Morgunblaðið - 30.12.2004, Page 31

Morgunblaðið - 30.12.2004, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2004 31 Býsn eru meðan brothætt jörð brestur ekki undir fargi þar sem á hennar holu skurn hlaðið var Látrabjargi. Jón Helgason, Áfangar Margt hefur komið fram að und- anförnu sem hlýtur að vekja menn til umhugsunar um, hvort vandað hafi verið sem skyldi til rannsókna og undirbúnings að Kára- hnjúkavirkjun. Nátt- úrufarsleg umhverfis- áhrif virkjunarinnar hafa frá upphafi verið í brennidepli, þar á með- al áfok frá Hálslóni. Landsvirkjun stað- hæfði á meðan mats- ferli var í gangi að kom- ið verði í veg fyrir allt slíkt með tæknilegum aðgerðum í lónstæðinu og næsta nágrenni. Nú nýverið kom aðaltalsmaður framkvæmdanna, Sigurður Arnalds, hins vegar fram fyrir alþjóð og viðurkenndi að engan veginn yrði komist hjá umtalsverðu foki úr lónstæðinu. Það eru hins veg- ar aðrir og enn alvarlegri þættir sem hér verða gerðir að umtalsefni. Undirstöður stíflumannvirkja Framkvæmdir við stíflumannvirki Kárahnjúkavirkjunar eru marga mánuði á eftir áætlun. RÚV greindi frá því 6. desember sl. að ástæð- urnar væru einkum tvær: „Dýpra var niður á botn gljúfursins en reikn- að hafði verið með í upphafi og þar kom síðan í ljós misgengi sem taka þurfti tillit til.“ Harald Alfreðsson hjá framkvæmdaeftirliti Landsvirkj- unar bætti við: „Og bæði þessi atriði urðu til þess að það varð að yfirfara hönnunina og það urðu breytingar svolítið á táveggnum þannig að það tafði svona fyrir.“ Einhvern tíma hefðu það þótt tíðindi að jarð- fræðilegar hönnunarforsendur risa- stíflu á heimsmælikvarða reyndust aðrar á framkvæmdastigi en gert hafði verið ráð fyrir. En þessi litla frétt flaug ekki hátt og framhaldið drukknaði í frásögnum af vandræða- barninu Impregiló og auglýs- ingaflóði í jólakauptíðinni. Misgengi undir sjálfri aðalstífl- unni! Það er nú svo. Upp í huga und- irritaðs komu aðvörunarorð Guð- mundar E. Sigvaldasonar jarð- fræðings, sem nýverið er fallinn frá, um hugsanlega ótraustar und- irstöður Hálslóns. Lítið var á um- mæli hans hlustað og ekkert gert með þau frekar en títtnefnt nöldur náttúruverndarfólks. Nýverið rifj- aðist einnig upp fyrir mér viðtal í út- varpinu við jarðeðlisfræðing á Orku- stofnun. Ég fór í gagnagrunn Morgunblaðsins og þar kom nafnið fram: Grímur Björnsson. Athugasemdir Gríms Björnssonar Á heimasíðu Gríms Björnssonar sem nú er sérfræðingur hjá Íslenskum orkurannsóknum má lesa at- hugasemdir hans dagsettar 14. febr- úar 2002 í mörgum liðum varðandi undirbúning Kárahnjúkavirkjunar. Segist hann hafa afhent þær orku- málastjóra sem var yfirmaður hans á þeim tíma „... til kynningar og að- gerða“. Um þetta leyti fjallaði Al- þingi um lagafrumvarp sem heimila skyldi virkjunina. Segir Grímur að sér hafi strax vorið 2001 sýnst sem lítið færi fyrir jarðtæknilegum at- hugunum á áhrifum af jafn þungu fargi og Hálslóni. Í athugasemdum við umhverfismatsskýrslu segir hann orðrétt m.a.: „Hvergi er nefnt að jarðhiti fannst í könnunarholum, sem voru boraðar við Hafrahvammagljúfrin, en þar veit undirritaður