Morgunblaðið - 30.12.2004, Síða 52

Morgunblaðið - 30.12.2004, Síða 52
                                                                !" ## # #$%&#' ()'* #+,-&#.# / #'#0 #1 . &# #2  (&  #,!&# .3* &#-)#4#/ &#$#5/  4&##!"#4#56(                            7 7 .& %  86 9 $     5#7 ) " 83' #9* , :/  8#, 4 ;  3 <# * /# * / =#/"#1" 5 #03)/ 4 -  4 84>>#?/ 5*#$) " :/  @ AB $)#8"  C :/  A"#1 ' 4 -D#5 5// , >> A"3#-) #1   B :/  !#!  2)/ * #E#1 " ,/ " 1)/ 0"' $  $4FD# 0 # #'#34  9 # G4 -'#D#  #.  #4((* H#/#.  I# 4 - //#+ #3 #-4 #- G 9 #2 5* 1"#  #4  24J#!4# /#H#H4/G 24#14/>4 $)#8"  C ,>#9 K #L4 <#M 3B/ 5G4 !.>  )#/. /#>M /# D' A">4' H#-. <  #= "' H#!3#,  2"'# # ' 1   1/) *                        1  1  , $4FD 8#, 4  1 .  =-1 <  #!" 1 .  #!" 5-+ #!" 1 .  @  1/   1 .  @  1 .  ##N #N4 @  1 .  1 .  1 .  #!" 1  5-+ 9/  1 / 1 .     52 FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ TÓNLIST Íslenskar plötur Pósthúsið í Tuva – Orðlaus  Pósthúsið í Tuva er skipað Gunnari Einari Steingrímssyni, Henrý A. Hálfdánarsyni, Hirti Guðnasyni og Hlyni Þorsteinssyni. Einnig komu við sögu á plötunni Ari Þor- geir Steinarsson og Anna Bjarnadóttir. Öll lög og texta á Hlynur utan lagið „Sam- tökin“ en þar á Börkur B. Baldvinsson lag og texta. Vélamaður í upptökum var Henrý en Gunnar K. Steinarsson sá um að taka upp fimm lög. Gunnar og Hlynur sáu um hljóðblöndun. Útgefandi er Hlynur Þorsteinsson. skemmtilega skrumskælt og maður veit aldrei hvert grip eða hljómar ætla næst. „Hollt er heima hvað“ gæti t.d. verið með S.H. draumi, vír- aður gítarleikur og frumlegur trommusláttur. Söngur Hlyns er þá einkar sérstæður. Hann hljómar svo- lítið eins og Jón Gnarr, hálfsyngur/ hálftalar og fer mjög frjálslega með áherslur og fer oft út fyrir laglínuna. Allt á þessari plötu er þó það utan garðs að söngurinn er fullkomlega eðlilegur í samhengi við annað hér. Þá eru textarnir oftast algerlega mergjaðir; eru bráðfyndnir, súrreal- ískir og einkar hugvitssamlegir. Strax í upphafslaginu koma nokkrar snilldarlínur: „Ég er kaldur og kinn- fiskasoginn og kviðdreginn andlega séð …“ segir þar og sögumanninum líður eins og strengjalausri fiðlu, loft- lausu orgeli og gatalausri flautu. Í laginu „Kvíðakast skurðlæknisins“ segir: „Að hugsa sér bara ef hnífurinn skrikar […] Hvað nú ef skurðar- borðið er ekki í bremsu og rynni úr greipum mínum, niður stigann og út? Ó, ef ég mætti, kæri sjúklingur, halla þreyttum kolli mínum að skurðbarmi þínum …“ Ótrúlegt. Eitt lagið ber þá titillinn „Japanskur forstjóri iðrast sáran í sjónvarpi“. Ekki er nema von að brosviprur færist yfir andlitið er hlustað er. Eitt súrasta lag sem ég hef lengi heyrt, „Dagur hjá Lykla Pétri“, prýðir þá plötuna. Í því eru hinar ýmsu matar- og drykkjarteg- undir þuldar upp. Sagan er á þá leið að einhver veslingurinn er kominn til Lykla-Péturs til að beiðast inngöngu í himnaríki og Pétur brýnir þá fyrir honum að maður sé það sem maður étur. Í löngum bálkinum segir t.a.m.: „Svo er það þorskur og ýsa, silung- urinn og síldin, súrsaður hvalur, gell- ur og lifur og hrogn/Það sést ei frá mínum sjónarhóli nein hvíldin að hafi þér hlotnast né heldur neyslulogn.“ Tveimur mínútum síðar erum við komin hingað: „Hér er allt kexið og svo líka brauðið í bunkum; bak- arískökur, snúðar og vínarbrauðs- lengjurnar, sultur og hlaup, smjörlíki og smjörið í hlunkum.