Morgunblaðið - 30.12.2004, Síða 20

Morgunblaðið - 30.12.2004, Síða 20
Höfuðborgin | Akureyri | Austurland | Árborg Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Skólinn heitir Ljósaborg | Nýr grunn- skóli sem sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps er að láta reisa á Borg í Grímsnesi fær nafnið Ljósaborg. Efnt var til samkeppni um nafn á skólann meðal nemenda í Ljósafossskóla og var hugmynd Ingu-Lill Maríönnu Björnsdóttur með nafninu Ljósaborg talin best, að því er fram kemur á vef sveitarfélagsins. Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. byggir og rekur skóla- og stjórnsýsluhúsið á Borg en Grímsnes- og Grafningshreppur mun leigja aðstöðuna. Fyrsta skóflustungan var tekin við athöfn fyrr í mánuðinum. Hið nýja hús mun í heildina verða 773 fermetrar á tveimur hæðum. Á neðri hæð verður kennslurými en á efri hæð er gert ráð fyrir stjórnsýslu sveitarfélagsins, skrif- stofu skólastjóra, vinnuaðstöðu fyrir kenn- ara, geymslu og fundarherbergi. Skólastarf hefst næsta haust. Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Launin lækkuð | Bæjarráð Vest- mannaeyjabæjar hefur samþykkt að leggja til við bæjarstjórn að laun fulltrúa í bæj- arstjórn, bæjarráði og nefndum Vest- mannaeyjabæjar lækki um 5%. Tillagan er gerð með hliðsjón af niðurskurðartillögum sem fram koma í drögum að fjárhags- áætlun Vestmannaeyjabæjar og stofnana hans fyrir komandi ár. Tillagan verður af- greidd á fundi bæjarstjórnar í dag þar sem fjárhagsáætlunin er jafnframt til síðari um- ræðu og afgreiðslu. Sækja um sömu lóð | Hvalaskoðunar- fyrirtækin á Húsavík hafa sótt um sömu lóð- ina á Hafnarstétt. Norðursigling ehf. hefur óskað eftir að fá endurúthlutað lóðinni á Hafnarstétt 11 á milli Hafnarstéttar 7 (Nausts) og Hafnarstéttar 17 (Verbúða), og jafnframt óskað eftir byggingarleyfi fyrir hús á lóðinni. Og Gentle Giants – Hvalaferðir ehf., hafa einnig óskað eftir að fá úthlutað byggingarlóð á Hafnarstétt 11. Byggingarnefnd fjallaði um þessar um- sóknir á síðasta fundi sínum og þar kom fram að lóðin á Hafnarstétt 11 hefur ekki verið auglýst laus til umsóknar síðan henni var úthlutað til Norðursiglingar ehf. í júní 1999. „Í ljósi þess að aukinn áhugi virðist nú fyrir lóðinni felur byggingarnefnd bygging- arfulltrúa að auglýsa lóðina lausa til umsókn- ar sem fyrst. Við úthlutun lóðarinnar verði tekið tillit til fyrirhugaðrar uppbyggingar á lóðinni og verði því umsækjendur beðnir um að skila inn áætlun um uppbyggingu lóð- arinnar. Í áætlun verði gerð grein fyrir hug- myndum um húsgerð og tímasetningar á byggingu. Tekin verði afstaða til fyrirliggj- andi lóðarumsókna á næsta fundi byggingar- nefndar,“ segir í bókun byggingarnefndar. Náttúrustofa Norð-urlands vestra áSauðárkróki hef- ur látið gera úttekt á gróðurfari í friðlandinu við Miklavatn í Skaga- firði. Fékk stofan syst- urstofnun sína á Austur- landi, Náttúrustofu Austurlands, til að fram- kvæma verkið en starfs- fólkið þar býr yfir sér- þekkingu á rannsóknum gróðurfars. Skýrsla um gróður í friðlandinu með kortum er birt á vefnum, www.nnv.is. Fram kemur að sú gróðurfarskönnun sem gerð var er í raun grunnúttekt því gróður hefur ekki verið rann- sakaður áður á kerfis- bundin hátt í friðlandinu við Miklavatn. Friðland Njarðvík | Dregið var í Lionshappdrætti sem Lionsklúbbur Njarðvíkur stendur fyrir um jól á hverju ári. Tuttugu núm- er voru dregin út. Aðal- vinningurinn var bíll og kom hann á miða Sigrún- ar Gróu Magnúsdóttur. Afhentu lionsmenn henni bílinn á Þorláksmessu- kvöld. Vinningur í Lionshappdrætti Jólavísur Gríms Lár-ussonar heitinssóma sér vel, en hann orti um jólin árið 1986: Það er af sem áður var yndis margur saknar. Endurminning æskunnar oft um jólin vaknar. Og þremur árum síðar, um jólin 1989, orti hann: Lengjast skuggar lækkar sól, landið klæðist fönnum. Bráðum koma blessuð jól, birtir yfir mönnum. Þó vetur sé um byggð og ból bjarta vonin glæðist. Í mér kviknar innri sól þó úti skuggar læðist. Loks yrkir Grímur jólin 1993: Kuldagjóla um hjarn og hól, hér í sjóli vonir kæta. Dimm er njóla, döpur sól, dýrðleg jólin það upp bæta. Jól með Grími Lárussyni pebl@mbl.is Hrunamannahreppur | Tölu- vert hefur snjóað í uppsveitum Árnessýslu og bændur eru farnir að huga að hestum sín- um, ekki síst folaldshryssum og trippum. Víða er farið að gefa hestum úti og gátu þessar folaldshryssur gert sér gott af því. