24 stundir - 31.05.2008, Blaðsíða 2

24 stundir - 31.05.2008, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 24stundir www.IKEA.is/sumar © In te r I KE A Sy st em s B .V . 2 00 8 úti á túni 4.995,- BROMMÖ sólstóll, gegnheill akasíuviður, B48xH89 cm. WWW.EBK.DK Danskir gæðasumarbústaðir (heilsársbústaðir) Hafðu samband við okkur fyrir frekari upplýsingar: Anders Ingemann Jensen farsími nr. +45 40 20 32 38 netfang: aj@ebk.dk Ert þú í byggingarhugleiðingum? VÍÐA UM HEIM Algarve 18 Amsterdam 18 Alicante 19 Barcelona 21 Berlín 29 Las Palmas 24 Dublin 19 Frankfurt 27 Glasgow 20 Brussel 16 Hamborg 29 Helsinki 21 Kaupmannahöfn 22 London 18 Madrid 15 Mílanó 21 Montreal 13 Lúxemborg 22 New York 19 Nuuk 0 Orlando 23 Osló 20 Genf 18 París 22 Mallorca 23 Stokkhólmur 24 Þórshöfn 13 Vestlæg átt, 3-8 m/s. Skýjað en úrkomulítið um vestanvert landið. Rigning norðaustantil fram eftir degi, en léttir síðan til. Bjartviðri suðaustanlands. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast í inn- sveitum. VEÐRIÐ Í DAG 8 9 8 8 10 Allt að 17 stiga hiti Þykknar upp með vaxandi suðaustanátt suð- vestanlands, 10-15 m/s og fer að rigna síð- degis. Fremur hæg suðlæg átt norðan- og austanlands og bjart lengst af. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast norðanlands. VEÐRIÐ Á MORGUN 8 9 10 9 9 Þykknar upp „Því miður held ég að margir heyrnarlausir mikli fyrir sér að fara í framhaldsnám. Margir sem hafa flosnað upp úr menntaskóla sjá ekki fyrir sér að háskólanám sé mögu- leiki. Það er mikil synd því það eina sem stendur í veginum fyrir aukinni menntun er hræðsla við að nálgast hana,“ segir Þórður Örn Kristjáns- son. Hann varði meistararitgerð sína um áhrif dúntekju á hitastig í hreiðri, atferli og varpárangur æð- arkollna við Háskóla Íslands nú í vor. Hann missti heyrn á öðru eyra 15 ára og hinu 18 ára vegna sjald- gæfs erfðasjúkdóms. Hann segir þjónustu við heyrn- arlausa í Háskólanum mjög góða. „Eftir að heyrnarlaust fólk fór að sækja sér aukna menntun hefur ver- ið ráðinn sérstakur námsráðgjafi sem kemur til móts við þá,“ segir hann og bætir við að aukin tölvu- tækni, sms og msn hafi rofið ein- angrun heyrnarlausa að miklu leyti. Þórður Örn var með frjálsa mæt- ingu í tíma og segir kennarana mjög sveigjanlega. „Í fyrirlestrum var ég alltaf með rittúlk þar sem inntakið átti það til að ruglast við þýðingu frá íslensk- unni yfir á táknmál en það er allt öðruvísi mállýska. Ég notaði hins- vegar táknmálstúlk alltaf í verkleg- um tímum og stundum úti þar sem rittúlkurinn hentaði verr. Þetta fyr- irkomulag gekk rosalega vel,“ segir Þórður Örn sem ætlar að slappa af í sumar en stefnir á doktorsnám. fifa@24stundir.is Með rittúlka og táknmálstúlka til skiptis Þögnin stöðvar ekki námið Meistari Þórður stefnir á doktorspróf þrátt fyrir heyrnarleysi. Guðmundur Þóroddsson hefur látið af starfi sem forstjóri Orku- veitu Reykjavíkur og REI, sam- kvæmt samkomulagi sem undirrit- að var af Guðmundi og Kjartani Magnússyni, stjórnarformanni Orkuveitunnar. Guðmundur segist ekki hafa átt frumkvæðið að starfs- lokum sínum. „Ég var nú ekki beinlínis viðbú- inn þessu. Ég er þó ánægður með að bera ekki ábyrgð á þróun Orku- veitunnar undanfarna daga.“ Guð- mundur sagði engan trúnaðarbrest hafa komið upp á milli sín og stjórnarinnar og útilokaði ekki að einhver verkefni fylgdu honum á útleið sinni. „Það er aldrei að vita hvað gerist í framtíðinni.