Morgunblaðið - 30.12.2004, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 30.12.2004, Qupperneq 28
28 FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Þ egar talað er um nýja íslenska myndlist verður almenningi trú- lega fyrst hugsað til Nýlistasafns- ins, sem gegnum tíðina hefur borið hitann og þungann af samtímanum í myndlist. Að nú skuli allt í einu vera búinn til ærlegur vettvangur á Listasafni Íslands fyrir listamenn fædda eftir 1960 verður að teljast saga til næsta bæjar. En auðvitað er það ekki annað en sjálfsagt á tímum brennandi samtíðarhyggju að listasafn þjóðarinnar beini sjónum að núinu – þótt fyrr hefði verið, mundu margir segja. Það sem ger- ir sýninguna Ný íslensk myndlist – Um veru- leikann, manninn og ímyndina – ólíka fyrri kynningum á list ungra listamanna er að allt safnið er lagt undir, auk þess sem verkunum og höfundum þeirra er fylgt úr hlaði með greinargóðum upplýsingum. Auk sýningaskrár sem er óvenjuvegleg á ís- lenskan mælikvarða – með stuttum greinum um hvern sýnanda, auk formála Úlfhildar Dagsdóttur – gefst sýningargestum tækifæri til að hringja í fjöldann allan af símanúmerum til að hlýða á upplýsingar um sérhvert verk og heyra hvað listamaðurinn hefur um það að segja. Þá gefst okkur kostur á að taka þátt í dæmigerðum nútímaleik sem er byggður á eigin frumkvæði og sköpunarmætti. Með því að senda SMS með stuttum texta í ákveðið númer getum við vænst verðlauna – sem eru að sjálfsögðu GSM-sími – fyrir „besta skeyt- ið“. Jafnframt er hægt að velja mynd af óska- verki á sýningunni og fá hana senda í símann sinn. Bak við þessa skemmtilegu gagnvirkni stendur norrænt samstarfsverkefni, Nordic Handscape, styrkt af Norrænu ráðherra- nefndinni, sem ætlað er að miðla vitneskju um menningu þjóðanna gegnum GSM-notkun. Nýir tímar? Það er með öðrum orðum umgjörð sýning- arinnar sem virðist boða nýja tíð; einhvers konar sátt eða dús við listamenn sem til skamms tíma þóttu nógu góðir til að hírast á eigin vegum í miður heppilegu húsnæði, sem Hollustuvernd bannfærði endanlega eftir ríf- lega tuttugu ára þjónustu. Utan frá séð virka þessar nýju lyktir sem íslenskur listheimur sé að færast ögn í átt til þeirrar skipunar sem tíðkast í öðrum löndum, þar sem enginn reg- inmunur er gerður á ungum listamönnum, miðaldra eða rosknum. Það er að minnsta kosti aldarfjórðungur síðan svokölluð framúrstefna rann saman við annað stefnumoð úti í hinum stóra listheimi og menn hættu að fárast yfir óvæntum nýjungum í myndlist. Hvort þessi tíð hefur haldið innreið sína hér á landi er of snemmt að segja. Það kemur ekki í ljós fyrr en séð verður hvort listamennirnir tuttugu og þrír sem eiga verk á sýningunni í Listasafninu eiga þangað afturkvæmt í ein- hverju öðru samhengi. Hingað til hefur þeirri tegund listar sem þeir fást við verið heldur fá- lega tekið af almenningi enda fátt til sparað til að gera hana tortryggilega og óaðgengilega í hans augum. Því miður hafa það ekki alltaf verið andstæðingar samtímalistarinnar sem hafa spillt fyrir henni heldur hafa fylgismenn hennar lagt sitt af mörkum til að halda henni „hreinni“, oftast nær af mjög svo skamm- sýnum hvötum. Það hefur lengi loðað við list- skilning okkar að djúpt ætti að vera á merk- ingu hlutanna; öðruvísi væri lítið varið í þá. List ætti því ekki að vera of auðmelt og að- gengileg heldur dægradvöl fyrir innvígða og útvalda. Umsvif listmenningarinnar Slík dæmigerð framúrstefnuafstaða þykir gamaldags