24 stundir - 04.04.2008, Page 1
„Þetta erum við búnir að vera að gera í allan vetur. Um leið og snjó tekur upp þurfum við að sinna þessum hlut-
um. Það er stöðugt verkefni,“ segir Jóhann Diego, rekstrarstjóri hverfastöðvar Reykjavíkurborgar á Stórhöfða, um
hreinsun meðfram götum bæjarins. „Það fýkur rusl af byggingarsvæðunum í Grafarholti og Norðlingaholti og alls
staðar þar sem myndast hlé sest þetta niður,“ segir hann en tekur undir að ruslatínslan sé vorboði í borginni.
Vorboðinn ljúfi
24stundir/Valdís
„Þetta erum við búnir að gera í allan vetur, stöðugt verkefni“
24stundirföstudagur4. apríl 200864. tölublað 4. árgangur
Nú styttist í að útigrillið verði tekið
fram en margir kjósa að grilla frekar
fisk og grænmeti en kjöt. Sveinn
Kjartansson, matreiðslumaður
hjá Fylgifiskum, gefur les-
endum góð grillráð.
Fiskur á útigrillið
MATUR»18
Soffía Karlsdóttir, kynningarfulltrúi
Kjarvalsstaða, boðar til færeyskrar
menningarhátíðar um helgina. Fjöldi
færeyskra listamanna kemur fram á
hátíðinni og búin verður til færeysk
stemning.
Færeysk stemning
KOLLA»25
Tæplega 20%
munur á Nezeril
NEYTENDAVAKTIN »4
Sex afrískum stríðsmönnum
hefur verið sagt að veiða ekki
kýr, svín eða sauðfé á nálæg-
um bóndabæjum er þeir
leggja í Lundúnamaraþonið
um miðjan mánuðinn. Stríðs-
mennirnir koma frá afskekktu
þorpi í Tansaníu og ætla með
hlaupinu að safna fé fyrir fólk
heima fyrir.
Breska blaðið Sun segir að
þeim hafi einnig verið sagt að
bregða sér í lendaskýlu og
hylja djásnin örugglega með-
an á hlaupinu stendur. aí
Hlauparar
í veiðibanni
GENGI GJALDMIÐLA
SALA %
USD 75,03 -0,23
GBP 149,80 0,46
DKK 15,76 -0,03
JPY 0,73 0,19
EUR 117,54 -0,06
GENGISVÍSITALA 151,34 0,03
ÚRVALSVÍSITALA 5.255,82 1,37
»12
0
-1
-2
-2 0
VEÐRIÐ Í DAG »2
Íbúar á Miðnesheiði segja börn sín
veikjast vegna myglusvepps sem
fundist hefur í námsmanna-
íbúðum Keilis. Þeir segjast engar
upplýsingar fá um al-
varleika málsins.
Myglað á
Miðnesheiði
»6
37 hús standa auð í miðborginni
samkvæmt samantekt skipulags-
og byggingarsviðs. Sextán húsanna
eru við Laugaveginn. Rekstur var í
mörgum þeirra um
síðustu jól.
Laugavegur er
draugavegur
»8-9
innfluttu vinnuafli sé boðið upp á lág kjör og
slæmar vinnuaðstæður. „Við þekkjum allmörg
dæmi um óheyrilegan vinnutíma og laun langt
undir lágmarkskjörum,“ segir Grétar Þorsteins-
son, forstjóri ASÍ.
„Sem betur fer hefur tekist að greiða úr því
með viðunandi hætti og þetta hafa verið und-
antekningartilvik, þó þau hafi verið alltof mörg.“
Eftir Andrés Inga Jónsson
andresingi@24stundir.is
Ljóst þykir að mansal hafi skotið rótum á Ís-
landi, en lítið er vitað um umfang þess eða eðli.
Mest hefur verið fjallað um mansal í kynlífsiðn-
aði. Minna hefur borið á þrælavinnu í öðrum
starfsgreinum, þótt flest bendi til þess að hún
tíðkist.
Dæmi hafa víða komið upp
Í síðasta mánuði greip Matvís inn í mál fé-
lagsmanna sinna sem grunur er um að hafi
starfað á veitingahúsi án þess að fá fyrir það
greiðslu.
„Á yfirborðinu leit þetta allt saman vel út,
þannig að það var ekki ástæða til að gruna neitt.
Fyrirtækið borgaði félagsgjöld og annað til okk-
ar,“ segir Níels Olgeirsson, formaður Matvís.
„Það borgaði sín gjöld til skattsins og allan
pakkann. Það borgaði bara ekki launin.“
Það er vel þekkt hjá verkalýðshreyfingunni að
Vinna löggjafans rétt að hefjast
„Það kemur oft fólk til okkar sem verið er að
brjóta á,“ segir Margrét Steinarsdóttir, lögfræð-
ingur hjá Alþjóðahúsi. „Fólk fær oft ekki rétt
laun og jafnvel ekki launaseðla. Það er ekki borg-
að fyrir það í stéttarfélög eða neitt þvíumlíkt. Oft
er fólk látið vinna myrkranna á milli án þess að
fá borgaða yfirvinnu. Þetta heitir auðvitað allt
mansal. Þótt þeir fái eitthvað greitt fyrir sína
vinnu, þá er verið að misnota einstaklingana.“
Yfirsýn yfir íslensk mansalsmál er enn af
skornum skammti. „Umfang mansals hefur ekki
verið rannsakað með markvissum hætti á Ís-
landi, þannig að það er ómögulegt að gera sér
grein fyrir því. Á meðan við höfum engin önnur
gögn verðum við að gera ráð fyrir því að mansal
þrífist hér í sama mæli og á nágrannalöndun-
um,“ segir Guðríður Arnardóttir, formaður
starfshóps sem undirbýr aðgerðaáætlun ríkis-
stjórnarinnar gegn mansali.
Allt nema launin
Óheiðarlegir atvinnurekendur reyna að slá ryki í augu stéttarfélaga og stjórnvalda
Greiða öll gjöld vegna starfsmanna, en þeir fá ekki laun Lítið vitað um umfang mansals
LAGAÚRRÆÐI Á LEIÐINNI»6
➤ Oft er mansal hluti af skuggahliðum þjóð-félagsins, svo sem kynlífsiðnaði.
➤ Lúmskari gerðir mansals fyrirfinnast í ýms-um öðrum geirum.
➤ Áætlað er að fyrir hvern einstakling semstarfar nauðugur í kynlífsiðnaðinum séu
allt að 15 menn, konur og börn neydd til
starfa á öðrum sviðum, til dæmis sem
verkamenn eða heimilishjálp.
MANSAL
Reykjavík: Mörkin 4, sími: 533 3500, opið: 10-18 Akureyri: Hofsbót 4, sími: 462 3504, opið virka daga: 10-18 og laugard. 11-16
Enginn er betri
Violino
hágæða
leðursófar