Morgunblaðið - 30.12.2004, Side 39

Morgunblaðið - 30.12.2004, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2004 39 MINNINGAR og elliheimilum eða önnur umönnun- arstörf bæði sunnanlands og vestan. Guðrúnu sá ég fyrst daginn áður en brúðkaup okkar Ármanns var haldið. Við héldum svo til Ísafjarðar nokkr- um dögum seinna og hófum búskap hjá henni og Pétri mági mínum sem þá var 15 ára, á bernskuheimili Ár- manns í Mjógötu 7. Ég hafði aldrei komið til Ísafjarðar áður og þekkti engan. Ég komst fljótt að því að í Mjó- götunni var gestkvæmt. Tengdamóð- ir mín fór ekki víða en margir komu við hjá henni. Hún var hæfileikarík, hafði gott skopskyn og gat brugðið sér í ýmis hlutverk ef svo bar undir. Hún unni góðum kveðskap og á góðu kvöldi var gjarnan lesið upp kvæði og var ljóð Tómasar Guðmundssonar um unga stúlku frá Súdan í sérstöku uppáhaldi, ásamt mörgum öðrum. Hér er ekki svigrúm til að nefna allt það sem rennur gegnum hugann á þessum tímamótum, en þennan fyrsta vetur tókst með okkur vinátta og kærleikur sem aldrei brást. Lífsskoðanir Guðrúnar voru ekki ólíkar þeim sem ég hafði alist upp við. Heiðarleiki og manngæska voru í fyr- irrúmi, en hroki og sýndarmennska áttu ekki upp á pallborðið. Hún hafði ríka samkennd með öðr- um og áreiðanlega vissi vinstri höndin oft ekki hvað sú hægri gaf, því ekkert var fjær henni en að velta sér upp úr veraldlegum gæðum. Það var sárt að horfa á hvernig ellin lék þessa dug- miklu konu, en nú er hún laus úr fjötr- um jarðlífsins. Hafi hún eilífa þökk fyrir það sem hún var. Katrín Eyjólfsdóttir. Kæra amma. Þú varst það fyrsta sem ég sá í þessari jarðvist, þar sem þú varst ljósa mín í suðurherberginu á Mjó- götu 7 á Ísafirði. Þú varst góð ljósmóðir og á þínum blómatíma krafðist það þess að vera umhyggjusöm, sjálfstæð, dugleg og fljót að taka ákvarðanir þegar mikið lá við. Ég tel að þessir eiginleikar hafi ein- kennt allt þitt líf. Það hefur alltaf ver- ið gott að leita til þín og þeir eru margir sem notið hafa góðs af mann- kostum þínum. Þú hefur verið til staðar í lífi mínu frá fyrsta degi og mun minning þín lifa með mér alla tíð. Guðrún Anna Finnbogadóttir. Ég minnist félaga ömmu sem kraft- mikils mannvinar. Félagi amma var sósíalisti sem trúði á fólkið, frelsi, jafnrétti og bræðralag. Mestu skömm hafði félagi amma á hvers kyns vald- beitingu, yfirlæti og hroka. Ég man lítið eftir ömmu sem barn, aðeins þó, þar sem hún bjó hjá okkur um tíma, en var að ég held mest í vinnu sem ljósmóðir eða forstöðukona. Ég man þó að hún tók á móti bróður mínum Ingvari Erni þegar hann fæddist og það var eitthvað flott við að mamma mömmu væri sú sem tók á móti bróð- ur mínum. Sem krakki sá ég ömmu lítið þar sem hún var mest á Ísafirði og hún var amman sem kom endrum og eins í heimsókn og virtist alltaf hafa mörg- um og mörgu að sinna. Ein minning stendur þó alltaf skýr í huganum, það er þegar ég fór í heimsókn til ömmu á Ísafirði, í vinnuna hennar. Í fyrsta lagi skildi ég ekki af hverju amma væri að vinna, ömmur áttu ekki að vera að vinna í mínum huga og mikið var ég hissa þegar ég sá ömmu stjórna fólki sem var að sjá um gaml- ar ömmur og afa. Átti ekki einhver að hugsa um ömmu frekar en að hún væri að sjá um aðrar ömmur? En þarna var hún eins og herforingi að stjórna og svo sem ekkert óeðlilegt við það þar sem amma var ekki svo ýkja gömul eftir allt saman. Kynni mín af félaga ömmu byrja á þeim aldri þegar einhver vottur af samfélagslegri