24 stundir - 11.01.2008, Qupperneq 54
54 FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 24stundir
„Þegar við erum komnar á "þenn-
an aldur" þá verðum við að passa
vel uppá útlitið og vera sam-
keppnisfærar á markaðinum,
sagði kunningjakona mín við
mig. Hún var ekki að tala um
vinnumarkaðinn. Við erum báð-
ar með husband svo það sé á
hreinu.“
Birna Dís Vilbertsdóttir
skralli.blog.is
„Hann heitir Árni og segir dojoj-
jong ! Það er alveg makalaust
dómgreindarleysi hjá settum
dómsmálaráðherra, honum Árna
Matt, að sýna stjórnskipaðri
nefnd puttann … Ég skil bara
ekki í þessum Þorsteini Davíðs-
syni að þiggja þessa flokks-
pólitísku ráðningu ….“
Guðmundur Óli Scheving
blogg.visir.is/gudmunduroli
„Ég hefi aldrei ekið of hratt. Ég
held að það þurfi að athuga mæli-
tæki lögreglunnar í Hafnarfirði
um leið og kannaður verður rad-
arinn hjá rjúpnaveiðimönnum.
Enginn rjúpnaveiðimaður hefur
veitt meira en átján rjúpur á einu
veiðitímabili. Það er alveg dag-
satt.“
Anna K. Kristjánsdóttir
velstyran.blog.is
BLOGGARINN
Eftir Atla Fannar Bjarkason
atli@24stundir.is
„Við stökkvum ekki á konur sem
klæða sig úr toppnum á sól-
ardögum og segjum þeim að fara í
aftur,“ segir Haukur Geirmunds-
son, íþrótta- og tómstundafulltrúi
Seltjarnarnesbæjar.
Engar sérreglur eru um baðfatn-
að kvenna í sundlaugum á Íslandi.
Sænskar kynsystur þeirra í samtök-
unum Bara bröst hafa barist fyrir
jafnrétti í baðfatareglum í Svíþjóð,
þar sem þeim er gert að hylja barm
sinn í sundlaugum. Þær staðhæfa
að sér sé mismunað og finnst að
þær megi baða sig berar að of-
an.
Talsmaður samtakanna seg-
ir að baráttan sé liður í að
draga úr kynvæðingu konu-
brjósta. Árangurinn stendur
ekki á sér og sundhöllin í
Sundsvall í Svíþjóð hefir
gefið konum leyfi til að
baða sig berbrjósta.
Plagar ekki fólk
Haukur segir eng-
ar reglur gilda um
baðfatnað kvenna á
Seltjarnarnesi. „Við
höfum ekki þurft að
setja reglur útaf þessu vegna þess
að þetta er ekki vandamál. Þær
liggja berbrjósta á sól-
arbekkjum og þetta er
ekkert sem plagar
fólk.“
Pétur Ingvarsson,
íþrótta- og tóm-
stundafulltrúi í
Hveragerði, segist
ekki muna eftir
reglum um baðfatn-
að kvenna í sundi.
„Þegar þær fara í sól-
bað fara þær oft úr
að ofan,“ segir hann.
„Það hefur enginn
viljað gera neitt í því,
allavega ekki karl-
menn.“
Í 209. grein
hegningarlaga
kemur fram að
„bannað sé að særa blygð-
unarkennd manna með lostugu at-
hæfi“ og á Vísindavef Háskóla Ís-
lands kemur fram að sennilega
þyrfti „meira til en bara nekt á al-
mannafæri til þess að brotið yrði
fellt undir þetta ákvæði“.
Ekkert að því að vera ber
Kristín Tómasdóttir, ráðskona í
öryggisráði Femínistafélags Ís-
lands, segir ólíklegt að félagið taki
svipað mál fyrir, en sér ekkert að
því að konur stundi sundlaugarnar
berbrjósta.
„...En ef það er í þeim tilgangi að
einhverjir klámkóngar græði á því
er það allt annað mál,“ segir Krist-
ín. „Ef konur langar að baða sig
berar að ofan þá gera þær það –
ekkert að því. Ég myndi alveg
skella mér í þessa sundlaug ef ég
væri stödd nálægt henni í Svíþjóð“.
Sænskar konur berjast nú fyrir réttindum sem eru sjálfsögð á Íslandi
Íslenskar konur
mega bera brjóstin
Fulltrúar bæjarfélaga vita
ekki til þess að konum sé
bannað að bera á sér
brjóstin í sundlaugum
landsins. Femínistafélag
Íslands hefur ekki tekið
málið fyrir.
Hylja sig Íslenskar konur mega
bera á sér brjóstin í sundlaugum
en kjósa fæstar að gera það.
Allt í lagi Kristín Tómasdóttir
myndi skella sér í sundlaugina í
Sundsvall væri hún í grenndinni.
