24 stundir - 04.04.2008, Blaðsíða 40
24stundir
? Fyrir skömmu hitti ég kínverskankennara í unglingaskóla sem staddur varhér á landi til að kynna sér starfsemiframhaldsskóla. Honum blöskraði holda-far margra Íslendinga og spurði hvað viðgerðum til að koma í veg fyrir að þjóðinþyngdist. Kínverjar hefðu skynjað að þeirværu að þyngjast og ákveðið að grípa til
aðgerða. Nú eru nemendur hættir að
mæta með nesti í skólann og allir borða
næringarríkan, hefðbundinn mat í mötu-
neyti skólans. Þannig sagði hann minni
hættu á að ungmenni ánetjuðust óholl-
ustu og skyndibita. Þá eru nemendur
skyldaðir til að stunda líkamsrækt í skól-
anum utan hefðbundins skólatíma. Hóp-
leikfimi er á skólalóð í hálftíma á hverjum
morgni og leikfimi og sund eru óbreytt á
stundaskrá. Til viðbótar þurfa nemendur
að sinna líkamsrækt í klukkustund áður
en skóladegi telst lokið. Hann sagði ekki
flókið að koma því við og ekki þyrfti dýra
aðstöðu. Margir nemendur stundi hefð-
bundnar keppnisíþróttir sem þeir fái
metnar og lítill vandi væri að skipuleggja
hreyfingu fyrir hina. Stór hluti nemenda
fari í klukkustundar gönguferð, sumir
hjóli um hverfið, aðrir æfi dans og enn
aðrir stundi hefðbundna kínverska leik-
fimi úti. Ákveðinn hópur nemenda hefur
umsjón með líkamsræktinni og fylgist
með að samnemendur mæti og taki þátt.
Kannski er þetta þjóðráð. Gefa nem-
endum hollan og góðan mat og auka
íþróttaiðkun og líkamsrækt í skólunum
og venja þannig einstaklingana á góða siði
strax frá bernsku. Er það ekki þess virði
að prófa?
Hvað ungur nemur gamall temur
Þóra Þórarinsdóttir
Styður aukna atferlis-
mótun í skóla.
YFIR STRIKIÐ
Eiga skólar
að móta
lífsvenjur?
24 LÍFIÐ
Sala á Oroblu-sokkabuxum hefur
aukist eftir að stúlknasveitin Nylon
hóf að sitja fyrir í auglýs-
ingum fyrir fyrirtækið.
Nylon eykur sölu
á sokkabuxum
»34
Leikkonan Þórdís Elva Þorvalds-
dóttir leikur ólétta fegurðardrottn-
ingu í nýjum saka-
málaþáttum.
Þórdís leikur ólétta
fegurðardrottningu
»38
Hjalti Úrsus hefur stefnt Frétta-
blaðinu vegna fréttar sem hann tel-
ur ranga og vill 10
milljónir í skaðabætur.
Vill 10 milljónir
í skaðabætur
»38
● Vinn með gleði
„Mér finnst það
alveg stórkostlega
skemmtilegt, ég er
orðin svo póst-
módernísk að ég
vinn með gleði
með hverjum
þeim sem deilir
hugsjónum með mér,“ segir Mar-
grét Pála Ólafsdóttir stofnandi og
framkvæmdastjóri Hjallastefn-
unnar aðspurð um hvernig vinstri-
konu frá gamalli tíð þætti að hljóta
frelsisverðlaun SUS en Margrét
Pála veitti þeim viðtöku í gær.
„Það er mikið frelsi að vera ekki
bundin einum né neinum flokki,“
segir hún.
● Rokkstjóri eða
upplýsinga-
fulltrúi
„Ég er áhugamað-
ur um jákvæða
ímyndarbyggingu,
og hef það
kannski frá rokk-
stjóraembættinu,“
segir Hálfdán Bjarki Hálfdán-
arson, sem hingað til hefur verið
þekktur fyrir að vera rokkstjóri
tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég
suður, en sækir nú um stöðu upp-
lýsingafulltrúa Ísafjarðarbæjar. „Ég
hef unnið hinum megin við borðið
í nokkur ár, þar sem ég hef verið
blaðamaður á BB, og er því vel
kunnugur öllum hnútum hér í
bænum.“
● Konur í stjórnir
„Ég held að karlar
í þessum stjórn-
um hafi ekkert
endilega þessa
þekkingu,“ segir
Stefanía G. Krist-
insdóttir en hún
sá um námskeið á
vegum Tengslanets austfirskra
kvenna í lok mars fyrir konur sem
vilja komast í stjórnir fyrirtækja.
„Aðalatriðið í þessu er að koma
þeim konum á framfæri sem eru
reiðubúnar og tilbúnar og hafa
þekkingu,“ segir hún en bætir við:
„Auðvitað viljum við auka þekk-
ingu karla í stjórnunum líka.“
Ritstjórn
Sími: 510 3700
ritstjorn@24stundir.is
Auglýsingar
Sími: 510 3700
auglysingar@24stundir.is
Hvað ætlar þú að
gera í dag?
- kemur þér við
www.hi.is
*M.v. niðurstöðu í könnun Gallup.
Umsóknir um nám á haustmisseri 2008
» Tekið er við umsóknum um grunnnám til 5. júní nk. Sótt er um rafrænt á www.hi.is
» Umsóknarfrestur um framhaldsnám er breytilegur milli deilda. Sótt er um á vefsíðum deilda.
Sjánar nánar á www.hi.is
» Umsóknareyðublöð liggja einnig frammi á Þjónustuborði Háskólatorgs alla virka daga.
Háskóli Íslands varð
langefstur á prófinu!
Valið er auðvelt – Tökum við umsóknum núna
Háskóli Íslands nýtur trausts 90% þjóðarinnar*,
en það er mesta traust sem nokkur stofnun nýtur á Íslandi.
Svo afdráttarlaust traust til öflugasta háskóla Íslendinga
er hvatning öllum þeim sem hyggja á háskólanám.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/H
S
K
4
17
60
0
3/
08