Morgunblaðið - 30.12.2004, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
AKUREYRI
Fjölgar í Mosfellsbæ | Íbúum í
Mosfellsbæ fjölgaði um 3,18% frá
því í byrjun desember sl. frá síðasta
ári, og var íbúafjöldi hinn 1. desem-
ber sl. 6.782. Samkvæmt þriggja ára
áætlun er gert ráð fyrir að fjölgunin
muni aukast á næstu árum, verði
5,36% árið 2005, 6,45% árið 2006 og
7,55% árið 2007. Því ættu íbúar í
Mosfellsbæ að ná yfir 8.000 íbúa
markið á árinu 2007, og verða í árs-
lok 8.181, miðað við þessar spár.
ir. Þjónustumiðstöðin mun einnig
þjóna öðrum öldruðum í Kópavogi.
Guðmundur segir að íbúðirnar
verði ætlaðar einstaklingum, en
væntanlega verði hægt að opna á
milli tveggja íbúða til að mynda
stærri íbúð fyrir hjón. Hver hæð
verður svo með sameiginlega setu-
stofu, borðstofu, eldhús og þvotta-
hús. Í íbúðunum 80 verður reynt að
þjónusta íbúana eins lengi og hægt
er. „Við erum að fara nýjar leiðir
sem eru þó þekktar úr Evrópu og
mikið teknar upp á hinum Norður-
löndunum,“ segir Guðmundur. Hann
segir að þarna muni íbúarnir nánast
vera eins og þeir séu heima hjá sér, í
stað þess að flytja á eiginlegt hjúkr-
unarheimili.
Mikil þörf fyrir hjúkrunarrými
á höfuðborgarsvæðinu
Einnig er líklegt að hefðbundið
hjúkrunarheimili með 60–90 pláss-
um rísi á reitnum, auk þess sem í
einu húsi til viðbótar verða 20 íbúðir
þar sem hægt verður að veita fulla
þjónustu með heimahjúkrun. Að lok-
um er svo gert ráð fyrir því að um
140 íbúðir rísi í nágrenninu sem
verða sérstaklega stílaðar inn á fólk
sem komið er yfir fimmtugt.
Guðmundur segir mikla þörf fyrir
fleiri hjúkrunarrými fyrir aldraða á
höfuðborgarsvæðinu, og segir að í
dag séu yfir 300 einstaklingar í
brýnni eða mjög brýnni þörf fyrir að
komast á hjúkrunarheimili. Hann
segir að þegar öllu skipulagi verði
lokið taki um 18 mánuði að reisa
þjónustumiðstöðina og fjögur fyrstu
íbúðarhúsin. Gangi allt að óskum í
skipulaginu standa því vonir til þess
að fyrsti áfangi verði tilbúinn í árs-
byrjun 2007.
Kópavogur | Nýtt aðal- og deili-
skipulag fyrir öldrunarþorp í Vatns-
endalandi, á reit sem kallast Heims-
endi, verður auglýst strax eftir
áramót, en bæjarstjórn Kópavogs
samþykkti auglýsinguna á fundi sín-
um á þriðjudag.
Á reitnum ætlar Hrafnista að
reisa þjónustumiðstöð fyrir aldraða,
auk fjölda íbúða sem munu tengjast
miðstöðinni, og munu alls um 4,5
hektarar fara undir þetta öldrunar-
þorp. Guðmundur Hallvarðsson, al-
þingismaður og formaður sjómanna-
dagsráðs – sem á og rekur
Hrafnistuheimilin, segir að farnar
verði nýjar leiðir þar sem ekki verði
um eiginlegt hjúkrunarheimili að
ræða heldur 10 manna einingar sem
hafi reynst vel víða erlendis.
„Þetta er mjög góð staðsetning,
þarna blasir Elliðavatnið við og að
nokkrum árum liðnum á þetta eftir
að verða mjög miðsvæðis,“ segir
Guðmundur.
Hann segir nálægð við náttúruna
og möguleika til útivistar einnig gera
þennan möguleika spennandi.
Reiknað er með að í fyrsta áfanga
verði reist þjónustumiðstöð sem
verði alls um 1.500–1.800 fermetrar,
á tveimur hæðum auk kjallara. Við
hana munu tengjast fjögur tveggja
hæða íbúðarhús þar sem verða 10
íbúðir á hvorri hæð, eða alls 80 íbúð-
Öldrunarþorp hefur verið skipulagt í Vatnsendalandi í Kópavogi
Hrafnista byggir á Heimsenda
&'()"*+
,"'()"*+
-#
&
.(
)"
*
+
!
