24 stundir - 15.03.2008, Qupperneq 11
24stundir LAUGARDAGUR 15. MARS 2008 11
Tökum við umsóknum núna
www.hr.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
8
-0
3
3
7
Stjórnarskrárréttur Þýska-
lands hefur staðfest lög sem
banna kynferðislegt samneyti
náinna ættingja. Rétturinn
féllst því ekki á málaflutning
manns sem á fjögur börn með
systur sinni.
Systkinin Patrick og Susan ól-
ust ekki upp saman. Þau
kynntust fyrst árið 2000, þeg-
ar hann var 23 ára og hún 16
ára.
Hélt lögfræðingur þeirra því
fram að lög sem banna sifja-
spell væru barn síns tíma og
parið væri ekki að gera nein-
um mein. Dómstóllinn sagði
að sambandið hefði bæði áhrif
á samfélagið og börnin. aij
Þingið í Kanada samþykkti í
gær að framlengja þátttöku
landsins í aðgerðum NATO í
Afganistan til ársins 2011.
Stephen Harper forsætisráð-
herra mun kynna ráðherrum
NATO áformin á fundi í Búk-
arest í næsta mánuði. Þá mun
hann ítreka að aukinn stuðn-
ingur Kanada er skilyrtur því
að aðrar þjóðir sem aðstoða
herlið NATO auki stuðning
sinn á sama tíma.
Peter MacKay varnarmálaráð-
herra sagði að ákvörðun
þingsins „sendi mjög skýr
merki um einhug frá landinu
til hermanna okkar“. aij
Medhat Kattab, fulltrúi Nye
Alliance í bæjarráði Svend-
borgar í Danmörku, vill að
stúlkum undir 18 ára aldri
verði bannað að ganga með
höfuðklút í skólum. Telur
hann að slæður valdi fé-
lagslegri einangrun stúlkn-
anna og auki líkurnar á því að
þær verði lagðar í einelti.
„Þetta er slæmt fyrir aðlögun
innflytjenda, því stúlkurnar
sýna að þær séu öðruvísi. Ég
held að það sé slæmt fyrir þær
og því er ég ánægður með það
hversu vel bæjarráðið tók í
hugmyndina,“ segir hann. aij
Dæmt í Þýskalandi
Bann við blóð-
skömm heldur
Kanadískir hermenn
Áfram í
Afganistan
Svendborg í Danmörku
Slæðurnar
burt úr skólum
Tveimur skotum var skotið inn um glugga
íbúðar í eigu sænsks saksóknara í Malmö að-
faranótt gærdagsins. Saksóknarinn, Mats Matts-
son, hefur beitt sér sérstaklega í málum tengd-
um skipulagðri glæpastarfsemi og stendur
meðal annars á bak við fjölda rassía gegn glæpa-
samtökunum og mótorhjólagenginu Banditos á
Skáni og í Gautaborg. Lögregla leitar enn byssu-
mannsins, en hefur ýmsar vísbendingar í hönd-
unum sem verið er að skoða.
Einn maður sem tengist Mattsson var staddur
í íbúðinni, sem er á fjórðu hæð húss við Köpen-
hamnvägen í miðborg Malmö. Sá slapp
ómeiddur, en Mattsson var sjálfur ekki í íbúð-
inni og nýtur nú verndar lögreglu.
Mattsson er einn helsti sérfræðingur Sví-
þjóðar í skipulagðri glæpastarfsemi og hefur
fyrirskipað fjölda rassía gegn glæpagengjum í
vetur.
Ríkissaksóknarinn Fredrik Wersäll lítur árás-
ina mjög alvarlegum augum. „Við verðum æ
oftar vitni að hótunum og árásum á fulltrúa
réttvísinnar,“ segir hann í samtali við Svenska
dagbladet. Útihurð á heimili saksóknarans
Barbro Jönsson sprengd í Trollhättan í fyrra.
Svartklæddur og krúnurakaður
Mikael Persson, talsmaður lögreglunnar í
Malmö, segir málið vera í rannsókn. „Maður
um 190 sentimetrar á hæð, svartklæddur og
krúnurakaður sást hlaupa í burtu frá vettvangi
árásarinnar með langa tösku í hendinni um
klukkan eitt. Við komum til með að ræða við
alla íbúana í nágrenninu.“ Lögreglan leitaði
með fjölda hunda í hverfinu og athugaði alla
bíla í grenndinni eftir að tilkynning barst um
árásina. atlii@24stundir.is
Ráðist að íbúð saksóknara sem hefur fyrirskipað aðgerðir gegn mótorhjólagenginu Banditos
Skotið á heimili saksóknara í Malmö
Rannsókn Stórt svæði í miðborg Malmö var lokað af
vegna árásarinnar.