af uppkomu volgra bor- kjarna. Því má ljóst vera að jarðhiti þrífst í sprungukerfi sem nær undir fyrirhugaða Kárahnjúkastíflu og hefur verið ágætlega virkt með köfl- um a.m.k. síðustu 10 þúsund árin. Ómögulegt er því að samþykkja full- yrðingu á bls. 31 þar sem segir „Að mati tæknimanna hentar bergið á stíflustæðunum vel sem grunnur fyrir þær“ (þ.e. stíflur við Kára- hnjúka). Þvert á móti sýnast líkur til þess að þetta mikla mannvirki eigi að byggja ofan á sprungusvæði.“ Í framhaldi af þessu segir Grímur að spennuástand í bergi næst Hálslóni muni breytast og gera verði ráð fyrir þeim mögu- leika að gamlar sprungur eða nýjar opnist undir sjálfri Kárahnjúkastíflunni og geti það leitt til stífl- urofs og stærsta mann- gerða hamfarahlaups Íslandssögunnar. Því sé hættumatið í skýrsl- unni vægast sagt grunnrist og taki ekki á sértækum berg- tæknilegum eða jarðfræðilegum að- stæðum við Hálslón. Greinargerð Freysteins Sigmundssonar Orkumálastjóri mun hafa sent at- hugasemdir Gríms til Landsvirkj- unar sem óskaði eftir greinargerð um vissa þætti þeirra frá Freysteini Sigmundssyni jarðeðlisfræðingi. Skilaði Freysteinn „Greinargerð um landhæðarbreytingar vegna Háls- lóns“ til Landsvirkjunar 3. desember 2002. Hef ég að nýverið fengið rit- gerð hans frá Orkustofnun. Í henni kemur m. a. fram að samkvæmt lík- ansreikningum muni Hálslón valda um 30 sm sigi, mest við lónið en minnki út frá því og verði líklega ekki mælanlegt í 50 km fjarlægð frá því. Mest af siginu muni koma fram á um 10 ára tímabili eftir að lónið myndast. Búast megi við merkj- anlegum spennubreytingum vegna Hálslóns niður á um 10 km dýpi. „Þannig yrði spennuáhrif fargbreyt- inganna að langmestu leyti bundin við þann hluta jarðskorpunnar sem hegðar sér eins og fjaðrandi efni, og ólíklegt að myndun Hálslóns hafi nokkur áhrif á kvikuhreyfingar þar undir.“ Telur Freysteinn ólíklegt að spennubreytingar vegna Hálslóns hafi nokkur áhrif á kvikuhreyfingar í jarðskorpunni. Hljótt um álit sérfræðinga Hljótt hefur verið um álit sérfræð- inga á jarðfræðilegum aðstæðum á Kárahnjúkasvæðinu og hugsanleg áhrif af þeim stórfelldu breytingum sem þar eru nú í undirbúningi. Hef- ur þó oft verið efnt til opinnar ráð- stefnu fagaðila af minna tilefni. Þörf- in á umræðu um þessi efni fyrir opnum tjöldum virðist brýn ekki síst eftir að í ljós er komið að aðstæður eru aðrar en gert var ráð fyrir þegar ákvarðanir voru teknar um virkj- unina. Það á bæði við um undirstöðu meginstíflunnar og jarðhitavirkni í nágrenni hennar og um hliðarstíflur. Ekki var leitað álits Freysteins á slíkum atriðum og ekki hef ég orðið var við að Grímur Björnsson hafi dregið til baka aðvaranir sínar um ófullnægjandi hættumat á Kára- hnjúkavirkjun. Mikil þekking er til staðar hérlendis og erlendis á þeim fræðasviðum sem hér um ræðir og áhættu tengda vatnsaflsvirkjunum og óafsakanlegt að safna henni ekki saman og ræða opinskátt um óvissu- atriði. Lærdómar af Grímsvatnagosum Eldgosið í Grímsvötnum í nóvember sl. færði jarðfræðingum heim sann- inn um að gömul kenning Sigurðar Þórarinssonar um eldgos þar