24 stundir - 11.01.2008, Síða 16

24 stundir - 11.01.2008, Síða 16
UMRÆÐAN aAino Freyja JärveläEkki er víst að allir leikhúsgestirátti sig á því falda afli sem býr ístarfsemi sjálfstæðu atvinnuleik-hópanna á Íslandi. Ef fjárframlög til leiklistar í landinu eru skoðuð mætti ætla að þrjár stofnanir standi fyrir svo til öllu leikhúslífi í landinu. Svo er hins vegar ekki. Staðreyndin er nefnilega sú að sjálfstæðir atvinnuleikhópar sýna fleiri sýningar og fyrir fleiri áhorf- endur heldur en stofnanaleikhúsin þrjú gera til samans. Þó fá sjálf- stæðir atvinnuleikhópar á Íslandi aðeins fimm prósent af öllu því opinbera fé sem varið er til leik- listar í landinu. Á þessu leikári verða til að mynda 39 frumsýn- ingar á vegum Sjálfstæðu leikhús- anna (SL), þar af eru 34 glæný ís- lensk sviðsverk. Innan vébanda SL eru 59 sjálfstæðir atvinnuleikhópar sem spanna allt svið sviðslista, svo sem dansleikhús, tilraunasýningar, barnasýningar og hefðbundnar leiksýningar. Framlag sjálfstæðra atvinnuleikhópa til íslensks leik- húslífs er því gríðarlega mikið þótt annað mætti ætla af lestri fjárlaga. Vítt og breitt Þetta falda afl er ekki alltaf sýni- legt og því getur verið erfitt fyrir fólk að átta sig á hversu víðfeðm starfsemin er því sjálfstæðir at- vinnuleikhópar eru ekki bundnir við ákveðin hús eða staðsetningu. Eðli þeirra er enda að vera sveigj- anlegir, frjálsir og óháðir. Sem dæmi má nefna sýningar í varð- skipinu Óðni í Reykjavíkurhöfn, sýningu í tjaldi í fjörunni í Naut- hólsvík, barna – og unglingasýn- ingar í fjölda skóla og daggæslu- rýma. Einnig eru starfrækt nokkur hefðbundin leikhús á vegum sjálf- stæðra atvinnuleikhópa, svo sem Hafnarfjarðarleikhúsið, Iðnó, Möguleikhúsið, Skemmtihúsið og von bráðar verður Tjarnarbíó opnað í breyttri og bættri mynd sem aðsetur sjálfstæðra atvinnu- leikhópa. Borgarleikhúsið Leikfélag Reykjavíkur sér um rekstur Borgarleikhússins sam- kvæmt samningi við Reykjavíkur- borg. Því er óvíst að gestir hússins geri sér almennt grein fyrir því að sjálfstæðir atvinnuleikhópar hafa undanfarin þrjú ár staðið fyrir í það minnsta helmingi af öllum leiksýningum sem færðar hafa ver- ið upp í Borgarleikhúsinu. Því má segja að hið falda afl sjálfstæðra at- vinnuleikhópa hafi verið einn helsti bakhjarl Borgarleikhússins undangengin ár. Á fjölum Borg- arleikhússins sýna sjálfstæðir at- vinnuleikhópar nú sýningarnar Ást og Jesus Christ Superstar sem eru á vegum Vesturports, söng- kabarettinn Hér og nú sem er á vegum Sokkabandsins og hina margrómuðu sýningu Ladda, Laddi 6-tugur. Fleiri sýningar eru á leiðinni á þessu leikári svo sem Til- lsammans á vegum Vesturports og Óþelló, Desdemóna og Jagó á veg- um Draumasmiðjunnar. Frá fyrri leikárum má til að mynda nefna sýningarnar Killer Joe, Footloose, Eilífa hamingju, Kalla á þakinu og Brilljant skilnað. Allt eru þetta sýningar sem hafa vakið athygli og áhuga almennings og endurspegl- ast það í áhorfendatölum Borgar- leikhússins. Á síðasta leikári sóttu rúmlega 49 þúsund leikhúsgestir sýningar sjálfstæðra atvinnuleik- hópa í Borgarleikhúsinu. Opinber skekkja Það er