24 stundir - 04.04.2008, Qupperneq 6
Börnin veikjast
vegna myglusvepps
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
og Frey Rögnvaldsson
„Stelpan mín er ekki orðin tveggja
ára en er komin með astma-
einkenni,“ segir Íris Ösp Sigur-
björnsdóttir sem býr í náms-
mannaíbúðum Keilis á gamla
varnarsvæðinu á Miðnesheiði. Þar
hefur fundist myglusveppur í þó-
nokkrum íbúðum.
„Læknirinn sagði að það væri
vel þekkt að myglusveppir gætu
valdið astmaeinkennum. Á svæð-
inu er mikið af börnum og þau
virðast öll vera meira eða minna
veik,“ segir Íris.
Hún segist hafa tilkynnt um-
sjónarmönnum fasteigna hjá Keili
að myglusveppur væri í íbúð sinni
fyrir þremur vikum. Henni var
sagt að hún yrði sett á biðlista eftir
viðgerð, en síðan hefur hvorki ver-
ið talað við hana vegna málsins, né
hefur nokkur komið til að taka út
skemmdirnar.
Hún segir íbúa á svæðinu engar
upplýsingar fá um hversu alvarlegt
málið sé eða hvort sveppurinn geti
verið heilsuspillandi. „Vinkona
mín sem býr þarna og á barn sem
fékk lungnabólgu, hringdi í fyrir-
tækið sem er að rannsaka myglu-
sveppinn, en var sagt að ekki
mætti segja henni hversu alvarlegt
málið væri þar sem fyrirtækið væri
bundið þagnarskyldu. Mér finnst
hrikalegt að fá engar upplýsingar,
sérstaklega þar sem mikið er um
börn á svæðinu.“
Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, líf-
fræðingur hjá Húsi og heilsu, stað-
festir að hún hafi verið kölluð til
að rannsaka mögulegan myglu-
svepp í húsnæði Keilis. „Rann-
sókninni er ekki lokið og ég get
ekki sagt neitt um hana á þessu
stigi vegna trúnaðar við viðskipta-
vini mína.“
Sylgja segir að myglusveppur
geti verið til mikilla vandræða og
hugsanlega valdið heilsutjóni ef
um alvarleg tilfelli er að ræða. Hún
tekur fram að Keilir bregðist vel
við öllum kvörtunum sem berist.
Fleiri íbúar á Miðnesheiði sem
24 stundir náðu tali af hafa áhyggj-
ur af myglusveppnum og íhuga
brottflutning. Þá sögðust þeir hafa
heyrt af fleiri börnum sem talið er
að hafi veikst af völdum myglu-
sveppsins; sem dæmi hafi ungt
barn verið flutt á spítala í gær með
sár á lunga.
Telur að veikindi barna í námsmannabústöðum Keilis á Miðnesheiði megi rekja til myglu-
svepps sem þar hefur fundist Segir íbúa engar upplýsingar fá um alvarleika málsins
Gamla varnarsvæðið Fund-
ist hefur myglusveppur í
nokkrum íbúðum Keilis.
➤ Myglusveppur herjar á nokkr-ar námsmannaíbúðir Keilis á
gamla varnarsvæðinu.
➤ Myglusveppir geta veriðheilsuspillandi; t.d. valdið
sjóntruflunum og skertu jafn-
vægi.
SKAÐRÆÐISSKEPNA
6 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2008 24stundir
Eftir Andrés Inga Jónsson
andresingi@24stundir.is
Dómur hefur ekki fallið í mansals-
máli á Íslandi, þó víst sé að slík mál
hafi komið til kasta dómstóla.
Stígamót taka þátt í víðtæku
samstarfstarfsverkefni Norður-
landanna og Eystrasaltsríkjanna
gegn mansali. „Okkur finnst hafa
verið mun markvissari aðgerðir í
nágrannalöndunum og þau hafi
haldið þar vöku sinni. En nú erum
við heldur betur að taka við okk-
ur,“ segir Guðrún Jónsdóttir.
Gloppur hafa verið í lögum
Mansal er og hefur verið refsi-
vert hér á landi, en ekki hefur reynt
á það fyrir dómi. Í málum þar sem
mansal hefur þótt ljóst hefur
ákæruvaldið valið að kæra fyrir
önnur brot. Hefur meðal annars
þótt skorta á að til kæmi augljós
nauðung fórnarlambanna.