í kjöl- far Skeiðarárhlaupa og lækkunar vatnsborðs væri rétt. Við hlaupið létti skyndilega fargi af jarðskorp- unni yfir kvikuhólfinu og leysti það nýafstaðið eldgos úr læðingi. Magn- ús Tumi Guðmundsson jarðfræð- ingur var ekki einn um þessa túlkun á dögunum, allt fræðasamfélagið tók undir að best ég veit. Á málþinginu Ís og eldur 26. nóvember sagði Guð- rún Larsen líklegt að nokkurra ára- tuga lota eldgosa sé um það bil að hefjast í Vatnajökli. – Flest hafa gos- in verið í Grímsvötnum en sprungu- rein þaðan liggur í áttina til Brúar- jökuls og vatnasviðs Kárahnjúka- virkjunar. Megineldstöð í Kverk- fjöllum er þó enn nær með sitt sprungukerfi norður um Möðrudal og norðaustur á Brúaröræfi þar sem eldgos myndaði Kárahnjúka og víða gætir enn jarðhita. Grímur Björnsson víkur einmitt að því í áðurnefndum athugasemd- um að árleg 60–75 m vatnsborðs- sveifla í Hálslóni auki áraun á bergið við Kárahnjúkastíflu og geti hrært upp í kviku í eystra gosbeltinu og framkallað eldgos í einhverri meg- ineldstöðinni, Snæfell ekki undan- skilið. Þrýstingsfallið í Grímsvötnum í síðasta mánuði var aðeins brot af því sem verða mun árviss viðburður undir Hálslóni. Ef þetta er raun- verulegur áhættuþáttur gætu menn í orðsins fyllstu merkingu verið að leika sér að eldi við Kárahnjúka. Afleiðingar leka úr Hálslóni Leki úr miðlunarlónum hérlendis er vel þekkt vandamál, Sigölduvirkjun hryggilegasta dæmið, en vatnstap vegna leka úr Sigöldulóni skerti stórlega afköst virkjunarinnar. Sig- öldulón er hins vegar smápollur í samanburði við Hálslón og áraunin á undirlagið að sama skapi meiri í því síðarnefnda. Eflaust gera hönn- unarforsendur Kárahnjúkavirkj- unar ráð fyrir einhverjum slíkum vandamálum, en framkomnar upp- lýsingar um meiri sprungur, mis- gengi og jarðhita á virkjunarsvæð- inu en áður var talið setja leka- vandamál í annað og tvísýnna samhengi. Leki hefur neikvæð áhrif á afkastagetu viðkomandi virkjunar, rýrir fjárhagslega afkomu hennar og getur ásamt jarðhræringum leitt til skemmda á mannvirkjum. Óviðunandi áhætta? Ljóst hefur verið frá því matsskýrsla um Kárahnjúkavirkjun birtist að virkjunin mun hafa í för með sér stórfelld neikvæð umhverfisáhrif. Það var staðfest með úrskurði Skipulagsstofnunar 2001 og margt bendir nú til að reyndin á því sviði verði verri en þeir svartsýnustu ótt- uðust. Einnig hefur það verið mat margra að virkjunin og verksmiðjan sem reisa á í krafti hennar sé efna- hagslegt og félagslegt glapræði. Um þessa þætti ríkir í besta falli óvissa. Nú er að bætast við vitneskja sem bendir til að einnig jarðfræðilegar forsendur framkvæmdanna við Kárahnjúka geti verið ótraustar og mannvirkin sjálf því ekki örugg. Í þessu efni eiga margir mikið undir, íslenskt þjóðarbú og Alcoa, Hér- aðsbúar vegna hamfarahættu, Aust- firðingar í flestu tilliti og allur al- menningur í landinu sem stendur undir skuldbindingum Landsvirkj- unar. Væri úr vegi að yfir allt þetta dæmi verði rennt gagnrýnum aug- um áður en meiru verði hlaðið á hina holu skurn landsins upp af Jökuldal? Hversu traustar eru undirstöður Kárahnjúka- stíflu og Hálslóns? Hjörleifur Guttormsson fjallar um Kárahnjúkavirkjun og umhverfisáhrif hennar ’Nú er að bætast viðvitneskja sem bendir til að einnig jarðfræðilegar forsendur fram- kvæmdanna við Kára- hnjúka geti verið ótraustar og mann- virkin sjálf því ekki örugg.