24 stundir - 11.01.2008, Side 41
24stundir FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 41
Nei, hann er ekki fallegur. Senni-
lega ekki sérlega góður heldur og
varla mjög þægilegur.
Hann uppfyllir hins vegar meng-
unar- og öryggiskröfur samtímans
og það sem meira er; hann kostar
ekki nema um 155 þúsund íslensk-
ar krónur í framleiðslulandi sínu,
Indlandi.
Á bak við bílinn, sem heitir Tata
Nano, stendur maður að nafni Rat-
an Tata. Hann fékk hugmyndina
þegar hann sá fjögurra manna fjöl-
skyldu ferðast saman á einni skelli-
nöðru. Hann hugsaði með sér að
það hlyti að vera öruggara fyrir
fjölskylduna að ferðast í bíl, en
hann mátti auðvitað ekki kosta
meira en skellinaðran, enda er hinn
venjulegi Indverji ekki sterk-
efnaður.
Hönnun bílsins hefur tekið fjög-
ur ár og fæðingar hans verður án
efa minnst sem eins af stóru skref-
unum í bílasögunni þegar fram líða
stundir.
Til að byrja með verður bíllinn
aðeins seldur á heimamarkaði í
Indlandi en með tíð og tíma er
áætlað að markaðir í Afríku, Suð-
ur-Ameríku og Suðaustur-Asíu
verði næstir.
Ekki er ráðgert í bili að stefna
bílnum á Evrópumarkað en á
heimasíðu Félags íslenskra bif-
reiðaeigenda kemur fram að bíll-
inn mundi kosta um 400 þúsund
krónur, kominn hingað til lands.
Bílaeign á Indlandi er allt annað
en almenn, einungis um átta af
hverjum þúsund íbúum eiga bíl.
Aðalfarartækin eru mótorhjól og
skellinöðrur og markmið Ratan
Tata var að gera bíl sem væri
öruggur til ferðalaga í hvaða veðri
sem væri en kostaði svipað og
skellinaðra.
Tata Nano mun líklega breyta heiminum
Ódýrasti bíll veraldar
Fyrir nokkrum dögum var milli-
stærðarflokksbíllinn Hyundai i30
frumsýndur hjá B&L. Um 60 bílar
höfðu þá þegar selst í forsölu og
fjölmargir lagt inn pöntun.
Bíllinn er sá fyrsti hjá Hyundai
sem fær nafn eftir nýrri reglu, einn
bókstafur og tölustafur, ekki ósvip-
að því sem þekkist hjá BMW. Þetta
mun vera gert til að auðvelda
kaupendum að átta sig á stærðar-
og tegundarflokkum bílanna. Jepp-
lingarnir munu þó áfram heita
Tucson og Santa Fe.
Alíslensk sjónvarpsauglýsing
sem gerð var fyrir i30 hefur vakið
svo mikla lukku að Hyundai býður
hana nú söluaðilum um allan heim
til sýninga.
Hyundai i30 kominn á markað
60 bílar í forsölu
Sko, við í bílskúrnum óskum þess
engum manni eða konu að geta
ekki gengið á eigin fótum, en ef
það gerist – þá höfum við fundið
græjuna fyrir viðkomandi.
Skriðdrekastóllinn sem er á með-
fylgjandi mynd er reyndar ekki sá
fyrsti sinnar tegundar en mun
þónokkuð endurbættur frá fyrri
gerð. Hann samanstendur af
tveimur beltum og augljóslega
mjög þægilegum stól og ætti að
koma hverjum sem vill yfir fjöll
og firnindi. Við þykjumst vita að
margir tækju svona stól fegins
hendi.
Skriðdrekastóllinn
Margir bíða spenntir eftir nýj-
ustu afurð BMW, sportjeppanum
X6, en hann kemur á markað í
byrjun júnímánaðar. BMW segir
bílinn marka tímamót og vitnar
þannig til þess að bíllinn er hinn
fyrsti í flokknum „Sport Activity
Coupé“ sem við treystum okkur
einfaldlega ekki til að þýða yfir á
það ástkæra ylhýra. Fínn bíll fyrir
því.
