Morgunblaðið - 30.12.2004, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2004 25
DAGLEGT LÍF
Á
annarri hæð í Iðuhúsinu
við Lækjargötu rekur
meistarakokkurinn Axel
Óskarsson veitingastað-
inn Sowieso, sem tekur
um 60 manns í sæti. Sowieso er í raun
afsprengi veisluþjónustunnar Kokk-
ur án bumbu, sem Axel hefur rekið
síðustu tvö árin.
Nafngiftina á nýja staðinn sótti
hann alla leið til Austurríkis. „Sow-
ieso er austurrísk þýska og þýðir „að
sjálfsögðu“. Konan mín vann nefni-
lega einu sinni í Austurríki og var
þetta orð á allra vörum þar, við alls
konar tækifæri. Við ákváðum að nota
það á nýja veitingastaðinn. En nú
stendur mikið til hjá Axel því um
miðjan janúar áformar hann að opna
tvo veislusali á þriðju og fjórðu hæð
Iðuhússins. Annar salurinn mun taka
um 100 manns í sæti og hinn 200, en
sá salur opnast út á stórar útsýn-
issvalir og getur þá tekið við allt að
600 manna standandi boðum. Axel er
nú að láta innrétta fyrir sig 200 fer-
metra veislueldhús í kjallara Iðuhúss-
ins.
„Þó að ég taki að mér alls konar
veislur og geti liðsinnt fólki með hvað-
eina sem að matargerð lýtur, gerir
veitingastaðurinn aðallega út á sushi
og smárétti við nokkuð góðan orðstír
leyfi ég mér að segja,“ segir Axel.
Hann brást skjótt við þegar Daglegt
líf leitaði til hans og bað um hug-
myndir að smáréttum, sem fólk gæti
föndrað við fyrir áramóta-partíin. Ax-
el gefur hér uppskriftir að fjöl-
breyttum smáréttum og m.a. nýstár-
lega útfærslu af ferskum ávaxtarétti.
Skorin var út hestakerra úr heilum
ferskum ananas, og í hana sett úrval
af ávöxtum. Svo er útbúin girnileg
sósa, sem ættuð er úr smiðju meist-
arakokksins. „Mitt mottó er einfald-
leikinn. Hann er alltaf bestur.
Uppskriftirnar, sem hér fara á eft-
ir, eru ætlaðar fjórum. Allur fiskur,
sem notaður er í réttina, er frá Snæ-
fiski og fæst tilbúinn og frosinn í öll-
um helstu stórmörkuðum.
Hvítlauksristaður humar
12 humarhalar í skel
1 hvítlaukur
salt og pipar
2 msk. steinselja
smjör
Klippið skelina frá haus og niður að
hala, opnið skelina, lyftið kjötinu upp
og klemmið skelina aftur saman.
Leggið svo kjötið ofan á skelina,
kryddið með salti og pipar, hvítlauk,
steinselju og smjöri. Bakið við 180°C í
5–7 mín.
Risarækjur í sósu
4 risarækjur með hala
3 msk. hoi sin sósa
3 msk. sweet chilli sósa
salt og pipar
1 msk sesam fræ
Skerið upp í kjötið á rækjunni og
leggið hana klofvega á olíuborið fat.
Kryddið með salti og pipar. Blandið
saman sósunum og smyrjið vel á
rækjuna, stráið sesam-fræjum yfir,
setjið í 180°C heitan ofn í 3–5 mín. eða
þar til rækjan verður bleik. Berið
fram á ristuðu brauði með salatblaði.
Hörpuskel með
mangósósu
4 risahörpuskeljar
2 msk. smátt saxað ferskt kóríander
4 msk. mangósósa
Vöðvar teknir af hörpuskelinni og
fiskurinn síðan hjúpaður með mangó-
sósunni. Kóríander sáldrað yfir.
Þrætt upp á tein og bakað í ofni í 5–6
mín við 180°C.
Ostafylltir sveppir
4 meðalstórir sveppir
2 msk. rjómaostur
½ msk. gráðostur
1 msk. svartar ólífur
1 msk. sólþurrkaðir tómatar
1 msk. olía af tómötunum
smávegis capers
salt og pipar eftir smekk
Hreinsið og skolið sveppina, fjar-
lægið stöngla og setjið sveppina á
olíuborna plötu á hvolf. Blandið öllu
saman í matvinnsluvél og hrærið vel.
Sprautið svo fyllingunni í sveppina og
setjið í heitan ofn í 6 mín. við 180°C.
