Morgunblaðið - 30.12.2004, Síða 35

Morgunblaðið - 30.12.2004, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2004 35 UMRÆÐAN BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið, Kringlunni 1, 103 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is FÁTT er eins sorglegt og dauði ungrar manneskju sem átti bjart líf- ið framundan. Fyrir skömmu las ég frásögn í bresku blaði um dauðsfall ungrar stúlku, Wendy Papas, en hún hafði tekið inn of stóran skammt af eiturlyfinu ecstasy, eða svokallaðri alsælu. Í blaðinu er greint frá að- dragandanum að dauða hennar, en hún hafði ætlað að eyða nóttinni á hótelherbergi með unnusta sínum. Wendy hafði tekið inn margar töflur og leiddi krufning í ljós að hún hafði fengið hjartaáfall. Móðir Wendyar kenndi unnustanum um ótímabæran dauða hennar, en hún sagðist efast um að Wendy hefði leiðst út í fíkni- efni hefði hún ekki verið í þessum fé- lagsskap. Hvað er „alsæla“? Virka eitrið í ecstasy, MDMA, getur orsakað skyndilegan dauða og/eða ævarandi heilaskemmdir. Dr. Steph- en Kish, Toronto, Kanada, sem stýrði nýlegum rannsóknum á efn- inu, skrifaði í vísindatímaritið Neurology, þar sem hann gerði sam- anburð (krufningu) á heila þeirra sem höfðu verið ecstasy-neytendur og nokkurra einstaklinga sem höfðu aldrei reynt efnið. Niðurstaðan varð m.a. sú að neysla á efninu leiddi til fækkunar ýmissa boðefna til heilans. Magn boðefna reyndist vera 50–80% minna hjá þeim sem voru virkir neytendur efnisins. Skortur á þessum boðefnum getur m.a. orsakað geðræna hegðan, þar með talið þunglyndi, kvíða o.s.frv. Vísindamenn ætla að það sé í kring- um 75 sinnum meiri hætta á að þeir sem nota efnið verði fyrir breyttri geðrænni hegðan en þeir sem ekki nota efnið. Ofangreind frásögn úr breska blaðinu minnti mig á það að svona at- burðir gerast því miður einnig hér á landi og því finnst mér ástæða til að minna á skaðsemi alsælu, ef það mætti verða til þess að unglingar hugsuðu sig tvisvar um áður en þeir ákveða að „prófa“ eiturlyf. ELÍAS KRISTJÁNSSON, foreldri og áhugamaður um fíkniefnaforvarnir, Reykjanesbæ. Banvænn skammtur af alsælu Frá Elíasi Kristjánssyni LÍFEYRISSJÓÐUR starfsmanna ríkisins sýndi ellimóðum félögum sínum þá rausn að bjóða þeim til há- tíðarsamkomu á Grand hóteli mið- vikudaginn 19. maí sl. Þar voru bornar fram rausnarlegar veitingar auk skemmtiatriða sem flutt voru, einkum bar mikið á engilsaxneskum söngvum, m.a. „Oh, What a Beauti- ful Morning“ úr Oclahoma, söngleik frægum. Undirritaður bar fram tillögu sem samþykkt var í einu hljóði. Ég bjóst sannast að segja við að Lífeyrissjóð- urinn sendi þessa einróma samþykkt til birtingar. Svo varð ekki. Ég spurði Pál, skrifstofumann sjóðsins, hvort ég gæti fengið ljósrit af fund- argerðinni svo unnt væri að birta efni hennar. Hann neitaði því. Sem betur fer var húsbóndi hans, Haukur Hafsteinsson, annarrar skoðunar. Hann sýndi mér þá vinsemd að senda mér afrit af fundargerð þar sem getið er tillögu minnar, að vísu án þess að nafngreina flytjanda. Ég þakka Hauki fyrirgreiðslu hans. Bið Morgunblaðið að birta bréf Hauks Hafsteinssonar. Jafn- framt má spyrja: Er það rétt að embættismenn, þingmenn, ráð- herrar og forstjórar ýmsir fái greidd eftirlaun úr mörgum sjóðum, t.d. ráðherrar sem jafnframt hafa verið alþingismenn, seðlabankastjórar, fógetar og fleiri embættismenn, og fá þannig margföld eftirlaun? Eftirfarandi er bréf Hauks: „Á opnum fundi sem LSR hélt fyrir sjóðfélaga á lífeyri 19. maí sl. kom fram tillaga