nú orðið. Sýningargestir vilja að sjálfsögðu fá skýringar á því sem fyrir augu ber enda væntanlega búnir að kaupa sig inn fyrir ekki minni upphæð en þeir fara með í bíó- miða. Að skilja þá eftir í lausu lofti innan um listaverk sem þeir vita ekki hvernig skal nálg- ast er ekki ósvipað og það að láta mann ráða í kvikmynd á framandi máli sem gleymst hefur að texta. Þegar slíkt hendir í Sjónvarpinu kemur rödd þular og beiðist afsökunar. Það er engu listaverki greiði gerður með því að sveipa það tilbúinni dulúð. Hugverk sem ekki þolir opna umræðu er eins og vindhani sem brotnar ef hreyfing kemst á loftið kringum hann. Hér er vert að staldra við og hugleiða menn- inguna varðandi listsýningahald. Til eru þeir sem draga í efa að listsköpun í fæðingu geti talist til menningar. Sá stimpill komi ekki fyrr en síðar. Aðrir hafa tilhneigingu til að fletja út hugtakið svo það nái til alls mannlegs atferlis. Hvort tveggja er rangt þegar orðið „kúltúr“ – eða ræktun – er haft í huga. Íþróttamaður ræktar líkamann í hvert sinn sem hann æfir sig, hvort sem hann tekur þátt í móti eða ekki. Sama gildir um listamann sem brýnir sköp- unarmáttinn. Það breytir því þó ekki að menn- ingin öðlast nýja vídd þegar fleiri fá hlutdeild í henni, hvort sem er á íþróttamóti eða listsýn- ingu. Á Íslandi einu eru umsvif listmenningar orð- in meiri en samanlögð velta í landbúnaði og ál- iðnaði. Þeir sem telja styrkveitingar til lista tímaskekkju hljóta því að vera sömu skoðunar gagnvart Rannís og Nýsköpunarsjóði. Því miður er hlutur myndlistar í þessum umsvifum töluvert minni en tónlistar, leikhúss og bók- mennta. Það er vegna þess hve vannýttir möguleikar hennar hafa verið og hve lítið áhrifa hennar gætir í íslensku athafnalífi. Það er nánast einungis vegna hönnunarsprengj- unnar á undanförnum árum sem myndlist hef- ur sótt í sig veðrið sem virkur og áberandi þáttur í samfélaginu. Ein og sér hefur hún átt á brattann að sækja enda virðist hún vera sjálfhverfust og einangruðust allra listgreina. Blandaður búskapur Um leið eru innviðir hennar mun sértækari og þjóðlegri en annarra listgreina, og dreifing- arkerfið þar með brotakennt og ómarkvisst. Þetta sést best á þeim listamönnum sem iðka blandaða tjáningu, svo sem þeim Hallgrími Helgasyni og Þorvaldi Þorsteinssyni. Þeim hefur vegnað mun betur sem rithöfundum en myndlistarmönnum þótt fráleitt sé að ætla að þeir séu verri á síðartalda sviðinu. Þeir njóta einfaldlega mun betri kjara sem rithöfundar því íslenska bókmenntakerfið er snöggtum smurðara en myndlistarheimurinn. Þegar við bætist leikhúsið og kvikmyndirnar má sjá að frami beggja er vænlegri innan bókmenntanna en myndlistarinnar. Þetta sækir ósjálfrátt á hugann þegar arkað er um sali Listasafns Íslands, eða hví skyldu svo margir íslenskir listamenn stunda bland- aðan búskap, með ritlist eða tónlist sem auka- grein? Eða ættum við ef til vill að spyrja hví svo margir af þeim sem sýna í Listasafni Ís- lands bregða fyrir sig sjálfhverfu háði byggðu á eigin óljósu stöðu? Sennilega hefur aldrei fæðst á Íslandi jafnmeðvituð kynslóð mynd- listarmanna. Glugginn út í heim stendur þeim galopinn, og þó svo að aðeins örfáir sýnenda séu búsettir erlendis hafa þeir stundað fram- haldsnám í útlöndum og oft dvalið þar lang- dvölum. Allt í einu er fjöldi íslenskra listamanna far- inn að stunda samræður við sýningargesti, spyrja þá eða spjalla við, eins og vildu fá frá þeim svör eða álit, eða einungis uppfræða