“ Guð- mundur fær greiddan uppsagnar- frest sem nemur 12 mánuðum. Breytingar hjá Orkuveitunni og REI Forstjórinn látinn taka pokann sinn Sjötíu og sjö kaupsamningum var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu vik- una 23. til 29. maí, sem er 28 samn- ingum meira en vikuna á undan. Þar af voru 58 samningar um eignir í fjölbýli, ellefu samningar um sérbýli og átta um annars konar fasteignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 2,2 milljarðar og meðalupphæð á samning rúmar 29 milljónir, sam- kvæmt tölum frá Fasteignamati rík- isins. Í sömu viku var fjórum kaupsamningum þinglýst á Akureyri og vörðuðu þeir allir eignir í fjölbýli. Veltan í heild var 65 milljónir og meðalupphæð á samning ríflega sextán milljónir. Á Árborgarsvæðinu var sjö samningum þinglýst á sama tíma, þar af þremur um eignir í fjölbýli og fjórum um eignir í sérbýli. Var heildarvelta fasteigna- viðskipta á svæðinu 134 milljónir og meðalupphæð á samning rúmar nítján milljónir. þkþ Meira selt af fasteignum Á morgun verður ár liðið síðan reykingabann tók gildi á öllum veitingahúsum og börum. „Þetta er bara búið að vera æð- islegt, vinnuloftið er allt annað og lyktin líka,“ segir Sunnefa Burgess, vaktstjóri á veit- ingastaðnum Sólon. Sunnefa seg- ir breytingarnar hafa verið auð- veldar og viðskiptavinir tekið þeim með jafnaðargeði. „Fólk stekkur bara út að reykja.“ Hún segir að þótt viðskiptavinum hafi fækkað lítillega til að byrja með hafi þeir allir komið aftur. aak 366 reyklausir bardagar Eftir Þóru Kristínu Þórsdóttur thorakristin@24stundir.is Atvinnulaust foreldri sem ekki hef- ur daggæslu fyrir barn sitt, er ekki „vinnufært“ og fær því ekki at- vinnuleysisbætur, samkvæmt upp- lýsingum frá Vinnumálastofnun. Engar greiðslur eru greiddar heimavinnandi foreldrum séu allir fullfrískir, samkvæmt upplýsingum frá Félagsmálaráðuneytinu. Kvennagildran til fyrir „Þetta er vítahringur. Án dag- gæslu er ekki hægt að fá vinnu á daginn en án bóta er erfitt að greiða fyrir gæsluna,“ segir Sveind- ís Ýr Sveinsdóttir, móðir í miðbæn- um sem er að ljúka fæðingarorlofi og að leita sér að vinnu. „Maður hefur heyrt heim- greiðslur gagnrýndar fyrir að vera kvennagildra og halda konum heima en þessi kvennagildra var til fyrir,“ segir hún. Ekki sérkjör fyrir atvinnulausa Reykjavíkurborg niðurgreiðir daggæslu fyrir börn hjóna við níu mánaða aldur. Fá öryrkjar og námsmenn slíka niðurgreiðslu þegar barnið nær sex mánaða aldri en slík kjör bjóðast ekki atvinnu- lausum, samkvæmt upplýsingum frá leikskólasviði borgarinnar. Þar sem Sveindís er gift og dóttir hennar hefur ekki náð tilskildum aldri, þyrfti Sveindís því að greiða fullt verð ef hún fengi pláss hjá dagforeldri. Er algengt verð um 80 þúsund fyrir heilsdagspláss hjá dagforeldri í Reykjavík, samkvæmt óformlegri könnun blaðamanns. Þriggja mánaða tekjuleysi Samkvæmt lögum um fæðing- arorlof er hvoru foreldri fyrir sig tryggðir óskiptanlegir þrír mánuðir auk þriggja mánaða sem þau deila í sameiningu. „Þetta þýðir að auðveldlega get- ur myndast þriggja mánaða gat þar sem annar aðilinn er tekjulaus heima. Ef fólk hefur ekki efni á því að báðir fara í fæðingarorlof hefur það væntanlega ekki heldur efni á að greiða fullt verð fyrir daggæslu í þrjá mánuði,“ segir hún. Ekki náðist í félagsmálaráðherra vegna málsins í gær. Engar bætur án daggæslu  Foreldrar hafa engan rétt á atvinnuleysisbótum ef börnin eru ekki í gæslu  Þetta er vítahringur, segir Sveindís Ýr Sveinsdóttir Daggæsla Ekki hafa allir efni á daggæslu. ➤ Samkvæmt lögum um at-vinnuleysisbætur þarf við- komandi að vera reiðubúinn til að ráða sig til allra al- mennra starfa til að eiga rétt á bótum. ➤ Þá þarf hann að vera fullfærtil vinnu og tilbúinn til að taka tilboði um vinnu þegar það býðst. ATVINNULEYSISBÆTUR STUTT ● Leiðrétt Ranghermt var í frétt blaðsins í gær af dómi Hæsta- réttar yfir nauðgara, að dómi Héraðsdóms Suðurlands hefði verið hnekkt og hinum dæmda gert að greiða tvær milljóni r í bætur. Hið rétta er að Héraðs- dómur Suðurlands hafði dæmt manninn í fjögurra ára fangelsi og staðfesti Hæstiréttur þá nið- urstöðu héraðsdóms en lækk- aði bætur niður í eina og hálfa milljón. þe ● Leiðrétt Sagt var í 24 stund- um í gær að Smáralind væri í meirihlutaeigu Baugs. Það er ekki rétt. FL Group á þriðjung í eignarhaldsfélagi Smáralindar, en Saxbygg tvo þriðjuhluta. Leiðrétt Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera missagt í blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.