‘ Hjörleifur Guttormsson Höfundur er líffræðingur og fyrrver- andi alþingismaður og ráðherra. ætt við s af frá , en þar n. Öld- afi verið klukkan strax í etrar um 12 ygt sig Að sögn yfirborð um 2–300 metra skömmu áður en sjórinn tók að lyftast og myndaði háan vegg um 5–600 metra úti fyrir ströndinni og kom með ógn- arhraða að landi. Öldurnar hafi rutt öllu sem fyrir varð í burtu og skolað fólki út í sjó. Að sögn Vir- avans eru spítalar á Phuket-eyju stórir og vel tækjum búnir og hafa þyrlur verið notaðar til að flytja fólk frá öðrum stöðum, m.a. Phang-Nga, þar sem aðbúnaður til lækninga er af skornum skammti. Um 4–5 þúsund manns dvelja nú á sjúkrahúsum á Phuket-eyju, að hans sögn. Nokkur hundruð björgunarmenn eru að störfum á eyjunni og von var á Þjóðverjum og björgunarsveitum Sameinuðu þjóðanna, sem munu aðstoða við björgunarstörf. Viravan tók í gær á móti vél Flugleiða sem von var á til Phuk- et í gær, en hún átti að fljúga með 200 manna hóp Svía til síns heima. Með í för voru 9 tonn af drykkjarvatni sem Ölgerðin Egill Skallagrímsson gaf til hjálpar- starfsins. blaðsins kominn á hamfarasvæðin st í Phang-Nga Morgunblaðið/Sverrir ravan á Phuket-flugvelli. Hann sá um að láta afferma Loftleiðavélina. úsum á Phuket-eyju Morgunblaðið/Sverrir m. Þessi ar. /Sverrir tri: tín JÓNAS Sigurþórsson, er í hópi átta Íslendinga sem dvelja á Phuket-eyju og voru í eins kíló- metra fjarlægð frá ströndinni þegar flóðbylgjan skall á sl. sunnudag, eins og fram hefur komið í viðtölum í Morgun- blaðinu. Að sögn Jónasar komu ham- farirnar honum ekki á óvart, að því leytinu til að hann bjó á bæn- um Egilsstöðum I, nálægt upp- tökum Suðurlandsskjálftanna sem urðu árið 2000. Minna var við hamfarirnar nú „Ég lenti í Suðurlandsskjálft- unum og þeir voru ofboðslegir, svo ég er ekki óvanur,“ segir hann. Þegar hann er beðinn um að lýsa upplifuninni þá og nú segir Jónas að hann hafi í raun orðið mun minna var við skjálft- ann í Indlandshafi, enda neðan- sjávar, og eyðileggingin öll af völdum flóðbylgjunnar. Þá hafi hann verið í um eins kílómetra fjarlægð frá ströndinni. „Þetta er miklu minna, en mannfallið er auðvitað ofboðs- legt.“ Jónas varð ekki fyrir tjóni þegar skjálftinn reið yfir árið 2000 en nágranni hans missti hús sitt þegar sökkullinn brotn- aði undan því. Jónas er á Taílandi með eig- inkonu sinni, Margréti Þor- valdsdóttur. Að sögn hans hefur hópnum tekist að fá flugi til Bangkok flýtt, þau áttu pantað far frá Phuket hinn 6. janúar en fljúga þangað á nýársdag. Morgunblaðið/Sverrir Jónas Sigurþórsson og Margrét Þorvaldsdóttir. Þau standa á svöl- um veitingastaðar hótelsins þar sem þau snæddu morgunverð þeg- ar flóðbylgjan skall á ströndinni handan við pálmatrén. Íslendingur á Phuket-eyju Ekki óvanur hamförum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.