, sem leitað var að í Taílandi og talið var að gætu hafa verið á hættusvæði, séu ekki í hættu þótt ekki hafi náðst í þá sjálfa, að sögn Heiðrúnar Páls- dóttur sendiráðsritara. Áfram verður reynt að hafa samband við þetta fólk. Að sögn Péturs Ás- geirssonar, skrifstofustjóra í utan- ríkisráðuneytinu, er fólk ekki tek- ið af listanum yfir þá sem leitað er að fyrr en heyrst hefur í því sjálfu. Sagðist Pétur vonast til að mál Íslendinganna sem leitað hef- ur verið að í Taílandi skýrðust í dag. Enn hefur ekki náðst samband við fimm manna fjölskyldu sem ættingjar telja að hafi farið til Balí. Ekki urðu neinir mannskaðar á Balí vegna flóðbylgna. Áfram verður reynt að hafa samband við þetta fólk til öryggis, að sögn Heiðrúnar. Morgunblaðið/Sverrir Víða á hamfarasvæðunum hafa verið festar upp tilkynningar um fólk sem saknað er. Íslendingar í Taílandi taldir öruggir ÞRÍR starfsmenn Flugleiða voru staddir á Mald- ív-eyjum í Indlandshafi í tengslum við leiguflug fyrir ítölsku ferðaskrifstofuna Neos, þegar flóð- bygjan reið yfir eyjar og strendur við Indlands- haf sl. sunnudag. Flóðbylgjan skall á eyjunum en það varð íslensku starfsmönnunum til happs að þeir gistu á annarri eyju en upphaflega stóð til og hún slapp að mestu við flóð. Eyjan og hótelið sem áhöfnin gisti á heitir Fihaholhi, en upphaflega áttu starfsmenn Flug- leiða að gista á annarri eyju í eyjaklasanum. Þar skoluðust hins vegar öll hús í burtu. Að sögn Kristjáns Óskarsonar, flugstjóra hjá Flugleiðum, varð hann var við titring þegar klukkan var langt gengin í tíu um morguninn. Um klukkustund síðar hefði sjórinn tekið að rísa og flætt yfir neðri hæð tvílyfts gistihúss sem þau dvöldu á. „Svo hvarf þetta aftur. Það var mikil óvissa, við vissum náttúrulega ekki hvað var að gerast. Við horfðum á þetta undur veraldar,“ segir Kristján, og segir að sér hafi helst dottið í hug að skilin milli flóðs og fjöru væru svona skörp. Hið rétta hafi síðar komið í ljós þegar farþegar tóku að fá SMS skilaboð með fréttum af skjálft- anum. „Sumir stóðu bara á skýlunni“ Að sögn Kristjáns brugðust ítölsk stjórnvöld hratt við fréttum af skjálftanum og sendu flugvél eftir ítölsku farþegunum. Daginn eftir hefðu far- þegar snúið aftur til Ítalíu, mun fyrr en ráð var fyrir gert í upphafi. Að sögn Kristjáns höfðu margir farþeganna lent í flóðbylgjunni, slys urðu á fólki og eitthvert manntjón og „sumir stóðu bara á skýlunni“ á flugvellinum í Mali enda hafði sjórinn skolað öllu burt. Einn maður hefði lýst því svo fyrir áhöfn að hann hefði verið í blaki með syni sínum og fleirum þegar flóðbylgjan skall á og hann rétt náð að grípa son sinn áður en sjórinn sogaði hann til sín. Að sögn Kristjáns var fólki á eyjunni tjáð að von væri á annarri flóðbylgju í kjölfar eftir- skjálfta. „Okkur var tjáð að flóðbylgjan væri í Mali, sem var norðan við okkur, og að hún ætti eftir að koma yfir okkur, 6-10 metra há. Maður beið eins og bjáni með myndavélina,“ segir hann. Kristján segist heppinn og þakklátur að hafa sloppið jafn vel og raun ber vitni. Önnur flóð- bylgja lét aldrei á sér kræla. Íslenskir starfsmenn Flugleiða voru með ítalskri áhöfn í för, sem fyrr segir. Frá Maldív- eyjum var flogið aftur til Ítalíu og þaðan fóru ís- lensku starfsmennirnir til Íslands. Þrír starfsmenn Flugleiða sluppu við flóðbylgjuna á Maldív-eyjum Fóru annað en ráðgert var RÚMLEGA 27 milljónir króna