Morgunblaðið - 30.12.2004, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 30.12.2004, Qupperneq 54
54 FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Miðasala opnar kl. 15.30 Sýnd kl. 10.15. B.i. 14 ára.Sýnd kl. 5.45 og 8. PoppTíví  Hann er á toppnum... og allir á eftir honum Framleidd af Mel Gibson Pottþéttur spennutryllir... ... Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 14 ára. Jólaklúður Kranks Jólamynd fjölskyldunnar Sýnd kl. 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10, og 11. Sýnd kl. 2, 4 og 6. ÍSLENSKT TAL Sýnd kl. 8 og 10.15 B.i. 16 ára Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Sýnd kl. 4 og 6. ÍSLENSKT TAL SMÁAR HETJUR STÓRT ÆVINTÝRI SMÁAR HETJUR STÓRT ÆVINTÝRII I BLÓÐBAÐIÐ ER HAFIÐ VAMPÍRUBANINN BLADE ER MÆTTUR AFTUR HÆTTULEGRI EN NOKKRU SINNI FYRR Í I I I I kl. 3, 5, 7, 9 og 11. GLEÐILEG JÓL GLEÐILEG JÓL GLEÐILEG JÓL VIÐSKIPTAVINIR ÍSLANDSBANKA FÁ 20% AFSLÁTT AF MIÐAVERÐII I I I Í I IVIÐSKIPTAVINIR ÍSLANDSBANKA FÁ 20% AFSLÁTT AF MIÐAVERÐII I I I Í I I ÍSLANDSBANKI ÍSLANDSBANKI ... „séríslenskt Fönn, fönn, fönn!“  SV MBL   ... „séríslenskt Fönn, fönn, fönn!“  SV MBL í l "...bráðvel heppnuð skemmtun, grín og fjör..."  ÓHT rás 2 ... rí l t , f , f ! ... l t , rí fj r... r "...bráðvel heppnuð skemmtun, grín og fjör..."  ÓHT rás 2 ... l t , rí fj r... r   ENN eina ferðina klikkar Pixar-liðið ekki. Eftir snilldarmyndirnar Leik- fangasögu 1 og 2, Skrímslin ehf. og Leitina að Nemó, tekst þeim að búa til hina fullkomnu fjölskyldumynd sem einmitt fjallar um fjölskyldu sem er hin venjulega kjarna- fjölskylda – alla vega á yfirborðinu. En það er ekki allt sem sýnist. Svo sannarlega á Parr-fjölskyldan við sín vandamál að glíma, svona rétt eins og við. En þeirra vandi felst að- allega í því að þurfa í sífellu að dylja ofurhetjukrafta sína sem þrá að fá útrás og helst að bjarga heiminum. Og dag einn gefst tækifærið. Höfundur myndarinnar hefur fengist við teiknimyndateiknun frá unga aldri, fékk vinnu við Disney- verksmiðjurnar, og síðar við gerð The Simpsons-sjónvarpsþáttarað- arinnar. Árið 1999 gerði hann heldur sérstaka teiknimynd, Járnrisann, sem einhvern veginn var öðruvísi, með fínni og viðkvæmari tón en teiknimyndir eru vanalega. Þessum tóni tekst honum að halda í Hinum ótrúlegu, jafnframt því sem hann býr til frábæra hasarmynd, þar sem athyglin er þó á samheldinni fjölskyldunni en ekki sprengingun- um, bráðfyndin mynd og snilldar- lega vel úthugsað handrit. Og þótt þetta sé teiknimynd er hún að miklu leyti fullorðinsmynd. Vissulega ná alla vega eldri börnin boðskapnum um að í nútíma- samfélagi megi fólk helst ekki vera gott nema einhver græði á því. En hversu beinskeytt gagnrýnin er á bandarískt samfélag er meira fyrir fullorðna. Mikið af því sem er að ger- ast á milli hjónanna fer líka fyrir of- an garð og neðan hjá yngri kynslóð- inni, enda farið fínt í hlutina, en börnin samsama sig líklega Hvata og Fjóla og hlæja að Dadda, litla krúttinu. Það sem gerir eldri og yngri áhorfendum svo auðvelt að samsama sig ofurhetjufjölskyldunni (sem er nú ekki leiðinlegt), er að þau eru stigin niður af „ómannlega“ stall- inum og standa við hlið okkar hinna með okkar hverdagslegu geð- sveiflur, heimilisrifrildi og unglinga- vandamál. Orðin breyskar ofur- hetjur. Myndin er óður til allra þeirra James Bond- og alheimsendamynda sem við þekkjum öll og höfum ótal sinnum séð, en Bird tekst að toga og teygja það form í bæði óvæntar og ferskar áttir, svo virkileg ánægja er á að horfa. Myndin er tímalaus, sem er mikill kostur, og verður vonandi teikni- myndagerðarmönnum fordæmi sem geta ekki stillt sig um að setja eitt Matrix-spark í hverja mynd sem þeir gera. Ekki skemma teikning- arnar fyrir hinu mikla ágæti mynd- arinnar, en þær eru bæði fallegar, smekklegar og húmorískar. Hin ótrúlegu er hin fullkomna teiknimynd og hin fullkomna fjöl- skyldumynd. Breyskar ofurhetjur KVIKMYNDIR Sambíóunum Akureyri, Kringl- unni, Álfabakka og Keflavík. Leikstjórn og handrit: Brad Bird. Kvik- myndataka: Andrew Jimenez, Patrick Lin og Janet Lucroy. Brellur: Jessica Abroms. Aðalhlutverk á ensku: Craig T. Nelson, Holly Hunter, Samuel L. Jackson, Jason Lee, Spencer Fox og Sarah Vowell. 121 mín. BNA. Buena Vista Int. 2004. Hin ótrúlegu (The Incredibles)  Hildur Loftsdóttir Hin ótrúlegu: Bara venjuleg fjölskylda … eða hvað?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.