HEYRST HEFUR …
Krúttkrakkinn Ólafur Arnalds hitaði upp fyrir tón-
leika Stafræns Hákonar á Organ á miðvikudags-
kvöldið. Spiluðu bæði böndin öndvegistónlist þótt
ólík væru. Ólafur tilkynnti áhorfendum að hann
hefði ætlað að selja nýjustu afurð sína á staðnum
gegn vægri greiðslu, en því miður væri það ekki
lengur hægt, því einhver útlensk stelpa hefði komið
og keypt allar plöturnar! Tryggur aðdáandi það... tsk
Fregnir herma að hin geysivinsæla unglinga-
hljómsveit Cascada sé á leið til Íslands. Hljóm-
sveitin hefur fengið mikla útvarpsspilun, meðal
annars á útvarpsstöðinni FM957, en hún átti raunar
10 vinsæl lög þar á síðasta ári. FM-hnakkar ættu nú
að kætast því hljómsveitin Cascada mun vera bókuð
á veitingastaðinn Broadway, og spilar þar fyrir æst-
an æskulýð um páskana. re
Skagamaðurinn og hrekkjalómurinn Vífill Atlason
verður sínu fólki innan handar þegar Akranes
keppir við Ísafjörð í annarri umferð spurn-
ingakeppninnar Útsvars í kvöld. Vífill verður síma-
vinur liðsins og hefur það hlutverk að bjarga Skaga-
mönnum standi þeir á gati. Nú er spurning hvort
hann svari í símann þegar á hólminn er komið eða
hrekki heimamennina eins og George Bush. afb
Glöggir vegfarendur hafa tjáð 24
stundum að sést hafi til Bubba
Morthens á Kia Sportage-bifreið,
en eins og alþjóð veit keyrir Bubbi
allajafna um á Range Rover-jeppa.
Pálmi Guðmundsson, sjón-
varpsstjóri Stöðvar tvö, þar sem
Bandið hans Bubba er á dagskrá,
segir Kia-bílana aðeins bíla-
leigubíla sem notaðir eru af þátta-
gerðarfólkinu. „Kia styrkir ekki
þáttinn á nokkurn hátt. Annars er
Bubbi alveg hress með þetta, er
alltaf að fikta í tökkunum og
svona,“ sagði Pálmi í glettnistón og
vísaði í hið fræga atriði í Áramóta-
skaupinu.
Enginn á Bubba
Andrés Jónsson í markaðsdeild
B&L segir að ekki sé um neins-
konar brot á samningi að ræða.
„Það á enginn Bubba,“ sagði Andr-
és en bætti þó við: „En Bubbi er og
verður okkar maður. Og þó svo
hann setjist kannski upp í aðra bíl-
tegund þá gerum við nú ekki veður
út af því. Við verðum ekkert af-
brýðisamir þó svo hann fikti í
tökkum annarra bíla en okkar,“
sagði Andrés, sem hafði aug-
ljóslega einnig horft á Skaupið.
Aðspurður hvor þeirra Bubba
og Geirs Ólafssonar, sem einnig
keyrir Range Rover, væri betri aug-
lýsing sagði Andrés: „Það liggur nú
í augum uppi.“ Haft var samband
við Bubbi sjálfan og neitaði hann
alfarið að hafa keyrt Kia-jeppann.
„Það hefur bara einhverjum mis-
sýnst, því þetta var ekki ég. Senni-
lega einhver starfsmaður Saga Film
eða Stöðvar 2. En þetta var ekki ég
sjálfur, það er á hreinu,“ sagði
Bubbi, sem er ánægður með sinn
Range Rover og væntanlega farinn
að kunna á alla takkana.
traustis@24stundir.is
Bubbi blæs á Kia-kjaftasögur
Reiðir sig enn
á Range Rover
Sáttur Bubbi á gamla Range-inum
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
7 1 8 5 2 3 6 9 4
6 2 4 9 1 8 5 7 3
9 5 3 4 6 7 1 8 2
3 7 2 6 9 4 8 1 5
4 6 9 1 8 5 2 3 7
1 8 5 3 7 2 4 6 9
8 4 6 7 5 9 3 2 1
2 3 7 8 4 1 9 5 6
5 9 1 2 3 6 7 4 8
Ég er kominn til að biðja um hönd dóttur
þinnar til að hjálpa mér að flytja.
24FÓLK
folk@24stundir.is a
Gamlir refir eins og ég
verða aldrei foxillir.
Tryggvi, ertu foxillur út í nefndina?
Tryggvi Guðmundsson hefur sent Umhverfisnefnd Ísa-
fjarðarbæjar boð í eggjaferð í Hornbjarg næsta vor, til að
sanna fyrir nefndinni að tófan á ekki sök á fækkun bjarg-
fugla, líkt og nefndin heldur fram.