24 stundir - 15.03.2008, Side 2
2 LAUGARDAGUR 15. MARS 2008 24stundir
©
In
te
r I
KE
A
Sy
ste
m
s B
.V
. 2
00
8
Frábær fermingargjöf!
Við minnum á rafrænu gjafakortin okkar.
Opið 10-20 virka daga Laugard. 10-18 Sunnud. 12-18 www.IKEA.is
VÍÐA UM HEIM
Algarve 20
Amsterdam 10
Alicante 16
Barcelona 15
Berlín 9
Las Palmas 22
Dublin 7
Frankfurt 12
Glasgow 9
Brussel 11
Hamborg 7
Helsinki 4
Kaupmannahöfn 5
London 11
Madrid 23
Mílanó 16
Montreal -8
Lúxemborg 9
New York 4
Nuuk -14
Orlando 13
Osló 5
Genf 16
París 15
Mallorca 19
Stokkhólmur 2
Þórshöfn 8
Hæg breytileg átt og bjartviðri, en él SA-
lands. Hiti 0 til 5 stig að deginum sunnan
heiða, annars vægt frost.
VEÐRIÐ Í DAG
1
-3
-5
-1 -3
Bjartviðri
Hæg breytileg átt og víða bjartviðri. Frost 0 til
8 stig, en hiti 0 til 5 stig að deginum sunn-
anlands.
VEÐRIÐ Á MORGUN
1
-3
-6
-1 -3
Hæg breytileg átt
Slökkvilið höfuðborgarsvæðis-
ins sendi í gær yfirvöldum í Reykja-
vík erindi vegna búsetu útigangs-
manna í brunagildrum við
Laugaveg og Vatnsstíg. „Aðkoman
var skelfileg. Þarna er búið að
skrúfa fyrir vatn og rafmagn en
fólk hafði brotið rúður til að kom-
ast inn í húsnæðið,“ segir Jónas
Helgason, verkefnisstjóri hjá
slökkviliðinu.
Eigendur 14 fasteigna í iðnaðar-
hverfum í Garðabæ fengu í vikunni
viðvörun um lokun vegna ónógra
eldvarna. „Þar af eru 4 hús sem bæj-
aryfirvöld geta alls ekki fallist á að
búið sé í sama hvað gert er. Þessi hús
verða rýmd eftir páska,“ segir Jónas.
Í húsunum 4, sem eru í Mið-
hrauni, búa 49 manns, einstakling-
ar og fjölskyldur, að sögn Jónasar.
Íbúarnir eru bæði erlendir og ís-
lenskir.
Jónas segir eigendur hinna 10
fasteignanna hafa beðið um leið-
beiningar um hvernig bæta eigi
eldvarnir og óskað eftir fresti til
þess. Flestir íbúanna þar eru út-
lendingar en ekki er vitað hversu
margir þeir eru.
Í Hafnarfirði búa 78 manns,
bæði einstaklingar og fjölskyldur, í
fasteignum í iðnaðarhverfum sem
fengið hafa viðvörun um lokun
vegna ónógra eldvarna.
Slökkviliðið hefur kortlagt 54
fasteignir í iðnaðarhverfum í Kópa-
vogi en veit ekki enn hversu margir
búa þar. ingibjorg@24stundir.is
Yfir 100 manns búa í brunagildrum á höfuðborgarsvæðinu
Húsnæði rýmt eftir páska
Í Garðabæ Íbúar í þessu
húsi verða að flytja.
Kona á fimmtugsaldri sem er
fyrrverandi starfsmaður Trygginga-
stofnunar játaði við þingfestingu í
héraðsdómi í gær að hafa svikið
tæpar 76 milljónir út úr stofnun-
inni. Konan var kærð til lögreglu í
júní 2006 ásamt nítján öðrum í
málinu sem flestir voru bótaþegar
hjá Tryggingastofnun. Þeir nítján
sem voru ákærðir með konunni
voru ýmist ákærðir fyrir hylmingu
eða peningaþvott og játuðu fjórir
þeirra sína aðild að fullu. Þrír ját-
uðu sök að hluta en fjórir neituðu
sök, fjórir báðu um frest og fjórir
voru fjarverandi. Gefin var út
handtökuskipun á þá sem voru
fjarverandi. Fyrirtaka verður í mál-
inu 9. apríl gagnvart þeim sem ját-
uðu sök og 18. apríl gagnvart þeim
sem ekki játuðu. fr
Ákæra á hendur 20 manns þingfest í gær
Játaði að hafa svik-
ið út 76 milljónir
Héraðsdómur dæmdi í gær móður
ungrar stúlku, sem var nemandi í
Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi,
til að greiða kennara stúlkunnar
rúmar 9,7 milljónir króna í skaða-
bætur auk 1 milljónar króna í
málskostnað. Stúlkan renndi hurð
á höfuð kennarans og slasaði hann.
Fram kemur í dómnum, að stúlkan
hefur verið greind með Asperger-
heilkenni. Stúlkunni sinnaðist við bekkjarfélaga sína og fór inn í
geymslu, sem var lokað með rennihurð. Kennarinn, sem er kona, ætl-
aði að sækja stúlkuna og stakk höfðinu inn í geymsluna en þá skall
rennihurðin á andliti hennar og hentist hún þá með höfuðið á vegg.
Síðan hefur hún þjáðst af höfuðverk, öðrum eymslum og þrekleysi.
