24 stundir - 11.01.2008, Síða 20
George Bush Bandaríkjaforseti
segir lausn deilunnar fyrir botni
Miðjarðarhafs þurfa að finnast
sem fyrst. Þetta er meðal þess
sem hann hefur sagt á ferð sinni
um Ísrael og Palestínu.
Bush átti fundi bæði með
Mahmoud Abbas, leiðtoga Palest-
ínu, og Ehud Olmert, forsætis-
ráðherra Ísraels. Sagði hann að
sér sýndist báðir aðilar „skilja
mikilvægi þess að ríkin tvö lifi
hvort við annars hlið í friði“.
Þótt þeir væru viljugir til samn-
inga gætu þeir þurft að leita lið-
sinnis utan frá. „Það er sögulegt
tækifæri til að vinna að friði,“
sagði Bush á blaðamannafundi.
„Ef það þarf að beita dálitlum
þrýstingi, þá vitið þið að ég mun
útvega hann.“
Lagði Bush áherslu á að unnið
væri að lausn deilunnar áður en
hann léti af embætti forseta, þótt
róðurinn yrði þungur.
„Abbas forseti og Olmert for-
sætisráðherra verða að ná saman
og taka erfiðar ákvarðanir, og ég
er sannfærður um að það muni
þeir gera,“ sagði Bush. aij
„Lausn
deilunnar
í augsýn“
Nordic Photos / Getty Images
Georg í landsliðinu Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, gaf George Bush Bandaríkjaforsetu sérmerkta landsliðstreyju þegar sá síðarnefndi leit við hjá Olmert.
Eldgos í Ekvador Eldvirkni í Tungurahua-eldfjallinu hefur aukist undanfarna daga, en myndin er tekin snemma dags, 9. janúar.
Hafa yfirvöld gripið til þess ráðs að rýma þorp í hlíðum fjallsins.
Veturseta á norðurslóðum Storkur hefur undanfarið gert sig heimankominn í þorp-
inu Nebelin í Brandenborg í Þýskalandi, í stað þess að flytjast suður á bóginn.
Íshallir Borgin Harbin er ein sú kaldasta í Kína. Hún er staðsett í norðaustanverðu landinu og á þessum árstíma fer hitinn oft niður
fyrir 20 gráða frost. Til að styðja ferðaþjónustu á svæðinu hafa athafnamenn komið á fót árlegri íssýningu.
Gulusprautur Stjórnvöld í Brasilíu hófu bólusetningar við gulu eftir að sjúkdómurinn
greindist í öpum nýlega. Maður lést úr sjúkdóminum í fyrradag.
20 FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 24stundir
ÁSTANDHEIMSINS
frettir@24stundir.is a
Ég trúi því að það sé mögulegt. Ekki bara mögulegt,
ég trúi því að það muni gerast. Að það verði skrifað
undir friðarsamkomulag áður en ég læt af embætti.
George Bush