24 stundir - 31.05.2008, Blaðsíða 14

24 stundir - 31.05.2008, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 24stundir 24stundir Útgáfufélag: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Árvakur hf. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Björg Eva Erlendsdóttir Magnús Halldórsson Þröstur Emilsson Elín Albertsdóttir Auglýsingastjóri: Gylfi Þór Þorsteinsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is, 24stundir@24stundir.is, Prentun: Landsprent ehf. Áfall. Fólkið sem lenti í skjálftanum á Suðurlandi er margt í sjokki, eðli- lega. Eigur margra ónýtar og hús skemmd. Sem betur fer ekkert mann- tjón. Það er guðs mildi og einnig sterkbyggðum mannvirkjum að þakka. Mikilvægt er að fólk bregðist nú rétt við. Taki til dæmis myndir af skemmdunum sem orðið hafa á eigum þess. Viðlagatrygging Íslands bætir að mestu tjón á mannvirkjum af völdum jarðskjálfta, en eins og stendur í fréttatilkynningu viðskiptaráðuneytisins fæst tjón á lausafjármunum að- eins bætt sé tjónþoli tryggður fyrir slíku. Ríkisstjórnin hefur því lofað að koma til móts við þá ótryggðu þegar nánari upplýsingar um tjón liggur fyrir. Veðurstofa Íslands mældi stöðuga eftirskjálfta í fyrrinótt, að jafnaði einn á mínútu. Stærstu skjálftarnir mældust um þrír til þrír og hálfur á Richter. Svo stórir skjálftar voru þó fáir. Margir kusu að sofa í tjöldum. Þótti það öruggara og jafnvel nauðsyn- legt enda allt á öðrum endanum heima fyrir. Næstu dagar fara í að hreinsa til og átta sig á tjóninu sem varð við skjálftann. „Veðurstofan hefur gefið út að harðir eftirskjálftar séu ólíklegir. Það er gott. Þetta eru vonandi lokin á Suðurlandsskjálftum í bili,“ sagði Ingi Bjarnason jarðskjálftafræðingur í viðtali við Kristján Má Unnarsson á Stöð 2 í hádeginu í gær. „Næstu Suðurlandsskjálftar verða eftir 130 ár.“ Það væri í það minnsta vonandi, bætti hann við. 24 stundir taka undir það. Fumlaust samstarf almannavarna, hjálparsveita, lögreglu, sjúkra- flutningamanna, heilbrigðisstarfsmanna og annarra sem hlut eiga að máli hefur skilað sínu. Einu hnökr- arnir komu fram í símakerfinu. Ríkisstjórnin bregst við með því að tryggja notkun tetra-kerfisins, sem reyndist svo vel í fyrradag. Ríkisstjórnin hefur einnig gefið út að ekki verði rifist um kostnað vegna meira álags á sunnlenskar stofnanir. Fé verði til reiðu. Þrátt fyrir skjálftann gengur lífið annars staðar á landinu sinn vanagang. Á endanum verður skjálftinn minning í hugum landsmanna. Misjöfn eftir atvik- um. Mikilvægt er að þeir sem hafa misst sitt gleymist ekki þegar kastljós fjölmiðlanna beinist frá skjálfta- svæðum Suðurlands. Ótryggðir beri ekki tjónið einir SÆKTU LEIÐARANN Á WWW.MBL.IS/PODCAST Þeir í Hagkaup voru að reyna að plata inn á mig kartöflum á 1250 krónur kílóið! Mér fannst það að- eins of dýrt og skilaði kart- öflubakkanum á kassanum. Varð að dröslast með kartöflurnar þangað því þær voru ekki merkt- ar í hillunni. Reyndar var um að ræða niðurbrytjaðar kartöflur í álbakka með einstaka bút af sætum kartöflum – svona 5% af heildinni – sem ætlaðar voru beint á grillið. Þeir kölluðu þetta líka kartöflusalat – en innihaldið var þó bara brytjaðar kartöflur hefðbundnar og sætar með smá jurtaolíu. Hallur Magnússon hallurmagg.blog.is BLOGGARINN 1250 kr. kílóið Af stakri tilviljun var ég staddur með almannavarnaráðherranum á þriðju hæð í dómsmálaráðu- neytinu þegar skjálftinn reið yf- ir svo að segja á sömu mínútu og hann sleit fundi í heimsminja- nefndinni. Við