Morgunblaðið - 30.12.2004, Síða 40

Morgunblaðið - 30.12.2004, Síða 40
40 FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Unnur Halla Lár-usdóttir fæddist í Vestmannaeyjum 26. september 1916. Hún lést á líknardeild Landakots mánudag- inn 20. desember síð- astliðinn. Foreldar Unnar voru Lárus Halldórsson, f. á Rauðafelli, A-Eyja- fjöllum í Rangár- vallasýslu, 18.2. 1874, d. 11.4. 1957, bóndi, söðlasmiður og út- gerðarmaður á Velli og frá 1910 sjómaður og fiskkaup- maður í Vestmannaeyjum, og Elsa Dóróthea Ólafsdóttir húsfreyja, f. í London í Vestmannaeyjum 27.9. 1879, d. 27.9. 1956. Unnur Halla var yngst sex systkina en hin voru Ólafía Halldóra, Óskar, Ágúst Theódór, Ólafur og Einar Geir. Unnur giftist 12.10. 1935 Magn- úsi Kjartani Jónssyni bygginga- meistara, f. í Miðdal í Laugardal í Árnessýslu 19.2. 1910, d. 2.9. 2002. Magnús ólst upp á Iðu í Biskups- tungnahreppi í Árnessýslu. For- eldrar hans voru Jón Hansson Wium bóndi á Iðu, f. á Keldunúpi í Hörgslandshreppi í V-Skaft. f. 16.6. 1871, d. 8.9. 1949, og kona hans Jónína Bjarnadóttir, f. á Efri- Ey í Leiðvallahreppi í V-Skafta- fellssýslu 25.2. 1879, d. 12.2. 1947. Magnús og Unnur eignuðust fimm börn, þau eru: 1) Erla Dórothea fram- kvæmdastjóri, f. 1936, d. 1988, giftist Gunnari Jónssyni rafvirkjameistara, f. 1933, þau skildu. Giftist síðar Einari Guðmundssyni kenn- ara, f. 1942. 2) Jón Magnús bygginga- meistari, f. 1942, kvæntur Elínborgu Magnúsdóttur, f. 1944. 3) Ástþór ljósmyndari, f. 1953, kvæntist Þuríði Steinþórs- dóttur, f. 1958. Kvæntist síðar Natalíu B. Wium, f. 1975. 4) Jónína (Ninný) myndlistarmaður, f. 1955. Hún giftist Skúla Tryggvasyni verkfræðingi, f. 1958, d. 1998. Sambýlismaður hennar er Jón Tryggvi Kristjánsson löggiltur endurskoðandi, f. 1953. 5) Elsa hárgreiðslumeistari og bóndi, f. 1957, gift Pjetri N. Pjeturssyni framkvæmdastjóra, f. 1954. Barnabörn Magnúsar og Unnar eru tíu og barnabarnabörnin fjór- tán og eitt barnabarnabarnabarn. Unnur verður jarðsungin frá Áskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiðir sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Við fráfall móður minnar koma upp margar minningar, sem vert er að staldra við. Ég fæddist á æskuheimili mínu á Hjallaveginum í Reykjavík og naut þeirra forréttinda sem barn að alast upp hjá umhyggjusömum foreldrum, sem hugsuðu vel um börnin sín. Mamma var heimavinnandi og þegar komið var heim úr skólanum tók hún á móti okkur systkinunum og gaf okk- ur eitthvað í svanginn, heimabakkelsi og mjólk. Hún var fyrirmyndarhús- móðir og man ég að regla var að baka á föstudögum haframjölskökuna hans pabba og okkur kennt að snúa klein- um. Minningarnar eru margar úr æsku, og þegar ég lít til baka dáist ég að hvað foreldrar mínir voru dugleg með okkur krakkana. Okkur voru kenndir margir góðir siðir og við alin upp við fjölbreytni af ýmsu tagi. Þau ferðuðust með okkur um land- ið, þrátt fyrir slæma bílveiki í aftur- sætinu, enda vegirnir enn óbundnir í malbik. Auk þess höfðu þau byggt sumarbústað við Þingvallavatn og þaðan á ég yndislegar minningar. Farið var á öll helstu leikritin í Þjóðleikhúsinu, málverkasýningar og messur á sunnudögum, en þau voru mjög trúrækin. Á 17. júní var liðið puntað og fékk fána og ís. Fyrir tíð sjónvarpsins sat fjölskyldan saman á fimmtudagskvöldum og hlustaði á leikritið í útvarpinu og þá sat mamma við hannyrðir, en margt fallegt er til eftir hana. Mamma var