vitund er að skríða inn í þykkan og þveran kollinn á ungum manni sem var byrjaður að spá í póli- tík og velta fyrir sér tilgangi lífsins. Þá var oft spjallað við félaga ömmu heima á Borgó við eldhúsborðið hjá mömmu eða farið í heimsókn á Grett- isgötuna milli tíma í Iðnskólanum, borðaðar pönnsur, diskúterað, smá kría tekin á eftir sem oftar en ekki lengdist þar sem gömlu þótti dreng- urinn sofa svo vært að hún vildi ekki vekja hann. Þannig missti maður af mörgum tímum í Iðnskólanum. En heimsókn hjá ömmu var hvort sem er miklu meiri skóli. Það var alltaf stutt í húmorinn hjá félaga ömmu þar sem við vorum nokkuð sammála í pólitík. Sú gamla varð aldrei ofsoðin og meyr í sínum skoðunum. Hún fann alltaf til með lítilmagnanum. Hún var rauð inn við beinið og stolt af því. Heilsuðumst við löngum með þessum orðum: „Sæl comrade amma.“ „Sæll comrade Bjarni,“ svaraði hún sposk. Félagi amma. Já, þvílíkur karakter. Það er ekki hægt annað en að elska lífið og vera stoltur þegar maður á ömmu eins og félaga ömmu. Bjarni Sigurbjörnsson. Elsku amma mín. Sakna ég þín sárt, en gott þykir mér að eiga allar minningarnar um þig. Hverfa þær aldrei úr hjarta mér. Vona ég að þú sért komin á góðan stað, þú átt það svo innilega skilið. Betri konu er ekki hægt að finna, við erum öll heppin að hafa átt þig að. Með þessum orðum kveð ég þig; Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum í trú á að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Þakka þér fyrir allt sem þú hefur gefið mér, amma mín. Þér bið ég Guðs blessunar á eilífð- arvegum. Elísabet Árnadóttir. Guðrún Finnbogadóttir sem lést hinn 19. desember síðastliðinn, eða Gunna frænka eins og ég kallaði hana, var eina systir hennar mömmu. Hún var næstelst og mamma, Steinunn, næstyngst af sex systkinum. Þó ald- ursmunur væri nokkur voru þær allt- af góðar systur og vinkonur. Mamma var aðeins 11 ára þegar stóra systir fór í ljósmæðranám í Reykjavík og strax þegar hún hafði aldur til fetaði hún sömu braut. Þær voru báðar far- sælar ljósmæður og tóku á móti ófáum börnunum á starfsævinni. Þegar Gunna útskrifaðist úr ljós- mæðraskólanum árið 1936 var hún aðeins tuttugu og eins árs, en hún hik- aði ekki við að gerast ljósmóðir í Bol- ungarvík sem var mjög einangruð byggð. Það var læknir á staðnum en hvorki heilsugæslustöð né sjúkra- skýli. Ef eitthvað sérstakt bjátaði á þurfti að sækja hjálp sjóleiðina til Ísa- fjarðar. Gunna var ekki að mikla erf- iðleikana fyrir sér, öðru nær. Þarna var verk að vinna og þótt hún væri ljúf kona var hún mjög kjarkmikil og gekk að hverju verki af ákveðni og einbeitni. Gunna frænka ólst upp í Bolung- arvík og fór ekki langt þegar hún stofnaði eigið heimili á Ísafirði með Gunnlaugi Halldórssyni. Þangað vor- um ég og aðrir fjölskyldumeðlimir alltaf velkomnir. Það var gaman að koma til Gunnu frænku þegar hún bjó í Mjógötu 7. Þegar 7 ára gömul dvaldi ég sumar- langt hjá henni, Gunnlaugi og börn- unum, Stenní, Ármanni, Siggu, Elsu og Pétri. Hjá þeim var jafnan líf og fjör og mér leið vel í þessum skemmti- lega félagsskap undir verndarvæng Gunnu frænku sem ekki munaði um að bæta einu barni í hópinn. Þá sem og í annan tíma lagði hún áherslu á hversu líkar við værum og sérstak- lega nefið sem hún sagðist eiga þegar sá gállinn var á henni. Síðar á lífsleiðinni hitti ég Gunnu oft þegar hún brá sér í bæjarferð eða ég heimsótti hana á Ísafirði og naut samskiptanna við þessa skemmtilegu og lifandi frænku