frá einum fund- armanna um að beina eftirfarandi tilmælum til Tryggingastofnunar ríkisins: „Fundur lífeyrisþega haldinn mið- vikudaginn 19. maí 2004 skorar á Tryggingastofnun ríkisins að hún hlífi ellimóðum og sjóndöprum sjóð- félögum við því að framvísa kvitt- unum fyrir læknishjálp. Tryggingastofnun ríkisins fær all- ar upplýsingar sjálf og ætti að senda lífeyrisþegum fríkort um leið og þeir hafa náð tilteknu marki. Það sæmir ekki mannúðarstofnun að hagnast um milljónir króna á gleymsku og ellihrörnun gamal- menna.“ Tillagan var borin undir atkvæði og var hún samþykkt samhljóða.“ PÉTUR PÉTURSSON þulur. TR sendi lífeyrisþeg- um fríkortið sjálfkrafa Frá Pétri Péturssyni HINN 26. desember sl. sýndi rík- issjónvarpið ballettinn Græna borð- ið, eftir danshöfundinn Kurt Jooss. Þessi nútímaballett fékk l. verðlaun í fyrstu danskeppni sem haldin var fyrir nútíma dansverk, en hún var í París árið l932. Græna borðið er löngu orðið sígilt verk og trúlega það nútíma dans- verk sem oftast er sýnt í heiminum. Efni ballettsins eru árangurslausar viðræður stjórnmálamanna við „græna borðið“, stríð og hörmungar sem þeim fylgja. Fyrir utan að efnið er stöðugt tímabært er ballettinn frábærilega vel saminn og snertir áhorfendur rækilega, hvort sem þeir eru ballettunnendur eður ei. Oft heyrist fólk segja að það hafi ekkert vit á ballett, en enginn getur haldið slíku fram í sambandi við þetta verk. Hér er um tímamóta ballettverk að ræða. Græna borðið er einstakt verk sem allir ættu að berja augum. Í þessari sjónvarpsútgáfu dansar Joffrey-ballettflokkurinn með glæsi- brag. Sjónvarpið á þakkir skildar fyrir sendinguna, en þar sem hún var síðla dags annan dag jóla er ekki við því að búast að margir hafi séð hana. Það er því ósk mín að Græna borðið verði endursýnt á besta sjón- varpstíma, því það á erindi til allra. UNNUR GUÐJÓNSDÓTTIR, fyrrv. ballettmeistari Þjóðleikhússins. Þess skal getið sem gott er gert Frá Unni Guðjónsdóttur Á ÍSLANDI eru augnslys ein af aðalorsökum blindu hjá börnum. Þrátt fyrir aukna fræðslu og var- úðarráðstafanir sýna tölur frá augndeild Landspítala – háskóla- sjúkrahúss (LSH) að um hver ára- mót slasast nokkrir einstaklingar á augum vegna flugelda eða blysa. Að meðaltali hafa verið um tvö augnslys um hver ára- mót en á nokkurra ára fresti hafa komið mikl- ar slysahrinur. Síðasta slysahrina var hér um áramótin 1999–2000. Þá slösuðust sex ein- staklingar á augum, þar af hlutu tveir al- varlegan og var- anlegan skaða. Slys vegna flugelda verða á tímabilinu frá því strax eft- ir jól og fram í janúar og því segja tölur frá gamlárskvöldi ekki alla söguna. Undanfarin ár hafa orðið slys langt fram í janúar þar sem börn, aðallega drengir, hafa safnað púðurleifum og búið til sprengjur. Í þessum tilfellum hafa börnin hlotið misalvarlega áverka á augu, brennst í andliti, á hálsi og hönd- um. Fórnarlömb augnslysa eru oft- ast drengir eða ungir menn á aldr- inum 10–20 ára. Samkvæmt íslenskum, sænskum og bandarísk- um tölum eru hinir slösuðu í yfir 80% tilfella drengir eða ungir menn, enda eru þeir öðrum skot- glaðari eins og flestir vita. Aðrir einstaklingar eru vitaskuld einnig í hættu, því nokkur hluti þeirra sem slasast af völdum flugelda eru áhorfendur þeirra. Áður fyrr urðu mörg augnslys af blysum og kraftlitlum skoteldum. Sum þessara slysa voru alvarleg en með aukinni notkun hlífðargler- augna hefur þeim fækkað. Hins vegar sýna tölur frá augndeild LSH að slysum vegna mjög kröft- ugra skotelda