24 stundir - 31.05.2008, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 24stundir
Árbæjarskóli fagnar 40 ára af-
mæli sínu í dag. Af því tilefni verð-
ur skólinn opinn gestum og gang-
andi milli klukkan 10.00 og 14.00.
„Það verður opið hús hjá okkur þar
sem boðið verður upp á sýningu á
verkum nemenda, uppákomur á
sviði og frumfluttur skólasöngur
sem er saminn af fyrrverandi nem-
anda skólans, Þorvaldi Bjarna Þor-
valdssyni. Það má segja að það sé
tími til kominn að við eignumst
skólasöng, eftir 40 ár! Þá verða
einnig veitingar í boði og allt gert
til að hafa daginn sem eftirminni-
legastan,“ segir Þorsteinn Sæberg,
skólastjóri Árbæjarskóla. Um 800
nemendur sækja skólann, sem var
fyrst staðsettur í samkomuhúsi á
Árbæjarblettinum, en flutti árið
1967 í núverandi húsnæði. tsk
Fagnar fertugsafmælinu með pompi og prakt
Árbæjarskóli með
opið hús í dag
Fimmtudagurinn 29. maí var
enginn venjulegur dagur í lífi Víðis
Reynissonar. Víðir er deildarstjóri
almannavarnadeildar ríkislög-
reglustjóra og var í aðalhlutverki
þegar sterkur jarðskjálfti reið yfir
Suðurland en skjálftinn fannst
rækilega um alla höfuðborgina og
voru starfsmenn, sem allir voru við
vinnu enda skjálftinn á vinnutíma,
fljótir að opna Samhæfingarstöð í
kjallaranum í Skógarhlíðinni.
Eftir Hauk Harðarson
haukurh@24stundir.is
07.00 Dagurinn hjá mérhófst eins og flestir
aðrir dagar. Ég vaknaði, fór í sturtu
og fékk mér morgunverð.
08.00 Kom börnunummínum í skóla, en
þau eru í Snælandsskóla í Kópa-
vogi. Eftir það keyrði ég svo sjálfur
í Skógarhlíðina til vinnu.
08.30 Vinnudagurinn hófstóvenjulega að því
leyti að við byrjuðum á því að
kenna námskeið sem við höfum
verið með í gangi þessa vikuna.
Síðasti hluti þess var fyrir hádegi í
gær en námskeiðið var haldið fyrir
heilbrigðisstarfsmenn sem koma
að vinnu í Samhæfingarstöðinni.
12.30 Námskeiðinu lauken í hádeginu borð-
aði ég svínasteik í mötuneytinu í
Skógarhlíðinni ásamt starfsfólki og
fólkinu sem sótti námskeiðið. Þar
voru málefni líðandi stundar rædd.
13.00 Fór yfir tölvupóstdagsins.
14.00 Hélt stöðufund meðstarfsfólki mínu til
að samhæfa bakvaktir og sumarfrí
og tryggja að það gengi allt saman
upp svo allir gætu tekið það sum-
arfrí sem þeir vildu.
15.45 Ég sat við skrifborðiðmitt og skrifaði
minnisblað um verkefni sem þarf
að sinna þegar almannavarnalögin
taka gildi. Allt í einu byrja ég að
finna fyrir smá skjálfta en hann
ágerðist meira og meira og að lok-
um skalf allt og nötraði á skrif-
borðinu hjá mér. Þegar ég áttaði
mig á að hér væri um að ræða stór-
an jarðskjálfta kallaði ég allt mitt
fólk niður í Samhæfingarstöðina
sem er í kjallaranum hérna í Skóg-
arhlíðinni en skrifstofan mín er
uppi á fjórðu hæð.
15.48 Við vorum kominniður og búin að
virkja Samhæfingarstöðina um það
bil þremur mínútum eftir að við
fundum skjálftann. Þar stjórnaði
ég aðgerðum og var í sambandi við
Veðurstofuna til að fá upplýsingar
um stærð og staðsetningu.
16.00 Vorum komin meðnokkuð nákvæma
staðsetningu á upptökum skjálft-
ans og hvar þörfin á hjálp væri
mest. Hélt áfram að afla upplýs-
inga, var í samskiptum við við-
bragðsaðila og þá sem voru að
vinna á vettvangi. Ég sá til þess
virkja allt það björgunarlið sem
hugsanlega þyrfti á að halda.
17.00 Hélt áfram aðhringja ótal símtöl
sem vörðuðu áætlanagerð og sótti
fundi til að tryggja að allt væri gert
til að þeir sem þyrftu á að halda
fengju aðstoð. Okkar hlutverk er
að samhæfa aðgerðir björgunar-
sveita, slökkviliða, lögreglu, Rauða
krossins, heilbrigðisstarfsmanna og
þeirra sveitarfélaga sem bregðast
við og að tryggja að það umdæmi
sem áfallið dynur yfir fái þá aðstoð
sem það þarf.
18.00 Það er í mínumverkahring að
tryggja upplýsingaflæði til ráð-
herra. Guðlaugur Þór Þórðarson
heilbrigðisráðherra kemur á fund.
18.30 Fundaði í Samhæf-ingarstöðinni með
Birni Bjarnasyni dómsmálaráð-
herra ásamt vísindamönnum frá
Veðurstofunni og Háskólanum.
Borðaði pitsu á hlaupum sem var
pöntuð í Skógarhlíðina.