fundum strax að þetta var verulega öflugur skjálfti. Þrettán mínútur liðu áður en Rás 1 greindi frá tíðindum, sem mér fannst ekki góð frammistaða. Maður hélt að eftir skjálftana árið 2000 hefðu þeir vinnureglur um hvernig ætti að bregðast við ef stórskjálfti riði yfir. Á þeim tíma höfðu okkur borist helstu stað- reyndir um stærð skjálftans … Össur Skarphéðinsson eyjan.is/goto/ossur Ekki gott Miklu sterkari hér en skjálftinn um aldamótin. Ég steig ölduna á stofugólfinu að því er virtist í ei- lífðartíma, senni- lega 6-8 sek- úndur. Hvinurinn fór vaxandi þann tíma og datt svo niður. Húsið fór beinlínis af stað. Það sem mér datt í hug var að nú hefði einhvers staðar hrunið. Nú- hefði einhver slasast. Ég hljóp út og á leikskólann – öll börn óhult – þau sem voru inni höfðu skrið- ið undir borð með leikskólakenn- urunum, stöku barn grét. Allir í nettu sjokki. Alls staðar sást fólk flýta sér að vitja barna sinna. Baldur Kristjánsson baldurkr.blog.is Nett sjokk Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@24stundir.is Skjálftarnir á Suðurlandi færa nú bæði sveitarstjórnum og rík- isstjórn verkefni af erfiðustu gerð. Efnahagsþrengingar og eftirlaunaósóminn blikna og gleymast við hliðina á náttúruhamförum á Suðurlandi. Að missa vinnuna, eiga ekki fyrir skuldum eða þurfa að láta á móti sér al- menn gæði hversdagsins er nógu slæmt. En að óttast um líf og limi, finna jörðina opnast, fjöllin hrynja og hús rústast er tilfinning sem fólk skilur ekki einu sinni þótt það hafi sjálft lent í því. Áhrifa frá 2000 gætir enn Nú reynir á samfélagið allt, en ef til vill mest á þá sem taka pólitískar ákvarðanir um hvernig samfélag Ís- land er og hvernig brugðist er við áföllum. „Suður- landsskjálftarnir í júní árið 2000 ollu stórslysi á meg- ináhrifasvæði þeirra.“ Þetta er fullyrt í lokaorðum bókarinnar Þá varð landskjálpti mikill um sam- félagsleg áhrif Suðurlandsskjálftanna fyrir átta árum. „Mælt er með að rannsóknum á þrálátum og viðvar- andi ótta margra þolenda Suðurlandsskjálftanna verði haldið áfram. Sérstök áhersla verði lögð á börn, aldraða og fleiri samfélagshópa.“ Höfundar bókarinnar, Jón Börkur Ákason, Stefán Ólafsson og Ragnar Sigbjörns- son telja langt frá því að áhrifin hafi verið metin eða séu öll komin fram, fimm árum seinna þegar bókin kom út. Margir taka undir þá skoðun. Óttast er um fólk sem upplifði fyrri skjálftana og líka skjálftann í gær þar sem þeir voru harðastir. Stjórnvöld öll og skipulagsyfirvöld hljóta nú að taka með í reikninginn lífsgæði og líðan fólks á svæðinu, hvort það er öruggt eða óttaslegið og hvort því finnst að tekið sé mark á tilfinningum þess, reynslu og ábendingum þegar stórframkvæmdir blasa við. Guðni greinir mikla fyrirmynd „Það er mikill sársauki í þessu, menn horfa á eftir ævistarfi sínu og stórum verkefnum sem átti að hefja í sumar. Nú þarf að hugsa margt upp á nýtt,“ segir Guðni Ágústsson, Flóamaður, þingmaður og fyrrver- andi ráðherra, en skjálftarnir bæði nú og fyrir átta ár- um riðu yfir á hans heimaslóðum. „Mér sýnist bæj- arstjórn og almannavarnir og í raun allir hafa vaknað Eftirskjálftar í mannlífinu SKÝRING Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Ferðaskrifstofa Sjóðheittsólarlottó! Spilaðu með og láttu sólina leika við þig. Fyrstur kemur, fyrstur fær. Nánari upplýsingar og bókanir á www.plusferdir.is Í boði eru 200 sæti til Krítar, Marmaris, Mallorca og Costa Del Sol.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.