24 stundir - 04.04.2008, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2008 24stundir
24stundir
Útgáfufélag:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Árvakur hf.
Ólafur Þ. Stephensen
Björg Eva Erlendsdóttir
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Þröstur Emilsson
Elín Albertsdóttir
Auglýsingastjóri: Gylfi Þór Þorsteinsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is, 24stundir@24stundir.is,
Prentun: Landsprent ehf.
Atvinnubílstjórar berjast þessa dagana fyrir lægra eldsneytisverði í land-
inu og skora á stjórnvöld að lækka skatta á benzíni og dísilolíu. Það fer ekki
á milli mála að langflestir neytendur styðja þessa baráttu, þ.e. fyrir lægra
benzínverði.
Það er hins vegar vafamál hvort hinir sömu neytendur styðja aðrar kröfur
bílstjóranna, um rýmri reglur um hvíldartíma og lægra kílómetragjald fyrir
vörubíla. Fólk vill ekki hafa syfjaða bílstjóra undir stýri á risastórum bílum
og sennilega vilja notendur þjóðveganna líka að eigendur þeirra ökutækja,
sem slíta vegunum mest, borgi fyrir viðhald þeirra í samræmi við það.
En krafan um lækkun skatta á eldsneyti er sjálfsögð og sanngjörn. Bíl-
stjórarnir hafa notið mikils stuðnings almennings í þeirri kröfugerð. Nú er
hins vegar byrjað að örla á því að fólk sé búið að fá nóg. Bílstjórar hafa geng-
ið of langt í aðgerðum sínum með því að teppa algerlega umferð á mik-
ilvægum stofnbrautum eins og Reykjanesbrautinni, í Ártúnsbrekku, á
Hafnarfjarðarvegi og víðar.
Auðvitað er það lögbrot að trufla almenna umferð. Það er ástæða fyrir
því; sérhver truflun á umferð getur valdið slysum, jafnvel alvarlegum slys-
um. Og ábendingar lögreglu og slökkviliðs um að aðgerðir bílstjóra geti taf-
ið ferðir sjúkra- og slökkviliðsbíla eru fullkomlega réttmætar.
Hvað yrði um stuðninginn við málstað bílstjóra ef slys yrði, til dæmis við
það að ökumaður reyndi að komast framhjá tálmum þeirra eða snúa við?
Hvað ef fólk örkumlaðist vegna þess að sjúkrabíll eða slökkvilið tefðist, þeg-
ar lífið liggur við?
Auðvitað geta atvinnubílstjórar sagt að þeir gæti ýtr-
ustu varúðar, en er það að öllu leyti trúverðugt þegar í
þeirra hópi er fólk, sem missir farminn af pallinum hjá
sér á miðjum umferðargötum og keyrir á brýrnar í
bænum?
Það er ákveðin tilhneiging til þess hjá þeim, sem trúa
sterkt á málstað sinn, að halda að beygja megi og
sveigja almennar leikreglur í þágu hans. Atvinnubíl-
stjórar verða að gæta sín á því að ganga ekki of langt; þá
gæti stuðningur almennings við þá gufað upp á svip-
stundu og stjórnvöld fengju afsökun fyrir því að gera
ekki neitt til að lækka eldsneytisverðið.
Málstaður
og aðferðir
SÆKTU LEIÐARANN Á WWW.MBL.IS/PODCAST
Það er þekkt að stofnunum eru
oft áætlaðar of litlar tekjur og það
er fyrirfram vitað að rekstur við-
komandi stofn-
unar muni ekki
ganga upp. Þetta
ættu stjórn-
málamenn svo
sem að skilja því
mörg af þeim
verkefnum sem
standa þeim
nærri koma út
víðsfjarri því sem þeir sjálfir áætl-
uðu. Oft virðist áætlanagerð þing-
manna mikið frekar einkennast af
óskhyggju en raunveruleika. […]
Það er einkennilegt að horfa á
stjórnmálamenn hakka í sig
vandaða stjórnendur eins og frá-
farandi forstjóra Landspít-
alans …
Guðmundur Gunnarsson
gudmundur.eyjan.is
BLOGGARINN
Óskhyggja
Forstjórinn minn er hættur.