X6 væntanlegur
í júnímánuði
Í kjölfar frétta af vinsældum
Land Cruiser 200 bílsins frá Toyota
hefur Brimborg birt úttekt á
heimasíðu sinni þar sem þeir
benda fólki á að einn bíla fyrirtæk-
isins, Ford Expedition, sé í raun
betri kostur en Toyotan.
„Þessi bíll er líklega eini jeppinn
á markaðnum sem raunverulega
keppir við Ford Expedition enda
þótt hann sé að vísu styttri en
styttri gerð Expedition. Raunar
geturðu fengið tvo Ford Expedi-
tion fyrir einn LC 200,“ segir á
heimasíðunni.
Sjaldgæft er að bílaumboð á Ís-
landi beini orðum sínum beint
gegn ákveðnum bíl hjá keppinaut-
unum en Haraldur Þór Stefánsson
hjá Toyota sagði kúnnana ekki
spyrja út í samanburð á þessum
bílum. „Við berum bílinn frekar
saman við Range Rover og Merce-
des Benz GL línuna.
Þetta er samt örugglega fínn bíll
og hann er fallegur á mynd.“
Brimborg seldi 41 Expedition í
fyrra en Toyota ráðgerir að selja um
400 Land Cruiser-bíla á árinu.
„Þeir eru vonandi bara að bera
sig saman við það besta,“ segir
Haraldur að lokum.
Óhefðbundinn samanburður Brimborgar
Biðla til Toyota-kaupenda
Fiat 500 hefur slegið rækilega í
gegn um gjörvalla Evrópu og
reyndar víðar, og innan tíðar
munu Íslendingar geta fest kaup
á þessum litla, sæta og skemmti-
lega ítalska bíl. Hjá bifreiða-
umboðinu Sögu fengust þær upp-
lýsingar að fyrstu bílarnir væru
„vonandi væntanlegir í febrúar“
eða á sama tíma og Danir fá
þeirra notið. Á Íslandi verður
verðið mjög líklega á bilinu 1,5-
1,6 milljónir.
Fimmhundruð
kemur í febrúar
Skoda Octavia Scout, sem fjallað
er um í reynsluakstri á þessari
opnu, verður frumsýndur hjá
Heklu í Reykjavík, Selfossi, Ak-
ureyri og Reykjanesbæ á morgun.
Opið verður milli klukkan 10 og
14.
Octavia Scout
frumsýndur
Ertu fornbílaáhugamaður eða
-kona? Kannski í Fornbílaklúbbi
Íslands? Og hefur gaman af ferða-
lögum? Frábært! Klúbburinn
auglýsir nefnilega eftir fersku og
frjóu fólki í ferðanefnd á heima-
síðunni www.fornbill.is. Þar er
tekið fram að konur séu sér-
staklega hvattar til þátttöku en
verkefni nefndarinnar er „að sjá
um skipulagningu sumarferða og
fleira skemmtilegt.“
Fornferðamó-
gúlar óskast
ÚR BÍLSKÚRNUM
Skoda hefur sent frá sér fyrstu
opinberu myndirnar af nýjum
Superb. Í fréttatilkynningu segir
að bíllinn hafi, með afar miklu
innanrými, tekið forystuna í sín-
um stærðarflokki.
Fjöldi tækninýjunga verður í
bílnum, þar á meðal beygjuljós,
sjálfvirkur bílastæðavari, nýtt
rafstýrt loftræstikerfi og fleira.
Fyrstu Superb-
myndirnar
18. janúar 2008
`tàâÜSérblað 24 stunda
Fullt af fróðleik og skemmtilegu efni
Auglýsingasímar:
Katrín Rúnarsd. 510-3727
kata@24stundir.is
Kolbrún Dröfn 510-3722
kolla@24stundir.is
fyrir auglýsinguna þína
Hafðu samband og fáðu gott pláss