24 stundir - 11.01.2008, Side 28
28 FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 24stundir
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@24stundir.is
„Ég kalla mig fjöllistamann,“ segir
Lee Nelson sem kemur frá Perth í
Ástralíu en er búsettur á Íslandi og
giftur íslenskri konu. „Ég hef búið
hér í 2 ár,“ segir Lee sem hefur verið
á faraldsfæti árum saman og komið
fram í 103 löndum undir lista-
mannsnafninu Wally.
„Helsta aðdráttarafl þessa lands
er konan mín,“ segir hann í góðu
gamni. „Hér á landi eru svo margir
möguleikar og þegar ég kom hingað
áttaði ég mig á því að ég bjó yfir
verðmætri þekkingu sem mig lang-
aði að miðla áfram. Um allan heim
eru starfræktir sirkusskólar og sirk-
usar og starfsemin gæðir menn-
inguna lífi. Mig langar til að hér sé
starfræktur alvöru sirkus og eina
leiðin til þess að sjá draum minn
verða að veruleika er að safna í sirk-
usinn starfskröftum og kenna börn-
um og þeim sem vilja sirkuslistir.“
Engir vandræðanemendur
Lee segir heim sirkussins fullan af
möguleikum. „Þess vegna eru engir
vandræðanemendur í sirkus og allir
ná árangri, það er einnig í mínum
verkahring sem kennara að ná til
þeirra og gefa þeim eitthvað sem
eflir þau og styrkir. Það er hægt að
finna eitthvað við hæfi fyrir alla. Ég
gæti til dæmis ekki kennt einhentu
barni gripl“ (íslenskt nýyrði Lees yf-
ir það að halda hlutum á lofti), „ég
verð að finna eitthvað annað
skemmtilegt.“ Hann nefnir í þessu
sambandi að kennsla sirkuslista hafi
góð áhrif á krakka sem eiga í til-
finningalegum vanda eða sýna
áhættuhegðun. „Það er vegna
þess að sirkusleikni getur hjálpað
krökkum að uppgötva færni til þess
að leysa þrautir með skapandi
hætti. Þá eykst hæfni eins og ein-
beiting, minni og samhæfing hugar
og líkama. Allt sjálfstraust eflist og
styrkist og í sirkus reynir mikið á
samvinnu og traust, “ bætir Lee við
um kosti sirkuslista fyrir börn.
Gripl og húllahopp
„Sirkusskóli fyrir börn verður
á sunnudögum á þessari önn,“
segir Lee. „Við kennum sirk-
usleikni frá byrjenda- til fram-
haldsstigs, loftfimleika, „gripl“
(juggling), húlla hopp og píra-
mída svo eitthvað sé nefnt. Fyrir
áramót var aldursbilið þrengra.
Ég hef yngri og eldri nemendur
saman nú. Það er ákaflega gott
að gera það. Eldri nemendur
veita þeim yngri stuðning.“
24stundir/ Jim Smart
Wally safnar fólki í íslenskan sirkus!
Draumur Wallys að
stofna sirkus á Íslandi
Wally (Lee Nelson) hefur
starfað við sirkus frá tán-
ingsaldri og nam sirk-
uslistir í sirkusskóla í 3 ár.
Wally rekur nú sirk-
usskóla sem meðal ann-
ars er starfræktur í Kram-
húsinu með námskeiðum
fyrir börn sem og opnum
sirkuskvöldum fyrir full-
orðna. Hans helsta mark-
mið er að sjá draum sinn
um íslenskt fjölleikahús
verða að veruleika.
Í sirkussveiflu
Wally tekur
sirkuslistir al-
varlega
Húllahopp Gripl og margt fleira fyrir
hressa krakka í Sirkusskóla Wallys!
„Ég myndi fyrst og fremst segja
að dans sé skemmtun,“ segir Edgar
K. Gapunay, skólastjóri Dansskóla
Sigurðar Hákonarsonar. „En dans
er líka öguð íþrótt, ein sú tæknileg-
asta í heimi. Með því að stunda
dans má því svindla með því að
sameina skemmtun og það að
stunda agaða íþrótt.“
Fjölbreytt nám í boði
Dansskóli Sigurðar Há-
konarsonar, sem er til húsa í Kópa-
vogi, er einn af virtustu dans-
skólum landsins. Kennarar skólans
hafa margra ára reynslu í dans-
kennslu og leggja metnað sinn í
fagleg vinnubrögð, enda hefur ár-
angur keppnispara skólans vakið
athygli.
„Það er margt í boði í vetur fyrir
alla aldurshópa, byrjendur og
lengra komna,“ segir Edgar.
„Yngstu krakkarnir læra samhæf-
ingu tónlistar og hreyfingar, þá
kennum við samkvæmisdansa,
suðurameríska, salsadansa og free-
style djassballett.“
Eykur samlyndi og sjálfstraust
„Dans er sýningaríþrótt og
hjálpar því mikið til við að auka
sjálfstraust einstaklinga, bæta sam-
skipti milli kynjanna og auðvitað
aga og markmiðssetningu hvers og
eins,“ bætir Edgar við að lokum.