Berið fram á ristuðu brauði með sal-
atblaði.
Spjót nautabanans
2 kokkteiltómatar
50 g parmaskinka
4 stk. meðalstór basil-lauf
50 g mozzarella-ostur
1 msk. balsamico-síróp
svartur pipar eftir smekk
Skerið tómatana í tvennt og ostinn
í fjóra bita. Vefjið skinkunni utan um
ostinn, svo basillaufinu og þræðið upp
á teininn ásamt tómatbátunum, sáldr-
ið svarta piparnum aðeins yfir og
dassið með sírópinu.
Grafið lamb
með waldorfsalati á brauði
1 innanlærisvöðvi (vel hreinsaður)
3 msk. salt
6 msk. sykur
1 tsk. af hverju eftirtalinna krydda,
timian, rósmarín, salvía, hvítlauks-
duft, marjoram, fennelfræ, sinn-
epsfræ, rósapipar og hvítur pipar
Hrærið öllu saman í skál og þekið
vel á allan vöðvann. Kælið í 48 klst.
Skerið svo í þunnar sneiðar og berið
fram.
Waldorfsalat
1 grænt epli
1 msk. sýrður rjómi
2 msk. þeyttur rjómi
1 msk. eplaþykkni (Egils)
1 msk. sellerí
1 msk. valhnetur
Afhýðið og kjarnið eplið, skerið í
litla bita. Hrærið saman rjómanum
og þykkninu ásamt selleríi og hnet-
unum. Leggið lambaþynnu á ristað
brauð með salatblaði og toppið með
waldorfsalatinu ásamt rifsberi til
skrauts.
Beikonvafin
nautalund
100 g nautalund
2 sneiðar beikon
salt og pipar eftir smekk
1 bréf bernaise-sósa (lesið leiðbein-
ingar á pakka)
Mótið lundina í hringlaga steikur,
um það bil 25 g hverja, kryddið með
salti og pipar, vefjið svo með beikoni
og þræðið upp á tein eða tannstöngul.
Eldið í ofni við 180°C í 5–7 mín. Berið
fram heitt með volgri sósunni í staupi.
Djúpsteiktur smokkfiskur
8 smokkfiskhringir í raspi
2 msk. rautt pestó
4 stk. myntu-lauf
1 skalottulaukur
1 tómatur
1 msk. sweet chili-sósa
smá timian
½ lime, safi og kjöt smátt saxað
Skerið laukinn, myntuna, tómatinn
og lime-ið smátt. Hrærið saman
pestóinu og chili-sósunni og blandið
svo öllu saman. Látið standa yfir nótt
í ísskáp áður en borið er fram, Djúp-
steikið svo smokkfiskinn þar til hann
verður gullinbrúnn og berið fram
heitt og kalt.
Ávaxtakerra með
líkjörsósu
Takið til þá ávexti, sem ykkur finnast
góðir, og skerið smátt, t.d. melónur,
appelsínur, jarðarber og bláber.
Sósa
2 msk. þeyttur rjómi
2 msk. sýrður rjómi
2 msk. púðursykur
2 msk. dökkur súkkulaðispænir
sletta af Torres-appelsínulíkjör
Léttþeytið rjómann, hrærið út
sýrða rjómann með sykrinum og
súkkulaðinu. Bætið þá rjómanum við
varlega og dassið svo með líkjörnum.
Best er að undirbúa þessa sósu dag-
inn áður en hún er framreidd.
Setjið ávextina í skál og sósuna of-
an á. „Passið ykkur bara á því að laga
nóg af sósu, sagan segir mér það,“
segir Axel Óskarsson.
MATARKISTAN | Föndrað við smárétti í áramótaveislurnar
Einfald-
leikinn
er alltaf
bestur
Meistarakokkurinn
Axel Óskarsson er ekki
í vandræðum með að
töfra fram dýrindis
smárétti. Jóhanna Ingv-
arsdóttir lenti í veisl-
unni og fékk uppskriftir
að fínum veitingum.
Morgunblaðið/Golli
Axel Óskarsson rekur veitingastaðinn Sowieso í Iðuhúsinu.
Risarækjur í austurlenskri BBQ-sósu.
Uppáhaldsspjót nautabanans.
Ostafylltir sveppir með tómötum og ólífum.
Risahörpuskel með mangósósu. Djúpsteiktur smokkfiskur. Grafið lambainnanlæri. Beikonvafin nautalund á teini.
Ávaxtakerra með súkkulaði- og appelsínulíkjörsósu. Hvítlauksristaður humar á skel.
join@mbl.is