Morgunblaðið - 30.12.2004, Page 27
mikilsverð viðbót sem kemur víða
að. Þannig getur að líta einkennandi
málverk eftir enska, franska og
þýska málara rómantíska tímabils-
ins eins og Richard Bonington, Cam-
ille Corot og Caspar David Friedrich
og norræna gullaldarmálara líkt og
J.C.Dahl, Thomas Fearnley, C.W
Ekersberg, Cristen Købke,
Constantin Hansen, Johan Thomas
Lundbye og fleiri. Framkvæmdin í
heild sinni hlotið mikið lof í fjöl-
miðlum, það er helst að menn hnýti í
hinn langdregna og fræðilega for-
mála Monrads í katalógunni, eru ei
heldur fullkomlega ánægðir með
skrif David Blayney Browns, for-
stöðumanns, kúrators Turner safns-
ins á Tate Britain. Í fyrra fallinu
undrast menn að helsti Turner fræð-
ingur Danmerkur Klaus P. Morten-
sen hafi ekki verið kallaður til leiks,
enginn sagður hafa skrifað betur um
málarann í Danmörku, þannig veltir
Henrik Wivel einnig fyrir sér í
Weekendavisen hvort heldur sé um
vanþekkingu eða útilokunaráráttu
að ræða. En í því seinna verður
Blayney Brown á sá meinlegi fing-
urbrjótur þá hann rýnir í eitt mál-
verkanna, að honum yfirsést að það
glittir greinilega í tvo fjárhirði í
miðju málverkinu „Morgunn í hæð-
ardraginu í Coniston Fields“ frá
1798, sem þykir heldur klént af nafn-
kenndum sérfræðingi. Sjálfur tel ég
stórum lakara að engin mynd skuli
eftir Thomas Girtin sem hefði gefið
enn gleggri innsýn í þróunina, sam-
tíma Turners um leið. Þannig margt
sem þarf að gaumgæfa þegar um
slíkar framkvæmdir er að ræða, af-
rakstur tíu ára undirbúnings og vek-
ur þá eðlilega þeim meiri athygli og
undrun ef eitthvað fer úrskeiðis. En
slík mistök eiga menn ekki að láta
hafa of mikil áhrif á sig, meginveig-
urinn að um afar mikilsverðan við-
burð er að ræða sem rétt og skylt er
að vekja sérstaka athygli á svo að
hann fari síður framhjá áhugasöm-
um um myndlist. Þá er borðleggj-
andi að sýningin gefur leikum sem
lærðum einstakt tækifæri til sam-
anburðar og jafnframt glöggvunar á
listasögunni …
Ísamþjöppuðu máli: J.M.W. Turner var sonur miðlungsefn-aðs rakara í London sem var
með stofu í Maiden Lane í nágrenni
Covent Garden og Themsárbakka,
og þangað rataði fjöldi listamanna.
Kom í læri hjá arkitekt þegar hann
var 14 ára og sama ár var hann tek-
inn inn í Konunglegu akademíuna.
Turner gat eðlilega ekki vænst mik-
ils fjárhagsstuðnings af hálfu föð-
urins, en sá veitti syninum siðferð-
islegan stuðning með því að hafa
myndverk hans til sölu í rakarastof-
unni og var kaupverð þeirra frá ein-
um til þrem skildingum (shillings),
fyrrum mynteiningu sem gerði 1/20
úr pundi. Faðirinn hagnýtti sér sam-
bönd sín hjá föstum kúnnum til hags
fyrir hinn hæfileikaríka son sinn og
koma honum í hagstæð sambönd.
Seinna þegar Turner var orðinn við-
urkenndur listamaður gaf faðirinn
rakarastarfið upp á bátinn og gerðist
aðstoðarmaður sonar síns á vinnu-
stofunni, blandaði liti, strengdi upp
léreft og eldaði ofan í hann. Örlög
móðurinnar voru dapurleg, hún varð
geðveik og veikindi hennar settu
svip á fjölskyldulífið, sjálfur giftist
Turner aldrei en átti nokkrar ást-
konur og eignaðist tvö lausaleiks-
börn. Einnig álitið að örlög móð-
urinnar hafi ráðið því að hann var
algerlega fráhverfur giftingu og að
stofna til fjölskyldulífs, átt þátt í
óþreyjufullri skapgerð, óheftri
vinnuhörku og stöðugum ferðalög-
um. Turner var alla tíð yfirmáta vin-
sæll málari meðal þjóðar sinnar og
var með eins konar trúbadorstakta á
sýningum, þótt öðrum þræði héldi
hann sig til hlés, lék sér að því að
koma með ófullgerð málverk á virðu-
legar samsýningar og klára þær rétt
í þann mund er fyrstu tiginbornu
gestirnir mættu á staðinn eða hant-
éraði áhöldin af miklum móð á einka-
sýningum sínum. Lét eftir sig risa-
vaxið lífsverk, 30.000 teikningar og
akvarellur og mörg hundruð mál-
verk og fjölda eftirgerða annarra
listamanna sem hann var látinn gera
þegar hann ungur var í læri hjá arki-
tektinum …
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2004 27
MENNING
BÍLLINN er snar þáttur í lífi og til-
veru nútímamannsins, svo snar að
mörgum kann að þykja sem bílar hafi
nánast alltaf verið til, eða a.m.k. jafn
lengi og Akrafjall, Esjan og Skarðs-
heiðin. Svo er þó ekki. Bílar eiga sér
tiltölulega skamma sögu og hingað til
lands kom fyrsti bíllinn fyrir réttri
öld, nánast í sama mund og Íslend-
ingar fengu
heimastjórn árið
1904.
