24 stundir - 11.01.2008, Page 29
24stundir FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 29
„Þessi námskeið verða tvisvar
sinnum í mánuði en fyrsta nám-
skeiðið hefst þann 17. janúar næst-
komandi,“ segir Helga Mogensen
hjá Maður lifandi. „Það er alltaf
mikil eftirspurn eftir svona nám-
skeiðum á þessum tíma enda alltaf
gaman að fara á góð matreiðslu-
námskeið.“
Góð fræðsla
„Við erum ekki með eldhús í
kennslustofunni þannig að þetta er
meiri sýni- og talkennsla og mikil
fræðsla sem við förum í gegnum en
námskeiðin eru mjög fræðandi og
skemmtileg. Við tölum um hollan
mat og til dæmis af hverju við eig-
um að velja lífrænt umfram annað,
af hverju eigum við að borða meira
af grænmeti og ávöxtum og svo-
leiðis, þannig að þetta er ekkert
nýtt undir sólinni. Það sem mér
finnst einna skemmtilegast við
þessi námskeið er að þau vekja
ákveðna umræðu, líkt og hefur
verið að gerast undanfarin ár, fólk
er orðið meðvitaðra um að það
beri ábyrgð á lífi sínu og heilsu eins
og með því að velja hollan mat.“
Einfalt og fljótlegt
„Við fjöllum til dæmis um góð
krydd og hvað náttúran er gjöful
og hvað hún inniheldur mikið af
efnum sem líkaminn þarfnast.
Þannig að við stiklum á stóru og
förum í gegnum einfaldar upp-
skriftir og tölum til dæmis um
hvað er hægt að gera ef maður er á
hlaupum en vill samt fá eitthvað
hollt og gott í kroppinn. Við tölum
einnig um ákveðnar fæðutegundir
og hvernig er best að meðhöndla
þær. Svo er borðað saman og farið í
gegnum það sem er í boði í heilsu-
vöruverslunum. Það eru margir
sem þekkja ekki vörurnar og vita
ekki hvað á að velja og svoleiðis. En
þetta er fyrst og fremst skemmtileg
og fræðandi kvöldstund.“
Vinsæl matreiðslunámskeið í Maður lifandi
Skemmtileg og fræðandi kvöldstund
24 stundir/Frikki
Helga Mogensen Segir matreiðslunámskeiðin hjá Maður lifandi fyrst og fremst fræð-
andi og skemmtileg.
Neytendasamtökin munu halda
námskeið í heimilisbókhaldi og
neytendarétti þann 30. janúar nk.
kl. 18:30. Á námskeiðinu
verður farið yfir sparnaðarráð og
bókhald heimilisins. Einnig verður
kynning á réttindum og skyldum
neytenda í viðskiptum.
Fyrir þá sem ekki eru félagsmenn
kostar námskeiðið 4.000 krónur.
Skráning fer fram í síma 5451200
eða með tölvupósti til ns@ns.is.
Námskeið í
heimilisbókhaldi
Internetið er kærkomið lærdóms-
setur og upplýsinganáma fyrir þá
sem eiga erfitt með að sækja nám
vegna veikinda eða fötlunar. Á net-
inu má til dæmis læra tungumál á
ýmsum gagnvirkum vefsvæðum.
Til að mynda má læra ítölsku,
spænsku og frönsku á hinum
breska fréttavef www.bbc.com. Þá
má sækja um háskólanám í virtum
háskólum svo sem Háskólanum í
Liverpool og auka möguleika sína.
Svo lengi lærir
sem lifir
Brautargengi í Reykjavík eru nám-
skeið sem haldin eru fyrir konur
sem vilja hrinda viðskipta-
hugmynd í framkvæmd og hefja
eigin atvinnurekstur. Fjöldi kvenna
hefur notið velgengni með verkefni
sín eftir námskeiðið. Næsta nám-
skeið hefst 6. febrúar 2008. Kennt
er á miðvikudögum frá kl.12:30-
17:00. Verð: 45.000 kr. Upplýsingar
veitir Hallfríður Benediktsdóttir á
hb@nmi.is og í síma 522-9267.
Brautargengi
fyrir konur
Miðvikudaginn 23. janúar frá 9.00 til 12.00 í
nýju Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal
DAGSKRÁ
Ávarp formanns Samtaka iðnaðarins
Helgi Magnússon
Ávarp menntamálaráðherra
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Framboð námsefnis í iðngreinum
Hrafnkell Marinósson, formaður Félags
fagkennara í tré- og byggingagreinum
Stuðningur SI við námsefnisgerð
Ingi Bogi Bogason, Samtökum iðnaðarins
Hlutverk menntamálaráðuneytis við
námsefnisgerð
Arnór Guðmundsson, skrifstofustjóri
í menntamálaráðuneytinu
Útgáfa námsbóka í iðnaði hjá IÐNÚ
Erling Erlingsson, framkvæmdastjóri IÐNÚ
Afhending námsefnisstyrks SI
Sýning á námsgögnum fyrir iðn- og starfsgreinar
Ráðstefnulok
Fundarstjóri:
Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri SI
RÁÐSTEFNA SI Á MENNTADEGI IÐNAÐARINS 2008
9.00
12.00
Námsefnisgerð
fyrir iðn- og starfsnám
Ráðstefnan
er öllum opin
en tekið er við
skráningum á
www.si.is
Þekking og mannauður eru vaxandi drifkraftar í starfsemi fyrirtækja. Skólar byggja
upp mannauð fyrir atvinnulífið. Þörf er fyrir nútímalegt og aðgengilegt námsefni í
iðn- og starfsgreinum. Hvernig er unnt að tryggja stöðugt framboð á því?