góðhjörtuð og ég man hvað hún var dugleg að sinna gömlum frænkum og konum sem voru orðnar einar. Hún heimsótti þær reglulega og færði þeim eitthvað fallegt. Ekki var það efst á vinsældarlistanum að sitja stillt hjá þessum gömlu konum. Mamma kenndi okkur að þær þyrftu á þessari umhyggju að halda og ekki mætti gleyma að sinna þeim, sem ættu um sárt að binda. Mamma var mjög hreinskilin og stundum mis- skildi samferðafólk hana, en hún vildi öllum vel. Hún var sáttfús og vildi ekki vita af ósætti, hún vildi reyna sættir. Hún var mikill fagurkeri, enda bar heimili foreldra minna merki um smekk og alúð. Í náttúrunni má sjá ýmislegt, sem kemur á óvart. Til dæmis fallegt blómstrandi blóm, sem stendur í blóma og skartar sínu feg- ursta, þrátt fyrir ófrjóan jarðveg þar sem fólki finnst að ekkert geti vaxið. Þessi sýn minnir mig á móður mína síðustu árin, þegar hún var orðin veik. Hún blómstraði, var glæsileg og fal- leg til hinsta dags. Hún var mjög dug- leg í veikindum sínum, kom fólki á óvart með æðruleysi og styrk. Elsku mamma mín, far þú í friði, hafðu þökk fyrir alla umhyggju þína og elsku. Minn kæri Guð, taktu á móti móður minni í ljósið bjarta. Með englum þínum hún elsku njóti, efst þar mun hún kærleik skarta. (Höf. ók.) Þín dóttir, Ninný. Mamma, elsku mamma, man ég augun þín. Í þeim las ég alla, elskuna til mín. Mamma, elsku mamma, man ég þína hönd. Bar hún mig og benti, björt á dýrðarlönd. Mamma, elsku mamma, man ég brosið þitt. Gengu hlýir geislar, gegnum hjarta mitt. Mamma, elsku mamma, mér í huga skín. Bjarmi þinna bæna, blessuð versin þín. Mamma, elsku mamma, man ég lengst og best. Hjartað blíða, heita, hjarta er ég sakna mest. (Sumarliði Halldórsson.) Ég á eftir að sakna þín, elsku mamma mín, en núna ertu komin til pabba, Erlu systur og Skúla. Ég var glöð í hjarta mínu að þú fórst til þeirra fyrir jólin, það hefði verið skelfilegt að vita af þér liggjandi önn- ur jólin á sjúkrahúsi. Þú slóst eflaust heimsmet í legu á líknardeild, það sýnir bara best hvað þú varst sterk og einstök kona, tígu- leg, fögur og hjartahlý. Það var eftir þér tekið alls staðar hvað þú varst glæsileg kona. Þið pabbi voruð gift í 67 ár. Samtals urðuð þið 180 ára, það er yndislegt að vita af ykkur aftur saman. Þið voruð stoð mín og stytta og alltaf var hægt að leita til ykkar í blíðu og stríðu. Þið bjugguð okkur krökkunum yndislegt og fallegt heimili sem gott var að alast upp á við trúrækni og kærleik. Mamma, í kvöld er ljósin skæru loga, ljómandi jólastjarnan fögur skín, til friðarheima bæn og von sér voga, viknandi sálin harmar afbrot sín, mildar í hugann minningarnar streyma, myndirnar kæru: jólagleðin heima. Man ég, er allur hópurinn var heima, hringinn í kringum pabba og mömmu stóð, bíðandi að sjá, hvað gjöfin hefði að geyma, er gáfu þau okkur broshýr, mild og góð. Kveiktu þau ljósin, jólasáma sungu, sannarleg gleði streymdi í hjörtun ungu. Kærleikans ljós! Ó móðurbrosið blíða, barnanna einna sanna vöggugjöf. Ástin, er mýkir meinin þeirra, er líða, mönnum lýsir yfir dauða og gröf. Ég trúi, að Guð, er þroskaleið er liðin leiði hann alla heim í jólafriðinn. (Maríus Ólafsson.) Ég var engillinn þinn, elsku mamma mín, og þú varst engillinn minn. Þín elskandi dóttir, Elsa. Elsku mamma,. Þetta voru skrítin jól, fyrstu jólin án þín. Eins og fyrstu sporin í ókunnugu landi. Um leið og ég sam- gleðst þér, mamma mín, að eiga hátíð frelsarans með pabba á þeim