hefur fjölgað og virð- ist sem margir vari sig ekki á því hversu öflugir skoteldarnir eru orðnir. Í verstu slysunum vegna mjög kröftugra skotelda hafa hlífð- argleraugu ekki mikið að segja og nokkur umræða hefur verið um hvort takmarka beri aðgang almenn- ings að allra öflugustu skoteldunum til þess að fyrirbyggja alvar- legustu augnslysin. Víða erlendis gilda mun strangari reglur um meðhöndlun flug- elda og eru þá ein- göngu fagmenn sem skjóta kröftugum flug- eldum. Í þessum lönd- um eru slys vegna flugelda margfalt fátíðari. Augnáverkar af völdum skotelda eru fyrst og fremst afleiðingar höggsins sem verður þegar flug- eldur hittir augað auk bruna vegna blysa. Þvermál flugelda er lítið þannig að augnumgjörðin ver ekki augað heldur tekur augað sjálft allt höggið. Áverkinn getur verið allt frá vægum sárum á yfirborði aug- ans til þess að augað springur. Slíkir áverkar krefjast flókinna og jafnvel endurtekinna skurðaðgerða. Í verstu tilfellum missir fólk augað. Einnig eru dæmi um síðkomnar af- leiðingar t.d. ský á auga og gláku. Varanleg sjónskerðing vegna þess- ara slysa er því miður algeng. Við getum hins vegar gert ýmislegt til þess að koma í veg fyrir slysin.  Pössum vel upp á börnin okk- ar og unglingana. Flugeldar eru ekki leikföng. Ábyrgðin er fyrst og fremst hjá foreldrum. Reynslan sýnir að það er að- allega fólk undir tvítugu sem verður fyrir þessum slysum.  Notum öll hlífðargleraugu. Allir sem meðhöndla flugelda eða eru áhorfendur ættu að nota hlífðargleraugu. Einnig er mikilvægt að nota hanska til þess að koma í veg fyrir bruna á höndum.  Lesum leiðbeiningar framleið- enda og fylgjum þeim.  Notum trygga undirstöðu fyr- ir flugeldana og hafið hugfast að gler- eða málmstandar sem ætlaðir eru til annarra nota, geta sprungið í tætlur.  Bogrum ekki yfir flugeldum þegar þeim er skotið upp. Hellið vatni á og hendið flug- eldum sem ekki hafa farið í loftið. Slys verða oft með þeim hætti að farið er að bogra yfir flugeldi eða blysi sem ekki hefur skotist upp eða brunnið. Augnabliks óvarkárni og óvita- skapur getur breytt lífi fólks ævi- langt. Það er erfið upplifun að horfa á barnið sitt missa sjón á auga. Ég hvet alla til þess að fylgj- ast vel með hvað börnin aðhafast þessa dagana, um leið og ég óska landsmönnum öllum heillaríkra áramóta. Augnslys um áramót María Soffía Gottfreðsdóttir fjallar um augnslys um áramót ’Slys vegna flugeldaverða á tímabilinu frá því strax eftir jól og fram í janúar og því segja tölur frá gaml- árskvöldi ekki alla söguna.‘ María Soffía Gottfreðsdóttir Höfundur er læknir og starfandi sér- fræðingur í augnlækningum á Land- spítala – háskólasjúkrahúsi. ÉG LAS það í blaði um daginn að haft var eftir formanni samtaka at- vinnulífsins þegar hann var inntur eftir hvaða áhrif verkfall leikskólakennara gæti haft fyrir íslenskt at- vinnulíf ef til verkfalls þeirra kæmi að hann endaði svar sitt eitt- hvað á þá leið að hann skyldi ekki verkfalls- kúltúr opinberra starfsmanna á Íslandi. Ef ég skyldi hans hugleiðingu rétt eða rétt var eftir mann- inum haft hlýtur það að túlkast einhvern veginn á þann hátt á mannamáli að maðurinn álítur að íslenskt launafólk sé hér að skapa eitthvað sérstakt fyrirbæri sem hann kallar „verkfallskúltúr“ sem felst þá væntanlega í því að fólk mót- mælir lágum launum sínum á þann hátt að það leggur niður vinnu ef ekki semst um eitthvað betra við samningaborðið. Á hvaða leið er kjarabarátta eða viðhorf til hennar á Íslandi? Ég verð að viðurkenna