Skólinn var sýknaður af skaðabótakröfu þó að matsmaður hafi talið að
klemmivörn á hurðinni hafi ekki komið í veg fyrir að hún skylli á höfði
kennarans. Taldi dómurinn hurðina uppfylla öryggiskröfur. mbl.is
Kennara dæmdar bætur
Siv Friðleifsdóttir, fyrrverandi
heilbrigðisráðherra, spyr hvers
vegna nýr forstjóri Landspítala
taki ekki til starfa fyrr en eftir 5
mánuði. „Fólkið sem á að gegna
forstjórastarfinu þangað til er
mjög öflugt en það er í öðrum
störfum. Þetta er mjög sérstakt.
Maður spyr hvað sé hér á ferð.“
Siv undrast
forstjóraleysið
Starfshópur sem umhverf-
isráðherra skipaði til að undirbúa
sameiningu Veðurstofu Íslands
og Vatnamælinga hefur skilað
greinargerð til ráðherra. Með
sameiningunni á m.a. að efla
starfsemina og skerpa á verk-
efnum sem tengjast rannsóknum
og ráðgjöf vegna loftslagsbreyt-
inga og vöktunar og kortlagn-
ingar á náttúruvá. Drög að laga-
frumvarpi liggja nú fyrir.
Sameining Veðurstofu og
Vatnamælinga áformuð
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@24stundir.is
Breytingar á yfirstjórn Landspítal-
ans vekja Álfheiði Ingadóttur, full-
trúa Vinstri grænna í heilbrigðis-
nefnd Alþingis, ugg um
framhaldið, eins og hún orðar það.
Tilkynnt var í gær að Magnús Pét-
ursson hefði ákveðið að láta af
störfum sem forstjóri Landspítal-
ans í samkomulagi við heilbrigð-
isráðherra. Auk þess var tilkynnt að
gengið hefði verið frá samkomulagi
við Jóhannes M. Gunnarsson,
framkvæmdastjóra lækninga, um
að hann færi í leyfi næstu fimm ár-
in til þess að vinna að áframhald-
andi undirbúningi byggingar og
skipulagningu nýs háskólaspítala.
Grundvallarbreytingar
„Það er verið að gera grundvall-
arbreytingar á heilbrigðisþjónust-
unni í landinu og ég óttast að þarna
muni sjálfstæðismenn koma sínum
einkavæðingarmönnum fyrir til að
herða á þeirri stefnubreytingu,“
segir Álfheiður. Hún tekur það
fram að ábyrgðin sé ekki bara Sjálf-
stæðisflokksins því Samfylkingin
hafi látið heilbrigðisráðuneytið í
hendur honum.
„Mér finnst Guðlaugur Þór haga
sér eins og fíll í glervörubúð í þessu
ráðuneyti. Það er með ólíkindum
að þetta mál skuli koma upp dag-
inn sem þingið er farið heim,“ bæt-
ir Álfheiður við.
Stefna ríkisstjórnar ljós
Ásta Möller, fulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins í heilbrigðisnefnd Alþing-
is, segir mannabreytingar alltaf fela
í sér áherslubreytingar. „Ég held að
það sé alveg ljóst. Stefna ríkisstjórn-
arinnar um aukna samvinnu við
einkaaðila er líka ljós. Það er mjög
líklegt að horft verði til spítalans,
hvort þar séu einhverjir þættir sem
séu vel til þess fallnir að setja í
einkarekstur. Það er full ástæða til
að setja tilteknar einingar inn í ann-
an farveg. Ég held að forstjóraskipt-
in hafi ekki verið einhver brenni-
punktur í því. Ég tengi það ekki
forstjóraskiptunum, heldur stefnu
ríkisstjórnarinnar,“ segir Ásta sem
getur þess að yfir heildina séu 30%
heilbrigðisþjónustunnar í einka-
rekstri en 0% sjúkrahússrekstrar.
Breyttar áherslur
á Landspítala
Breytingar á yfirstjórn vekja ugg um framhaldið, segir Álfheiður
Ingadóttir, þingmaður VG Stefnan ljós, segir Ásta Möller
Forstjóri á förum
Magnús Pétursson
lætur af störfum um
næstu mánaðamót.
➤ Anna Stefánsdóttir, fram-kvæmdastjóri hjúkrunar, og
Björn Zoëga, framkvæmda-
stjóri lækninga, á Landspítala
munu sameiginlega gegna
starfi forstjóra spítalans þar
til nýr forstjóri hefur verið
ráðinn.
➤ Gert er ráð fyrir að sú skipanmála gildi til 1. september.
BREYTINGAR Á LANSA
STUTT
● Hraðakstur Sextíu og fimm
ökumenn voru staðnir að hrað-
akstri á Ásbraut og í Hlíðarbergi
í Hafnarfirði í gær og í fyrradag
en þar var ómerkt lögreglu-
bifreið sem er búin myndavéla-
búnaði. Mælingarnar eru hluti
af sérstöku umferðareftirliti í og
við íbúðargötur. Meðalhraði
hinna brotlegu var 68 kílómetr-
ar á klukkustund en þarna er 50
kílómetra hámarkshraði.
● Leiðrétt Í álitspistli Arnar
Sigurðssonar í blaði gærdags-
ins urðu þau mistök að orðið
samgönguráðherra slæddist
inn í byrjun greinarinnar. Örn
er beðinn velvirðingar á mis-
tökunum.
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.