24 stundir - 15.03.2008, Page 4
4 LAUGARDAGUR 15. MARS 2008 24stundir
Framtíðarreikningum stofnuðum
með gjafabréfi SPRON fylgir 2.000 kr.
mótframlag frá SPRON*.
Sími 550 1200 - Þjónustuver 550 1400 - www.spron.is
Le
g
g
ja
þ
ar
f
in
n
a
ð
lá
g
m
ar
ki
2
.0
00
k
r.
v
ið
s
to
fn
u
n
r
ei
kn
in
g
s.
Gefðu bjarta framtíð
í fermingargjöf
Fermingargjafabréf SPRON
er gjöf sem vex og vex.
Heitir pottar frá Beachcomber
Allar nánari uppl í síma 8972902 eða á netfangið mvehf@hive.is MV heildsala ehf
Mest seldu pottar í
Kanada í 30 ár
13 ár á íslandi
ALLIR OKKAR POTTAR
ERU MEÐ CLEAR TECH
TÆKNI 50%-70%
MINNI KLÓRNOTKUNN
Full einagraðir á öllum
hliðum og botninn líka
24 tíma hreinsikerfi
Taktu ekki áhættu veldu
vandaðan pott sem er að
öllu leiti framleiddur í
Kanada
Hafðu samband og við
sendum bækling og
verðlista samdægurs
allir pottarnir okkar á
sérstöku afmælistilboði
Skeifunni17 • Smáralind • Akureyri • Ísafirði • Egilsstöðum
• Vestmannaeyjum • Selfossi • Hafnarfirði (Bókabúð Böðvars)
undir 1 þaki
Allt fyrir ferminguna
Eftir Auði Alfífu Ketilsdóttur
fifa@24stundir.is
Stúlkur sem verða fyrir kynferðis-
ofbeldi sem börn glíma við afleið-
ingar þess alla ævi.
Þetta eru niðurstöður meistara-
ritgerðar Sigrúnar Sigurðardóttur
hjúkrunarfræðings frá Háskólan-
um á Akureyri, Tíminn læknar ekki
öll sár.
Ritgerðin byggir á djúpviðtölum
sem Sigrún tók við sjö konur sem
allar höfðu orðið fyrir kynferðis-
legu ofbeldi í æsku.
Allar sömu sögu að segja
„Fimm af þessum sjö konum
eru með vefjagigt, þær eru með
vöðvabólgu, verki og svefnörðu-
leika, átröskun, ofnota áfengi og
glíma við ýmis líkamleg vanda-
mál,“ segir Sigrún. Skýringa má
leita í því að ofbeldið verður til
þess að þær eru alltaf með varann á
og hætta þess vegna að geta sofið á
nóttunni. Þegar fólk hættir að sofa
hrannast upp fleiri vandamál. Lík-
aminn verður stífur og við bætast
verkir og kvíði. Þegar konurnar
fara til læknis orðnar fullorðnar
eru þær búnar að þróa með sér
vefjagigt og vöðvabólgu. „Fimm af
þessum konum eru öryrkjar,“ segir
hún.
Þá segir Sigrún konurnar allar
hafa sömu sögu að segja um
vandamál tengd móðurlífinu. „Það
eru blöðrur á eggjastokkunum,
samgróningar, hnútar, miklir
blæðingaverkir, fósturmissir og
fleira.“ Hún segir ekki ljóst hvers
vegna þetta verður en oft komi ein-
kennin í ljós eftir einhvern atburð,
sálrænt áfall, kynlíf eða annað.
Brengluð mörk
Helmingur kvennanna sem Sig-
rún talaði við varð fyrir endur-
teknu ofbeldi seinna á lífsleiðinni.
„Þegar búið er að brjóta niður
varnarvegg þeirra og þær fá ekki
aðstoð til að byggja hann aftur
verða þær berskjadaðar fyrir
áframhaldandi ofbeldi.“
Hún segir fólk með reynslu af
ofbeldi oft hafa brengluð mörk,
bæði gagnvart sjálfum sér og öðr-
um. Þetta getur lýst sér í miklum
öfgum, annað hvort er fólk alveg
inni í sér, fælið og á flótta eða alveg
öfugt. Þá segir hún öfgar tengdar
mat, kynlífi og áfengi algengar.
