24 stundir - 31.05.2008, Blaðsíða 54

24 stundir - 31.05.2008, Blaðsíða 54
54 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 24stundir ÍÞRÓTTIR ithrottir@24stundir.is a Hjartað sækir alltaf heim þrátt fyrir allt og þó hér sé allt sem hugurinn girnist þá útiloka ég ekkert. Fyrst vil ég þó hjálpa Blikum að komast í hæstu hæðir. Forseti Alþjóðaknatt-spyrnusambandins, SeppBlatter, átti ekki í vandræðum með að fá kjörna fulltrúa á ársþingi FIFA til að fallast á svokallaðar sex-plús-fimm-tillögur sínar sem fela í sér að fjöldi erlendra leikmanna í hverju liði megi aðeins vera fimm talsins í hvert skipti. Virðist engu skipta fyrir Blatter að Evrópusambands- reglur meina FIFA að setja slík takmörk enda stríða þau gegn ákvæðum um frjálsa för ferða- fólks milli landa innan sam- bandsins. Í kjölfar áhuga Chelsea áFernando Torres í vikunnibrugðust forráðamenn Liverpool skjótt við og nú er ljóst að Spánverjinn fær nýjan og betri samning til undirskriftar á næstu dög- um. Segja enskir miðlar að laun hans fari í tæpar fjórtán millj- ónir króna á viku auk bónusa. Nýr vinkill í framhalds-söguna um framtíðCris- tiano Ronaldo er kominn í ljós. Guðfaðir kappans segist þess fullviss að Ronaldo ætli til Real Madrid en vilji ekki tjá sig um það fyrr en að Evrópumótinu í knatt- spyrnu loknu. Er karlinn kynntur til sögunnar sem mik- ilvæg persóna í lífi stórstjörn- unnar og sé það rétt hafa orð hans talsvert vægi. Ein heitasta stjarnan íspænska boltanum,David Villa, ætlar einnig að bíða með allar til- kynningar um framtíð sína fram yfir EM en hann er sterklega orðaður við Real Ma- drid og sögusagnir herma að samningur sé þegar undirrit- aður þó ekki sé það opinbert ennþá. Fimm ný andlit prýða liðPortsmouth næsta tíma-bil ef Harry Red- knapp fær sínu framgengt. Eru Peter Crouch og Emile He- skey þráfald- lega orðaðir við liðið og vitað er að karlinn var á ferð um Frakkland í vikunni og er búist við tíðindum úr þeirri ferð fljótlega. Eftir Albert Örn Eyþórsson albert@24stundir.is Sóknarmanninn hollenska Prince Rajcomar þekkja allir unnendur ís- lenska fótboltans enda hefur hann staðið sig vel í framlínu Breiðabliks síðan hann gekk til liðs við þá grænu veturinn 2007. Hann hefur verið nokkuð iðinn fyrir framan mörk andstæðinga og vakið athygli og aðdáun fyrir frábæra boltameð- ferð. Enda kemur á daginn þegar hús er tekið á honum að hann þolir fátt verr en varnarbolta og hristir hausinn þegar á hann er minnst. Upp og niður Aðspurður hvernig nokkuð skær hollensk unglingastjarna endar í búningi Breiðabliks norður í ball- arhafi brosir hann og segir það hljóma mun verr en það sé. „Sannleikurinn er sá að ég var í þeirri stöðu heima að boðið um að koma hingað kom á frábærum tíma og mér líður mjög vel bæði hér á Íslandi og eins hjá Breiða- bliki. Í stuttu máli þá gerðist það að eftir að hafa vakið athygli stærri liða í Hollandi meðan ég lék með Fortuna Sittard sem unglingur vildi umboðsmaður minn þá að ég tæki tilboði FC Utrecht sem þá var að gera ágæta hluti í efstu deild og það væri klárlega næsta skref á ferli mínum. Fyrir lá einnig tilboð frá Feyenoord og ég var mun spennt- ari fyrir því þótt ég sé aðdáandi Ajax og sá sem spilar fyrir Ajax mun aldrei spila fyrir Feyenoord og öfugt. En umboðsmaðurinn var harður á að Utrecht væri vænlegri kostur og aðeins löngu seinna komst ég að því að umboðsmað- urinn minn og þjálfari þess liðs voru afar góðir vinir. Þar átti ég 19 ára gamall að nota fyrsta árið til að læra og koma inn sem varamaður í leikjum liðsins og annað árið var svo talað um að ég yrði í aðallið- inu. Ég lét slag standa og lítið var lið- ið á tímabilið þegar ég fór að spila reglulega án þess þó að skora. En gengi liðsins það árið var dapurt og ekki leið á löngu áður en þjálfarinn gerðist örvæntingarfullur og breytti liðinu og áherslum reglu- lega og ég lenti meira og meira á bekknum aftur og endaði á að fara til Den Bosch, deild neðar, í láni árið eftir. Þar var ég aðeins að finna mig á ný þegar afi minn lést en við vorum afar nánir og ég náði mér einfaldlega ekki á strik eftir það.