góða stað sem ég veit að Guð hefur búið ykkur eftir ykkar löngu og farsælu samveru hér á jörðinni, er sökn- uðurinn mikill því ég man varla þá jólahátíð sem við höfum ekki átt sam- an, annaðhvort hér heima eða í út- löndum. Mig langar að þakka ykkur báðum, mamma og pabbi, fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Þið kennduð mér mannúð og hafið í gegn- um allt lífið verið mín stoð og stytta. Án ykkar og þess kristilega og góða heimilis sem var mitt veganesti hefði verið erfitt að ganga sum þau spor sem ég hef gert á undanförnum árum. Ég gleymi ekki öllum þeim aðfanga- dögum sem við pabbi ókum um allan bæ eftir þinni forskrift með jólagjafir til einstæðinga sem þú gleymdir aldr- ei að hugsa til. Ég veit að ég hef lagt ýmislegt á fjölskylduna með því að brjótast út úr mynstrinu og fara ótroðnar slóðir til að kynna litlu þjóðinni okkar nýjan og byltingarkenndan boðskap. Þótt að- eins lítill minnihluti samtímamanna okkar átti sig enn sem komið er á því sem hér um ræðir höfðuð þið pabbi, þrátt fyrir allt mótlætið, í hjarta ykk- ar skilning á þeirri köllun sem hefur knúið mig áfram. Erfið spor urðu létt í þeirri baráttu, þökk sé ykkur sem ávallt voruð til taks að styðja mig og styrkja. Mig langar að nota þetta tækifæri til að þakka hjúkrunarfólkinu á líkn- ardeild Landakotsspítala sem reynd- ist þér svo vel, elsku mamma, á með- an sjúkrahúsið var þitt annað heimili síðasta hálft annað ár. Þarna var okk- ur systkinunum einnig tekið opnum örmum og á líknardeildinni átti ég með þér margar góðar stundir sem eru mér ómetanlegar. Þökk sé því hjartagóða fólki sem bjó þér þennan griðastað og sem lagði sig allt fram um að hjálpa bæði þér og okkur í gegnum síðasta árið þitt í erfiðum veikindum. Þinn Ástþór. Elsku amma mín. Nú ertu loksins komin til afa eftir langþráða hvíld. Hann hefur nú orðið glaður að sjá þig. Ég hugsa um þig og hlýjar minningar streyma um huga mér. Minningar sem ég varðveiti með sjálfri mér. Ég á eftir að sakna þeirra notalegu stunda sem við áttum sam- an. Þegar ég kom til ykkar gátum við setið endalaust og spjallað um allt milli himins og jarðar. Það var nú ósjaldan sem ég fékk að gista hjá ykkur afa og var það alltaf jafnnotalegt. Svo mikill friður og ró- legheit. Þá bjóst þú alltaf svo vel um mig í sófanum í stofunni ykkar og svo fórstu með faðirvorið með mér. Þegar ég loka augunum og hugsa til baka heyri ég enn tikkið í klukkunni ykkar í stofunni og ég fyllist þeirri vellíðan sem ég fann fyrir þá. Elsku amma mín. Ég kveð þig með þeirri bæn sem þú kenndir mér. Hvíl þú í friði og Guð varðveiti þig. Faðir vor, þú sem ert á himnum. Helgist þitt nafn, til komi þitt ríki, verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni. Gef oss í dag vort daglegt brauð, og fyrirgef oss vorar skuldir, svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum. Eigi leið þú oss í freistni, heldur frelsa oss frá illu. Því að þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin að eilífu. Amen. Ástarkveðja, þín Alma. Í miðju jólaamstri, þegar hátíð ljóss og friðar er á næsta leiti og borg- in skartar fögrum skreytingum og jólaljósum í öllum litum, kvaddi amma mín þessa jarðvist. Sátt við guð og menn var hún og sannarlega reiðubúin undir sína hinstu ferð. Margar eru minningarnar sem sækja á hugann og í hjarta mínu ríkir óendanlegt þakklæti henni til handa þessari einstöku, fallegu konu. Ég man Hjallaveg 28, stórt og