„Samkvæmt alþjóðasamþykkt-
um þá skiptir samþykki einstak-
lingsins ekki máli,“ segir Margrét
Steinarsdóttir, lögfræðingur hjá Al-
þjóðahúsi. „Oft veit fólk ekki hvað
það er að samþykkja, til hvers er
ætlast af því og hvaða áhrif þetta
hefur á það.“
Réttarbætur á leiðinni
Allsherjarnefnd hefur um þessar
mundir til umsagnar frumvarp til
breytinga á hegningarlögum. Þar er
meðal annars skerpt á refsiákvæði.
„Við verðum betur í stakk búin
til að taka á þessum brotum,“ segir
Ágúst Ólafur Ágústsson, varafor-
maður nefndarinnar. „Þetta er einn
alvarlegasti glæpur sem hægt er að
ímynda sér. Þetta er nútíma þræla-
hald. Okkur ber skylda til að beita
öllum ráðum til að koma í veg fyrir
mansal og megum ekki láta barátt-
una stranda á ónákvæmum lög-
um.“
ÞEKKIR ÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á frettir@24stundir.is
Til stendur að breyta hegningarlögum svo auðveldara sé að sækja rétt fórnarlamba mansals
Lagaúrræði gegn mansali hafa ekki dugað
Hæstiréttur Fann glögg merki
um mansal í máli árið 2003, en
dæmdi ekki fyrir það.
Nú bíða 799 manns eftir fé-
lagslegri íbúð í Reykjavík. Í Kópa-
vogi eru 169 umsóknir um fé-
lagslegar íbúðir óafgreiddar en í
Hafnarfirði eru 154 á biðlista. Í
Garðabæ eru 6 á biðlista. Samtals
bíða 1128 manns eftir félagslegri
íbúð í þessum sveitarfélögum.
Í janúar síðastliðnum beið 761
eftir félagslegri íbúð í Reykjavík en
746 um mitt síðasta ár. Það hefur
því fjölgað um rúmlega 50 á bið-
listanum þótt íbúðum í eigu Fé-
lagsbústaða hafi fjölgað. Þær voru
tæplega 2000 í fyrrasumar en eru
nú 2087, að sögn Sigurðar Kr. Frið-
rikssonar, framkvæmdastjóra Fé-
lagsbústaða. „Það er stefnan að
fjölga félagslegum íbúðum um 100
á ári á kjörtímabilinu. Félagslegar
íbúðir verða um 2500 í lok árs
2010,“ segir Sigurður.
Hafnarfjörður á nú 230 leigu-
íbúðir en átti 217 um mitt síðasta
ár. Um 10 íbúðir eru í framleigu
hjá Hafnarfjarðarbæ þar sem að-
eins hefur fækkað á biðlistanum frá
því síðastliðið sumar. Kópavogur á
nú 336 leiguíbúðir en átti um 210
síðastliðið sumar. Þar hefur fjölgað
um nokkra tugi á biðlistanum frá
því í fyrrasumar. Garðabær á 25
leiguíbúðir.
Lengri biðlistar eftir félagslegu húsnæði á höfuðborgarsvæðinu
Yfir 1100 bíða eftir félagsíbúð
Biðlistar Þörfin fyrir fé-
lagslegt húsnæði vex.
Aðalfundur Landssambands
kúabænda sem hefst á morg-
un verður í beinni útsendingu
á netinu á síðunni naut.is.
Baldur Helgi Benjamínsson,
framkvæmdastjóri sambands-
ins, segir þetta í fimmta sinn
sem sá háttur er hafður á.
Baldur segist búast við að
mest verði rætt um verðlags-
mál á fundinum. „Það er held-
ur bjartara yfir mönnum eftir
ákvörðun verðlagsnefndar um
mjólkurhækkun. Hún nægir
vonandi til að menn geti hald-
ið sjó í rekstrinum.“ fr
Aðalfundur kúabænda
Í beinni á net-
síðu félagsins
Kristín Ingólfsdóttir, rektor
Háskóla Íslands, átelur vinnu-
brögð Hannesar Hólmsteins
Gissurarsonar, prófessors í
stjórnmálafræði, vegna brota
gegn höfundarrétti Halldórs
Laxness. Rektor lýkur nú mál-
inu innan Háskólans með
bréfi til prófessorsins þar sem
hún gerir kröfu um að vinnu-
brögðin endurtaki sig ekki.
Segir rektor að málið hafi rýrt
traust á skólanum. be
Endurtaki sig ekki
Rektor átelur
dr. Hannes
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Rafknúnir
hæginda-
stólar
• Auðvelda þér að
standa upp
• Einfaldar stillingar
og fjölbreytt úrval
Verð frá 98.000 krónum