mína. Á slíkum stundum rifjuðum við gjarnan upp lít- inn atburð sem gerðist í sumardvöl- inni. Ég hafði farið niður í bát sem lá við bryggjuna, ásamt fleiri krökkum, og þegið góðgerðir hjá sjómönnunum. Tíminn leið og komið var langt fram yfir kvöldmatartíma þegar ég lagði af stað heim á leið og mætti frænku minni sem fór mikinn, hún var logandi hrædd og búin að leita að mér dyrum og dyngjum. Þó mér þætti hún reiði- leg á svipinn tók hún mig í faðminn og sagði með áherslu: Ja hérna, ef ég væri ekki svona glöð að sjá þig þá myndi ég rassskella þig. Síðan leidd- umst við heim og það varð ekki meira um skammir. Þannig var Gunna, hún var fljót til og leysti mál af röggsemi en síðan voru þau að baki. Þessi at- burður ásamt ýmsu fleiru sem við upplifðum saman tengdi okkur sér- stökum böndum alla ævi. Ég er þakk- lát fyrir allar góðu stundirnar með henni og eftirlét henni góðfúslega nef- ið á mér en er ekki frá því að ég hafi fengið æði margt frá henni í staðinn. Elsku Stenní, Ármann, Sigga, Elsa og Pétur, ég hugsa til ykkar af hlýhug nú þegar þið kveðjið mömmu ykkar og frænku mína sem við söknum öll. Steinunn Harðardóttir. Ein fyrsta bernskuminningin var sú uppgötvun að Gunna Finnboga, konan hans Gulla frænda, væri kommi en samt góð. Þetta fannst okk- ur skrýtið. En við systurnar nutum góðmennsku hennar þegar við dvöld- um hjá frændfólkinu á Ísafirði. Þar leið okkur vel og hjónin komu fram við okkur börnin eins og við værum jafningjar þeirra. Hús þeirra stóð okkur opið þó að stundum þyrftu mörg börn að sofa í flatsæng á gólf- inu. En Guðrún reyndist ekki aðeins okkur börnunum vel því að hún hugs- aði ekki síður vel um Elísabetu, ömmu okkar. Hún talaði alltaf um hana af mikilli hlýju og virðingu og taldi ekki eftir sér að annast hana í ell- inni. Þegar Elísabet dó fór Guðrún í ferð sem var henni mjög minnisstæð. Amma vildi láta jarða sig við hlið Þór- unnar, systur sinnar, en hún var graf- in austur á Héraði. Elísabet dó í febr- úar þannig að bíða þurfti fram í júní með að jarðsetja hana. Illa gekk að finna grafreit Þórunnar þar sem kirkjugarðurinn hafði verið endurnýj- aður. En Guðrúnu dreymdi Elísabetu sem sagðist best treysta henni til þess að sjá um að hún fengi réttan grafreit. Leiðið fannst þannig að unnt reyndist að uppfylla ósk þeirrar látnu. Guðrún hafði ákveðnar stjórnmála- skoðanir og hélt sig vinstra megin í pólitíkinni en ekki bara þar. Hún var komin á sextugsaldur þegar hún tók bílpróf og ók þá oft Óshlíðina á Moskvitch. Einhverju sinni fengum við far með henni þessa leið eftir að komin var hægri umferð. Hún ók þó á vinstri vegarhelmingi og sagði að það væri miklu öruggara. Í Mjógötunni var oft glatt á hjalla og húsið opið jafnt háum sem lágum. Við börnin fengum að sitja í eldhúsinu og taka þátt í þeirri þjóðfélagsum- ræðu sem þar fór fram. En þó er það hjartahlýjan og nota- legheitin sem lifa helst í minningunni. Þegar ein okkar fluttist síðar vest- ur á firði reyndist Guðrún henni hin besta stoð og börnum hennar eins og aukaamma. Við viljum þakka fyrir að hafa fengið að kynnast þessari góðu konu. Steinunn, Áslaug og Halldís Ármannsdætur. Dagur er kominn að kvöldi. Guðrún Finnbogadóttir hefur lokið sínu dags- verki og leggst til hvíldar milli fjallanna bláu, þar sem hún fæddist og hefur að mestu alið sinn aldur. Þegar ég var barn og unglingur var ég nær daglegur gestur á heimili Guð- rúnar og hennar ágæta manns Gunn- laugs, foreldra Sigríðar vinkonu