„Ein stundar kynlíf, mikið af því
og með sem flestum á meðan aðrar
geta ekki stundað kynlíf. Sumar
borða og borða á meðan aðrar
þjást af lystarstoli,“ segir Sigrún.
Skortir heildarlausn
Sigrún segir skorta á heildar-
lausn í heilbrigðiskerfið fyrir kon-
ur með þessa reynslu. „Konur leita
allar í heilbrigðiskerfið með þessi
einkenni en það vantar upplýs-
ingaflæði og fræðslu til að vinna úr
því,“ segir hún en bætir við að
unnið sé að því á Akureyri að þróa
þverfaglegt tenglsanet og frekari
úrræði fyrir þessa einstaklinga.
„Það skiptir öllu máli að þetta fólk
fái aðstoð, auk þess sem það sparar
þjóðfélaginu mikla peninga.“
Brotnar konur
berskjaldaðar
Kynferðisofbeldi gagnvart börnum hefur áhrif á heilsu þeirra á
fullorðinsárum Heilbrigðiskerfið skortir úrræði
➤ Stígamót bjóða upp á aðstoðvið þá sem orðið hafa fyrir
kynferðisofbeldi.
➤ Systursamtök Stígamóta eruAflið á Akureyri og Sólstafir á
Ísafirði.
ÚRRÆÐI Í BOÐI
Tíminn læknar ekki öll sár
Stúlkur sem verða fyrir kyn-
ferðisofbeldi sem börn glíma
við afleiðingarnar alla ævi,
segir Sigrún Sigurðardóttir
hjúkrunarfræðingur frá HA.
Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson
Samkvæmt upplýsingum frá
sýkladeild Landspítala greindust
93 einstaklingar á Íslandi með
salmonellusýkingu í fyrra og er
það svipaður fjöldi og greinst
hefur síðastliðin ár. Ekki varð
vart við hópsýkingar af völdum
salmonellu á árinu sem leið. Ein-
ungis 16 þessara 93 salmon-
ellutilfella eru talin vera af inn-
lendum uppruna, í 64 tilfellum er
uppruni smits í öðrum löndum
og í 16 tilfellum er óvíst um upp-
runa smitsins. mbl.is
93 salmonellu-
tilfelli í fyrra
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for-
maður Samfylkingarinnar, segir
vanta stjórntæki til að takast á við
umdeildar álversframkvæmdir.
„Það er ákveðið vandamál að inni í
lögum um úthlutun útblást-
ursheimilda skuli ekki vera hægt að
setja neinar aðrar forsendur en
bara þær að fyrstur kemur, fyrstur
fær,“ segir Ingibjörg. „Það er langt
síðan flokkurinn ályktaði að álver á Bakka ætti að koma á undan álveri
í Helguvík, því suðvesturhornið á svo margra annarra kosta völ.“
Framkvæmdir vegna álversins hófust í gær. Í fyrstu verður lagður veg-
ur að lóðinni, öryggisgirðing og skrifstofa reist.
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra efast um réttmæti
ákvörðunar sveitarstjórna Reykjanesbæjar og Garðs um framkvæmda-
og byggingarleyfi áður en öll skilyrði eru uppfyllt. Þá gagnrýni taka
ungir jafnðarmenn undir og hvetja stjórnvöld til að taka í taumana. aij
Álver í Helguvík hefði mátt bíða
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Kannað var hvað símtal kostar þegar hringt er með
frelsi í heimasíma. Í töflunni eru upplýsingar um verð
á símtölum sem tekur hálfa mínútu og tvær mínútur.
Verðmunurinn er næstum þrefaldur í styttra símtal-
inu og skýrist það helst á því að Síminn og Vodafone
rukka alltaf fyrir upphafsgjald og einnig er gjaldfærð
fyrsta mínútan og eftir það í 10 sek. þrepum. Nova og
Sko, sem er með lægsta verð, gjaldfæra símtöl í 20 sek.
þrepum.
Ekki er heimilt að vitna í þessa könnun í auglýsingum.
Frelsi Símans dýrast
Þuríður
Hjartardóttir
NEYTENDAVAKTIN
Hringt úr frelsi í heimasíma
Símafyrirtæki 1/2 mínúta 2 mínútur Verðmunur
Sko 9,90 29,8
Nova 10,0 30,0 1,01% / 0,67%
Vodafone 26,8 49,7 170,70% / 66,77%
Síminn 27,0 50,0 172,72% / 67,78%