“ Þetta er eins og hlusta á húsband Twilight Zone- þáttanna. Frank Zappa hefði gert samning við sveitina undir eins, hefði hann heyrt í henni. Plötuumslagið er í sama skrýti- gírnum eins og allt hér og í bæklingi eru ekki bara nótur við þjóðsöng Túva og sagnfræðilegt yfirlit yfir sögu þessa nýfrjálsa fyrrverandi Sov- étlýðveldis heldur og tvær uppskriftir að túvískum réttum. Það kemur margt út af undur- furðulegri tónlist á Íslandi. Einatt er hún runnin undan rifjum einyrkja sem feta fáfarnar slóðir og upplag platna því oft lítið og illfáanlegt. Póst- húsið í Tuva er hiklaust með því allra besta sem ég hef heyrt í þessum neð- anmálsflokki íslenskrar tónlistar lengi og ég mæli eindregið með því að áhugasamir kynni sér tónlist sveit- arinnar. ÞESSI huldusveit gaf út tvær plötur árið 2002, stórskemmtilegar báðar og stórfurðulegar um leið. Af upplýs- ingum í bæklingi má leiða að því líkur að hér sé um stofu- band/áhuga- mannasveit nokk- urra félaga að ræða. Leiðtoginn, Hlynur Þorsteinsson, er heim- ilislæknir að ég held alveg örugglega, og í nefndum bæklingi segir m.a. um ástæður þess að hljómsveitin endaði sem stofuband en ekki bílskúrsband: „… enda komnir á það þroskastig að vilja heldur sötra rauðvín og smjatta á ostum í þægilegum sófa en hírast í köldum bílskúrum.“ Þessi plata stendur vel uppi í hárinu á fyrri afurðum. Sem fyrr er tónlistin einkar skrýtin. Einhvers konar þjóðlagablandið nýbylgjurokk, Arnar Eggert Thoroddsen Furðulega flott HJÁLMAR fóru varla hljóðlega af stað í haust eins og nafn plötunnar segir til um. Þessi helsta reggísveit landsins hefur vakið mikla at- hygli fyrir frumburð sinn og aflað sér sí- fellt fleiri aðdáenda. Angurvær söngur Þorsteins Ein- arssonar og gam- ansamir taktar Sig- urðs Halldórs Guðmundssonar hafa vakið lukku. Sveitin er tilnefnd til þrennra verðlauna á Íslensku tónlistarverðlaununum, sem haldin verða í byrjun febrúar á næsta ári, í flokkunum flytjandi ársins, rokkplata ársins og bjartasta vonin. Með látum! NÝDÖNSK hélt þrenna tónleika ásamt Sin- fóníu- hljómsveit Íslands fyrir fullu Há- skólabíói í nóvem- berbyrjun. Tónleikarnir voru teknir upp og er útkoman níu laga diskurinn Skynjun, sem ber nafn upp- hafslags plötunnar. Tvö ný lög er þarna að finna, „Hvað kostar hamingjan?“ sem er eftir Ólaf Hólm, trommara sveitarinnar, en textinn er eftir Björn Jr. Friðbjörnsson söngvara, sem einnig samdi hitt nýja lagið, „Sökudólgur ósk- ast“. Um útsetningar laganna sáu Kjartan Valdemarsson og Samúel Jón Samúelsson úr Jagúar. Ný skynjun! ELLEN Kristjáns- dóttir er löngu landsfræg söng- kona og er þekkt fyrir sína ljúfu rödd. Platan Sálmar hef- ur slegið í gegn hjá þjóðinni en hún inniheldur 12 al- kunna sálma, sem fylgt hafa þjóðinni frá vöggu til grafar í kirkjum landsins. Á plötunni má hlýða á Ellen syngja m.a. „Ó, Jesú, bróðir besti“, „Hærra, minn Guð, til þín“, „Guð gaf mér eyra“ og „Ástarfaðir himinhæða“. Hug- myndin að Sálmum kviknaði í algengri reynslu Ellenar síðustu árin af því að syngja í jarðar- förum lagið „When I Think of Angels“, sem bróðir hennar, Kristján Kristjánsson, KK, samdi í minningu eldri systur þeirra; hún hét Inger og fórst í bílslysi. DISKURINN Barbie Girls er með hvorki meira né minna en 22 lögum með ýmsum helstu stelpu- hljómsveitum og lista- mönnum síðustu ára. Þarna eru lög allt frá „Crazy In Love„ með Beyoncé yfir í „Ketch- up Song“ með Las Ketchup með viðkomu hjá Pink, Girls Aloud, Sugababes, Jameliu og fleiri góðum. Þarna eru ekki bara nýjustu lögin heldur líka nokkur gömul og góð eins og „Genie In A Bottle“ með Christinu Aguilera. Þarna má einnig finna Kryddpíurnar sjálfar syngja „Spice Up Your Life“ og víst að nokkur danssporin er hægt að taka með lögunum á þessari plötu. Stelpupopp!Sálmar!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.