Hætti í gær skilst mér. Ég veit
ekki hvort ég á að vera sæl eða
súr. Hafði voða
lítið af mann-
inum að segja. Sá
hann ekki „live“
fyrr en ég var bú-
in að vinna á spít-
alanum í tæp þrjú
ár. Það var fyrir
tveimur mán-
uðum. Tilefnið
var starfsmannafundur á geð-
sviðinu. Svo sá ég hann aftur á
föstudaginn. Fattaði ekki strax að
þetta var hann. Ég sá bara aftan á
mann í síðum frakka sem bank-
aði fast á skrifstofudyr eftir skrif-
stofudyr. Enginn kom til dyra.
Veit ekki hvar allir voru. Ég sá
aumur á manninum …
Hafrún Kristjánsdóttir
habbakriss.eyjan.is
Forstjórinn
Vonandi una Austfirðingar vel
við sitt álver, mér dettur ekki í
hug að óska þeim neins annars.
Hins vegar hrýs
mér hugur við
þeim áformum
sem uppi eru um
stjóriðjur á Suð-
urnesjum og
Húsavík svo ekki
sé nú talað um ol-
íuhreinsunarstöð
fyrir vestan. Vona
ég heitt og innilega að stjórnvöld
taki af skarið og stöðvi fyrirhug-
aðar framkvæmdir, helst um alla
ókomna framtíð og beini kröft-
um sínum í aðrar áttir. Við þurf-
um síst af öllu á álbræðslum og
olíuhreinsunarstöðvum að halda
til að tryggja framtíð okkar og
þeirra sem taka við af okkur.
Pálmi Gunnarsson
palmig.blog.is/
Enga stóriðju
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@24stundir.is
Í frétt 24 stunda er því haldið fram að ís-
lenskar konur séu með lægri laun en kyn-
systur þeirra annars staðar í Evrópu í samanburði við
karla. Þessi fullyrðing er rakin til kannana sem gerðar
voru á vegum ETUC og VR. Kannanir sem gerðar hafa
verið meðal opinberra starfsmanna sýna að launamunur
kynjanna er enn meiri. Könnun á vegum Starfsmanna-
félags Reykjavíkurborgar sýnir að karlar eru 19,2% hærri,
samkvæmt skýrslu Félagsvísindastofnunar HÍ. Þessi mikli
munur á launum karla og kvenna hjá Reykjavíkurborg er
staðreynd þrátt fyrir að ráðist hafi verið í kostnaðarsamt
starfsmat sem leiðrétta átti kynbundinn launamun hjá
borginni.
Einnig kemur fram að skýringin kunni að vera sú að kon-
ur hafi verið lítt sýnilegar í forystusveit verkalýðsfélaganna
í Evrópu. Það er ekki skýring sem á við. Konur hafa alltaf
verið áberandi í forystu verkalýðshreyfingarinnar. Sem
dæmi má nefna Jóhönnu Egilsdóttur, Framsókn, Að-
alheiði Bjarnfreðsdóttur, Sókn, Guðríði Elíasdóttur,
Framtíðinni, Hafnarfirði, Þórunni Sveinbjörnsdóttur,
Sókn, Ingibjörgu Guðmundsdóttur, sem er varaforseti
ASÍ og formaður Landssambands verslunarmanna,
Ragnheiði Guðmundsdóttur, formann Símamanna, Sjöfn
Ingólfsdóttur, formann Starfsmannafélags Reykjavík-
urborgar, Sigríði Kristinsdóttur, formann Starfsmanna-
félags ríkisstofnana, auk undirritaðrar í forystu fyrir SLFÍ.
Skýringuna er mun frekar að leita í karllægum viðhorfum
til verðmæta starfa kvenna í samfélagsþjónustunni.
Konur geta horft til bjartrar framtíðar m.t.t. til yfirlýsinga
ríkisstjórnarinnar. Þar segir:
,,Ríkisstjórnin vill koma á samvinnu aðila vinnumark-
aðarins og hins opinbera um að leita
leiða til að eyða þessum launamun á
almennum vinnumarkaði. End-
urmeta ber sérstaklega kjör kvenna
hjá hinu opinbera, einkum þeirra
stétta þar sem konur eru í miklum
meirihluta. Stefnt skal að því að
jafna stöðu kvenna og karla í
nefndum og stjórnunarstöðum á
vegum ríkisins.“
Höfundur er formaður
Sjúkraliðafélags Íslands.
Launamunur er staðreynd
ÁLIT
Kristín Á.
Guðmundsdóttir
kristin@slfi.is
Vallý s.510 3728
Böddi s.510 3726
ÐIÐALBUNNIVTA
atvinna@24stundir.is
PANTIÐ
GOTT
PLÁSS
Í TÍMA