að maður undrast hreinlega orðið hvernig hin- ir ýmsu aðilar í íslensku þjóðlífi líta á karpið um kaupið og kjörin. Í nýaf- stöðnu verkfalli grunnskólakennara og sveitarfélaga kom í ljós að mínu mati ótrúleg viðhorf hinna ýmsu að- ila gagnvart kjarabaráttu sem kom fram í hinum ýmsu myndum. Fyrst skal nefna að ýmsir aðilar sem semja og vinna fyrir verkafólk í þessu landi koma fram í erfiðum kjaramálum annarra stétta og gefa út yfirlýsingar um hvað hinir mega semja um. Ef þeir fá meira viljum við meira og tala jafnan þannig að öllu verði hér steypt í glötun ef þessi eða hin stéttin fái meira. Hvers konar vinnubrögð eru þetta? spyr ég. Þó hinir ýmsu verka- lýðsforkólfar semji um lág laun fyrir sitt fólk og telji sér sóma að og réttlæti með einhverju sem átti við fyrir tíu til fimmtán árum í því þjóðfélagi sem var þá og þeir kölluðu þjóð- arsátt (lesist sem skíta- laun fyrir þorra launa- fólks) tel ég að svona vinnubrögð eigi ekki að tíðkast í dag, árið 2004. Menn eiga að semja hver á sínum forsendum fyrir sína umbjóðendur og þeir menn sem í forsvari eru fyrir hin og þessi stéttarfélög eiga ekkert með að vera að skipta sér af hvað hinir eru að gera heldur að kapp- kosta að semja sem best fyrir sitt fé- lag. Í öðru lagi bendi ég á þá stað- reynd að með öllu er óþolandi að menn skuli voga sér að tala með þeim hætti sem hér var nefnt í byrj- un greinar minnar um verkfalls- kúltúr! Halda menn að einhverjir fari af fúsum og frjálsum vilja í verk- fall? Er ekki verkfallsvopnið það eina sem launamenn geta gripið til ef þeim finnst þeir vera órétti beitt- ir? Voru menn ekki hér fyrir ein- hverjum sjötíu, áttatíu árum að ryðja brautina fyrir okkur sem á eft- ir komum þegar lagt var út í erfiðar kjaradeilur út af vökulögum og fleiru? Eru skilaboðin þau að launa- fólk eigi að þegja og vera glatt með það sem því er rétt í hvert skipti? Ég undrast oft langlundargeð okkar Íslendinga yfir hinum ýmsu ákvörðunum sem teknar eru okkur í óhag og við þegjum þunnu hljóði þegar aðrar þjóðir væru komnar í miklar mótmælagöngur eða stríð við yfirvöld. En það eru kannski vest- firsku genin í mér sem spila þarna inn í að mér er oft misboðið. Sér- staklega þegar maður á að láta það yfir sig ganga að menn tali hér um einhvern verkfallskúltúr að mínu mati af þvílíku virðingarleysi að það hálfa væri nóg. Er ekki kominn tími til, spyr ég, að við endurskoðum kjarabaráttu okkar alveg niður í kjölinn? Virðum í fyrsta lagi þann rétt sem launafólk hefur til samn- inga og ef ekki um semst þá sé þeirri stétt sem um ræðir treyst til að meta hvaða leiðir eru bestar til að hefja baráttuna fyrir bættum kjör- um og að samið sé á forsendum hvers og eins en ekki að menn rísi upp hér til handa og fóta og lemji hvern annan niður með yfirlýsingum um eitthvað fari úrskeiðis eða að við- horfin fáir þú þá fæ ég nái að skjóta rótum. Varðandi „verkfallskúltúrinn“ segi ég vonandi verður launafólk á Íslandi svo sterkt og öflugt í sinni kjarabaráttu að það láti aldrei þann rétt af hendi að geta mótmælt því ef því finnst því órétti beitt eins og grunnskólakennarar gerðu svo eft- irminnilega í sinni kjarabaráttu að sómi var að fyrir þá stétt. Íslenskur verk- fallskúltúr – hvað er það? Petrína Baldursdóttir fjallar um kjaramál ’Er ekki verkfalls-vopnið það eina sem launamenn geta gripið til ef þeim finnst þeir vera órétti beittir?‘ Petrína Baldursdóttir Höfundur er leikskólastjóri í Grindavík.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.