"#
!
$
%
!
$
%!
!
$
!
!
$
!
!
$
!
!
)"*+/(**(0,"'
&
Flugeldasýning | Árleg flug-
eldasýning björgunarsveitarinnar
Kyndils í Mosfellsbæ verður á mið-
nætti á gamlárskvöld
og verður sýningin í
ár haldin til minn-
ingar um Ragnar
Björnsson, sem lést
nýverið eftir líkams-
árás, en hann var um
árabil í forystu í
slysavarnamálum í
Mosfellsbæ. Það eru feðgarnir Örn
og Einar Kjærnested og fjölskyldur
þeirra sem borga fyrir sýninguna og
gera það í minningu Ragnars.
Semja við OR | Bæjarstjórn Sel-
tjarnarness hefur ákveðið að hefja
samningaviðræður við Orkuveitu
Reykjavíkur um lagningu breið-
bands á öll heimili í bæjarfélaginu,
en verkið var boðið út á dögunum.
Jónmundi Guðmarssyni bæjarstjóra
var falið að ræða við forsvarsmenn
Orkuveitunnar á grundvelli tilboðs
fyrirtækisins í lagningu ljósleiðara á
Seltjarnarnesi.
BÆJARRÁÐ Dalvíkurbyggðar hef-
ur samþykkt að ganga til samninga
við VÍS í framhaldi af útboði á trygg-
ingum fyrir sveitarfélagið.
Á fundi í bæjarráði síðastliðið
sumar var samþykkt að segja upp
samningi við Vátryggingafélag Ís-
lands hf. frá og með 1. júlí og óska í
kjölfarið eftir tilboðum í vátrygging-
ar sveitarfélagsins. Niðurstaða þess
lá fyrir nú í desember en tvö tilboð
bárust, frá VÍS og Sjóvá-Almennum.
Tilboð VÍS fyrir árið 2005 nam
3.504.466 kr. en tilboð Sjóvár-Al-
mennra 2005 3.918.072 kr. Heildar-
kostnaður við vátryggingar Dalvík-
urbyggðar er fyrir yfirstandandi ár
um 5,7 m.kr. Bæjarráð samþykkti að
gengið yrði til samninga við VÍS og
lagði til að samið yrði til 5 ára.
Dalvíkurbyggð
Samið
við VÍS
UM miðjan janúar fer í loftið nýr
miðill, kallaður i-screen en byggir á
nýsköpunarvinnu íslensks frum-
kvöðuls, Péturs Reynissonar.
Hér er um alveg nýja nálgun að
ræða hvernig efni er veitt til notenda
um Netið. I-screen er að miklu leyti
samruni vefsíðu og forrits og þegar
forritið hefur verið sett upp þarf ekki
lengur á vafra að halda og þar með
hverfa mörg vandamál sem eru fylgi-
fiskar vafra. Um þessar mundir er
verið að prófa forritið og ganga frá
útliti.
i-screen er sett upp á ensku því
ætlunin er að fara í alþjóðlega mark-
aðssetningu en Íslendingar geta svo
sannarlega notað það og reikna má
með að í byrjun verði notendur flest-
ir Íslendingar. Forritið verður
ókeypis. Slóðin er: www.i-screen.tv
Samruni vefsíðu
og forrits
Ekki til fjármagn | Erindi frá Eiríki
Sigurðssyni og Ágústi Þór Árnasyni
var tekið fyrir í íþrótta- og tómstunda-
ráði nýlega en þeir óska eftir því að
nauðsynlegar endurbætur á sal
Íþróttahallarinnar verði skoðaðar fyr-
ir öldungamót körfuknattleiksdeildar
Þórs sem haldið er í Íþróttahöllinni á
Akureyri. Fram kemur í bókun ráðs-
ins að það hafi ekki fjármagn í rekstr-
aráætlun sinni fyrir starfsárið 2005 til
að bæta aðstöðu fyrir körfuknattleik í
Íþróttahöllinni, en felur deildarstjóra
að ræða málið við Fasteignir
Akureyrarbæjar í tengslum við við-
haldsáætlanir þeirra.
Nýársdansleikur | Nýársdansleik-
ur verður haldinn í Ketilhúsinu á
Akureyri að kvöldi nýársdags þar
sem nýstofnuð Kammersveit Tónlist-
arfélags Akureyrar leikur Vínarvalsa
og aðra sígilda danstónlist. Í boði
verður smáréttahlaðborð frá Einari
Geirssyni, landsliðsmanni í matar-
gerð og vert á Karólínu Restaurant,
og síðan verður dansað fram á nótt.