mikil hvatning fyrir Sjálf- stæðu leikhúsin hve almennir leik- húsgestir kunna vel að meta starf sjálfstæðra atvinnuleikhópa. Því miður hefur fjárveitingarvaldið ekki séð sóma sinn í að styðja sjálf- stæða leikhússtarfsemi í landinu með sama hætti og almenningur sem bókstaflega flykkist á sýningar þeirra, - um 230.000 manns á ári. Með því að hygla eigin stofnunum með framangreindum hætti skekkir hið opinbera leikhússtarf í landinu, skerðir möguleika sjálf- stæðra leikhúsa í samkeppninni svo margir neyðast til að hrökklast úr starfi sínu og hefur um leið hamlandi áhrif á listræna framþró- un sjálfstæðra leikhúslistamanna. Höfundur er formaður Bandalags sjálfstæðra atvinnuleikhópa Hið falda afl í ís- lensku leikhúslífi Framlag sjálf- stæðra at- vinnu- leikhópa til íslensks leik- húslífs er því gríðarlega mikið þótt annað mætti ætla af lestri fjárlaga. Elísabet Gísladóttir, Gauti Krist- mannsson, Guðmundur J. Arason, Jón V. Gíslason og Magnús Jón- asson frá íbúasamtökum Grafar- vogs og Laugardals skrifa: Vegagerð ríkisins varð fræg að en- demum fyrir útreikninga sína á Grímseyjarferjunni svokölluðu á nýliðnu ári og vorum við að vona að hún hefði lært eitthvað af því að fara með tölur á opinberum vettvangi. Svo virðist þó ekki vera því í dæma- lausum greinum upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar, G. Péturs Matt- híassonar, í 24 stundum og Frétta- blaðinu 10. jan. kemur hann fram með fullyrðingar og tölur sem minna meira á spunameistara stjórnmálaflokks en upplýsinga- miðlun opinbers framkvæmdaaðila til almennings Sænskir staðlar í þetta skiptið Fyrsta fullyrðingin er um kostn- aðinn, en skv. skýrslu Línuhönnun- ar sem lögð var fram í lok 2006, og sjá má á vef Reykjavíkurborgar, átti kostnaður við Sundagöng að nema 15,9 milljörðum króna en Eyjalausn 12,3 milljörðum. Nú á þessi kostn- aður við göngin að vera kominn upp í 24 milljarða og skyldi maður halda af því að verkfræðingateymið sem vann fyrri töluna hafi verið úti að aka í útreikningum sínum. Svo er þó ekki, munurinn felst víst í því að Vegagerðin reiknaði dæmið upp á nýtt með því að nota sænska staðla fremur en norska. Þeir norsku þykja fullboðlegir í Noregi og í áætluðum nýjum Hvalfjarðargöngum eins og hingað til hér á landi, en ekki þegar verið er að reikna Sundagöng út af borðinu. Verði farin sú leið að nota sænska staðla hljóta öll önnur jarð- göng sem áætluð eru í framtíðinni að verða miklu dýrari líka, því ekki getur verið að aðeins eigi að nota sænska staðla fyrir Reykvíkinga en aðra fyrir landsbyggðina? Og hver hefur yfirleitt tekið ákvörðun um að nota núna sænska staðla? Ber ekki einhver ábyrgð á slíkri útgjalda- aukningu við jarðgöng framtíðar? Ekki umboð Steininn tekur þó úr þegar upp- lýsingafulltrúinn kemur með „kosningaloforð“ um mislæg gatna- mót Miklubrautar og Kringlumýr- arbrautar og stokka í framhaldi af þeim. Í fyrsta lagi er ekki eins og þessir 24 milljarðar reiknimeistara Vegagerðarinnar liggi inni á banka- reikningi og einhverjir 9 milljarðar verði „afgangs“ þegar búið er reka Eyjalausnina nánast bókstaflega niður um kok Reykvíkinga, auk þess sem það er afar hæpið að Vega- gerðin hafi umboð til að ákveða hvaða framkvæmdir ráðist er í fyrir þjóðina, til þess höfum við kjörna þingmenn og samgönguráðherra. Upplýsingafulltrúinn heldur því fram að Eyjalausnin feli ekki í sér að umferð verði aukin um Skeiðarvog sem er einfaldlega rangt. 