“ Til Íslands Eftir að hafa verið án liðs í sex mánuði haustið og veturinn 2006 kom Rajcomar hingað í febrúar 2007 og viðurkennir að hafa verið á báðum áttum um það enda enga hugmynd haft um Ísland eða Ís- lendinga. „Kuldinn var nú ekkert að gera sig en mér var tekið frábærlega af þjálfaranum og leikmönnum Breiðabliks og þar hef ég eignast marga mjög góða vini og það er meginástæða þess að ég ákvað að framlengja samninginn hversu vel mér líður hér.“ Fordómalausir Íslendingar Ekki aðeins ber Rajcomar Ís- lendingum vel söguna heldur segist hann aldrei hafa orðið fyrir for- dómum hér á landi. „Það er kannski ótrúlegt en satt því það er eitt það leiðinlegasta við að spila í Hollandi eða í Þýskalandi að þar eru bullandi fordómar hvort sem er á fótboltavellinum eða úti í matvöruverslun og þar getur eng- inn með minn hörundslit átt pen- inga án þess að hann sé dópsali eða þaðan af verra. Hér er allt annað og betra að vera.“ Fara eða vera En Ísland verður seint vettvang- ur fyrir stórstjörnur í fótboltanum og Rajcomar viðurkennir að þrátt fyrir að hafa gert tveggja ára samn- ing geti hugsast að hann fari eftir leiktíðina nú. „Hjartað sækir alltaf heim þrátt fyrir allt og þó hér sé allt sem hug- ur girnist þá útiloka ég ekkert. Ég vil hjálpa Blikum að komast í hæstu hæðir og vonandi tekst það og ef skemmtileg erlend lið sýna mér áhuga eftir leiktíðina skoða ég það með opnum huga.“ Unir hag sínum vel Sóknarmaður Blika, Prince Rajcomar, er afar sáttur á Íslandi og land og þjóð hefur komið honum þægilega á óvart. Stórkostlegt á Íslandi  Einn frískasti erlendi knattspyrnumaðurinn í íslenska boltanum er Prince Rajcomar hjá Breiðabliki  Hann gefur Íslendingum toppeinkunn og hefur ekki fundið vott af fordómum ➤ 2007Átján mörk í deild og bikar í alls 30 leikjum. ➤ 2008Tvö mörk í fjórum leikjum hingað til. MARK Á LEIKINN Engir fordómar Rajcomar hefur aldrei orðið fyrir fordómum af neinu tagi. „Já, það er kominn tími til að kenna Íslendingum hvernig á að kasta bolta af alvöru,“ segir Raj Bonifacius í gam- ansömum tón en Raj er einna þekktastur fyrir tenniskennslu og hefur þjálfað Íslendinga í þeirri grein um áraraðir. Nú blæs hann til sóknar hvað hafnabolta varðar og hefur fengið hingað til lands tvo fulltrúa frá evrópska hafna- boltasambandinu í því augna- miði að breiða út þá íþrótt hérlendis. Verða þeir með út- breiðslunámskeið nú í dag og vonast til að í framtíðinni sjá- ist Íslendingar spila hafna- boltann sem víðast. Að kasta eða ekki að kasta Þjálfari Detroit Red Wings fer óhefðbundnar leiðir með leik- menn sína í miðri úr- slitakeppninni um Stanley- bikarinn í íshokkí. Er staðan 2-1 fyrir Rauðvængjum og næsti leikur í kvöld en enginn leikmanna hefur snert kylfu né komið nálægt ís síðan leik- ur þrjú fór fram. Þvert á móti spila leikmenn liðsins gam- aldags evrópskan fótbolta og skiptast á að fara í sánaböð og nudd á virtu heilsuhóteli. Slakandi Aðdáendur Tiger Woods geta farið að taka gleði sína á ný en kappinn stefnir fullum fetum að því að keppa á Opna bandaríska meistaramótinu þann 12. júní næstkomandi sem yrði hans fyrsta mót um tæplega þriggja mánaða skeið. Fór Woods undir hnífinn vegna langvinnra hnévanda- mála í apríl síðastliðnum en endurhæfingin gengur eftir áætlun. Kappinn er þrátt fyrir þetta hlé langefstur á peninga- listanum í golfinu á þessu ári með 362 milljónir króna í verðlaunafé úr sex mótum meðan Phil Mickelson í öðru sæti hefur náð sér í 284 millj- ónir á helmingi fleiri mótum. Segir sitt um styrk kappans andlega og líkamlega að hafa náð þeim árangri með meiðsl í hné um margra mánaða skeið. Tvær vikur í Tiger SKEYTIN INN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.