24 stundir - 05.02.2008, Qupperneq 33
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008 33
www.hofdahollin.is
Kletthálsi 2
S: 567 4840
höfdahöllin@ höfdahöllin.is
ALLT Á EINUM STAÐ
• SUMARDEKK
• HEILSÁRSDEKK
• OLÍS SMURSTÖÐ
• BÓN OG ÞVOTTUR
• HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
• RAFGEYMAÞJÓNUSTA
• BREMSUKLOSSAR
• ALLAR LJÓSAPERUR
SMUR- BÓN OG DEKKJAÞJÓNUSTAN
SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066
w
BYGGGÖRÐUM 8,
SÍMAR:
AX:
561 1190
899 2190
561 1190
Alhliða bifreiðaverkstæði
réttingar og sprautun.
ími: 587 6350
Bíla aukahlutir í úrvali
Þín auglýsing
gæti verið
HÉR!
Sími: 510 3744
ÞJÓNUSTUSÍÐA
AULÝSINGASÍMI: KOLBRÚN 510 3722 OG KATRÍN 510 3727
ALLT SEM ÞÚ ÞARFT FYRIR BÍLINN
S 578 5070 – Skemmuvegur 44m
www.bilarogtjon.is
Verkstæðið þjónustar allar bíltegundir
Draumaráðningar eru til um
flestallt sem okkur dreymir og bílar
eru þar engin undantekning.
Draumspekingar segja að lesa mega
í bíladrauma á mismunandi hátt
eftir því hvað við erum að gera í
draumnum. Það er að segja hvort
við erum að keyra, erum farþegi
eða jafnvel að kaupa bíl.
Að dreyma bílslys
Vonandi dreymir sem fæsta bíl-
slys en í draumi eru þau sögð tákna
ógn sem að okkur steðjar, eða kvíða
vegna velferðar okkar nánustu. Þau
eru einnig sögð geta táknað það að
viðkomandi finnist hann ekki hafa
stjórn á lífi sínu eða sé ófær um að
vernda þá sem næst honum standa.
Sért þú farþegi í bíl getur það gefið
til kynna að þér finnist bílstjórinn
ráða of mikið yfir þér og örlögum
þínum. Dreymi þig að einhver
þekktur sé undir stýri eins og t.d.
þingmaður geta tilfinningar þínar í
draumnum gefið til kynna hversu
vel þú treystir þeim einstaklingi og
tekur mark á honum. Að kaupa bíl
er sagt standa fyrir það að þú vonir
að einhver ákveðin ósk rætist eða
að það leysist úr einhverju vanda-
máli. Endurspegla draumarnir þá
gjarnan ósk um að ná einhverju
fram sem þú sérð ekki fyrir að gera
í hinu daglega lífi.
Bílstjórinn í þínu lífi
Ef þú ert undir stýri þýðir það
einmitt öfugt við það að þú sért
farþegi. Sem bílstjóri ertu örugg
persóna og stýrir þínu eigin lífi. Þó
getur það einnig þýtt að farþegarnir
tákni einhvern sem þér finnst þú
bera mikla ábyrgð á. Hverja þig
dreymir, vinnufélaga, vini eða fjöl-
skyldu hefur lítið að segja, en að-
allega er lesið úr slíkum draumum
út frá því hvort þið hafið komið
ykkur saman um áfangastað eður
ei.
maria@24stundir.is
Bílstjórinn í þínu lífi
Bíladraumar og ráðningar
Bíladraumar Jafn mis-
jafnir og þeir eru margir.
Netbílasalan Netbílar hóf starfs-
semi sína nú í janúar en fyrirtækið
býður fasta söluþóknun upp á
29.900 kr. með vsk, auk 100 pró-
senta verðverndar. „Ég stofnaði
fyrirtækið með það í huga að bjóða
þeim hópi fólks sem ekki hefur tök
á að hafa bílana sína á bílasölu eitt-
hvað ódýrara. Þar sem ein þóknun
gildir fyrir alla bíla hef ég selt fólki
bíla í bílaskiptum á allt að 90 pró-
senta lægra verði en gengur og ger-
ist annars staðar,“ segir Baldur
Freyr Stefánsson framkvæmda-
stjóri.
Hefst á netinu
Netbílar.is eru löggilt bílasala og
hafa starfsmenn fyrirtækisins
reynslu af skjalagerð og aðstoða
viðskiptavini við fjármögnun til
bílakaupa. Til að skrá bíl til sölu er
farið inn á vefsíðuna netbilar.is og
möguleikinn skrá bíl valinn. Þar er
fyllt út einfalt form sem sendist til
fyrirtækisins og fer bíllinn þá beint
á netið, eigandanum að kostn-
aðarlausu. Netbílar auglýsa í flest-
um auglýsingamiðlum og þannig
sparar fólk einnig fé í auglýs-
ingakostnað. Baldur segist halda að
öll bílaleit hefjist á netinu áður en
lagt er af stað á bílasölurnar og hafi
verið ótrúlega mikið að gera síðan
salan var opnuð, en 80.000 manns
hafa heimsótt vefsíðuna og um 50
bílar verið skráðir á viku. Fyr-
irtækið starfar eins og bílasala fyrir
utan að vera með bílaplan en skrif-
stofur þess eru á Stórhöfða þangað
sem viðskiptavinir geta komið til
að prufukeyra.
Bíllinn auglýstur fólki að kostnaðarlausu
Föst þóknun hjá Netbílum
KYNNING