Samkvæmisdansar tæknilegasta íþrótt í heimi
Dans reynir á huga og líkama
Dans í vetur? Áhuga-
samir geta kynnt sér
námskeiðaframboð á
www. dansari.is
KYNNING
14 vikna námskeið fyrir 3-5 ára
14 vikna námskeið fyrir ungt fólk
KERAMIKDEILD
14 vikna námskeið í leirrennslu og -mótun
14 vikna námskeið
I N N R I T U N
sími 551 1990 - kl.13-17
www.myndlistaskolinn.is
TEIKNIDEILD
undirstöðugreinar sjónmennta
BARNA- OG UNGLINGADEILD
MÁLARADEILD
3-5 ára miðvikud. 15:15-17:00 Sigríður Helga Hauksdóttir
3-5 ára laugard. 10:15-12:00 Gerður Leifsdóttir
6 - 9 ára mán-þri-mið-fim kl.15:15 - 17:00 ÖRFÁ LAUS PLÁSS
13-16 Myndasögur f. ungt fólk fimmtud. 16:00-19:00 Bjarni Hinriksson og
Búi Kristjánsson
13-16 Teikn-málun-þrívídd föstud. 16:00-19:00 Sigríður Ólafsdóttir
og Guðrún Vera Hjartardóttir
13-16 ára Leirmótun föstud. 16:30-19:30 Guðný Magnúsdóttir
13-16 Grafík -Götulist laugard. 10:00-13:00 Kristín Hauksdóttir
og Árni Grétarsson
16-19 ára HRÆRINGUR þriðjud. 18:00-20:45
myndlist/tónlist/gjörningar Ólöf Björnsdóttir og Helgi Þórsson
Leirmótun og rennsla þriðjud. 17:30-20:15 Guðný Magnúsdóttir
Leirkerarennsla mánud.17:30-20:15 Guðbjörg Káradóttir
Teikning 1 morguntímar mið. 09:00-11:45 Sólveig Aðalsteinsdóttir
Teikning 1 mán.17:30-21:30 Kristín Reynisdóttir
Teikning 1 þri. 17:30-21:30 Hilmar Guðjónsson
Teikning 2 mið. 17:30-21:30 Sólveig Aðalsteinsdóttir
og Kristín Hauksdóttir
Litaskynjun fim. 17:30-21:30 Eygló Harðardóttir
Módelteikning mán.17:45-20:30 Þorbjörg Þorvaldsdóttir
Teikning framhald mán.17:30-21:35 Katrín Briem
Myndskreyting-Bókagerð mið. 18:00-20:45
Anja Kirsch, Áslaug Jónsdóttir og Guðrún Hannesdóttir,
Form, rými og hönnun miðvikud. 17:30-20:30 Hildur Bjarnadóttir,
Brynhildur Pálsdóttir og Guja Dögg Hauksdóttir
Skapandi starfsvettvangur (portfolio) þriðjud. 17:30-20:15
Ósk Vilhjálmsdóttir
Stafræn ljósmyndun mánud. 18:00-20.45 Brooks Walker
Svart / hvít ljósmyndun mánud. 18:00-20.45 Erla Stefánsdóttir
Indesign/photoshop 4 daga námsk. Magnús V.Pálsson
Myndskreyting-Bókagerð mið.18.00-20.45
Anja Kirsch, Áslaug Jónsdóttir og Guðrún Hannesdóttir,
Frjáls málun föstud. 13:00-15:45 Þuríður Sigurðard.
Málun 1 morguntímar miðvik. 09.00-11.45 Sigríður Ólafsdóttir
og Þorri Hringsson
Portrett - gegnum listasöguna laugard 10:00-13:00 Karl Jóhann Jónsson
Málun framhald morguntímar miðvikud. 09:00-11:45 JBK Ransú
Vatnslitun 1 morguntímar miðvikud. 09:00-11:45 Hlíf Ásgrímsdóttir
Vatnslitun þriðjud. 17:30-20:15 Hlíf Ásgrímsdóttir
www.myndlistaskolinn.is
NÁMSKEIÐ FRÁ 21.JANÚAR n.k.
kennt í JL-húsinu, Hringbraut 121
og á Korpúlfsstöðum
8 -11 ára myndlist / verkmennt fimmtud.15:00-17:15 Gerður Leifsdóttir
9 -13 ára Myndlist-tæknifikt þriðjud. 15:00-17:15 Anna Hallin og
Pétur Örn Friðriksson
10-12 ára Teikning/Málun mán. 15:00-17:15 Hildur Bjarnadóttir
10-12 ára Leirrennsla og mótun lau. 10:00-12:15 Anna Hallin og
Guðbjörg Káradóttir
V O R Ö N N 2 0 0 8
ÝMIS NÁMSKEIÐ
form/rými - bókaskreyting - portfolio - ljósmyndun - indesign
6-9 ára Korpu föstud. 15:15-17:00 Hildur Bjarnadóttir
10-12 ára Korpu mánud. 15:00-17:15 Helgi Þórsson
13-16 Teikn-mál-þrívídd Korpu fimmtud. 16:00-19:00 Sigríður Ólafsdóttir
Námskeið Korpúlfsstöðum
NÝT
T:
NÝT
T:
NÝT
T:
NÝT
T:
FULLT NÁM umsóknarfrestur
Myndlista- og hönnunarsvið (Fornám)
umsóknarfrestur: 25.mars / inntökupróf: 5/4
umsóknarfrestur: 26.maí / inntökupróf: 31/5
MÓTUN leir og tengd efni umsóknarfrestur: 16 maí