„Það er ekki oft sem konurnar fá al-
mennilegt tækifæri til að nota síð-
kjólana sína og karlarnir smókinginn
eða kjólfötin en það gefst með þess-
um viðburði,“ segir í frétt á vef Ak-
ureyrarbæjar. Forsala aðgöngumiða
er í Pennanum-Bókvali á Akureyri.
ÞAÐ sem af er árinu hefur verið farið
í 300 sjúkraflug á vegum Flugfélags
Íslands þar sem slökkvilið- eða
sjúkraflutningamaður frá Slökkviliði
Akureyrar annast sjúklinginn. Þetta
er nokkur fjölgun því til samanburðar
má nefna að í fyrra, 2003, voru farin
271 sjúkraflug og 188 árið áður.
Sjúkraflug er vaxandi þáttur í
þjónustu og daglegum störfum
slökkviliðsins á Akureyri. Við pöntun
á sjúkraflugi fer af stað vinna og und-
irbúningur þar sem allir slökkviliðs-
menn á vakt koma að, enda mikil
vinna að gera ráðstafanir með sam-
starfsaðilum þaðan sem sjúklingurinn
kemur og þangað sem sjúklingurinn
er að fara, segir í frétt frá slökkviliðs-
stjóranum á Akureyri.
Það þarf því að vinna í öllum þátt-
um undirbúningsins á sama tíma sem
felst meðal annars í að taka til búnað
og samhæfa vinnu og verklag með
Flugfélagi Íslands, læknum á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu og þeim sjúkra-
flutningamönnum og læknum sem
senda eða taka við sjúklingnum.
300 sjúkra-
flug á árinu
RUT Sigurðardóttir úr Þór var kjör-
in íþróttamaður Akureyrar í hófi
sem efnt var til í Íþróttahöllinni á
Akureyri, en hún varð m.a. Norð-
urlandameistari í taekwondo á ár-
inu. Annar varð Árni Þór Sigtryggs-
son, unglingalandsliðsmaður í
handknattleik úr Þór, þriðji Guð-
laugur Már Halldórsson úr Bíla-
klúbbi Akureyrar, fjórða Audrey
Freyja Clark, listdansari frá Skauta-
félagi Akureyrar, og fimmti Jónatan
Magnússon, fyrirliði bikarmeistara
KA í handknattleik.
Hermann Sigtryggsson, fyrrver-
andi íþróttafulltrúi Akureyrarbæjar,
var heiðraður sérstaklega í 60 ára
afmælishófi Íþróttabandalags Akur-
eyrar, ÍBA. Honum var þar veitt
Heiðursorða ÍBA, sem nú var afhent
í fyrsta skipti. Hermann hefur um
áratuga skeið unnið að íþrótta-
málum á Akureyri. Þá voru veittar
heiðursviðurkenningar vegna starfa
að íþrótta-, félags- og æskulýðs-
málum og þær komu að þessu sinni í
hlut Gunnars Kárasonar og Mar-
grétar Baldvinsdóttur Einnig voru
veitt silfur- og gullmerki ÍBA til
handa þeim sem starfað hafa ötul-
lega að íþróttamálum í bænum.
Við þetta tækifæri fór fram árleg
úthlutun úr Afreks- og styrktarsjóði
Akureyrar og loks var öllum þeim
Akureyringum sem unnið hafa til Ís-
landsmeistaratitils á árinu 2004 af-
hentur minnispeningur Íþrótta- og
tómstundaráðs. Árangur akur-
eyrskra íþróttamanna var góður á
árinu en alls unnu bæjarbúar 201 Ís-
landsmeistaratitil á árinu sem senn
er á enda auk þess sem margir voru
valdir til að leika með landsliðum í
ýmsum íþróttagreinum.
Rut íþróttamaður Akureyrar
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Heiðursorða Hermanni Sigtryggs-
syni var veitt Heiðursorða ÍBA, sem
nú var afhent í fyrsta skipti.
Fræknir íþróttamenn Fimm efstu í kjöri íþróttamanns Akureyrar, Rut Sigurðardóttir, úr Þór, Árni Þór Sig-
tryggsson, Guðlaugur Már Halldórsson, Audrey Freyja Clark og Jónatan Magnússon.
Hermann fékk Heiðursorðu ÍBA fyrstur manna
♦♦♦