Á þeirri öld
sem liðin er frá
því fyrsti bílinn
kom til landsins
hafa miklar breyt-
ingar orðið á Ís-
landi. Þær stafa
ekki síst af breytt-
um og bættum
samgöngum og í þeim á bíllinn mik-
inn þátt. Nú á dögum fara flutn-
ingabílar um allt land á degi hverjum
og flest heimili eiga sinn einkabíl,
sum fleiri en einn og fleiri en tvo.
Vegakerfi landsins hefur verið stór-
bætt á undanförnum árum og nú tek-
ur ekki nema fáeinar klukkustundir
að aka landshluta á milli. Svona var
þetta vitaskuld ekki þegar Dethlev
Thomsen konsúll flutti fyrsta bílinn,
af Cudell-gerð, til landsins árið 1904.
Þá voru akfærir vegir á milli staða fá-
ir og vondir (eins og þeir voru reynd-
ar fram eftir allri öldinni) og jafnvel
ekki bílfært innanbæjar í helstu þétt-
býlisstöðum. Ástandið var einna lík-
ast því sem er á Grænlandi nútímans,
þar sem hvergi verður ekið í bíl á milli
byggðarlaga.
Af notkun bílsins á Íslandi og hlut-
verki hans í íslensku þjóðlífi síðustu
hundrað árin er mikil saga. Af ein-
hverjum ástæðum hefur henni verið
lítt sinnt af háskólamenntuðum sagn-
fræðingum, sem fást við atvinnusögu
eða ritun heildarsögu lands og lýðs,
en þeim mun meira af mönnum sem
hafa áhuga á bílum og hafa lengi
fylgst með þróun þeirra.
Einn þessara manna er höfundur
þessarar bókar. Hann segir hér sögu
bílsins á Íslandi í heila öld, lýsir bílum
og hlutverki þeirra í samfélaginu,
greinir frá innflutningi á bílum og
verslun með þá, lýsir uppbyggingu
vegakerfis o.s.frv. Öll er þessi saga
sögð á lipru og læsilegu máli og inn í
hana er skeytt sem rammagreinum
eða ítarefni reynslusögum bílstjóra
sem fóru svaðilfarir á milli byggða á
meðan bifreiðaakstur var erfiður og
bílstjórar hetjur víða um land. Þá er
bókin prýdd fjölmörgum myndum,
sem margar hafa umtalsvert heim-
ildagildi.
Þetta er fróðleg bók og falleg og
verður vafalaust mörgum kærkomin.
Bílar í eina öld
BÆKUR
Samgöngur
Höfundur: Sigurður Hreiðar Hreiðarsson.
383 bls., myndir. Útgefandi: Saga bílsins
á Íslandi ehf., Reykjavík 2004.
Saga bílsins á Íslandi 1904–2004
Sigurður Hreiðar
Hreiðarsson
Jón Þ. Þór
Í N†TT OG GLÆSILEGT HÚSNÆ‹I A‹ KLETTHÁLSI 9
ÁG VERKSTÆÐI HEFUR FLUTT
BÍLAVERKSTÆ‹I BÍLALEIGA MOTORSPORT VERSLUN
Á flessu ári fagnaði Bifrei›averkstæ›i Árna Gíslasonar
50 ára starfsafmæli sínu. Á þessum merku tímamótum
fluttum við starfsemi okkar í n‡tt og glæsilegt húsnæ›i a›
Kletthálsi 9 í Reykjavík.
Við óskum landsmönnum gleðilegs nýs árs og farsældar
á komandi ári. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
og sérlega góðar móttökur á nýja staðnum.
Á.G. Bifreiðaverkstæði
Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík
Sími: 587 5544 • Fax:. 587 2729
www.ag-car.is • motorsport@ag-car.is
GLEÐILEGA
HÁTÍÐ!
ka
ld
a
lj
ó
s
2
0
0
4