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Folaldshryssum gefið úti Vetur Blönduós | Stjórn Húnakaupa hf. á Blönduósi hefur ákveðið að taka tilboði Kráks ehf. í verslunarrekstur bygginga- vörudeildar Húnakaupa á Blönduósi. Húnakaup voru stofnuð upp úr verslunar- rekstri Kaupfélags Húnvetninga. Undir rekstur byggingavörudeildarinn- ar hefur fallið sala og þjónusta á bygg- ingavörum, heimilistækjum og búvörum s.s. áburði og fóðri. Í fréttatilkynningu frá Húnakaupum hf. sem birt er á vef Húna- hornsins segir að rekstur deildarinnar hafi dregist saman undanfarin ár samhliða vax- andi samkeppni á starfssvæði félagsins og sé reksturinn óviðunandi á þessu ári. Krákur ehf. sem er í eigu Lárusar Jóns- sonar, fyrrum deildarstjóra byggingavöru- deildar Húnakaupa, mun taka við rekstri deildarinnar nú um áramótin og mun versl- unin verða rekin undir nafni Kráks. Krákur kaupir byggingavör- ur Húnakaupa Kelduhverfi | Vatnsstaðan í Lónunum í Kelduhverfi hefur ekki verið hærri í ára- tugi. Það varð álíka mikið flóð 1979 en mesta flóð sem komið hefur varð í janúar 1949 segir á vefnum kelduhverfi.is. Enn vantar þó mikið á að vatnið nái sömu hæð og þá varð, „enda eins gott þar sem þá mundi flæða inn í flest hús Rifóss, og einn- ig í kjallarann í Lóni 2,“ segir í fréttinni. Flatarmál Lónanna tvö- eða þrefaldast við svona aðstæður og er komið vel yfir 10 ferkílómetra. Hækkunin er orðin á þriðja metra og því gríðarlegt vatnsmagn sem þarf að komast út í sjó. Seiðastöð Rifóss er umflotin vatni og vatn komið alveg að þröskuldum. Ekki gengur vatn greiðlega niður um niðurföll þar og er um fimm sentímetra vatnslag á gólfi í vesturenda að- alhússins. Á Lónsflæðum er gámur með dælu sem notuð er fyrir sundlaugina. Hann er um- flotinn og vatn hefur komist í dælu og skemmt. Þá eru dælur í heita pottinum í sundlaugarhúsi á kafi „og trúlega ekki mjög þægilegt eða afslappandi að sitja í honum núna“, eins og segir á vefnum. Bryggja við fóðurskemmu er einnig á bólakafi og vatn komið nærri skemmunni. Lónsósinn var grafinn út með með lyft- ara Rifóss en á hana er hægt að setja gríð- arstóra skóflu. Er það helst krapi sem nú kemur í veg fyrir að greiðalega renni úr ósnum en vonir standa til að úr rætist þessa dagana. Óvenjuhá vatnsstaða í Lónunum ♦♦♦ Sandgerði | Gamalt hús sem hefur staðið út í Hafnargötu í Sandgerði í marga áratugi hefur nú verið stytt um helming. Unnið hefur verið við niðurrif hússins síðustu daga og flytja það á áramótabál- köst Sandgerðinga. Götunni verður breytt á næsta ári vegna nýs miðbæjarskipulags og þurfa tvö hús að víkja vegna þess. Slökkvilið Sandgerðis tók að sér að rífa járn af gömlu íbúðar- húsi og brenna það til grunna. Reyndist það ódýr leið til að fjar- lægja húsið og um leið ágæt æfing fyrir slökkviliðið. Húsið sem nú er verið að stytta um helming hýsti áður trésmíðaverkstæði Miðness hf. en undanfarin ár hefur tré- smíðaverkstæði Staftrés haft húsið til afnota. Staftré hefur nú flutt sig um set, í hús sem áður hýsti trésmíðaverkstæði Ólafs Gunn- laugssonar og stendur við Strand- götu. Sá hluti hússins sem eftir stend- ur verður notaður sem geymsla fyrir Áhaldahús Sandgerðisbæjar. Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Stytting Starfsmenn áhaldahúss Sandgerðisbæjar og Hagtrés rífa annan helming gömlu trésmiðjunnar. Nú verður greið leið inn í miðbæinn. Stytta húsið um helming

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.