24 stundir - 11.01.2008, Qupperneq 15
24stundir FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 15
Það hefur víst ekki farið framhjá launamönnum aðkjarasamn-
ingar eru lausir.
Birkir Jón Jónsson,
þingmaður Fram-
sóknarflokksins,
gerir málið að um-
talsefni á heimasíðu
sinni og segir nauðsynlegt að
raunhæfir kjarasamningar náist á
vinnumarkaðnum: „Það er svo
komið á daginn núna, vegna
eyðslugleði stjórnarflokkanna í
haust, að mjög takmarkaðir fjár-
munir eru nú til skiptanna vegna
aðkomu ríkisins að kjarasamn-
ingum. Alþýðusamband Íslands
er á gluggum forsætisráðuneyt-
isins en þar er enginn heima. Geir
er erlendis, Ingibjörg Sólrún er
erlendis og ekkert heyrist frá ráð-
herra atvinnumála, Jóhönnu Sig-
urðardóttur. Samt hafa aðilar
vinnumarkaðarins sagt að þessi
vika ráði úrslitum í viðræðunum,
ella verði deilunni
skotið til rík-
issáttasemjara. En
höfuð ríkisstjórn-
arinnar hafa yfirgef-
ið landið, það eru
trúlega önnur stærri
og meira aðkallandi vandamál
sem forsætis- og utanrík-
isráðherrann eru að sinna þar. Er
nema von að þessi ríkisstjórn sé
nefnd máttlaus og daufgerð?“
segir Birkir Jón en launamenn eru
ekki búnir að gleyma því að á
meðan Framsóknarflokkurinn sat
við stjórnvölinn hækkuðu laun og
eftirlaun embættismanna ríkisins
umtalsvert. Þeir spyrja: Voru það
raunhæfar kjarabætur?
Skessuhorn segir frá því aðþekktasti hrekkjalómur Ís-lands, Skagamaðurinn Víf-
ill Atlason, sem varð landsfrægur
á einni nóttu eftir
að hafa pantað
símaviðtal við
George Bush, for-
seta Bandaríkjanna,
muni taka símann
upp að nýju í kvöld
því þá verður hann símavinur
Skagaliðsins í spurningaþætt-
inum Útsvari, en liðið mætir Ísa-
firði í annarri umferð keppninnar
sem sýnd verður í beinni útsend-
ingu í Sjónvarpinu í kvöld.
Í fyrstu umferð keppninnar var
Máni Atlason, bróðir Vífils,
símavinur. Hann mun hins vegar
taka sæti í liði Skagans vegna
breytinga á liðinu. Vonandi ætlar
Vífill ekki að hrekkja keppendur í
beinni. elin@24stundir.is
KLIPPT OG SKORIÐ
Ég er á leiðinni til London.
Þegar þú, lesandi góður, lest
þessar línur er ég líkast til kom-
inn út á flugbrautina á Keflavík-
urflugvelli og um það bil að
spenna sætisólarnar. Hundruð -
ef ekki hreinlega þúsund - Ís-
lendinga leggja leið sína til
heimsborgarinnar á hverjum
degi svo þetta er auðvitað ekkert
merkilegt. Tekur því varla að
nefna það. En samt. Ég hef á
þessum vettvangi áður borið
saman að vera Íslendingur í
Kaupmannahöfn nú og þegar ég
bjó þar fyrir áratug. Þá voru Ís-
lendingar undirmálsfólk á félags-
málabótum en nú eiga þeir líkast
til bygginguna sem hýsir dönsk
félagsmálayfirvöld. Og öll hin
húsin líka. Það má líka draga
svona samanburð við London,
því íslenskir viðskiptamenn hafa
einnig keypt allt sem hönd á
festir í stórborginni og nú geng-
ur Íslendingurinn rogginn um
borgina og þykist eiga heiminn, -
jafnvel þótt loftbólan í Kauphöll-
inni heima á Íslandi sé sprungin
og gengi helstu hlutafélaga sigið
niður undir frostmark. En þetta
var ekki alltaf svona.
Ólöglegur áður …
Þetta var í einhverju fram-
haldsskólaverkfallinu fyrir um
tuttugu árum. Þá voru alltaf
verkföll í skólum. Árstíðirnar
voru fjórar eins og nú, en þá
voru þær; vetur-sumar-verkfall-
haust. Við gáfumst upp á hangs-
inu heima í Breiðholti og skellt-
um okkur til London í leit að líf-
inu. Þá vissi enginn hvað Ísland
var, nema nokkrir unglingar í
Soho sem höfðu hlustað á Syk-
urmolana og fáeinir menning-
arvitar í Hammersmith sem
fíluðu Messoforte. Að öðru leyti
var Ísland ekki til. Og við eig-
inlega ekki heldur. Fengum þó á
endanum vinnu sem þjónar á
Pizza Hut við Oxford-stræti.