50 þúsund bíla innspýting á Sæbrautina getur ekki annað en haft áhrif, jafnvel þótt gripið verði til mótvægisaðgerða á borð við hrikaleg mislæg gatnamót á mótum Skeiðarvogs og Sæbrautar. Þau ein kosta milljarða og kalla á mislæg gatnamót niður eftir Sæ- brautinni. Þessi kostnaður er ekki inni í Eyjalausninni sk. sem íbúar beggja vegna Elliðavogs líta á sem aðför að umhverfi sínu og munu aldrei sætta sig við. Herferð gegn lífsgæðum Enn verra er þó að halda því fram að „röskunin“ verði meiri með jarð- göngum. Þetta stenst í engu tilliti; umferðin og fylgifiskar hennar eru neðanjarðar á löngum köflum og reyndar skapast að hluta til lausn á umferðarþunga Sæbrautar því hún verður „tvöföld“ á kafla, ofan jarðar og neðan. Umferðin verður heldur ekki eins mikil skv. áætlunum og hún dreifist sunnanmegin á fleiri staði og norðanmegin er hún tölu- vert fjær íbúðabyggð. Auk þess minnka Sundagöng til muna álagið á Sæbrautinni, af því að þau gera meira en bara þvera Elliðavog. Þetta er því ekki meiri röskun heldur minni. Hvítt verður ekki svart þótt menn haldi því fram. Upplýsingafulltrúinn heldur því síðan fram Eyjalausn sé „tæknilega, fjárhagslega og umferðarlega mun betri“ en jarðgangalausn og er ekki að furða að inn í þá upptalningu vantar alla þá þætti sem snerta lífs- gæði, heilsu og hagsmuni íbúa sem fyrir eru, fyrir utan þá staðreynd að Sundagöng leysa fleiri umferðar- vandamál en Eyjalausnin. Það er nánast eins og Vegagerðin sé í her- ferð gegn lífsgæðum, heilsu og hagsmunum tugþúsunda borgar- búa sem greiða jú stóran hluta vega- fjár í landinu. Það er mál að linni og til þess bær yfirvöld taki af skarið með alla þætti málsins til yfirveg- unar. Talnakúnstir Vegagerðarinnar BRÉF TIL BLAÐSINS 16 FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 24stundir Verkamannabústaðir, eða öðru nafni félagslegar íbúðir, leystu á ár- um áður úr húsnæðisvanda mikils fjölda fólks og tryggðu mörgum láglaunafjölskyldum viðunandi húsnæði. Félagslega húsnæðiskerf- ið, eins og það var oft kallað, var að mörgu leyti gott en ríki og sveit- arfélög hefðu mátt leggja í það meira fjármagn en þau gerðu. Á hverju ári voru tugir og hundruð fjölskyldna sem ekki fengu neina lausn á húsnæðisvanda sínum. Nú er löngu búið að leggja þetta kerfi niður og annað fyrirkomulag tekið upp. Að sögn þáverandi stjórn- valda átti þetta nýja kerfi að leysa allan húsnæðisvanda láglaunafólks. Því miður sýnir reynslan allt aðra niðurstöðu því húsnæðisvandinn eykst með hverju árinu sem líður. Lág laun Þá, eins og nú, voru dagvinnu- laun verkafólks það vesældarleg að þau dugðu ekki fyrir eðlilegri fram- færslu einstaklings og vonlaust að reyna að framfleyta fjölskyldu á svo lágum launum, nema viðkomandi hefði ódýra íbúð til að búa í. Frá lokum seinni