mik- ið hús með rauðu þaki, há og tignarleg tré í garðinum, reiðhjól, kettir og bústin rifsberjatré. Búsældarlegt eldhús, Nóa töggur í stórum pokum og brotakex í brúnum bréfpokum sem við nutum góðs af. Kaupmaðurinn á horninu. Ég man Hólastekk 6, reisulegt og fallegt hús sem afi minn byggði. Frelsið í Breiðholtinu. Allir fallegu náttslopparnir hennar ömmu og eng- in átti fleiri naglalökk í ísskápnum, þar var reyndar alltaf troðið af öllu, engu mátti henda. Ilminn af nýbakaðri hafra- mjölsköku sem engin kunni betur gert en hún. Myndavélin góða á lofti við öll tæki- færi, reyndar ekki öllum skemmt. Ég man Grímsnesið, stóran sum- arbústað með bláu þaki sem afi minn, sá mikli heiðursmaður, einnig reisti og enn nutum við góðs af örlæti ykkar. Arinninn og lautin góða. Ég man elsku þína og hlýju, öll góðu ráðin og kærleikann sem alltaf gafstu mér. Ég man glæsileika þinn, ávallt svo vel til fara, þú barst af. Og nú ertu komin á fallegan stað til afa Magnúsar og mömmu minnar, elstu dóttur þinnar sem féll svo ótíma- bært frá og við syrgjum svo mjög alla tíð. Mikið er gott að vita þig umvafna ástríki þeirra og elsku. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Megi ástkær amma mín og vinkona vera ævinlega guði falin. Ástvinum öllum bið ég guðs bless- unar. Minningin lifir. Unnur Helga. Þá er komið að samferðarlokum okkar hér, amma mín. Þú varst eins og hægt er að vera tilbúin í þessa lokaferð. Það er margs að minnast á löngum ferli, sætt og súrt. Hjallaveg- urinn var sem mitt annað heimili á bernskuárunum. Á sama aldri og yngri hlutinn af barnahópnum þínum var ég sem einn af þeim og átti þar mína bestu bernskuvini. Góðir tímar ærsla og síðan fjölskyldustundirnar og stærsta jólatréð. Þið afi voruð stór- huga og byggðuð stórt af litlu sem þið fenguð í heimanmund þó að lífshlaup ykkar hefði ekki verið alltaf dans á rósum. Þið kennduð okkur börnum og barnabörnum margt í lífinu. Kristin trú var ykkur mjög hugleikin og þið sóttuð mikið í kirkju. Það hefur ef- laust verið ykkur traust haldreipi í þeim áföllum sem yfir gengu. Af þeim hefur ótímabært fráfall móður minn- ar án efa verið ykkur erfiðast. Verald- legir hlutir mega sín lítils þegar manns nánustu eru annars vegar. En þið kennduð okkur með viðbrögðum ykkar og atferli að sigrast á hlutun- um. Því þrátt fyrir allt sem gekk á stóðuð þið saman og létuð aldrei bug- ast. Á ykkar hátt sigruðust þið á erf- iðleikunum, með styrk í trú og fjöl- skyldu. Það var yndislegt að fá þig til okkar við skírn fyrsta langalangömmu- barnsins á fyrsta sunnudegi í að- ventu. Þar fékkst tækifæri til að mynda fjóra ættliði saman. Þú stopp- aðir lengi og nýttir tímann vel þrátt fyrir að af þér væri dregið. Glæsileika þínum var eftir tekið. Þú hélst reisn þinni allt til enda. Ég þakka þér fyrir allt og allt. Guð blessi minningu þína. Jón Gunnarsson. UNNUR HALLA LÁRUSDÓTTIR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Sverrir Olsen, útfararstjóri. Sverrir Einarsson, útfararstjóri. Kistur - Krossar Prestur - Kirkja Kistulagning Blóm - Fáni Val á sálmum Tónlistarfólk Sálmaskrá Tilk. í fjölmiðla Erfisdrykkja Gestabók Legstaður Flutningur kistu á Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís Valbjarnardóttir, útfararstjóri. milli landa og landshluta Landsbyggðar- þjónusta Baldur Frederiksen, útfararstjóri. Guðmundur Þór Gíslason, útfararstjóri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.