19.00 Var í viðtali í beinniútsendingu hjá Rík-
issjónvarpinu. Þar gat ég sagt frá
þeirri niðurstöðu vísindamanna að
þeir teldu ekki líkur á öðrum sterk-
um eftirskjálfta þannig að við gát-
um aflétt þeirri ákvörðun að biðja
fólk á Suðurlandi um að halda sig
utandyra.
23.30 Þegar mér finnst viðvera búin að ná góð-
um tökum á aðstæðum og við
sáum að þeir sem virtust ætla sér
að leita aðstoðar í fjölhjálparstöðv-
um okkar voru mættir og það var
komin ró á stjórnkerfið fór ég að
huga að því að fara að sofa eftir
langan dag.
24.00 Var kominn heim ogsofnaði mjög fljót-
lega.
05.57 Vaknaði áður envekjaraklukkan
hringdi, en hún var stillt á 06.00.
Fór í sturtu og fékk mér morgun-
mat en fór svo beint í Samhæfing-
arstöðina.
06.30 Fékk yfirlit yfir stöðumála frá þeim sem
höfðu staðið vaktina yfir nóttina
og tók svo fljótlega aftur við stjórn í
Samhæfingarstöðinni.
08.30 Undirbjó mig fyrirfund með ríkis-
stjórninni.
09.30 Sat ríkisstjórnarfundþar sem var farið yfir
málið og næstu skref í stöðunni
voru rædd.
Það skalf allt
og nötraði
24stundir með Víði Reynissyni, deildarstjóra almannavarna-
deildar sem sá um samhæfingu aðgerða í skjálftanum á fimmtudag
➤ Fæddist 1967 í Vest-mannaeyjum og ólst þar upp
til ellefu ára aldurs.
➤ Er nú giftur og tveggja barnafaðir í Kópavogi.
➤ Hefur verið björgunarsveit-armaður síðan 1986.
➤ Lærði trésmíði og starfaði viðýmislegt þar til hann hóf störf
hjá Almannavörnum ríkisins
árið 2000.
VÍÐIR REYNISSON
24stundir/Júlíus
Hagaskóli fagnar fimmtíu
ára afmæli sínu í dag.
Skólinn var stofnaður
1958, þegar gagn-
fræðaskólinn við Hring-
braut fluttist yfir á Hag-
ana. Af þessu tilefni
verður skólinn opinn al-
menningi milli klukkan
11.00 og 14.00 í dag, þar
sem boðið verður upp á
kaffi og auðvitað afmæl-
isköku í tilefni dagsins.
Allir nemendur skólans hafa unnið hörðum höndum síðustu daga og
vikur að sýningu, sem spannar sögu skólans í máli og myndum og end-
urspeglar samfélagið þann tíma sem skólinn hefur starfað. Af nógu er
að taka, enda hefur margt breyst í þjóðfélaginu á 50 árum. Á myndinni
sjást tveir vaskir nemendur gera klárt fyrir sýninguna. tsk
Hagaskóli í hálfa öld
Sveinn Arason endurskoðandi
hefur verið skipaður í embætti
ríkisendurskoðanda af forsæt-
isnefnd Alþingis. Sveinn tekur
við af Sigurði Þórðarsyni sem
lætur af embætti í sumar.
Fimm manns sóttu um embættið,
Birgir Finnbogason, Óskar Sverr-
isson, Rúnar Bjarni Jóhannsson,
Sigurgeir Bóasson og Sveinn Ara-
son, en Sveinn hefur starfað sem
skrifstofustjóri hjá embætti rík-
isendurskoðanda.
Sveinn Arason
ráðinn
Aðgangur kvenna að réttarríkinu
er til muna lakari en aðgangur
karla, að mati Júditar Resnik, að-
alfyrirlesara á fjórða Tengslaneti
kvenna á Bifröst, sem í þetta sinn
bar heitið konur og réttlæti.
Júdit Resnik er prófessor við
Yale-háskóla. Hún bendir á að
fyrir framan marga réttarsali víða
um heim standi styttur af réttlæt-
isgyðjum en víða um heim sé að-
gangur kvenna að sömu sölum
lítill ef nokkur. Hún lýsti áhyggj-
um af því að í Bandaríkjunum er
farið að leysa lagaleg ágreinings-
efni utan réttarsala. Resnik telur
þá þróun hættulega ekki síst fyrir
konur. Tengslaneti 4 var slitið á
Bifröst síðdegis í gær. Fjöldi ís-
lenskra fyrirlesara talaði á ráð-
stefnunni, en hinn erlendi gest-
urinn var Maud De Boer
Buquicchio, annar fram-
kvæmdastjóri Evrópuráðsins. bee
Réttarríkið er
fyrir karlana
Fermingar í Fríkirkjunni
við Tjörnina 2009!
Fríkirkjan við Tjörnina er óháð landfræðilegum sóknar-
mörkum – svo að þú getur tekið þátt sama hvar þú býrð!
Auk hefðbundinnar fermingarfræðslu verður áhersla lögð
á fræðslu um vímuefnavarnir og almenn mannréttindi.
• Samþjöppuð kennsla - minna rask yfir veturinn.
• Fermingardagur að eigin vali.
• Kennslu og fermingargjöld eru engin!
Skráning fer fram á skrifstofu safnaðarins í Safnaðar-
heimilinu að Laufásvegi 13, Reykjavík. Hún er opinn alla
virka daga frá 9:00 til 14:00 en föstudaga til 12.30.
Verið velkomin
Hjörtur Magni Jóhannsson
Prestur og forstöðumaður Fríkirkjunnar í Reykjavík
Sími: 552 7270, Netfang: frikirkjan@frikirkjan.is,
heimasíða: www.frikirkjan.is