heimsstyrjald- ar og fram undir síðustu aldamót var það skortur á íbúðarhúsnæði, sérstaklega hér á höfuðborgar- svæðinu, sem hækkaði leiguverð upp úr öllu valdi. Það var því varla á færi láglaunafólks að leigja sér al- mennilega íbúð, enda bjuggu fjöl- margar barnafjölskyldur í hálf- ónýtum bröggum frá stríðsárunum. Á þessu hefur engin breyting orðið. Að vísu eru bragga- hverfin horfin en sami húsnæðis- vandinn ríkir ennþá meðal lág- launafólks. En nú er orsök hans ekki húsnæðisskortur heldur græðgi fjármagnseigenda, bygg- ingafyrirtækja og leigusala, sem halda sölu- og leiguverði íbúða í hæstu hæðum. Þetta okur kemur í veg fyrir að þúsundir fjölskyldna geti lifað eðlilegu lífi en talið er að á höfuðborgarsvæðinu vanti hátt í 3000 ódýrar félagslegar íbúðir til að fullnægja eðlilegri eftirspurn lág- launafólks eftir húsnæði. Hærri laun Eins og áður segir eru launataxt- ar verkafólks almennt svo lágir að það er ekki fræðilegur möguleiki fyrir það að eignast eigin íbúð nema með því að bæði hjónin vinni úti í fullu starfi, jafnt á virk- um dögum sem helgum. Sama gildir um leigumarkaðinn, þar er húsaleiga svo há að lágmarks dag- vinnulaun, sem nú í byrjun árs 2008 eru kr. 125.000 á mánuði, duga ekki einu sinni fyrir leigu á þriggja til fjögra herbergja íbúð. Þessu verður að breyta, en til þess þurfa lágmarkslaun að hækka verulega. Brýnast af öllu er þó að skattleysismörk, sem nú eru kr. 95.280 á mánuði, hækki umtals- vert. Hefðu þau fylgt launaþróun í landinu frá 1989 væru þau í dag um kr. 140.000 á mánuði. Þá er að- kallandi að ríki og sveitarfélög nið- urgreiði húsaleigu fyrir láglauna- fólk og stórauki framboð á ódýru félagslegu húsnæði. Fögur orð Það er ekki nóg að vera með fög- ur orð fyrir kosningar, það þarf líka að standa við þau að kosningum loknum. Hálaunafólkið í landinu hefur á undanförnum árum fengið sínar kauphækkanir ásamt veruleg- um skattalækkunum. Nú er komið að því að bæta kjör fólksins sem vinnur í þjónustu- og framleiðslu- störfunum. Samningar eru lausir og félög innan ASÍ, sem eru í við- ræðum við atvinnurekendur um launahækkanir, bíða eftir útspili stjórnvalda. Ljóst er að upp úr þeim viðræðum muni slitna nema stjórnvöld komi á afgerandi hátt inn í lausn málsins. Heykist rík- isstjórnin á því að stórhækka skatt- leysismörkin, gera átak í húsnæðis- málum láglaunafólks og hækka vaxta- og barnabætur, þá neyðast verkalýðsfélögin til að endurskoða kröfugerð sína til hækkunar og við það mun óvissuástand skapast á vinnumarkaðinum sem sér ekki fyrir endann á. Höfundur er fyrrverandi formaður Verkalýðsfélagsins Hlífar Húsnæðisvandi og lág laun verkafólks UMRÆÐAN aSigurður T. Sigurðsson Þá, eins og nú, voru dag- vinnulaun verkafólks það vesæld- arleg að þau dugðu ekki fyrir eðlilegri framfærslu einstaklings og vonlaust að reyna að framfleyta fjölskyldu á svo lágum launum, nema viðkom- andi hefði ódýra íbúð til að búa í. Dugar ekki „Á leigumarkaði er húsaleiga svo há að lág- marks dagvinnulaun duga ekki einu sinni fyrir leigu á þriggja til fjögra herbergja íbúð.“

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.