24 stundir - 31.05.2008, Blaðsíða 51
24stundir LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 51
Skeifunni 8 - s. 568 2200 - Smáralind - s. 534 2200
www.babysam.is
Hjá okkur fáið þið mikið
úrval af barnabílstólum
Mikki Mús
Dýragarðurinn
ÉG GET ÞVÍ MIÐUR EKKI FARIÐ
Í TENNIS Í DAG... ÉG VERÐ
ÚTI Í ALLT KVÖLD
MIKKI VAR EKKI AÐ
GRÍNAST! HANN ER ALVEG ÚT
ÚR HEIMINUM!
Dagur barnsins þarf að eiga sitt
sérstaka merki og hljóma á sinn
einstaka hátt. Að öllu jöfnu eru
verkefni sem þessi sett í hendur
fullorðna fólksins, en félags- og
tryggingamálaráðherra, Jóhanna
Sigurðardóttir, ákvað að börn og
ungmenni gætu merkt sér daginn
á sinn eigin hátt. Því var efnt til
samkeppni um merki og stef fyrir
dag barnsins, sem stóð frá 9. til 22.
maí.
Ungir sigurvegarar
Hátt á annað hundrað tillögur
að merki og tugur stefja barst
dómnefndum, sem skipaðar voru
fagfólki. Dómnefnd fyrir merki
skipuðu: Halldór Baldursson,
teiknari, Ámundi Sigurðsson,
teiknari og lógómeistari Íslands,
og Guðbjörg Jakobsdóttir hönn-
uður. Dómnefnd fyrir stef skip-
uðu: Felix Bergsson, leikari, söngv-
ari og dagskrárgerðarmaður,
Hansa, leikari og söngkona, og
Jónsi, söngvari og tónlistarmaður.
Verðlaun fyrir besta merkið eru
50.000 kr. og þau hlýtur Bryndís
Jóna Hilmarsdóttir og er hún fædd
árið 1999. Bryndís Jóna stundar
nám í Grundaskóla á Akranesi.
Myndin hennar heitir „Samvera“.
Verðlaun fyrir stef, sem einnig
eru kr. 50.000, hlýtur Kristín
Hrönn, en hún er fædd árið 1991.
Stef Kristínar Hrannar heitir ein-
faldlega Dagur barnsins – með
broskalli.
24 stundir óska sigurvegurun-
um að sjálfsögðu til hamingju
enda ekki slæmt að vera orðin
verðlaunaður listamaður og tón-
skáld á þessum aldri.
Nánari upplýsingar um keppn-
ina og vinningsverkin er að finna á
vefsíðunni www.dagurbarnsins.is.
iris@24stundir.is
Börn bjuggu til merki og tón dags barnsins
Bryndís og Kristín sigruðu
Samvera Vinnings-
myndin hennar Bryndísar.
LEIKUR
KRAKKAKROSSGÁTA
Öxar við ána, árdags í ljóma,
upp rísi þjóðlið og skipist í
sveit.
Skjótum upp fána, skært lúðrar
hljóma, skundum á Þingvöll og
treystum vor heit.
Fram, fram, aldrei að víkja.
Fram, fram, bæði menn og fljóð.
Tengjumst tryggðaböndum,
tökum saman höndum,
stríðum, vinnum vorri þjóð.
Höf: Helgi Helgason / Stein-
grímur Thorsteinsson
Öxar við ána
Þetta er boltaleikur.
Þátttakendur stilla sér upp fram-
an við gluggalausan vegg (bolta-
vegg). Einn byrjar og hendir bolt-
anum í vegginn og segir: „Upp fyrir
Stínu“ (nefnir nafn þess sem á að
grípa boltann). Þá á Stína að grípa
boltann og ef hún gerir það kastar
hún aftur í vegginn og segir: „Upp
fyrir Lalla“ (eða eins og áður segir).
En ef Stína grípur ekki boltann
hlaupa allir frá veggnum á meðan
hún nær í boltann. Þegar hún hefur
náð honum kallar hún: „Stoð“ og
þá eiga allir að stoppa. Nú á Stína
að reyna að hitta einhvern krakk-
ann og ef henni tekst það fær sá
krakki „strik“ en annars fær Stína
það.
Þegar einhver hefur fengið þrjú
strik er hann úr leik.
Hitti Stína krakkann á sá að
kasta í vegginn næst en annars ger-
ir Stína það.
iris@24stundir.is
Boltaleikur
Eitt strik og stoð
KRAKKAGAMAN
lifsstill@24stundir.is a
Af hverju taka Hafnfirðingar alltaf
bílhurð með sér í eyðimörkina?
Til að opna glugga þegar það verður of
heitt.