minnar. Heimilið í Mjógötu 7 Ísafirði var mjög gestkvæmt, þangað komu ekki einungis vinir barnanna heldur fólk á öllum aldri. Þar var líf og fjör, þar var farið með ljóð og leikverk, þar var spilað púkk á jólunum. Fjölskyldan öll var bókelsk og listelsk. Ekki var þar sóst eftir gráðum og titlum heldur spratt ástundun menntunar og lista af innri þörf sem þurfti að sinna. Undanfarin ár hefur mikið verið rætt um að reisa menningarhús úti á landsbyggðinni. Verður mér þá hugs- að til þeirra menningarhúsa sem ég kynntist í bernsku, vestur á Ísafirði, svo sem í Smiðjugötunni hjá Sigríði og Ragnari H. og í Mjógötunni hjá Guðrúnu og Gunnlaugi. Þetta voru sönn menningarhús, jafnvel þjóð- menningarhús. Gott er að búa vel að menningu og listum en mestu máli skiptir þó hugarfar og innri glóð. Guðrún lagði ung á árum stund á ljósmóðurfræði og starfaði sem ljós- móðir fyrst í Bolungarvík og síðar á Ísafirði. Síðar var hún forstöðukona elliheimilisins á Ísafirði. Þessum störfum sinnti Guðrún af alúð, natni og festu. Þegar kraftar hennar voru á þrotum undir það síðasta var henni endurgoldið. Fólk sem hún hafði hjálpað í heiminn, sem ljósmóðir í Bolungarvík, sinnti henni af nær- gætni og virðingu. Að kvöldi ævidags hefur Guðrún getað litið sátt yfir farinn veg. Hún naut ástúðar barna og vina. Hún hef- ur lokið góðu dagsverki, laus við græðgi og lífsgæðakapphlaup. Hún og hennar líkar stuðla að því að landið komist lítt spillt í hendur næstu kyn- slóða. Þorbjörg Kjartansdóttir. Drottinn hefur kallað ömmu heim eftir langan vinnudag. Í huganum búa minningar um elskulega konu sem var annt um hag og velferð annarra. Enginn var svo lítilfjörlegur eða aum- ur að ekki fyndist í honum eitthvað gott. Eina sögu man ég sérstaklega sem amma sagði. Í Kaupfélaginu var kassi með hnífapörum úr ýmsum átt- um. Eina skeið sá hún sem var svart- ari en hin hnífapörin. Hún ákvað því að kaupa skeiðina. Þegar heim var komið var skeiðin pússuð og fram kom ljómandi falleg silfurskeið. Þann- ig eru minningarnar um ömmu. Í hverri manneskju má finna eitthvað guðdómlegt og fallegt. Bara ef við gefum okkur tíma til að leita þess og hlúa að því. Friður ríki yfir minningu hennar. Ragnheiður Jóna. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR ÓFEIGSDÓTTUR HJALTESTED, áður til heimilis á Brávallagötu 6, Reykjavík. Valgerður Hjaltested, Gestur Einarsson, Ófeigur Hjaltested, Edda Tryggvadóttir, Pétur Hjaltested, Hanna G. Kristinsdóttir, barnabörn og langömmubörn. Okkar ástkæri frændi, ÞÓRÐUR ELÍASSON fyrrv. leigubílstjóri, áður til heimilis í Hraunbæ 103, andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir aðfaranótt miðvikudagsins 29. desember sl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, systkinabörn hins látna. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEFÁN ÞÓRÐARSON, Reykjahlíð 10, lést á líknardeild Landspítala Landakoti þriðju- daginn 28. desember. Jarðarförin auglýst síðar. Ólöf Stefánsdóttir, Hannes Þór Ragnarsson, Þóra María Stefánsdóttir, Kristinn Stefánsson, barnabörn og barnabarnabörn. Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir og afi, BRYNJÓLFUR SÆMUNDSSON, Kópnesbraut 19, Hólmavík, sem lést fimmtudaginn 23. desember, verður jarðsunginn frá Hólmavíkurkirkju fimmtu- daginn 6. janúar kl. 14.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Erla Þorgeirsdóttir, Árni Brynjólfsson, Heiða Eiríksdóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.