hafa safnast hér á landi síðustu daga til hjálparstarfs á vegum Rauða krossins á hamfarasvæð- unum í Asíu. Tveir sendifulltrúar Rauða kross Íslands eru á leið til svæðanna, annar til Sri Lanka og hinn til Indónesíu og fleiri sendi- fulltrúar eru í viðbragðsstöðu. Alþjóða Rauði krossinn sendi í gærmorgun út hjálparbeiðni sem er sú stærsta um áratugaskeið en talin er þörf á um þremur millj- örðum króna til hjálparstarfs sam- takanna á hamfarasvæðunum við Indlandshaf. Rúmlega tólf þúsund manns á Íslandi hafa hringt í söfn- unarsímann 907 2020 og þannig stutt hjálparstarf á svæðinu. Rík- isstjórn Íslands, Pokasjóður, deild- ir Rauða krossins og fyrirtæki hafa stutt hjálparstarfið með framlögum og hafa rúmlega 20 milljónir króna safnast síðustu daga. Verið er að skipuleggja aðstoð við 150.000 manns á norður- og austurhluta Sri Lanka, en sá landshluti er undir stjórn skæru- liða. Flugvél Rauða krossins fór í fyrradag frá Nairobi til Sri Lanka með 105 tonn af hjálpargögnum, sem eiga að nægja til að mæta þörfum 50.000 manna. Fram kem- ur á vef RKÍ, að Hlér Guðjónsson, sendifulltrúi Rauða kross Íslands, sé á leiðinni til Sri Lanka þar sem hann mun taka þátt í hjálparstarfi á vegum Alþjóða Rauða krossins. Yfir 27 milljónir hafa safnast Morgunblaðið/Sverrir Margar götur á Patong-strönd eru rústir einar eftir hamfarirnar. SAMTÖKIN Save the Children hafa brugðið skjótt við til að koma börn- um og fjölskyldum þeirra sem urðu illa úti í hamförunum í Suðaustur- Asíu til hjálpar, að því er segir í fréttatilkynningu frá Barnaheillum. Save the Children eru með starf- semi í þeim löndum sem verst urðu fyrir barðinu á flóðunum. Nú verður áherslubreyting og meira lagt upp úr neyðaraðstoð til þeirra sem eru mest þurfandi en uppbyggingar- starfi. Samtökin stunda þegar öfluga neyðaraðstoð á þeim svæðum sem verst urðu úti á Sri Lanka, Myanm- ar, Taílandi, Indlandi og í Indónesíu. Neyðarskýlum, tjöldum, vatns- hreinsitöflum, teppum, hreinlætis- vörum og barnamat verður dreift auk þess að tryggja barnavernd við þessar erfiðu aðstæður. Fjöldi barna hefur orðið viðskila við fjölskyldur sínar, sérstaklega á Indlandi, og vinna hin ýmsu landssamtök Save the Children saman að því að skapa öruggt athvarf fyrir þessi börn og finna fjölskyldur þeirra. Þeim, sem vilja styðja starf Barnaheilla – Save the Children og styrkja neyðaraðstoð og barnavernd í kjölfar hamfaranna í Suðaustur-As- íu, er bent á reikning Barnaheilla 1150-26-4521, kt. 521089-1059. Barnaheill með öfluga neyðarað- stoð í Suð- austur-Asíu TENGLAR .............................................. www.barnaheill.is www.savethechildren.ne SÍMINN hefur ákveðið að koma til móts við þá einstaklinga hérlendis sem þurfa að ná sambandi við ást- vini sína í löndunum sem verst urðu úti í hamförunum með því að taka ekkert fyrir símtöl þangað fram til miðnættis sunnudaginn 2. janúar nk. að því er segir í fréttatilkynn- ingu frá fyrirtækinu. Viðskiptavinir Símans geta því hringt gjaldfrjálst úr talsíma til Taílands, Indlands, Indónesíu og Sri Lanka. Ef viðkomandi ein- staklingar hringja úr farsíma kost- ar mínútan aðeins 10 krónur. Þá munu Íslendingar sem staddir eru í þessum fjórum löndum með GSM- síma frá Símanum ekki þurfa að greiða fyrir móttöku símtala frá Ís- landi. Síminn gefur símtöl til ham- farasvæðanna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.