24 stundir - 05.02.2008, Side 56
24stundir RitstjórnSími: 510 3700ritstjorn@24stundir.isAuglýsingarSími: 510 3700auglysingar@24stundir.is
? Mannskepnan er iðin við að finnaupp á nýjum hlutum eða aðferðum tilað létta sér lífið. Nýjungunum er alltaftekið fagnandi, því við trúum því stattog stöðugt að þetta sé æðsta mark-miðið: Að gera lífið auðveldara.Ég er ekkert frábrugðin öðru fólki.Um daginn sá ég sniðugt tæki í mat-
vöruverslun. Þetta var sérstakur ban-
anahnífur, aflangt og bogið plastform til
að leggja hýðislausan banana í og svo
lagðist lok ofan á sem um leið skar
bananann í hæfilegar sneiðar. Brilljant,
hugsaði ég –ég var einmitt að fara að
elda kjúklingarétt með banönum. En ég
hætti svo við þegar ég áttaði mig á að
ég yrði lengur að hafa þennan sérstaka
bananaskurðarhníf til og þrífa hann á
eftir en að nota gamla lagið og sneiða
bananann með hníf.
Þarna náði ég að hemja mig, en það
hefur ekki alltaf verið svo. Verstu kaup-
in hingað til voru áreiðanlega sérstök
töng, sem tekur steina úr ólífum. Ein
ólífa er lögð í sérstaka gróp og þegar
töngin er klipin saman fer lítill stautur
inn í ólífuna og þrýstir steininum úr
henni. Tímafrekt? Nei, nei, svo af-
skaplega handhægt og snyrtilegt. Af ein-
hverjum ástæðum er þessi töng löngu
týnd.
Ég sá í fréttum að nú hefðu vís-
indamenn uppgötvað hvernig rækta
mætti lauk, sem er þeirrar náttúru að sá
sem sker hann tárast ekki. Þessi upp-
götvun mun örugglega gera líf marga
auðveldara. Er það ekki eftirsóknar-
verðast af öllu?
Allt sem auðveldað getur lífið
Ragnhildur Sverrisdóttir
fellur í sömu letigryfjuna
og aðrir.
YFIR STRIKIÐ
Hversu langt
er hægt að
ganga?
24 LÍFIÐ
Fyrsti „burlesque“-danshópur
landsins hefur verið stofnaður og
leitin að réttu stúlk-
unum er hafin.
Leita að stúlkum
í djarfan danshóp
»54
Dönsku stúlkurnar sem ætluðu að
mótmæla því að þurfa að hylja á
sér brjóstin guggnuðu
á sunnudaginn.
Dönsk brjóstamót-
mæli í uppnámi
»54
● Sprengidagur
„Við erum að fara
að hittast, en ætl-
um bara að halda
fund og æfa,“ seg-
ir Bergur Ebbi
Benediktsson,
meðlimur
Sprengjuhall-
arinnar. Vangaveltur voru um
hvort Sprengjuhöllin héldi upp á
sprengidaginn í dag á einhvern
hátt, en Bergur hefur nú tekið af
allan vafa; Sprengjuhöllin heldur
ekki upp á sprengidaginn.
„Kannski borðum við saman, en
við höfum ekkert rætt það. Við
gleymdum að tala um þetta,“ segir
Bergur.
● Þingmaður „Ég
kem frá Vest-
mannaeyjum og
er bara kona á
besta aldri,“ segir
Hanna Birna Jó-
hannsdóttir,
varaþingmaður
Frjálslyndra, sem
settist á þing í gær. „Þetta er í
fyrsta skipti sem ég sest á þing,
þannig að þetta er svolítið spenn-
andi,“ segir Hanna Birna, sem
hefur starfað hjá Vestmanna-
eyjabæ undanfarin sex ár. Þing-
störfin leggjast vel í hana. „Maður
er að meðtaka svo mikið í einu en
ég held að þetta sé skemmtilegur
vinnustaður.“
● Langferð Skær-
asta stjarna ís-
lenska badmin-
tonheimsins,
Ragna Ingólfs-
dóttir, fór enga
frægðarför til Ír-
ans. Þangað flaug
hún um helgina
og ætlaði sér stóra hluti en minna
varð úr og féll hún úr leik í átta
manna úrslitum í viðureign gegn
Morshahliza Baharum frá Malasíu.
Ragna er einn þeirra Íslendinga
sem bundnar eru vonir við að
komist á Ólympíuleikanna í Kína í
ágúst en til þess þarf hún að herða
róðurinn.
Hvað ætlar þú að
gera í dag?
- kemur þér við
Styttan af Leifi heppna sem prýddi
Hard Rock í gamla daga er í góð-
um höndum Baugs í
Lundúnum.
Leifur heppni á
viðeigandi stað
»50