Tókum himin höndum og hopp-
uðum af fögnuði yfir framgangi
okkar í lífinu.
Að vísu vorum við kolólögleg-
ir á þessum vinnustað því þá var
ekkert EES. Við fundum þó leið
framhjá þeim vanda. Í atvinnu-
viðtalinu þóttumst við vera Dan-
ir en danskir máttu vinna í Eng-
landi á grundvelli
Evrópusambandsins. Við vorum
hins vegar alveg jafnólöglegt
vinnuafl og rúmenskir munn-
hörpuleikarar á Akureyri og Taí-
lendingarnir sem skúra reykvísk
heimili fyrir skít og ekki neitt í
kaup á Íslandi í dag. En þar sem
við vorum auðvitað alveg jafn
fölbleikir í framan og meðal-
Dani gekk þetta ágætlega. Á
hverjum degi gleymdum við svo
samviskusamlega danska vega-
bréfinu okkar heima, eða allt þar
til vinnuveitandinn hætti að
spyrja um það. Okkur tókst
meira að segja að blekkja útlend-
ingaeftirlitið eitt sinn þegar eft-
irlitsmaður kom óvænt í heim-
sókn.
Einu sinni lentum við þó í
slæmum bobba. Það var þegar
hópur danskra stúlkna kom á
staðinn. Yfirþjónninn kallaði
umsvifalaust á okkur og tilkynnti
hópnum að hér væru danskir
þjónar og þær gætu því notað
móðurmál sitt. Þar sem við
kunnum ekki frekar en aðrir ís-
lenskir menntskælingar að raða
saman tveimur orðum á dönsku
stóðum við eins og mállausir
asnar á öndinni og komum ekki
upp dönsku orði. Líkast til var
líka verkfall þegar við áttum að
læra talmálsdönsku heima í
Hólabrekkuskóla.
…fínn maður í dag
En nú er þetta allt breytt. Nú
má maður má vinna hvar sem er
og þarf ekki að vera danskur til
þess. Íslendingar eiga aðra hverja
búð við Oxford-stræti og glás af
veitingastöðum. Meira að segja
fótboltalið í efstu deild. Það er
þess vegna sem við félagarnir
ætlum að kíkja á leik West Ham
og Fulham á morgun. Ekki sem
pitsaþjónar heldur eins og fínir
menn. Sem sannir Íslendingar
munum við svo kalla einum
rómi: Áfram West Ham!
Höfundur er stjórnmálafræðingur
Áfram West Ham
VIÐHORF aEiríkur Bergmann Einarsson
En nú er
þetta allt
breytt. Nú
má maður
vinna hvar
sem er og
þarf ekki að
vera danskur til þess. Ís-
lendingar eiga aðra
hverja búð við Oxford-
stræti og glás af veit-
ingastöðum.
Auðvitað er mikil neysla á þessum stofnunum,
en hvorki fyrr né síðar hefur verið eins öflugt
AA-starf inni á þessum stofnunum.
Birgitta Jónsdóttir á blog.is
Hvernig væri að byggja upp mannsæmandi
fangelsi þar sem almennileg meðferð fer fram?
Fangar koma verri út en þegar þeir fóru inn,
því aðstæður í fangelsum eru skelfilegar og
meðferðin engin. Það lærir enginn af því að vera
lokaður inni ef alla meðferð skortir. Menn verða grimmari og harðari
við það.
Emma Vilhjálmsdóttir á blog.is
Eins og þessi frétt lítur út þá eru fangar yfirleitt fullir og dópaðir og það
ætti ekki að fara framhjá neinum fangaverði ef svo er. Það er morg-
unljóst að það þarf að herða leit á þeim sem eru að heimsækja fangana,
þetta má ekki vera svona og þetta á ekki að vera svona.
Þráinn Sigvaldason á blog.is
Þetta er merkilegt. Að setja menn í fangelsi ætti, auk þess að vera refsing
samfélagsins, að vera tækifæri til að betra menn. Enda kallast fangelsi
betrunarhús öðru nafni.