þá um innviði samfélagsins, framleiðslu, drauma, hvatir og ástand. Ásmundur Ásmundsson, Birgir Örn Thoroddsen, Jóhann Ludwig Torfason, Magnús Sigurðarson, Helgi Hjalta- lín Eyjólfsson, Pétur Örn Friðriksson, Ósk Vil- hjálmsdóttir og Þóroddur Bjarnason eru öll á félagsfræðilegum nótum þar sem þau kryfja samfélagið, drauma þess, tungutak, sjálfs- mynd, valdatafl og hlutverkaleik. Félagsfræðilegir listamenn Það sem til skamms tíma var fullkomlega óhugsandi – að íslenskir listamenn væru að pæla í innviðum samfélagsins í stóru og smáu – tekur nú allan hug þeirra. Vissulega er aug- ljóst hve mikil áhrif myndbandslistin og aðrir rafrænir hreyfimyndamiðlar hafa haft í þessa veru, en það breytir því þó ekki að þeir Jóhann Ludwig og Þóroddur bregða fyrir sig málara- listinni með allt öðrum hætti en af slíkum miðli hefði mátt búast. Það er með öðrum orðum ekki einasta efniviðurinn sem breytir inntaki hinnar nýju listar heldur beina æ fleiri lista- menn nú sjónum frá manntæmdum nátt- úrulýsingum hefðbundinnar íslenskrar nú- tímalistar til hins mennska Íslands með öllum sínum æpandi vanda. Náttúran er einnig orðin vandamál eins og fram kemur í list Birgis Snæbjörns Birgis- sonar, Finns Arnars Arnarsonar, Egils Sæ- björnssonar, Olgu Soffíu Bergmann og Val- gerðar Guðlaugsdóttur. Fegrunaraðgerðir og ljóshærður kynstofn andspænis pólitískt röng- um svertingjum með þykkar og trúðslegar varir, eða sótthreinsaðar ljóskur úr heims- styrjöldinni síðari feykir okkur aftur um sextíu til sjötíu ár, til heims sem var svarthvítur, með skýrt afmarkaðri menningu og kynhlut- verkum. Allt hafði sinn tíma, eða tímaleysi, eins og í verkum Finns, sem eftir á að hyggja gætu verið myndskreytingar við ljóðrænt tímaleysið og syfjuðu vötnin hans Steins. Þessari hreinu veröld stríðs- og eftirstríðs- ára, þegar menn þekktu óvini sína, ástarvið- fang og náttúrulegu drauma þorpsbúans frá vöggu til grafar, var einungis ógnað af kjarn- orkusprengjunni og geislavirkni hennar. Hinu fjarlæga og óþekkta var smellt inn í kabarett- umhverfi a la Tondeleyo, áður en pálmastrend- ur Kyrrahafsins misstu seiðmagn sitt sem til- raunastöðvar fyrir vetnissprengjutilraunir stórveldanna. Það er á gjaldþroti þessara drauma um eina, fagra og hreina veröld sem Olga byggir ógnvænlega heimssýn sína. Innri heimur og blandaður Nú er náttúran öll inn á við, narsissísk eins og spegilgrafreitur Gjörningaklúbbsins, þung- lyndismartröð Gabríelu Friðriksdóttur og hol- ar höggmyndir Erlings Klingenberg. Þær Guðný Rósa Ingimarsdóttir, Guðrún Vera Hjartardóttir og Margrét H. Blöndal vinna innan vébanda þessarar innhverfu, hver með sínum draumkennda og ofurnæma og þögula hætti, á meðan Hildur Bjarnadóttir og Unnar Örn Jónasson Auðarson reyna að snúa taflinu við með því að veita inn í list sína víddum úr öðrum greinum; vefnaði, gróðurrækt og við- skiptum. Bæði eru líkt og laus undan þrúgandi andrúmslofti kvíða, saknaðar og sjálfsspegl- unar, en um leið hljótum við að spyrja: Eru verk þeirra vottur um hverfandi sérstöðu hreinnar myndlistar? Svo ótalmargar spurningar vakna á sýning- unni í Listasafni Íslands að gestir gleyma um stund hve ómögulegt húsnæðið er þegar kem- ur að list eins og þeirri sem unga kynslóðin er að fást við. Veruleikinn í nýrri íslenskri myndlist Eftir Halldór Björn Runólfsson Margrét H. Blöndal: Hver nærir hvern, 2003. Guðrún Vera Hjartardóttir: Áhorfandi, 1996.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.