Á sama hátt og það er krafa okkar heiðvirðra borgara að mönnum sé
refsað ætti það líka að vera krafa okkar að föngum sé gefið tækifæri til
að koma reglu á líf sitt. Fangi sem kemur út betri maður tilbúinn að taka
þátt í lífinu innan ramma laganna er helsta markmið betrunarvistar.
Prófessor Mambó á blog.is
Ef yfirvöld geta ekki skaffað föngum mannsæmandi vist, ættu þau ein-
faldlega að sjá sóma sinn í að koma þeim málum í lag ekki seinna en
strax. Svona óráðsía ætti ekki að þekkjast í okkar mikla velferðarríki.
Hófý Sig. á blog.is
BLOGGAÐ UM FRÉTTIR
Skelfilegar aðstæður
24stundir 10. jan
Vímuefnalaus deild tók tilstarfa á Litla-Hrauni í lok síðast á
VÍMUEFNALAUS DEILD
Eftir Hlyn Orra Stefánssonhlynur@24stundir.is
„Á næstu dögum þarf ég að hefjaafplánun á tveggja mánaða dómisem ég hlaut nýlega. Ég vona að égfái að afplána hann á meðferð-arstofnun, því ef ég þarf að fara áHraunið eða upp á Skólavörðustígveit ég alveg hvað gerist: Þá tekurbara við sama gamla neyslan.“Með þessum orðum lýsti óvirk-ur fíkill fyrir blaðamanni 24stunda áhyggjum sínum af því aðhefja afplánun á dómi sínum. Þaðsem hann hafði áhyggjur af varsem sagt ekki frelsissviptingin ogtilbreytingarleysið sem hlýtur aðeinkenna líf innan veggja fangels-is, heldur hversu erfitt það sé aðhalda sér edrú lokaður inni á staðþar sem allt er „fljótandi í fíkni-efnum“.
Bjóða vímuefnalausa deild
Við þessum vanda hafa stjórn-ndur Litla-Hrauns reynt aðregðast, en hinn 12. nóvember sl.ar þar opnuð svoköll ð
um og gefa þvagsýni oftar engengur og gerist innan veggjafangelsisins. Anna segir miklaásókn hafa verið í vistun á deild-inni, og að þau 11 pláss sem í boðiséu hafi verið fljó ð
Erfitt að veraedrú á Hrauninu Vímuefnalaus deild tekin til starfa á Litla-Hrauni að beiðni fanga
Lítið að gera Fangarneyta gjarnan fíkniefna áHrauninu vegna leiðinda.
j ur starfsins hafi til
s að bera.
þkþ
ri
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
frá kr. 19.990
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Vikuferð frá 49.990 - flug og gisting
Heimsferðir bjóða beint morgunflug til Salzburgar í vetur og þar með tryggjum við
þér aðgang að bestu skíðasvæðum Austurríkis, s.s. Flachau, Lungau og Zell am See.
Bjóðum nú frábært sértilboð á allra síðustu sætunum í janúar. Bjóðum 11 nátta ferð
15. janúar og 7 nátta ferð 26. janúar. Í boði er sértilboð á Hotel Speiereck í Lungau
og á hinu glæsilega Hotel Unterberghof í Flachau. Tryggðu þér flugsæti og gistingu á
besta verðinu og taktu þátt í skíðaveislu Heimsferða í Austurríki. Mjög takmarkaður
framboð á þessum frábæru kjörum!
Skíðaveisla
í Austurríki
15. og 26. janúar
Kr. 49.990
Flug og gisting í viku. Netverð á mann, m.v.
gistingu í tvíbýli á gististað án nafns í Zell am See /
Schuttdorf (sjá skilmála stökktu tilboðs) með
morgunverði í 7 nætur. Sértilboð 26. janúar.
Kr. 69.990
7 eða 11 nátta ferð með hálfu fæði
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á Skihotel
Speiereck í Lungau með hálfu fæði í 7 (26. jan.) eða
11 nætur (15. jan.). Sértilboð 15. eða 26. janúar.
Kr. 94.590
Frábært **** hótel með hálfu fæði
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á Hotel
Unterberghof í Flachau með hálfu fæði í viku,
sértilboð 26. janúar. Sértilboð í 11 nátta ferð 15. jan.
m.v. gistingu í tvíbýli kr. 99.990.
Kr. 19.990
Flugsæti með sköttum. Sértilboð 15. janúar.
Flugsæti með sköttum 26. janúar kr. 29.990.
ATVINNUBLAÐIÐ
atvinna@24stundir.is
alltaf á laugardö
gum
Pantið gott pláss t
ímanlega